Dagur - 21.08.1985, Side 9
21. ágúst 1985 - DAGUR - 9
''sjy " ■ &■ , *
Tekst Kristjáni Hjálmarssyni að verja Norðuriandsmeistaratitilinn á heima-
velli. Mynd: gk-.
Fyrsta leik-
vika hafin
íslenskar getraunir eru í þann
mund að hefja starfsemi sína
fyrir næsta ieikár. Fyrsta leik-
vika er 24. ágúst en þá fara
fram þeir leikir sem fyrsti get-
raunaseðillinn samanstendur
af. Umboðsmenn um alit land
hafa þegar fengið seðlana svo
nú ættu ailir að geta orðið sér
úti um seðil.
Getraunaseðlana er hægt að
fá með mismunandi fjöída raða
og kostar hver röð aðeins kr.
3,75. Nú er í fyrsta sinn boðið
upp á seðil með 64 röðum. Með
því gefst kostur á að tvítryggja
leiki þ.e.a.s. setja má tvö merki
við sex leiki.
Síðastliðið starfsár voru
greiddir út vinningar fyrir meira
en 20 milljónir króna og í 17.
leikviku var greiddur út stærsti
vinningur í sögu fyrirtækisins,
rúmlega hálf milljón króna. Af
þessum tölum sést að vonin um
vinning þarf ekki að vera óraun-
hæf auk þess sem hér er um að
ræða mjög einfaldan og skemmti-
legan leik sem allir geta verið
þátttakendur í.
Það er útbreiddur misskilning-
ur að hér sé um að ræða happ-
drætti einungis ætlað knatt-
spyrnumönnum. F*að er okkar
reynsla að vinningshafar hafa
ekki síður verið úr hópi þeirra
sem lítið fylgjast með knatt-
spyrnu.
Ráðinn hefur verið nýr fram-
kvæmdastjóri íslenskra getrauna,
Birna Einarsdóttir viðskiptafræð-
ingur og einnig var skipuð ný
stjórn í febrúar síðastliðnum.
Það er ætlun þessara aðila að
auka vöxt og viðgang íslenskra
getrauna.
Norðurlandsmót í golfi:
Kylfingar flykkjast
til Húsavíkur
Kylfingar á Norðurlandi munu
eflaust fjölmenna til Húsavík-
ur um helgina, en þá fer þar
fram Norðurlandsmót á velli
Golfklúbbs Húsavíkur.
Mótið fer fram á laugardag og
sunnudag og verða leiknar 36
holur með: og án forgjafar í
karla-, kvenna og unglingaflokki.
Skráning stendur yfir hjá golf-
klúbbunum á Norðurlandi.
Búast má við spennandi
keppni í öllum þessum
flokkum, í karlaflokki mun
Húsvíkingurinn Kristján Hjálm-
arsson berjast við kylfinga frá
Akureyri um titilinn, í kvenna-
flokki er líklegast að Inga Magn-
úsdóttir fái harða keppni frá
Jónínu Pálsdóttur og Sigríði B.
Ólafsdóttur og í drengjaflokkn-
um getur allt gerst í baráttu pilta
frá Akureyri og Húsavík.
Akureyrarmót 6. flokks síðari umferð:
KA-pollar sigruðu
í öllum leikjum
Óhætt er að segja að KA hafi
sýnt yfirburði í leikjum í 6. flokki
Akureyrarmótsins. En seinni
umferð var leikin mánudaginn
19. ágúst. Úrslit urðu þessi:
KA-a-Þór-a 7:1
Þórleifur Karlsson skoraði 3
Gunnlaugur Torfason 2
Leó Örn Þorleifsson 1
Matthías Stefánsson 1
Elmar Sindri Eiríksson skoraði
fyrir Þór.
KA-b - Þór-b 4:0
Þórhallur Hinrikss. skoraði 2
Óli Björn Ólafsson 1
Ingimar Karlsson 1
KA-c - Þór-c 1:0
Ágúst Ágústsson skoraði fyrir
KA.
Hópferð til
Ólafsfjarðar
- á leik KA og Leifturs.
Efnt verður til hópferðar frá Ak-
ureyri á leik Leifturs og KA á
laugardaginn. Farið verður frá
Lundarskóla klukkan 12.30 á
laugardaginn og til baka að leik
loknum. Þeir sem vilja fara með
og hvetja KA-menn í þessum leik
hafi samband við Hauk Ásgeirs-
son í síma 26222 eða Gunnar Ní-
elsson í síma 22287.
Það er því KA sem er Akureyr-
armeistari í 6. fl. a og b. Úrslit
fengust ekki í c-flokki þar sem
Þór sigraði í fyrri leiknum, og
stóðu því félögin jafnt að vígi eft-
ir seinni leikinn. Leikurinn sem
liðin leika í haustmóti verður lát-
inn ráða um úrslit.
LeikKA
og ÍBÍ
frestað
Leik KA og ÍBÍ í 2. deild-
inni í knattspyrnu sem vera
átti á Akureyrarvelli í kvöld
hefur verið frestað.
Ekki er vitað hvað olii þess-
ari frestun en ákveðið hefur
verið að liðin leiki á Akureyri
á föstudagskvöld í næstu viku.
3. deild NA-riöill:
Hart barist um
efsta sætiö
Hörð barátta og tvísýn er
framundan í NA-riðli 3. deild-
ar í knattspyrnu. Það eru þrjú
lið, Einherji, Tindastóll og
Magni sem berjast um efsta
sætið í riðlinum og 2. deildar
sætið.
Einherji er efstur eins og er með
32 stig en Magni og Tindastóll
eru með 29 stig hvort lið. Ein-
herji á hins vegar eftir að leika
við bæði Magna og Tindastól og
víst er að ekkert þessara liða ætl-
ar sér annað en sigur í riðlinum.
Lið HSÞ-b situr hins vegar eitt
á botninum og virðist ekkert geta
bjargað því frá falli.
Næsta umferð verður leikin á
laugardaginn. Þá mætast Þróttur
og Leiknir á Neskaupstað, Valur
og Magni á Reyðarfirði, Huginn
og HSÞ-b á Seyðisfirði og Ein-
herji og Tindastóll á Vopnafirði.
Staðan:
32
29
29
25
18
16
14
11
Markahæstir:
Bjarni Kristjánsson. Austra 10
Eiríkur Sverrisson, Tindastóli 8
Hringur Hreinsson. Magna 8
Jón Sveinsson, Val 8
Stefán Guðmundsson. Einherja 7
Einherji 14 10 2 2 32:15
Magni 14 9 2 3 29:16
Tindastóll 14 8 5 1 19:6
Leiknir F 14 8 1 5 20:19
Austri 15 4 6 5 24:21
Þróttur N 15 4 4 7 20:21
Valur Rf 14 4 2 8 20:27
Huginn 14 3 2 9 16:33
HSÞ-b 14 1 2 11 17:39
Okkur varð svolítið á í messunni við uppsetningu á prjónaþættin-
um í síðasta helgarblaði. Þar segir Halla í uppskrift að unglinga-
peysu: „Prjóni nú munsturprjón öðrum megin að framan, eins og
teikningin sýnir . . .“
En því miður gleymdum við að birta teikninguna, en hér með
er bætt úr því.
Li r SLBTV (. - SRUáBÍn!'