Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 15

Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 15
4. október 1985 - DAGUR - 15 _hvað er að gerastZ Gamli Lundur verður form- lega opnaður á laugardag kl. 16 með málverkasýningu Kristins G. Jóhannssonar. Salurinn er orðinn hinn álit- legasti og ekki eru myndir Kristins síður áhugaverðar. „Hér er vel séð fyrir lýs- ingu, enda er hún hönnuð fyr- ir sýningarsal. Ætli þetta sé ekki eini salurinn í bænum sem er hugsaður og gerður sérstaklega með það í huga að halda málverkasýningar, enda líst mér mjög vel á hann,“ sagði Kristinn í spjalli við Dag. Hann sagði að myndirnar væru flestar unnar í sumar leið og ber mest á olíuverk- um, en einnig teikningum og dúkristum. „Uppistaðan er umfjöllun um Akureyri, ekki síst gömlu Akureyri. Mér finnst fara vel á því að sýna slíkar myndir í Gamla Lundi. Mest hef ég verið upptek- inn af ljósi og birtu. Eg hef reynt að nýta það í myndir, sem eru þó af sjáanlegum fyrirmyndum. Ég hef verið að leita leiða út frá munstrunum, sem ég hef verið býsna upp- tekinn af,“ sagði Kristinn. Sýningin verður opin frá 16-22 daglega til 13. október. Að mati blaðamanns er hér um einstaklega fallega sýn- ingu að ræða. HS Síðasta dvöru golfmátið Síðasta alvörugolfmót sumarsins á vegum Golf- klúbbs Akureyrar verður haldið á laugardaginn og hefst kl. 13.00. Er það hin margfræga Bændaglíma og fer mótið fram á velli félagsins að Jaðri. Þórog Vöísungur í suðurveg Á handboltasviðinu verður lítið að gerast hér norðan- lands um helgina, þó fá Þór og Völsungur ekkert frí því þeir eiga báðir útileiki um helgina í 3. deildinni. Þeir fara á Suðurlandið og leika við lið Selfoss og Hvera- gerðis. Á föstudag leika Völsungar við Selfyssinga og Þór við lið frá Hveragerði. Og daginn eftir skipta þeir svo um lið, Þór leikur við Selfyssinga og Völsungur við Hveragerði. KA á frí þessa helgi. Om Magnússon með tónleika „Ég hef það að takmarki að halda píanótónleika heima í Ólafsfirði þegar ég er orðinn 87 ára,“ sagði Örn Magnús- son píanóleikari frá Ölafs- firði. Örn er nú staddur hér á landi um stundarsakir. Hann ætlar að halda tónleika á Ak- ureyri 5. október kl. 15.00. Á efnisskránni verða verk eft- ir snillinga eins og afmælis- barnið Bach. Einnig verður tunglskinssónata Beethovens á efnisskrá ásamt 12 prelúdí- um eftir Debussy. „Það eru algerar perlur þessar prelúdí- ur,“ sagði Örn. Á morgun laugardag verður kynning á starfsemi Verk- menntaskólans á Akureyri. Að sögn skólameistara Bern- harðs Haraldssonar er hug- myndin að gefa almenningi kost á að kynna sér starfsemi eins stærsta framhaldsskóla landsins. Borið hefur á að Ekki gerir hann nema stutt- an stans að þessu sinni, því hann þarf að vera kominn til London, þar sem hann er við píanónám um miðjan októ- ber. „Það er gott að vera námsmaður í London. Að minnsta kosti hvað varðar listina. Þar er miðstöð menn- ingarinnar í Evrópu, því þar fer allt í gegn, ef svo má segja." Hins vegar er ekki gott að vera þar upp á skóla- gjöld og allt sem kostnað áhrærir, því þar eru skóla- gjöld mjög há.“ Örn hefur kennara að nafni Louis Kentner, sem er ung- verskur, og var, og er reyndar fólk viti lítið hvað er að gerast í þessum stóra skóla. Því gefst fólki tækifæri á að sjá allt sem þar fer fram. Auk þess verða veitingar handa öllum. Fólk er hvatt til að koma og skoða þennan stóra skóla, sem veitir fólki framtíðarinnar fræðslu. enn einn besti píanóleikari heims, þrátt fyrir háan aldur. En hann er áttræður. Kentner þessi hélt tónleika sl. sumar við mikla hrifningu rúmlega 2000 áheyrenda. Örn var spurður nánar út í takmarkið að halda tónleika í Ólafsfirði 87 ára gamall. „Ég var á tónleikum með gítar- snillingnum spænska, Seg- óvía, árið 1981. Þá var hann 87 ára gamall, og spilaði eins og engill. Þá skrifaði ég heim og sagðist ætla að halda tón- leika í Ólafsfirði þegar ég væri 87 ára gamall.“ Það er vonandi að það tak- ist hjá Erni Magnússyni píanóleika. Tónleikarnir verða eins og fyrr sagði, 5. október kl. 17.00 í Borgar- bíói. - gej 19. þing Alþýðusam- bands Norðurlands: Heþtí Alþýdiéúsinu Ákweyri í dag 19. þing Alþýðusambands Norðurlands verður sett í dag kl. 17. Þingið verður haldið í Al- þýðuhúsinu á Akureyri, Skipagötu 14. Fulltrúar af öllu Norðurlandi, allt frá Hvammstanga til Þórshafnar munu mæta, og eru það alls um 100 fulltrúar. Gestur þingsins verður Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ og mun hann flytja ávarp. Aðalmál þingsins verða kjara- og atvinnumál, en einnig verða skipulagsmál til umræðu. Á milli þinga hafa þau mál verið mikið rædd og er nú verið að vinna að ýms- um skipulagsbreytingum sem til umræðu verða á þinginu. Veitingar í Verkmenntaskólmum Hjólbarðaskipti Jafnvægisstilling mmmmsimt B Norðlensk gæði Norðlenskt fyrirtæki Rangárvöllum • Akureyri Sími 96-26776 •MYBÁP.ÚHG ','éÓ2AkUREY.Rt! 8.4483^, PÓSTHÓLF 498 . ; Stórútsala a pottaplöntum er erm í fullum gangi. Opið laugard. og sunnud. frá kl. 10-16. Föstudagur 4. október: Opnað kl. 20.00. Nýjasta hljómsveitin í bænum, hún heitir Áning skemmtir til kl. 03.00 ásamt diskóteki með fullt af nýju efni. Nú verður feikna fjör á föstudaginn. Laugardagur 5. október: Opnað kl. 19.00. Uppselt í Mánasal. „Hoííó Akureyri“ „Út Óðinn Valdimarsson er mættur í bæinn, eldhress og rifjar upp gömlu, góðu rokklögin ásamt hljómsveitinni Áningu. sem skemmtir ásamt diskóteki til kU. 03.00. McttseM: Villigæsarpaté m/hvítvínssoðnum vínberjum. Kramarnús úr reyktum laxi m/sinnepssósu. Hvítlaukskryddaðir sniglar. Innbakaðir sjávarréttir í hvítvínssósu. Karrýbætt rækjusúpa. Tær Kínasúpa m/grænmeti. Heilsteikt rauðspretta m/kryddsmjöri. Fiskgratin hússins. Ofnsteikt aliönd m/trönuberjasósu. Hreindýrabuffsteik m/fylltum perum og viUibráðarsósu. Lambakótilettur m/sveppum og skinku. Turnbauti „Parisienne“ m/gufusoðnu blaðsalati. Djúpsteikt Dalayrja. Vanilluís Amaretto. Kaffi og konfekt. Kjoflarinn Opið í hádeginu og á kvöldin. Ódýrir réttir dagsins ásamt salatbar. Uppákomur jí hverju kvöldi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.