Dagur - 18.09.1985, Side 9
18. september 1985 - DAGUR - 9
„Þokkalega
ánægður“
„Mér fannst leikurinn of köfl- Sveinsson af línunni, síðan Jakob
óttur hjá mínum mönnum og
einnig of margar feilsendingar.
Baráttan var góð í mönnum og
í heild er ég þokkalega ánægð-
ur“, sagði Ljubo Lazig, þjálf-
ari KA eftir að Valsmenn
höfðu sigrað þá með 24
mörkum gegn 18.
Leikurinn var jafn í byrjun eða
þar til staðan var 4:4. Þá kom
slæmur kafli hjá KA og Vals-
menn breyttu stöðunni í 10:4.
Eftir 12 mínútu kafla án marks
skoruðu þeir bræður Erlingur og
Jón sitt hvort markið og breyttu
stöðunni í 10:6. Valdimar bætti
við 11. marki Vals og svo öðru
strax á eftir. Staðan í hálfleik
11:8 Val í hag.
Jón skoraði strax í upphafi síð-
ari hálfleiks 9. mark KA úr hraða-
upphlaupi. Jakob skoraði 12.
mark Vals og Þorbjörn það 13.
Erlingur svaraði með marki úr
langskoti, Theódór bætti við 14.
marki Vals og Valdimar því 15.
Anton komst í gegn um vörn
Vals og skoraði 11. mark KA.
Valdimar var enn á ferðinni í
horninu með 16. mark Vals og
Þorbjörn G. skoraði 17. úr lang-
skoti. Þá svöruðu Jón og Sigurð-
ur Pálsson með tveimur mörkum,
Jón úr víti en Siggi með glæsilegu
langskoti. Þá bætti Theódór við
18. marki Vals. Anton skoraði
14. mark KA, næstu þrjú mörk
skoruðu Valsmenn, fyrst Geir
úr horninu og loks Valdimar úr
víti.
Jón skoraði 15. mark KA úr
víti og Valdimar fór eina ferð enn
inn úr horninu og skoraði 22.
mark Vals. Guðmundur skoraði
úr hraðaupphlaupi 16. mark KA,
Jakob bætir við 23. marki Vals.
Síðustu tvö mörk KA skoraði svo
Jón Kristjánsson, það fyrra með
langskoti en það síðara úr víti.
Lokaorðið átti svo Geir Sveins-
son er hann skoraði 24. mark
Vals á frekar auðveldan hátt.
Bestir í liði KA voru þeir
Sigmar Þröstur, markvörður,
Jón, Erlingur og Sigurður
Pálsson. Hjá Val voru þeir bestir
Eilert markvörður, horna-
mennirnir Valdimar, Jakob og
Geir á línunni. Markahæstir
í liði KA voru: Jón Kr. 10 (4),
og Erlingur 3 mörk. Markahæstir
í liði Vals voru: Valdimar 8 (2),
Jakob 6 og Geir 5 mörk.
Halldór
Maik og
Siguroli
Jón Kristjánsson er hér í háflugi yfir vörn Valsara, sem gera hvað þeir geta
til að stöðva hann. Mynd: KGA.
- í 21. árs liðið
Tveir leikmenn Þórs, þeir
Halldór Áskelsson og Siguróli
Kristjánsson, og einn frá KS,
Mark Duffield hafa verið vald-
ir í landslið íslands (21 árs og
yngri) sem á að leika gegn
Spáni ytra í næstu viku.
Halldór og Mark eru ekki ný-
liðar þegar landslið er annars
vegar, hafa leikið bæði í a-lands-
liði og liðinu undir 21 árs, en Sig-
uróli er þarna að leika í fyrsta
skipti í 21 árs liðinu. Hann lék
sitt fyrsta keppnistímabil með
meistaraflokki Þórs í sumar og
stóð sig með mestu prýði og var
oft besti maður Þórs og jafnan í
hópi bestu leikmanna liðsins.
Leikur liðsins á Spáni á mið-
vikudag er síðasti leikurinn í riðl-
inum og þurfa Spánverjar sigur
til að komast í úrslit HM.
„Sá ekki ástæðu til að
Víkingur færi í lyfjapróf
Æfingar ÍFA
Vetrarstarf íþróttafélags fatlaðra
Akureyri byrjar á laugardag og
verða æfingar sem hér segir. í
íþróttahúsi Glerárskóla á laugar-
dögum kl. 10 f.h. Sund er í sund-
laug Akureyrar sunnudaga kl. 17
til 18. Líkamsrækt í endurhæfing-
arstöðinni Bjargi laugard. kl. 16
til 17. Verið er að undirbúa æf-
ingaraðstöðu fyrir bogfimi í Höll-
inni og geta þeir sem áhuga hafa
á þeirri íþrótt haft samband við
formann félagsins Tryggva Har-
aldsson í síma 22363.
Fréttir þess efnis að kraftiyft-
ingamaðurinn Víkingur
Traustason frá Akureyri hafði
neitað að gangast undir lyfja-
próf eftir Norðurlandamótið í
kraftlyftingum í Noregi um
helgina hafa að vonum vakið
mikla athygli. Víkingur vann á
mótinu til gullverðiauna og
sagði í fyrstu fréttum að hann
hefði verið sviptur þeim verð-
launum og að sögn munu
norsku blöðin ekki hafa vand-
að honum kveðjurnar.
Víkingur er enn erlendis og
því ekki hægt að ræða þetta mál
við hann að sinni. Dagur hafði
því samband við formann Kraft-
lyftingaráðs Akureyrar Flosa
Jónsson sem vildi ekkert um mál-
ið segja en vísaði á Ólaf Sigur-
geirsson formann Kraftlyftinga-
sambands Akureyrar.
„Ég sá ekki neina ástæðu til
þess að Víkingur færi í lyfjapróf
ef Norska íþróttasambandið
krefðist þess þar sem það sam-
band var ekki mótshaldari, held-
ur Kraftlyftingaráð Norðurlanda
en þar á ég sæti í stjórn. Ég sagði
Víkingi því að fara ekki í þetta
próf,“ sagði Ólafur Sigurgeirs-
son. - Víkingur hefur hins vegar
sagt að ástæða þess að hann fór
ekki í prófið hafi verið sú að
hann var að mótmæla fram-
kvæmd mótsins.
Ólafur sagði að Víkingur hefði
ekki verið sviptur verðlaunum
sínum á mótinu. Hann var spurð-
ur hvers vegna kraftlyftingamenn
vildu þennan „hasar“ við íþrótta-
yfirvöld og hvort hann gerði sér
ekki grein fyrir því að þessi fram-
koma liti illa út í augum almenn-
ings, það væri ekki annað að sjá
en að þarna væri óhreint mjöl í
pokahorninu.
„Það var ætlun okkar þegar við
stofnuðum Kraftlyftingasamband
íslands að verða aðili að ÍSÍ en
við gerum það ekki ef það kostar
það að Jón Páll Sigmarsson verð-
ur dæmdur í keppnisbann. Ann-
ars finnst mér að ÍSÍ hafi ekki
mikinn áhuga á að fá okkur í sinn
félagsskap.“
- Nú er það regla að lyfjaprófa
alla keppendur á Norðurlanda-
mótum í lyftingum. hvers vegna
ekki þegar kraftlyftingamenn
eiga í hlut?
„Þetta er dýrt fyrirtæki og eng-
in ástæða til þess þegar hægt er
að láta einhvern annan gera þessi
próf. Við viðurkennum hins veg-
ar ekki rétt Norska íþróttasam-
bandsins til þess að taka þetta
próf þar sem það var ekki aðili að
þessu móti,“ sagði Ólafur.
Verðlaunahafar í mótunum tveimur. Efrí röð f.v.: Sigurður H. Ringsted, Einar Guðnason, Þórhallur Pálsson,
Sverrir Þorvaldsson, Björn Axelsson, Hörður Tuliníus, Ágúst Einar Birgir Björnsson, Magnús Gíslason, Magnús
Karlsson. Fremri röð f.v.: Sigríður B. Ólafsdóttir, Sólveig Skúladóttir, Erla Adolfsdóttir, Jónína Pálsdóttir, Inga
Magnúsdóttir. Mynd: gk-.
Glæsileg
aukaverðlaun
Eins og við sögðum frá í blað-
inu sl. mánudag voru tvö opin
mót hjá Golfklúbbi Akureyrar
um síðustu helgi, „Myndlistar-
mót“ fyrir konur og „Minning-
armót“ fyrir karla.
Við greindum frá úrslitum með
og án forgjafar í blaðinu þá, en til
mótanna var einnig gefinn fjöldi
aukaverðlauna. Listamennirnir
Aðalsteinn Vestmann, Guð-
mundur Ármann, Kristinn G.
Jóhannsson, Óli G. Jóhannsson,
Kári Sigurðsson, Ragnar Lár og
Örn Ingi gáfu verðlaun til
„Myndlistarmótsins“. Jónína
Pálsdóttir hlaut þrenn þeirra, fyr-
ir sigur án forgjafar, og fyrir að
vera næst holu í upphafshöggi á
18. braut báða dagana.
Nokkur fyrirtæki á Akureyri
gáfu verðlaun til minningar um
láfna starfsmenn, en fyrirtækin
voru Iðnaðardeild Sambandsins,
Vör hf., og K. Jónsson. Þá gaf
Vangur hf. í Reykjavík auka-
verðlaun og einnig Magnús Guð-
mundsson skíðakennari í Banda-
ríkjunum.
Áuk þeirra verðlauna sem við
gátum um í blaðinu á miðvikudag
fékk Hörður Túliníus verðlaun
fyrir að vera næstur holu á 6.
braut, Magnús Karlsson á 4.
braut og Sigurður H. Ringsted á
18. braut, en kúla hans hafnaði
aðeins 0,5 cm frá holu eftir upp-
hafshögg!
Magnús Gíslason fékk verð-
laun fyrir besta nettóskor fyrri
daginn og Birgir Björnsson sams
konar verðlaun fyrir síðari
keppnisdag.
Næsta mót hjá GA er Firma-
keppni, en úrslit hennar fara
fram nk. laugardag.