Dagur - 03.10.1985, Page 12
AKUREYRI
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Skipagötu 12 • Sími 21464
Landað úr Akureyrinni:
Sérstakt
samkomulag
- en bara til bráðabirgða
í gærmorgun hófu hafnar-
verkamenn á Akureyri löndun
á frystum fiski úr Akureyrinni
eftir að Þorsteinn Már Bald-
vinsson, útgerðarstjóri hafði
gert við þá sérstakt bráða-
birgðasamkomulag um greiðsl-
ur fyrir þessa einu löndun.
Sem kunnugt er neituðu hafn-
arverkamennirnir að landa úr
skipinu í fyrradag til þess að mót-
mæla launakjörum sínum en þeir
telja að þeir hafi dregist mjög aft-
ur úr í launum miðað við það sem
gerist víðast annars staðar á land-
inu. Yfirleitt hefur Eimskip séð
um að landa úr Akureyrinni en í
þetta skipti var farið þannig að að
Þorsteinn Már réði mennina í
vinnu hjá Samherja til þess að
Akureyrin fengist afgreidd.
Björn Snæbjörnsson, starfs-
maður Einingar á Akureyri,
kvaðst telja að vinnustöðvun
hafnarverkamanna í fyrradag
hefði orðið til þess að ýta við
samningamönnum Vinnuveit-
endasambands íslands sem sér
um samninga fyrir Eimskip og
Vinnumálasamband Sambands-
ins sem fer með samninga fyrir
hönd Skipadeildar KEA. Að
sögn Björns er ætlunin að krefj-
ast þess að hafnarverkamenn hér
fái ekki lakari kjör en Dagsbrún í
Reykjavík hefur náð fyrir hafnar-
verkamenn á Reykjavíkursvæð-
inu. Eins og er hafa hafnarverka-
menn í Reykjavík mun betri laun
en starfsbræður þeirra á Akur-
eyri. -yk.
Útlagi. Mynd: KGA
Það verður mikið um dýrðir við Oddeyrarskólann nk. laugardag. Þá lýkur umferðarviku sem nú stendur yfir á Ak-
ureyri og gefst krökkum kostur á að aka þessum rennilegu bflum. Héma er hann Kim Björgvin Stefánsson, sex ára,
að prufukeyra einn bflinn. Mynd: KGA
Geysilegar framkvæmdir í Hrísey:
Kostnaður 27
þúsund á íbúa
Hríseyingar ætla sér greinilega
að skjóta „meginlandsbúum“
ref fyrir rass hvað varðar fram-
takssemi í lagningu bundins
slitlags. Nú er verið að undir-
byggja 1280 metra kafla sem
lagður verður bundnu slitlagi á
næsta ári.
En það eru fleiri verkefni í
gangi í Hrísey um þessar mundir
en vegaframkvæmdir. Verið er
að byggja nýjan skóla og reiknað
er með að taka helming hús-
næðisins í notkun innan tíðar. Þá
er nýbúið að opna dagvistun í
eynni.
Líf og fjör og framkvæmda-
semi dregur að sér fólk. Það þarf
því engum að koma á óvart að
mikil mannfjölgun hefur orðið í
Hrísey. Frá því 1. desember hef-
ur íbúum fjölgað um 25, úr 262 í
287. Það er hvorki meira né
minna en 9,6% aukning.
Guðjón Björnsson sveitarstjóri
í Hrísey sagði að þessar þrjár
fyrrnefndu framkvæmdir kostuðu
Hríseyinga u.þ.b, 7 milljónir
króna, sem er ekki lítið í svo litlu
sveitarfélagi. Ef farið væri í smá
talnaleik, þá er kostnaðurinn
u.þ.b. 27.000 krónur á hvern
íbúa. Ef t.d. Akureyringar ætl-
uðu að framkvæma hlutfallslega
jafnmikið á þessu sviði, miðað
við hina sívinsælu höfðatölu, yrði
reikningurinn heldur óárennileg-
ur: 350.000.000 krónur, takk
fyrir. BB.
Slökkviliðsstjóri um viðbyggingu leikhússins:
Gæti orðið viðunandi
„Við erum ekki enn búnir að
fá teikningar af þessum fyrir-
huguðu breytingum á Sam-
komuhúsinu og því get ég ekki
fyllilega tjáð mig um eldvarna-
hlið málsins,“ sagði Tómas Búi
Böðvarsson, slökkviliðsstjóri á
Akureyri.
Komið hefur til tals að leysa
húsnæðisvanda leikfélagsins með
lítilli viðbyggingu vestan Sam-
komuhússins, eins og fram hef-
ur komið í Degi. Tómas Búi
sagði ennfremur:
„Miðað við það sem ég hef
heyrt gæti þetta mál leyst á við-
unandi hátt. Ég óttast það bara
að viðbyggingin verði reist eins
og skot og síðan dragist úr hömlu
að gera þær ráðstafanir sem þarf í
brekkunni og ganga þannig frá
flóttaleið að hægt sé að sætta sig
við.“ HS
Magnús Gamalíelsson:
Tók rúma 4 mánuði
- að fá svar við því hvort ala mætti 17 hænur í kjallara á Akureyri
Ollu lausráðnu
fólki sagt upp
Hún veit líklega lítið um það,
hænan á myndinni, að hún og
16 stallsystur hennar hafa verið
gerðar útlægar af heimili sínu í
Innbænum, þar sem þær hafa
búið í kjallara einum frá því I
vor. Hænurnar hafa á sínum
stutta líftíma afrekað það að
sjá nokkrum starfsmönnum og
nefndum bæjarins fyrir verk-
efnum því það virðist ekki vera
einfalt mál að afgreiða eina
beiðni um hænsnahald í bæn-
um, ef marka má fundargerðir
bæjarstjórnar.
Þann 23. maí sendi eigandi
hænsnanna erindi af stað inn í
bæjarapparatið þar sem farið var
fram á leyfi til að halda 17 hænur.
Jarðeignanefnd tók erindið fyrir
á fundi sínum 19. ágúst og sam-
þykkti þá að vísa því til bygginga-
nefndar. Bygginganefnd tók er-
indið fyrir rúmum mánuði síðar
og synjaði þá erindinu með tilvís-
un í heilbrigðisreglugerð. Síðasta
skrefið var svo það að bæjar-
stjórn staðfesti synjun bygginga-
nefndar á fundi sínum þann 1.
október sl.
Ætli einhverjum gæti orðið á
að spyrja: Hvað langan tíma tek-
ur það að afgreiða hin stærri og
flóknari mál ef það tekur rúma
fjóra mánuði að afgreiða eina
beiðni um að fá að ala 17 hænur?
-yk.
Hraðfrystihús Magnúsar
Gamalíelssonar hf. í Ólafsfirði
hefur sagt upp öllu lausráðnu
starfsfólki frá og með miðviku-
deginum 9. október nk. Til-
kynning þess efnis var birt
starfsfólki í gær, en uppsagnar-
frestur er ein vika.
Að sögn framkvæmdastjóra
hraðfrystihússins er þetta gert
vegna skorts á hráefni til vinnslu,
en hann undirstrikaði að allt eins
líklegt væri að úr þeim málum
rættist áður en uppsagnir kæmu
til framkvæmda.
Hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarð-
ar hf. fengust þær upplýsingar að
ástandið væri þokkalegt hjá þeim
og ekki yrði gripið til uppsagna á
næstunni. BB.