Dagur - 03.10.1985, Qupperneq 11
3. október 1985 - DAGUR - 11
Minning:
Skarphéðinn Guðnason
Fæddur 3. maí 1903 - Dáinn 23. september 1985
„Pú hirtir lítt um höfðingsnafn og auð
þvíhógværð þinni nægði daglegt brauð. “
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Nú fækkar ört því fólki, sem fætt
er um síðustu aldamót. Mikil
búseturöskun verður í íbúðar-
hverfi á 30 árum. Flest það fólk,
sem búsett var á Eyrinni, þegar
ég kom fyrst til dvalar hér á Ak-
ureyri, og átti svo margt sameig-
inlegt vegna vináttu og frænd-
semi, er nú flutt burt eða hefur
kvatt þennan heim.
Einn úr þessum hópi er Skarp-
héðinn frændi minn. Hann lést á
Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans 23. sept. sl. eftir lang-
varandi veikindi.
Skarphéðinn var fæddur í
Hafrafellstungu í Öxarfirði, son-
ur hjónanna Valdinu Sigurðar-
dóttur og Guðna Sigurðssonar.
Hann missti föður sinn, þegar
hann var á fyrsta ári. Stóð þá
móðir hans ein uppi með tvo
syni. Hann og Ingibjörn, sem er 6
árum eldri og er nú vistmaður á
Hvammi, dvalarheimili aldraðra
á Húsavík. Héðinn eins og móðir
hans kallaði hann gjarnan, fylgdi
móður sinni öll bernskuárin.
Dvöldu þau á bæjum í Öxarfirði
og Hólsfjöllum. Oft talaði Skarp-
héðinn um heimilin á Austara-
Landi, Ærlækjarseli, Víðihóli
auk Hafrafellstungu og Klifs-
haga. Á sumum þessara bæja var
frændfólk, en öðrum bast hann
ævilangri vináttu.
Fljótt hefur Skarphéðinn farið
að létta undir á bæjum, sem þau
mæðginin dvöldu á. Vandist
hann þar allri algengri sveita-
vinnu og þótti liðtækur. Hann
naut á þessum árum auk barna-
fræðslu einhverrar unglinga-
kennslu, því að ágætir kennarar
voru í sveitinni.
Þegar Skarphéðinn var liðlega
tvítugur, hófst mikil uppbygging
íbúðarhúsa í Öxarfirði og víðar
um Norður-Þingeyjarsýslu. Vann
Skarphéðinn mikið að þeirri upp-
byggingu fram til ársins 1941.
Var hann jafnvígur á múrverk
sem trésmíði auk allrar almennr-
ar vinnu. Var hann fljótt eftir-
sóttur til þessara starfa, enda
óvenjulega ósérhlífinn og samr
viskusamur. Sagði hann mér ým-
islegt frá dvöl sinni og vinnu á
mörgum bæjum, þar um sveitir.
Leyndi sér ekki, að hann lagði oft
harðar að sér en góðu hófi gegndi
og hefur hann sennilega goldið
þess síðar á ævinni.
Árið 1941 giftist hann Þuríði
Jónsdóttur frá Ærlækjarseli í
Öxarfirði, dóttur hjónanna Sig-
urveigar Sigurðardóttur og Jóns
Jónssonar Gauta. Fluttust þau til
Akureyrar og stofnuðu fljótlega
heimili að Lækjargötu 13 og áttu
þar heima, þar til þau fluttu árið
1947 í eigið húsnæði að Glerár-
götu 16.
Strax og kostur var flutti móðir
Skarphéðins til þeirra og dvaldist
hjá þeim til æviloka. Sýndi hann
henni mikla umhyggju og hlýju.
Skarphéðinn fékk réttindi sem
smiður eftir að hann flutti í bæinn
og fljótlega réðist hann sem tré-
smiður til Stefáns Reykjalín, og
vann þar meðan kraft^r leyfðu.
Hann var óvenju ötull og áhuga-
samur við verk, og gaf hvergi
eftir. Einstöku sinnum kom ég út
á trésmíðaverkstæðið, þar sem
hann vann hin síðari ár. Þá var
það gjarnan svo, að honum slapp
ekki verk úr hendi meðan staðið
var við.
Ekki fór Skarphéðinn varhluta
af heilsuleysi, bæði veiktist hann
alvarlega árið 1959 og einnig átti
Þura við vanheilsu að stríða. Hún
lést 24. janúar 1972, 66 ára að
aldri. Var það ntikið áfall fyrir
Skarphéðin enda máttu þau vart
af hvort öðru sjá, þótt ólík væru.
Hún hress og opinská, hann hæg-
ur og dulur. Þau eignuðust einn
son Sigurð Inga, fæddan 18. mars
1948, verkfræðing hjá Reykja-
víkurborg, giftan Emilíu Mart-
insdóttur og eiga þau tvö börn,
Drífu Kristínu 7 ára og Martin
Inga 3ja ára. Skarphéðinn naut
þess að dvelja hjá þeim fyrstu bú-
skaparár þeirra og vera samvist-
um við sonardótturina, þar til
hann veiktist svo, að ekki varð
hjá því komist að hann færi á
sjúkrahús.
Heimili þeirra Skarphéðins og
Þuru var óvenjulegt, að því leyti
að gestir voru alltaf velkomnir
hvernig sem á stóð. Má e.t.v.
orða það þannig, að gesturinn
fékk það gjarnan á tilfinninguna,
að það væri einmitt hann, sem
þau væru lengi búin að bíða eftir
að taka á móti. Þessa eiginleika í
fari þeirra hjóna fann fólk og mat
mikils. „Einn tónn er til og hann
er hreinn," segir í Brekkukots-
annál Halldórs Laxness. Einkum
voru það vinir og vandamenn að
austan, sem dvöldust hjá þeim
um lengri tíma. Eftir að þau
fluttu í Glerárgötuna voru ávallt
leigjendur á neðri hæðinni og
sumum tengdust þau ævarandi
tryggð og vináttu.
Öxarfjörðurinn og fólkið, sem
þar býr átti sterk ítök í huga
Skarphéðins og ætíð var þar vin-
um að mæta. Á hverju sumri
komu þau hjón á mitt bernsku-
heimili Klifshaga og dvöldu þar
einhvern tíma og sonur þeirra var
þar frá unga aldri og fram að
fermingu, yfir sumartímann.
Skarphéðinn lét sér annt um allt
sem þar var gert, enda oft spurð-
ur ráða og alltaf mátti treysta
því, sem hann sagði, því hann var
vammlaus til orðs og æðis.
Sá sem þetta skrifar, var um 10
ára skeið heimilismaður hjá þeim
hjónum og stendur í ævarandi
þakkarskuld við þau. Við Guðný
flytjum Sigurði Inga og fjöl-
skyldu svo og Ingibirni innilegar
samúðarkveðjur.
Jóhann Sigvaldason.
alltaf eitthvað nýtt á prjónunum
Hefur þú spáð í haust- og vetrarlitina í prjónagarninu hjá okkur, eða
tegundirnar? Stórkostlegt úrval!
Nýjasta tíska, léttar loðnar peysur sem auðvelt er að prjóna, við getum
meira að segja aðstoðað þig við prjónaskapinn.
Alla fylgihluti eigum við, prjóna, teygjunælur, merkihringi, kaðalprjón,
stoppara, svo eitthvað sé nefnt. Við fáum líka öll þau prjónablöð og
uppskriftir fyrir garnið okkar sem fáanlegt er, auk okkar eigin upp-
skrifta.
Komdu og skoðaðu nýju módelin okkar, þú finnur eflaust eitthvað við
hæfi.
Jólaundirbúningurinn hefst tímanlega hjá okkur. Jóladagatöl, dúkar,
myndir, teppi, löberar og að ógleymdum jólakortunum vinsælu.
Athugaðu, að ekki er ráð nema í tíma sé tekið!
Mikið úrval af nytsamri gjafavöru, handklæði, baðmottur, púðar og lö-
berar úr flaueli í mörgum stærðum, handunnir dúkar og svuntur.
Vöggusettin og sængurfatnaðurinn með útsaumnum sem er í sérflokki.
Fallegu þunnu tauplastdúkarnir eru komnir í öllum stærðum og gerðum.
Pantanir óskast sóttar. Líttu inn og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
Opið laugardag frá kl. 10-12. Póstsendum.
/ÉRVER/LUfl
Hannyrðaverslunin
HflnnVRÐflVÖRUR OLnmtWcViía
Sunnuhiíð sími 25752.
Harmonikudansleikur
í tilefni 5 ára afmæli F.H.U.E.
Félag Harmonikuunnenda. Fögnum 5 ára af-
mæli félagsins laugardaginn 5. október í Lóni
við Hrísalund.
Skemmtidagskrá hefst kl. 20.30 stundvíslega fyrir félaga
og gesti.
Sameiginleg kaffidrykkja, grín, glens og gaman.
Harmonikudansleikur
hefst kl. 23.00-03.00.
Allir velkomnir.
Björn Sigurðsson • Baldursbrekku 7 • Símar41534 Hópferðir • Sætaferðir • Vöruflutningar ■ Sérleyfisferðir •
HUSAVIK - AKUREYRI - HUSAVIK
VETRARÁÆTLUN 1985
S M P M Fi Fö L
Frá Húsavík kl. 18 9 9 9
Frá Akureyri kl. 21 16 16 17
Geymið auglýsinguna. Sérleyfishafi.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Eyjafjarðar
verður haldinn þriðjudaginn 8. október kl. 21 á
Hótel KEA.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Fundur
verður haldinn í fulltrúaráði
framsóknarfélaganna á Akureyri
fimmtudaginn 3. okt. nk. að Eiðsvallagötu 6 (Bólu
og hefst kl. 20.30.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn fímmtudaginn 10. október að
Hótel KEA og hefst kl. 20.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Stjórnin.
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán
Valgeirsson og Guðmundur Bjarnason halda
almenna stjórnmálafundi sem hér segir:
Fimmtud. 3. okt. kl. 14 Samkomuhúsið Grímsey
Fimmtud. 3. okt. kl. 21 Tjarnarborg Ólafsfirði
Föstud. 4. okt. kl. 21 Samkomuhúsið Grenivík
Laugard. 5. okt. kl. 21 Melar Hörgárdal
Sunnud. 6. okt. kl. 14 Sólgarður Saurbæjarhr.
F ramsóknarflokkurinn.