Dagur - 28.08.1985, Page 3
28. ágúst 1985 - DAGUR - 3
„Northwind“ á „heimavelli“.
„Norðanvindur“
■ ■■ / ■ / ■ i ■
- til sýnis á Akureyri
Norðanvindur (Northwind),
íshrjótur bandarísku strand-
gæslunnar kemur til hafnar á
Akureyri á morgun, fimmtu-
dag.
Skipið er nýkomið frá Reykja-
vík þar sem tekinn var um borð
hópur vísindamanna sem starfa
mun að haffræðilegu rannsókn-
arverkefni við norðausturströnd
Grænlands. Gögnin, sem aflað
verður, verða notuð við leiðrétt-
ingu siglingakorta, jarðfræði-
rannsóknir og til að kynnast nán-
ar hreyfingum sjávar á þessu
svæði. Isbrjóturinn hefur iðulega
verið notaður í kringum Græn-
land. Northwind er fyrst og
fremst ætlaður til að brjóta ís,
bæði til að halda opnum siglinga-
leiðum og fara á undan flutninga-
skipum.
Skipstjórinn og áhöfnin á
Northwind bjóða hverjum sem
áhuga hefur um borð milli klukk-
an 13.00 og 16.00 föstudaginn 30.
ágúst. Par geta menn fræðst um
skipið og heimskautasvæðin.
Sýndar verða sjónvarpsmyndir af
ísbrjótnum að störfum, stórum
ísjökum, jöklum, heimskauta-
dýrum og Eskimóaþorpum.
Northwind var hleypt af stokk-
unum árið 1945 og hefur skipið
unnið til margra verðlauna fyrir
vísindarannsóknir og einnig hef-
ur skipið verið gert út til leitar-
og björgunarleiðangra.
(Úr fréttatilkynningu Menningarstofnunar
Bandaríkjanna.)
Prestafélag Hólastiftis:
Nauðsyn að
fjölga biskupum
Prestafélag Hólastiftis hins
forna hélt aðalfund sinn í
sumarbúðum ÆSK við Vest-
mannsvatn sl. mánudag. Þar
var samþykkt eftirfarandi til-
laga:
„Aðalfundur Prestafélags hins
forna Hólastiftis haldinn að Vest-
mannsvatni 26. ágúst 1985 bendir
á nauðsyn þess að fjölga bisk-
upum í landinu. Fundurinn fagn-
ar vaxandi áhuga og lýsir ein-
dregnum stuðningi við sérstakt
embætti biskups í Hólastifti sam-
kvæmt starfsmannafrumvarpi
þjóðkirkjunnar er kirkjuþing
hefur samþykkt og hlotið hefur
mikla umræðu og víðtækan
stuðning. Hvetur fundurinn
stjórnvöld landsins til þess að
taka frumvarpið allt til meðferð-
ar og jákvæðrar afgreiðslu á
komandi þingi.“
Samkvæmt því frumvarpi sem
vitnað er til í framangreindri
samþykkt Prestafélags Hólastiftis
er gengið út frá endurreisn bisk-
upsstóls að Hólum.
í stjórn Prestafélags Hólastiftis
eru sr. Sigurður Guðmundsson
vígslubiskup Grenjaðarstað, sr.
Bolli Gústavsson Laufási, sr.
Hjálmar Jónsson prófastur á
Sauðárkróki, sr. Birgir Snæ-
björnsson Akureyri og sr. Róbert
Jack Tjörn.
Fjölmenn-
asti kór
sem heim-
sótt hefur
Akureyri
Einn stærsti kór á Norður-
löndum heldur tónleika í Ak-
ureyrarkirkju sunnudaginn 1.
september kl. 20.30.
Kórinn er skipaður ung-
mennum á aldrinum 17-20 ára,
sem öll stunda nám við Sankt
Annae menntaskólann í Kaup-
mannahöfn. Kórinn og stjórn-
andi hans Ebbe Munk hafa hald-
ið tónleika víða um heim m.a. í
Englandi, Frakklandi, Þýska-
landi og ísrael og hlotið hvar-
vetna mikið lof fyrir.
Sankt Annae menntaskólinn er
víðþekktur fyrir þá góðu tónlist-
arkennslu sem hann lætur nem-
endum sínum í té. Skólinn var
upphaflega stofnaður árið 1929
vegna starfsemi Drengjakórs
Kaupmannahafnar, en sá kór
hefur jafnan þótt meðal fremstu
drengjakóra Evrópu.
Á efnisskrá kórsins verður
m.a. tónltst eftir Vaughan Will-
iams, Henrik Rung, Vagn Holm-
boe og Hándel ásamt ýmsum
dönskum þjóðlögum. Þetta er
fjölmennasti kór sem heimsótt
hefur Akureyri, en alls munu um
140 kórfélagar syngja á tónleik-
unum. Kórinn heldur einnig tón-
leika í Reykjavík.
Blomberq
Stílhrein hágæða heimilistæki
2ja ára ábyrgð
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
B % ■■■ NÝLAGNIR
Ci aaag ■ VIOGEROIR
wriÆAr verslun
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
Eigummikið
og gott úrval
af sjónvörpum
SHARP
Einnig úrval
af video-tækjum
Verð frá