Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 4

Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 4. október 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI 24222 ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 35 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÓRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GÍSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HÚSAVlK), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. íbúð hér og búl þar Niðurskurður á fjárlögum, sparnaður í opinberum rekstri eru óskahugtök flestra stjórnmálamanna um þessar mundir. Sjálf- stæðismenn fjölluðu m.a. um þetta á Stykkishólms- fundinum á dögunum. Þeir voru búnir að sam- þykkja drög að fjárlaga- frumvarpi, en tóku síðan nýjan kúrs. Formaður Fé- lags íslenskra iðnrekenda benti þeim réttilega á það að ríkið yrði að spara, draga yrði úr skattheimtu — tók þá með öðrum orð- um á beinið. Það er nefnilega svo að sjálfstæðismenn eiga ekki einasta fjármálaráðherr- ann, heldur ræður ráð- herralið þeirra yfir 80% þeirra útgjalda sem byggjast á þessum lögum. Þegar sjálfstæðismenn eru að fárast yfir ríkisút- gjöldunum eru þeir fyrst og fremst að agnúast út í sjálfa sig. Það er Matthías með vegamálin og sam- göngurnar, Matthías með heilbrigðis- og trygginga- málin og Ragnhildur með menntamálin. Ætli það vefjist nú ekki svolítið fyr- ir þessum sömu ráðherr- um að draga verulega úr útgjöldum á þessum sviðum, sem skipta svo miklu máli þegar metið er hvort við búum í velferð- arþjóðfélagi eða ekki. Það er svo á hinn bóg- inn alvarlegt hversu stór hluti þessara útgjalda allra kemur til með sjálf- virkum hætti og eykst ár frá ári. Ef til vill er tíma- bært að endurskoða margt í þeim efnum, ekki endilega að draga úr þjón- ustunni við almenning, heldur draga úr alls kyns ónauðsynlegum stjórnun- arkostnaði. Það er ekki skólakennsla barnanna og ellilífeyrir gamla fólksins sem er að sliga þetta þjóð- félag. Það er fyrst og fremst toppstykkið á þessu öllu saman sem orðið er allt of stórt og fyrirf erðarmikið. Við getum kannski orð- að það svo að framleiðni í ríkisrekstrinum sé víða allt of lítil. Það mætti líka nefna það að hjá mörgum opinberum fyrirtækjum viðgengst margvíslegt bruðl og óþarfa eyðslu- semi. Hlaðið er undir toppfígúrur í embættis- mannakerfinu með alls kyns hlunnindum og fríðindum. Það er íbúð hér, bíll þar, árleg utan- landsferð á öðrum stað. Almenningur hefur skömm á þessu dekri við stjórana, sem auk heldur hafa hæstu launin í kerf- inu. Það er vissulega hægt að spara í opinbera kerf- inu, en það þýðir ekki endilega að þjónustan við almenning þurfi að minnka svo mikið. Það er hægt að draga svo veru- lega úr reksturskostn- aðinum að nægði til að koma þessum málum á réttan kjöl. _koll — hnýsa. Um fundna fundi Bjarni Einarsson, fornleifafræðingur, skrifar. í lok sautjándu aldar deildu menn mjög á meðal lærðra í Svíþjóð og Danmörku hvor heldur þjóðin væri beinn af- komandi hins týnda ellefta ætt- bálks ísraels. I fyrstu lotu höfðu D;mir betur. Þeim tókst á „vís- indalegan" hátt að sanna að engir aðrir en þeir væru afkom- endur áðurnefnds ættbálks, (og þá í leiðinni vagga evrópskrar/ alheims menningar). Stuttu síð- ar gerðu Svíar enn betur og rændu þá upprunanum og komu honum upp á sjálfa sig, einnig á „vísindalegan" máta. Þcssar „vísindalegu" aðgerðir beggja þjóðanna byggðu m.a. á forn- leifum og það sem þær höfðu að geyma. Rúmum tvö hundruð árum seinna eða í upphafi þessarar aldar fundu Englendingar, eftir margra áratuga leit, frummann á Bretlandseyjum. í nokkra áratugi höfðu Frakkar og þýskir m.a. getað gortað af því að inn- an þeirra landamæra fyndust leifar eftir ýmsa frummenn. Það sveið mjög í augum hins breska heimsveldis, sem vegna valda sinna og oftrúar á sjálfu sér og sögu sinni ásældist mjög sinn eigin frummann, að smærri ríki hefðu það sem þeim bæri að hafa. En eins og í öllum góðum sögum sem enda vel, endaði þessi líka vel (um tíma). Eng- lendingar fundu sinn frum- mann. Og hann sló svo sannar- lega öllum öðrum frummönnum við, því hér var kominn enginn annar en „the missing link“, (týndi hlekkurinn). Eins og aðr- ir góðir menn fékk þessi maður nafn. Piltdown-maðurinn var nafnið. Einn hængur var þó á gjöf Njarðar, sagan var ekki búin, því rúmum fjörutíu árum síðar eða árið 1953 komust menn að hinu sanna varðandi uppruna Piltdown-mannsins. í ljós kom að vinurinn var vissu- lega að hálfu leyti maður og að hálfu leyti api, málið var bara að beinin komu ekki frá sömu verunni. Höfuðkúpan var af öldruðum manni, en neðri kjálkinn af órangútan apa. í júní á þessu ári komu fréttir frá Dagverðarnesi við Breiða- fjörð að íslandssagan hefði lengst um ca. tvö hundruð ár. Þessar fréttir eru sannarlega ekki í samræmi við ríkjandi skoðanir og trú. Þegar ísland var að brjótast fram til sjálf- stæðis var þörf á glæstri sögu sem þjóðin átti ein. Sömu þarfir lágu að baki Dana og Svía á sautjándu öld og Englendinga á nítjándu og tuttugustu öld, þó að þar hafi ekki sjálfstæðisbar- átta verið í gangi, heldur þörfin á glæstu vegabréfi upp á fortíð- ina. Ekki er þessi tilhneiging einskorðuð við þau lönd sem hér hafa verið nefnd, sönnu nær væri að segja að hún sé hluti af öllum þjóðum sem eru að verða til, þenjast út eða standa í bar- áttu við ytri eða innri öfl. Lengi vel virtist svo sem Ameríka ætti sér ekki lengri sögu en aftur að komu hvíta mannsins, alla vega fór lítill tími og lítið fé í að rannsaka annað. Sömu sögu er að segja um aðrar þjóðir sem innfæddir og aðkomumenn búa. Þeir skrifa söguna sem þekking- una hafa, þeir sem þekkinguna hafa, hafa völdin. Þeir sem hafa völdin ráða fjármagninu og fjár- magn þarf til rannsókna. Og nú aftur að fundinum á Dagveröarnesi. Eg ætla ekki að fara að tíunda þá fundi og þær niður- stöður sem þaðan komu. í fyrsta lagi þarf að rannsaka staðinn mun betur og í öðru lagi tel ég að rannsóknin sé á því stigi að ekki sé vert að vera með gagnrýni, með eða á móti, þó svo að öðrum þyki ástæða til þess. Er þar ekki komin gamla óskhyggjan sem glepur dóm- greindina á báða bóga? Og þetta er mergur málsins. Það er engum til góðs þegar kenning- um er haldið stíft fram og allt annað sem lendir fyrir utan látið „Englendingar fundu sinn frummann. Og hann sló svo sann- arlega öllum öðrum frummönnum við, því hér var kominn enginn annar en „the missing link“ (týndi hlekkurinn). Eins og aðrir góðir menn fékk þessi maður nafn. Pilt- down-maðurinn var nafnið. Einn galli var þó á gjöf Njarðar . . .“ lönd og leið. Frægur vísinda- maður hefur sagt að það skipti engu máli hvaðan spurningarn- ar komi sem varða tilveru okkar, hvort þær komi í svefni eða vöku, það sem máli skipti sé hvort þær séu verðugar þess að við þeim fáist svör. Allar kenn- ingar lifa sitt æviskeið, flestar þeirra líða undir lok og aðrar betri taka við, allar breytast þær þó meira eða minna. Ég hef grun um að kenningin um land- nám íslands sé engin undan- tekning frá þessari reglu. Látum oss athuga málið! Bjarni Einarsson Minjasafninu á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.