Dagur


Dagur - 18.09.1985, Qupperneq 3

Dagur - 18.09.1985, Qupperneq 3
18. september 1985 - DAGUR - 3 Húsavík: Tauþiykk og tóvinna - Skipst á kunnáttu við handavinnu „Við ætlum að Iæra íslensku tóvinnuna frá grunni. Kénnar- arnir eru hér á efri hæðunum,“ sagði Monika Magnúsdóttir um leið og hún sýndi handa- vinnustofu á neðstu hæð Dval- arheimilisins Hvamms á Húsa- vík. • Þar sat Guðrún Bragadóttir og kepptist við að vefa en umhverfis hana stóðu vefstólar með upp- settum öllum tegundum af sígild- um vefnaði. Síðan í fyrrahaust hefur verið mjög skemmtilegt samstarf milli fbúanna í Hvammi og hóps af konum sem áhuga hafa á handa- vinnu. Ein þeirra vinnur hlutastarf við föndurkennslu í Hvammi og hin- ar aðstoða eitt kvöld í viku við að leiðbeina t.d. við glermálun, tau- þrykk, jólaföndur og í haust á að hefjast handa við bútasaum. í staðinn hafa þær lært að jurtalita band, spinna hrosshár, bregða gjarðir og næst á dagskrá er tóvinnan. „Hér er samhjálp í hámarki," segir Mónika. „Það er svo ánægjulegt að vinna með íbúun- Guðrún Bragadóttir og Monika Magnúsdóttir við einn vefstólinn. um hérna og áhugi okkar á að kynnast eldri aðferðum er sá sami og þeirra að kynnast nýjum. Ein kann eitthvað sem hún kenn- ir öllum hinum. Fleiri eru vel- komnar í hópinn." IM Vinsamleg ábending - Bílstjórar fá sendingu frá lögreglunni Mörgum ökumanninum á Ak- ureyri hefur eflaust brugðið í brún einhvern morguninn að finna miða frá Lögreglunni á Akureyri undir þurrkunni á framrúðunni. Venjan er að slíkir miðar séu ýmist sektar- miðar vegna vangoldinna stöðumælagjalda ellegar fyrir- mæli um að færa bifreiðina til skoðunar án tafar. Að þessu sinni var þó ekkert slíkt á ferð- inni og ekki er fráleitt að ætla að einhver hafl andað Iéttar. „Þegar skólarnir eru að byrja og nánast allan veturinn erum við með eins mikið eftirlit og við get- um í námunda við skólana,“ sagði Ólafur Ásgeirsson yfirlög- Lögreglan Akureyri Xgjeti ökumaöur. Nú þessa dagana eru skólar bœjarins aö taka til starfa. I grunnskólum Akureyrar eru nú um 25oo nemendur, og eru þeir flestir á leiöinni í skólann nú á svipuöum tíma og þú ferö til vinnu þinnar. Aktu því gœtilega, en meö því stuölar þú aö slysa- lausri umferö. regluþjónn í samtali við blaða- mann. „Við vorum að velta því fyrir okkur hvað við gætum helst gert til að stuðla að slysalausri umferð og ákváðum að fara þessa leið við að koma skilaboðum áleiðis til ökumanna. Þegar menn _____^.ögreglan Akureyri. lesa þetta muna þeir kannski frekar eftir því að aka varlega. Þetta er vinsamleg ábending frá okkur og við vonum að bíl- stjórar taki þetta vel upp,“ sagði Ólafur Ásgeirsson að lokum. - BB. KAWYI píanó Verð frá kr. 95.850.- W :;SUIMIMUHLÍÐ urihBUÐIN ® 22111 Útsölunni er lokið en verðið hækkar lítið Vorum að fá hina margeftirspurðu hvítu íþrottasokka með röndum. Verð aðeins kr. 60.- Mislitir sokkar st. 25-40. Verð kr. 65.- Herra og drengja nærbuxur. Verð aðeins kr. 65.- Byssueigendur athugið Vorum að fá læsingar á allar gerðir af byssum. Verð aðeins kr. 570.- Eyfjörö !*! Hjalteyrargötu 4 - sími 22275 ■■■■ Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar framúr þarf að gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan ekur þarf að hægja ferð. Stefnuljósin er sjálfsagt að nota. Minnumst þess að mikil inngjöf leiðir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt er farið ökum við á þá í loftinu. Opnuðum föstud. 6. sept. glæsilega kápuverslun að Hafnarstræti 88. Verðum ávallt með nýjustu efni og liti 3 boðstólum. Kápusalan Hatnarstræti 88 Sími 25250 Opið 9-6 og laugardaga 8-12. Póstsendum

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.