Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 7

Dagur - 04.10.1985, Blaðsíða 7
4. október 1985 - DAGUR - 7 Bridgefélag Akureyrar Þórarinn og Páll halda forystu í Bautamótinu I Bautamóti Bridgefélags Akureyrar er lokið tveimur umferðum, en alls verða spifaðar fjórar, í þremur 14 para riðlum. Röð efstu para er þessi: 1. Þórarinn Jónsson - Páll Jónsson 383 6. Páll Pálss. - Frímann Frímannss. 348 2. Hörður Blöndal - Grettir Frímannss. 382 7. Sigurður Víglundss. - Rafn Kjartanss. 346 3. Magnús Aðalbj.-GunnlaugurGuðm. 367 8. Jóhann Andersen - Pétur Antonss. 342 4. Ólafur Ágústss. - Pétur Guðjónss. 353 9. Zarioh Hamadi - Arnar Daníelss. 341 5. Gylfi Pálss. - Helgi Steinss. 350 10. Anton Haraldss. - Sigfús Hreiðarss. 340 Meðal árangur er 312 stig. Þriðja umferð verður spiluð að Félagsborg nk. þriðjudag kl. 19.30. Vakin er athygli á því að á miðvikudagskvöldum er spilað í Dyn- heimum kl. 19.30, er þar um stuttar keppnir að ræða og öllum heimil þátttaka. Skák - Arnar Þorsteinsson Dagana 23.-30. ágúst fór úrval skákmanna af Norðaustur- og Austurlandi til Færeyja. Ætlun- in var að tefla við landslið Fær- eyinga, en keppni þessi hefur verið haldin á tveggja ára fresti síðustu ár, til skiptis á íslandi og í Færeyjum. íslendingar hafa ávallt borið sigur úr býtum en greinilegt var að Færeyingarnir ætluðu sér sigur að þessu sinni því að þeir stilltu upp sínu sterkasta liði. Tefldar voru 2 umferðir á 12 borðum og það kom í ljós í fyrri umferð að liðin voru svipuð að styrkleika þrátt fyrir að Færeyingarnir væru mun stigahærri. Úrslitin úr fyrri umferð komu því engum meira á óvart en okkur sjálfum: Fær- eyjar 5V2 - ísland 6V2. Minni gat munurinn ekki verið og ljóst var að seinni umferðin yrði hörku- spennandi. í eftirfarandi skák úr fyrri umferð verður hvítum á smá ónákvæmni í byrjun sem er hreint sjálfsmorð gegn Caro- Kann. Hvítt: Torkil Nielsen. Svart: Arnar Þorsteinsson. Caro-Kann vörn. I. e4-c6 2. d4-d5 3. Rc3-dxe4 4. Rxe4-Bf5 5. Rg3-Bg6 6. Rf3-Rd7 7. h4-h6 8. h5-Bh7 9. Bd3- Bxd3 10. Dxd3-Dc7 II. Be3?! (Algengara er 11. Bd2 eða Hh4) Il.-Rgf6 12. 0-0-0-e6 13. Hhel-Be7 14. Kbl (Hvítur teflir of passíft og gefur nú svörtum kost á að ná frumkvæðinu.) 14. -b5I? (Oftast langhrókar svartur í þessu afbrigði en úr því hvítur hefur ekki leikið c4 lætur svart- ur til skarar skríða.) 15. Dd2? (Hvítur veit greinilega ekki hvað svartur er að bralla og leikur af sér. Betra var 15.c4 með flókinni stöðu.) 15. -Rd5! 16. Re4-b4 17. Rc5-Rxc5 18. dxc5-Hb8 (Hótar Rc3.) 19. Bd4-Da5?! (Athyglisvert er framhaldið 19. -0-0!? 20. Be5-Da5?! 21. Bxb8-Hxb8 22. Kal-Rc3 23. bxc3-bxc3 24. Dd4-Hb2 25. Dc4-Hb4 26. Dxc3 (ekki 26. Dd3 vegna Ha4.) 26. -Bf6 27. Re5-Hbl 28. Kxbl-Dxc3 29. f4-Dxc5 og staðan er óljós.) 20. Re5!-Da4 (Ekki gengur að leika 20.-Rc3? eins og svartur ráðgerði, vegna 21. Bxc3!-bxc3 22. Dd7-Kf8 Dxe7!-Kxe7 24. Rxc6 og vinnur.) 21. b3- Db5 22. Rc4-0-0 23. Rd6? (Betra var 23. Dg3.) 23.-Bxd6 24. cxd6-c5 25. Bb2-Hb6 26. f3-Hxd6 27. Df2-Hfd8 28. Hcl-Da5 29. He4-Ha6 og hvítur gafst upp vegna 30. a4-bxa3 31. Ha4-axb2! 32. Hxa5-bxcl=D 33. Kxcl- Hxa5 og svartur vinnur auð- veldlega. í seinni umferðinni börðust Færeyingarnir eins og ljón en slæm endataflskunnátta þeirra varð til þess að íslenska liðjð marði sigur. Úrslit úr seinni umferð: Fær - eyjar 5 - ísland 7. Úrslit alls: Færeyjar 10VS — ís- land 131/2. í eftirfarandi skák virðast hvítu mennirnir hafa tekið öll völd á miðborðinu en ekki er allt sem sýnist. Hvítt: Steindór Rasmussen. Svart: Þór Valtýsson. Slavnesk vörn. 1. d4-d5 2. c4-c6 3. Rc3- Rf6 4. e3-Bf5 5. Rf3 (Hér gat hvítur leikið 5. cxd5 og þá gæti framhaldið orðið: 5. -cxd5 6. Db3-Bc8 (eða 6. -Db6 7. Rxd5-Rxd5 8. Dxd5-Db4 9. Bd2-Dxb2 með flókinni stöðu.) 7. Rf3 og hvítur stendur ögn betur.) 5.-e6 6. Be2-h6 7. 0-0- Rbd7 8. b3-Be7 9. Bb2-0-0 10. Rd2-c5 11. dxc5-Rxc5 12. cxd5-Rd3!? (Eftir 12.-cxd5 leikur hvítur 13. Rf3 með hug- myndinni Rd4, Bf3.) 13. Bxd3- Bxd3 14. Hel-exd5 15. Rf3-Bf5 16. Dd4-Be6 17. Hedl-Da5 18. Re2- Hfd8 19. Rf4-Da6 20. a4- Bf8 21. Re5-Hac8 22. b4- Dd6 23. Rfd3?-Db8! (Hvítur hefur nú teflt liði sínu fram meira af kappi en forsjá og nú leggur svartur lúmska gildru . . .) 24. a5? (. . . sem hvítur gengur beint í. Nauðsyn- legt var 24. Ba3 eða Rf4.) 24.-Hc4! 25. Rxc4-dxc4 26. Df4-cxd3 27. Dxb8-Hxb8 28. Hxd3- Bxb4 29. Ha4-Be7 30. h3- b5 31. axb6-axb6 32. g4-b5 ,33. Hal-Hc8 34. f4-Bc4 35. Hddl-Rd5 36. Kf2-Rb4 37. Ba3? (Betra var 37. Bd4 því nú vinnur svartur strax.) 37. -Bh4! 38. Kf3-Rc2 0-1. Haustskákmót Iþrottadeildar Varðar F.U.S. verður haldið laugardaginn 5. október kl. 14.00 að Kaupangi við Mýrarveg. Keppt verður um veglegan farandbikar. Allir velkomnir. íþróttadeild Varðar F.U.S. mayna • mest fyrir peningana Bílasalan hf. Skála ■ Laufásgötu ■ Sími 26301. ^Húsnæðlsstofnun ríkisins BREYTTUR EIIMDAGI UMSOKMA UM LÁM TIL BYGGIMGAFRAMKVÆMDA ÁÁRIMU 1986 ®§ VERÐUR EIMDAGI FRAMVEGIS í STAÐ 1. FEBRÚAR Þess vegna purfa umsóknir vegna framkvæmda á árinu 1986 að berast fyrir 1. nóvember nk. Lán þau sem um ræðlr eru þessi: - Til byggingar á íbúðum eða kaupa á íbúðum í smíðum. - Til byggingar íbúða eða heimila fyrir aldraða, og dagvistarstofnana fyrir börn og aldraða. - Til nýbygginga í stað heilsuspillandi húsnæðis. - Til framkvæmdaaðila í byggingariðnaði. - Til tækninýjunga í byggingariðnaði. Ofangreindur eindagi gildir einnig fyrir framkvæmdaaðila í byggingariðnaði, sem vilja legga inn bráðabirgðaumsóknir vegna væntanlegra kaupenda. Umsækjendur, sem eiga fullgildar lánsumsóknir hjá stofnunínni, er borist hafa fyrir 1. febrúar 1985, en gera ekki fokhelt fyrir 1. nóvember nk., skulu staðfesta þær sérstaklega, ella verða þær felldar úr gildi. Reykjavík, 4. september 1985 c§3Húsnæðisstofnun ríkisins

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.