Dagur - 03.10.1985, Qupperneq 5
3. október 19SS - DAGUR - 5
—myndböncL
Einkunnastigi:
Frábær
★★★★ Mjög góð
★★★ Góð
★★ Sæmileg
★ Afleit
Morð í
Coweta-sýslu
Murder in Coweta-county er
byggð á sannsögulegum atburð-
um sem áttu sér stað í Georgíu í
USA árið 1948. Þarna gilda lög
þeirra ríku og yfirgangssömu,
eða öllu heldur fara þeir fram
með lögleysu án þess að nokkur
hreyfi við hönd eða fót. Nema
lögreglustjóri einn, sem leikinn
er af Johnny Cash. Þegar John
Wallace (Andy Griffith) drepur
einn leiguliða sinna vegna 50
punda og einnar kýr, ákveður
hann að koma honum í raf-
magnsstólinn. Lög fylkisins gera
hins vegar ráð fyrir að ekki sé
hægt að sanna morðsök nema lík-
ið finnist. Það reynist erfiðleikum
bundið.
Þetta er ágætis afþreyingar-
mynd, spenna undir niðri án þess
að beinlínis sé um spennumynd
MURDER
að ræða. Johnny Cash er alls ekki
svo galinn leikari og geta jafnvel
fleiri sætt sig við hann í því hlut-
verki, heldur en sem söngvara.
Andy Griffiths á ágæta takta.
Þessi mynd er svona um eða rétt
ofan við meðallag. - HS
Einkunnagjöf: ★**
i%EN$Kyiy'f-xT»
Félagarnir
á Max bar
Félagarnir á Max bar eru ólíkrar
manngerðar, en eiga það þó allir
sameiginlegt að vera fatlaðir á
einn eða annan hátt. Vínstofan
er þeirra annað heimili og þar
dveljast þeir stærstan hluta
dagsins. Ungur maður, Roary,
bætist í hópinn. Hann hefur lifað
af sjálfsmorðstilraun og er bækl-
aður. Vinskapur myndast milli
hans og annars ungs manns sem
vinnur á barnum. Jerry heitir sá
og gengur haltur vegna slæmsku í
hné. Hann er snjall körfubolta-
maður en meiðslin hamla
honum. Draumurinn er að fá
meinið lagað.
Söguþráðurinn verður ekki
rakinn nánar. Hann er býsna
góður, en betur hefði mátt takast
til með útfærsluna. Þessi mynd er
mjög vinsæl, að því er mér er
sagt, og hlýtur góða dóma þeirra
sem hafa séð hana. Mér hefur
alltaf fundist John Savage, sem
leikur Roary og menn þekkja úr
t.d. Hjartarbananum, vera svolítið
„stífur" leikari og klisjugjarn.
David Morse leikur halta vininn
nokkuð vel. Frammistaðan í
mörgum aukahlutverkanna er
ekki síðri en þeirra sem mest ber
á. HS
Einkunnagjöf: ***
Flamingo
kid
Fjölmargar unglingamyndir, þ.e.
myndir um unglingsárin og allt
sem þeim fylgir s.s. fjörið í skóla-
klíkunum o.fl., hafa verið gerðár
á undanförnum árum. Þessi
mynd fjallar um unglingsárin, en
með nokkuð öðrum hætti en
flestar aðrar. Hún er vandaðri, í
henni er minna fjör en að venju.
Hún leynir á sér.
Myndin gerist sumarið 1963,
fjallar aðallega um ungan mann
sem stendur frammi fyrir því að
velja milli þess að fara í háskóla
eða græða peninga á bílasölu.
Um sumarið vinnur hann við
einkaklúbb, þar sem rommy er
spilað upp á peninga og sund-
laugin og ströndin lífga upp á
mannlífið. Þeir leikarar sem mest
mæðir á eru Matt Dillon sem
leikur unga manninn og Ric-
hard Crenna í hlutverki miðaldra
„playboy’s".
Gamanmynd með ívafi alvar-
legri hluta. Góð. HS
Einkunnagjöf: ***
Myndirnar eru fengnar aö Iáni hjá Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna í Glerárgötu.
Uesendahorniá_____________________________________________________
i 'Siirfr! -rigíi t «*/fuesses, to rtit eýgii pm <>/ :
ri HÍmíc hít unthmi t a inuhj, m1 %iíi a'tilk fm
ÍSLENSKUR TEXTí ! :X
„Bílbelti hafa bjargað mörgum“
- Athugasemd við athugasemd Þorsteins Péturssonar
Svar til Þorsteins Péturssonar að-
stoðarvarðstjóra Akureyri.
í lesendahorninu þann 23.
sept. sýnist mér á skrifum þínum
að þú álítir að ég telji að bílbelti
eigi ekki rétt á sér, og ef svo er
þá bið ég þig að lesa umsögn
mína, (ekki grein) betur og hugsa
líka, en ég hef þetta að segja þér.
Það var Citroén DS bíll á leið-
inni Húsavík-Akureyri fyrir
nokkrum árum. í einni beygjunni
flaug bíllinn út af og kom niður á
hvolfi, en þegar vindingur kom á
bílinn í vegkantinum þá losnaði
toppurinn og fór af, en í fluginu,
fóru tveir ungir menn, ökumaður
og farþegi upp um gatið sem
myndaðist. En bíllinn stóð á sæt-
isbökunum sem eru lág í þessum
bílum, og ná meðalmanni upp á
herðar. Annar slasaðist nokkuð
en hinn ekki. Hvað álítur þú að
hefði orðið um þessa umræddu
menn ef þeir hefðu verið spenntir
fastir í sætin? Ég kom þarna sjálf-
ur að, og veit um fleiri svipuð
dæmi, en tel ástæðulaust að ræða
þau nánar. Mér finnst rétt að
segja þér frá þessu, fyrst þú hefur
aldrei séð svona á 18 ára starfs-
ferli þínum.
Ég fagna því að eiga svo rök-
fasta og hugsandi alþingismenn
að þeir veigri sér við því að dæma
menn í fjársektir fyrir það að
nota ekki bílbelti undantekning-
arlaust. Því það eru svo sterk
rök, bæði með og á móti. Bílbelti
hafa bjargað mörgum mannslíf-
um og aftrað stórslysum, það veit
ég vel og viðurkenni fúslega að
ég nota þau stundum sjálfur, en
ég veit líka að ég persónulega
ætti tveim vinum færra hér á jörð
hefðu þeir verið fastir í sínum
sætum, þegar ósköpin dundu
yfir. Og það eru nógu sterk rök
til að gagnrýna þann mikla órök-
studda einhliða áróður með bíl-
beltum sem framinn er hér á
landi, en ekki kynntir kostir og
gallar á þeim. Nú er ég hér með
búinn að koma skoðun minni svo
skýrt á framfæri að allir nteðal-
greindir menn ættu að geta skilið
hana og mun ekki svara fleirunt
svona sorglega einhliða áróðurs-
greinum.
Kristján Siguröarson
Sauöárkróki.
Vondir tímar hjá RÚVAK
Pálína Jónsdóttir hringdi til
okkar og vildi koma á fram-
færi óánægju sinni með út-
scndingartíma RÚVAK.
Hún sagðist vilja hafa
RÚVAK, en ekki á þessum
tíma. Taldi hún að margir
væru á sömu skoðun og hún í
þessu máli.
Á þeim tíma sem RÚVAK
væri í gangi væru yfirleitt bestu
þættirnir á Rás 2. Nefndi hún
þætti eins og Frístund, þátt
Berta Möller og fleiri. Vonaðist
hún til þess að þessuyrði breytt.
Annað hvort að RÚVAK yrði
fært á annan tíma, t.d. fljótlega
eftir hádegi eða þessir þættir
sem hún nefndi á Rás 2 færðir
framar í dagskránni. Pálína
vildi hvetja fólk til að láta álit
sitt í Ijósi hvað varðaði þetta
mál.
Frá Heimaey
Kaupmenn - Kaupfélög
Birgið ykkur upp af hinum
frábæru Heimaeyjarkertum.
Látið hinn hreina loga
Heimaeyjarkertanna veita
birtu og yl.
HEIMAEY, kertaverksmiðja,
Faxastíg 46, 900 Vestmannaeyjum. Sími 98-2905.
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
Fostudagur 4. oktober:
Opnað kl. 20.00.
Nýjasta hljómsveitin í bænum, hún heitir
/
Amtvj
skemmtir til kl. 03.00 ásamt diskóteki með fullt af nýju efni.
Nú verður feikna fjör á föstudaginn.
Laugardagur
5. október:
Opnað kl. 19.00.
Uppselt í Mánasal.
„Hoííó Akureyri“
„Út(oginn“
Óðinn Valdintarsson
er mættur í bæinn, eldhress
og rifjar upp gömlu,
góðu rokklögin
ásamt hljómsveitinni
Átúngu
sem skemmtir
ásamt diskóteki til kll. 03.00.
MotseM:
Villigæsarpaté
m/hvítvínssodnum vínberjum.
Kramarnús úr reyktum laxi
m/sinnepssósu.
Hvítlaukskryddadir sniglar.
lnnbakaðir sjávarréttir
í hvítvínssósu.
Karrýbætt rækjusúpa.
Tær Kínasúpa m/grænmeti.
Heilsteikt rauðspretta
m/kryddsmjöri.
Fiskgratin hússins.
Ofnsteikt aliönd
m/trönuberjasósu.
Hreindýrabuffsteik m/fylltum
perum og villibrádarsósu.
Lambakótilettur
m/sveppum og skinku.
Turnbauti „Parisienne"
m/gufusodnu blaðsalati.
Djúpsteikt Dalayrja.
Vanilluís Amaretto.
Kaffi og konfekt.
KjaÖariím
fp
Opið í hádeginu
og á kvöldin.
Odýrir réttir dagsins
ásamt salatbar.
Uppákomur
á hverju kvöldi.