Dagur - 21.08.1985, Page 7
21. ágúst 1985 - DAGUR - 7
an publique-erfiði, eins og það skeði
í Kaupinhafn, omsonst og án betal-
ings“.
En verkið mjakaðist áfram, þótt
hægt færi. Kirkjan var byggð á gamla
kirkjustæðinu, en færð lítið eitt til
suðurs, og var því raskað nokkrum
biskupagröfum, þegar grafið var fyrir
undirstöðum norðurveggjarins, sem
lagður var nær því eftir miðju gólfi
hinnar fyrri kirkju eða aðeins
norðar. Sýnt hefur verið fram á, að
austurgafl kirkjunnar og austurhluti
suðurveggjar, hvíla einmitt á hinum
gamla Auðunarmúr sem undirstöðu
(sbr. Árbók fornleifafélagsins 1960).
Sumarið 1759 var gamla kirkjan rifin
til fulls, en vorið eftir var tekið til við
hleðslu veggjanna, enda kom þá til
Hóla annar múrmeistari, Schlátzer
að nafni. Verkinu miðaði þó enn sem
fyrr hægt áfram. Stóð einkum lengi
á tréverki öllu. Fyrir því var timbur-
sveinn að nafni Christen Willumspn.
En haustið 1763 átti að heita svo, að
kirkjan væri fullger, en það er ber-
sýnilegt, að mikið flaustursverk hef-
ur verið á frágangi hennar að síðustu
og reynt að hliðra sér hjá að full-
komna verkið á þann hátt, sem til var
ætlazt í upphafi. Turninn varð aldrei
reistur, né heldur var settur söngpall-
ur í kirkjuna, og timburþak af van-
efnum í stað steinþaks. Sýnilega hafa
allir aðiljar verið orðnir þreyttir á
þessu verki, sem staðið hafði í full
sex ár og kostað líklega þrefalt áætl-
unarverð. Er og fullyrt, að af því
mikla fé, sem safnazt hafði til endur-
reisnar Hólastaðar, hafi verulegur
hluti verið gripinn til að hressa við
Björgvinjarkaupstað eftir staðar-
brunann mikla 1757. Varð því lítið
eftir til staðarbóta að öðru leyti, og
Gísli biskup, sem mjög hafði mæðzt
í kirkjusmíðarstarfinu, varð að þola
það hlutskipti að búa í hinum niður-
nídda biskupsbústað lítt eða ekki
viðgerðum. En það er hróður Gísla
biskups að hafa látið reisa Hóla-
kirkju, hina fyrstu steinkirkju á ís-
landi.
Kirkjan var tekin út að viðstödd-
um smiðunum 14. sept. 1763. Er sú
lýsing nákvæm og rækilega upp talið
allt, sem ábótavant þótti. Virðast út-
tektarmenn ánægðir með verk Sab-
inskys, en miður með verk timbur-
sveinsins Willumsöns. Loks var svo
kirkjan vígð 20. nóv. 1763 með
mikilli viðhöfn, og er því öllu lýst vel
af séra Þorsteini Péturssyni á Staðar-
bakka.“
Ýmsar breytingar
í áranna rás
Dómkirkjan á Hólum hefur tekið
ýmsum breytingum í tímans rás,
aðallega að innanverðu. Hér er ekki
rúm til að lýsa henni grannt að innan.
Þcgar bændaskóli hafði verið stofn-
settur á Hólum var ákveðið að fara
út í stórfellda viðgerð á kirkjunni.
Þá var ekki byrjað að meðhöndla
gömul hús af þeirri varfærni sem nú
er gert og virðist sem viðgerðin hafi
verið eitthvað handahófskennd. Til
að mynda voru milligerð, bekkir og
gráður tekin í burtu og annað sett í
þeirra stað, en gamla tréverkið selt á
upboði. Sem betur fer keypti Jón
Björnsson, skólastjóri, sumt af því
og varðveittist það hjá honum, þar til
Matthías Þórðarson, þjóðminjavörð-
ur, gerði gangskör að því að koma
kirkjunni í það horf sem áður var.
Kirkjan er nú næsta lík því innan,
sem hún var í upphafi, nema hvað
tréverkið er allt nýtt, þótt með gamla
sniðinu sé.
Turninn, sem stendur norðan við
kirkjuna, var reistur árið 1950 fyrir
frumkvæði Sigurðar Guðmundsson-
ar, arkitekts. Byggingarmeistari var
Hróbjartur Jónasson, sem einnig
hefur unnið mikið að lagfæringu
kirkjunnar. Turninn er helgaður
minningu Jóns biskups Arasonar.
Nú hefur Hóladómkirkja látið
verulega á sjá og sumir gripir hennar
hafa legið undir skemmdum. Það er
því ljóst, að á næstu árum þarf að
gera á henni verulegar endurbætur,
til að Hólar rísi undir nafni sem bisk-
upsstóll. - GS
Útvegum með stuttum fyrirvara
píanó
og flygla
af ýmsum gerðum.
»
m
'S 22111
Auglýsing um lögtök
Þann 15. ágúst sl. kvaö bæjarfógetinn á Akureyri
upp lögtaksúrskurð fyrir gjaldföllnum en ógreidd-
um gjöldum til bæjar- og hafnarsjóðs Akureyrar
álögðum árið 1985.
Gjöldin eru þessi:
Útsvör, aðstöðugjöld, fasteignaskattur, holræsa-
gjald, vatnsskattur, lóðarleiga og hafnargjöld.
Lögtökin verða látin fara fram án frekari fyrirvara
fyrir ofangreiridum gjöldum, á kostnað gjaldenda
en ábyrgð bæjar- og hafnarsjóðs, að liðnum átta
dögum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Bæjargjaldkerinn Akureyri.
jur óskast
Amtsbókasafnið á Akureyri vilf ráða bókasafns-
fræðing í hálft starf, frá 1. október næstkomandi,
eða síðar. Umsóknarfrestur er til 15. september
nk.
Upplýsingar um starfið veitir Aðalbjörg Sigmars-
dóttir héraðsskjalavörður í síma 96-24141.
Amtsbókavörður.
AKUREYRARBÆR
Lokahátíð
Lokahóf Vinnuskólans verður haldið í Dynheim-
um nk. föstudag 23. ágúst. Hundadagar eru senn
á enda og því vel við hæfi að fagna. Mætum því
öll í skrautklæðum og förum í skrúðgöngu kl.
20.00. Á eftir verður síðan skrautklæðadiskó með
tilheyrandi ívafi og er því æskilegt að þið mætið
förðuð og í furðufötum.
Skemmtum okkur öll í lok starfssumars.
Ath. Þetta hóf er eingöngu fyrir starfsfólk Vinnuskolans.
AKUREYRARBÆR
Starfsmann vantar
hjá Strætisvögnum Akureyrar frá 1. september.
Starfið felst í þrifnaði á vögnum S.V.A.
Vinnutími er eftir kl. 24.00 virka daga.
Uppl. gefnar á skrifstofu S.V.A. að Draupnisgötu
3 til 27. ágúst.
Forstöðumaður.
Eigum sumarhjólbarða
í flestum stærðum,
sólaða og nýja.
Véladeild
símar 21400 og 22997.
Gúmmíviðgerð
Körfur á hjól
Nýkomið körfur á hjól
Póstsendum
KOMPAN
Skipagötu 2, Akureyri, sími 96-25917.
Á söluskrá:
Tjarnarlundur: 4ra herb. íbúð á 4. hæð.
Hamarstígur: 6 herb. efri hæð í tvíbýlishúsi.
Gránufélagsgata: 4ra herb. íbúð á 2. hæð. Laus
strax.
Lækjargata: 2-3ja herb. ódýr íbúð. Góð kjör.
Norðurgata: 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli.
Vanabyggð: 5 herb. raðhúsíbúð.
Smárahlíð: 3ja herb. íbúð á 1. hæð.
Skarðshlíð: 2ja herb. íbúð á 3. hæð. Laus strax.
Eldra einbýlishús á Svalbarðseyri.
Hrafnagilsstræti: 5 herb. íbúð á efri hæð í tvíbýli.
Reykjasíða: Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.
Tjarnarlundur: Lítil 2ja herb. íbúð á 2. hæð. Svala-
inngangur.
Bakkahlíð: Einbýlishús á einni hæð.
Stórholt: 4-5 herb. íbúð á neðri hæð. Henni geta
fylgt tvö herbergi, eldhús og snyrting í kjallara. Til
sölu sem ein heild eða sitt í hvoru lagi.
Eyrarlandsvegur: 5 herb. íbúð á efri hæð.
Norðurgata: 4ra herb. íbúð í parhúsi.
Jörvabyggð: 5 herb. einbýlishús með bílskúr.
Brekkugata: 4ra herb. íbúð.
Kringlumýri: Efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr.
Hannyrðaverslun í Miðbænum, húsnæði og lager.
Símsvari tekur við skilaboðum
allan solarhringinn.
Fasteignasalan hf opið frá
Granufélagsgötu 4, .
efri hæð, sími 21878 5—7 e.h.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viöskiptafræðingur
Hermann R. Jonsson, sölumaður--------------