Dagur - 03.10.1985, Qupperneq 3
3. október 1985 - DAGUR - 3
Skipið er vel búið tækjum eins og sjá má. Hér er verið að leggja síðustu hönd á verkið - fægja skjái o.fl.
Mynd: KGA
Þórður Jónasson EA 350:
Endurbætur
fyrir 7,5 milljónir
Miklar endurbætur hafa verið
unnar á nótaskipinu Þórði
Jónassyni EA 350, en skipið
hefur legið við bryggju á Akur-
eyri að undanförnu.
Að sögn Hreiðars Valtýssonar
útgerðarmanns var skipt um brú
á skipinu. Nýja brúin er stærri og;
hærri en sú gamla sem þótti of lág
eftir að byggt var yfir þilfar
skipsins. Ennfremur var sett í
skipið nýtt astiktæki (omni
sonar) frá Skanmar Inc. í Kan-
ada, aflamælir fyrir nót og tog-
veiðar, dagsbirturadar og fleiri
tæki.
Borðsalur skipsins var stækk-
aður og innréttaður að nýju.
Aðalverktaki við þessar endur-
bætur var Vör hf., Norðurljós sá
um raflagnir og Hljómver um
niðursetningu tækja.
Hreiðar Valtýsson sagði að
kostnaðarverð við þessar endur-
bætur væri um 7,5 milljónir
króna, en Þórður Jónasson held-
ur nú til loðnuveiða. Eigandi
skipsins er Valtýr Þorsteinsson
hf. Akureyri.
í gang
að tilhlutan Svæðisstjórnar
Norðurlands. Þátttakendur
voru frá Blönduósi, Akureyri
og Húsavík.
Leiðbeinendur voru Hallgrím-
ur Gíslason senator, fráfarandi
varalandsforseti og Jóhannes Sig-
fússon svæðisstjóri Norðurlands.
Jóhannes sagði helstu markmið í
vetur vera námskeiðahald og
fjölgun félaga í félögunum. Síð-
ustu helgina í október yrði haldið
svæðismót á Akureyri fyrir
Norðurlandssvæði. Þar yrðu ýmis
námskeið á dagskrá, og einnig
færi fram rökræðukeppni milli JC
Akureyrar og JC Héraðs. IM
Húsavík:
Vetrarstarf JC
Vetrarstarf JC hreyfíngarinnar Námskeið fyrir varaforseta var
á Norðurlandi er að hefjast. haldið á Húsavík um helgina
Hallgrímur Gíslason senator, Jóhannes Sigfússon svæðisstjóri og Þóra
Guðnadóttir varalandsforseti, ásamt þátttakendum á námskeiðinu.
Mynd: IM
Tískuljós
og lampar.
Falleg og
góð vara.
Opið á laugardögum 10-12 f.h.
'ftcUoVINNUSTQFAN
Kaupangi Sími 22817.
NUDD-OG GUFUBAÐSTOFAN
SOLSTOFA
Tungusíðu 6, Akureyri
auglýsir breytta tíma
frá og með 1. október
Konur Karlar
Sunnudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
8.00-17.00
13.00-23.00
8.00-17.00
8.00-23.00
8.00-17.00
9.00-19.00
9.00-13.00
17.00-23.00
17.00-23.00
17.00-23.00
Óskum eftir að taka á leigu
4ra herb. íbúð
AugllT
/4UGLYSING/4STOF/4 SIMI 2 6911
Kvöld og helgarsími 25349.
KFUM og KFUK á Akureyri:
Starfið að hefjast
Kristilegt félag ungra manna
og Kristilegt félag ungra
kvenna eru félög hér í bænum,
sem starfa fyrir börn og ungl-
inga sem leikmannastarf innan
okkar lúthersku kirkju.
Næstkomandi laugardag hefst
félagsstarfið með starfinu fyrir
yngstu deildina, börn frá 7-12
ára. Fundir yngstu deildarinnar
eru á þremur stöðum í bænum. í
vetur verða í fyrsta sinn fundir
sveitanna í Glerárhverfinu í nýja
félagsheimilinu í Sunnuhlíð.
Fundir verða því ekki í Glerár-
skólanum í vetur.
Fundir sveitanna verða þannig
í vetur: 1. sveit í Kristniboðshús-
inu Zíon. KFUM drengir 7-12
ára kl. 10.30, en KFUK stúlkur
7-12 ára kl. 1 eftir hádegi. At-
hugið breyttan fundartíma.
2. sveit í Lundarskóla bæði
KFUM og KFUK kl. 10.30 eins
og verið hefur.
3. sveit í Sunnuhlíð. KFUK
stúlkur 7-12 ára kl. 10.30 en
KFUM drengir 7-12 ára kl. 1 eft-
ir hádegi. Athugið breyttan fund-
artíma.
12 ára drengir og stúlkur geta,
ef þau vilja heldur, sótt fundi
unglingadeilda, sem eru kvöld-
fundir og verða auglýstir með
fundarboði.
Sunnudagssamkomur kl. 8.30
e.h. verða í Sunnuhlíð flest
sunnudagskvöld í vetur þar sem
allir eru velkomnir. Samkomur
verða auglýstar síðar.
KFUM, KFUK og kristniboðs-
félögin standa saman að öllum
samkomunum.
Stjórnir félaganna.
Vaxtarrækt
Nú er allt komid
í fullan gang
hjá okkur.
Almennir tímar:
Mánud.-föstud. kl. 17-22.
Laugard. og sunnud. kl. 10-15.
Kvennatímar:
Mánud. og fimmtud. kl. 20.30.
Ný og mjög árangursrík
prógrömm í
kvennatímunum.
Kennarar Guðrún og Kristjana.
Vaxtarræktin
íþróttahöll