Dagur - 16.10.1985, Qupperneq 9
16. október 1985 - DAGUR - 9
-JþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Víkingur Traustason hefur verið dæmdur í 2ja ára kcppnisbann.
Vikingur Traustason
' 2ja ára bann
Á blaðamannafundi sem ISI ákvæðum reelueerðar íþrótta- aukið o
hélt í gær til þess að kynna að-
gerðir gegn lyfjanotkun var til-
kynnt að kraftlyftingamaður-
inn Víkingur Traustason hafí
verið dæmdur í 2ja ára keppn-
isbann á öllum mótum á veg-
um ISI svo og þeirra alþjóða-
sambanda sem ISÍ er aðili að.
í greinargerð nefndarinnar
sem skipuð var til að kveða úr í
þessu máli segir: „Á Norður-
landamótinu í kraftlyftingum
sem fram fór í Þrándheimi 15.
september 1985 og Víkingur
Traustason, félagi í Iþróttafélag-
inu Þór, Akureyri, var keppandi
á, gerðist það að hann mætti ekki
til lyfjaprófunar, enda þótt hann
hafi sjálfur veitt viðtöku og
undirritað kvaðningu um að
mæta til prófunar. Með hliðsjón
af framlögðum gögnum og
reglugerðar íþrótta-
sambanda Norðurlanda um lyfja-
eftirlit og reglugerðar ÍSÍ um
eftirlit með notkun örvunarefna
og með því að mæta ekki til lyfja-
prófunar, hefur Víkingur
Traustason gerst brotlegur við 1.
grein reglugerðar íþróttasam-
banda Norðurlanda og 3. grein
reglugerðar ÍSÍ um eftirlit með
notkun örvunarefna. Því úr-
skurðast að Víkingur Traustason
útilokast frá þátttöku í íþrótta-
mótum innan allra sérsambanda
ÍSÍ í 2 ár frá 15. september 1985
að telja.“
Á fundinum var einnig rætt um
þau neikvæðu áhrif sem lyfja-
notkun íþróttamanna hefur og
um aðgerðir gegn þeirri neyslu.
Fram kom að á Norðurlöndum og
víðar hafi bæði prófanir svo og
fyrirbyggjandi starf verið stór-
i og miklum fjárhæðum ver-
ið veitt til þessara mála. T.d.
reikna Norðmenn með að eyða
um 5 milljónum norskra króna og
Svíar um það bil 5 milljónum
sænskra króna til þessara mála á
næsta ári. Pá var þess getið að
Alþjóðaolympíunefndin áætli að
veita 10 milljónum bandarískra
dollara eða um það bil 410 millj-
ónum íslenskra króna í þessi mál.
Er það von forráðamanna ÍSÍ
svo og allra áhugamanna um
íþróttir að það takist að uppræta
lyfjanotkun íþróttamanna svo að
hægt verði að beita kröftum að
öðrum sviðum íþróttamála. Að
lokum vildi stjórn ÍSÍ taka það
fram að nýstofnað Kraftlyftinga-
samband væri ekki á neinn hátt
tengt ÍSÍ, enda ekki stofnað með
þeim hætti sem reglur segja til
um. AE/Reykjavík
Skemmtilegir
Síðastliðinn laugardag fór fram
í Skemmunni knattspyrnuleik-
ur á milli lögregiumanna frá
Akureyri og Keflavík. Er þetta
árlegur viðburður og er jafnan
um spennandi leik að ræða.
Að þessu sinni sigraði lið lög-
reglunnar á Akureyri 15:10, eftir
að staðan í hálfleik var 8:6
norðanmönnum í vil.
í báðum liðum eru nokkrir
fyrrverandi og núverandi spilarar
og léku þeir skemmtilega á
köflum. Má þar fyrstan nefna
sjálfan landsliðsmarkvörðinn úr
Keflavík Þorstein Bjarnason sem
sýndi snilldartakta og skoraði
hann bróðurpartinn af mörkum
Keflvíkinga. í liði lögreglunnar á
taktar
Akureyri voru mest áberandi
þeir Þórarinn Jóhannesson og
Björn Víkingsson, þá var Felix
Jósafatsson sterkur í vörninni.
Liðsmenn Keflavíkurlögregl-
unnar voru fáir og háði það þeim
töluvert þó það hafi ekki ráðið
úrslitum, því norðanmenn voru
einfaldlega betri að þessu sinni.
Dalvík:
Ný skíðalyfta
og nýr þjálfari
Skíðafélag Dalvíkur vinnur nú
að því um þessar mundir að
byggja undir skíðalyftu sem fé-
lagið hefur fest kaup á. Er
þetta svokölluð diskalyfta af
Leithner gerð frá Ítalíu og er
von á henni til landsins seinni
partinn í nóvember.
Ætlar félagið þá að vera búið
með alla undirbúningsvinnu, en
hún er unnin á vegum félagsins
og er að öllu leyti um sjálfboða-
vinnu að ræða. Lyfta þessi verður
um 730 metra löng og mun leysa
af hólmi gamla spjaldalyftu sem
þykir orðin nokkuð lúin.
Pá hefur Skíðafélag Dalvíkur
ráðið þjálfara í norrænum grein-
um fyrir skíðafólk sitt, og er það
Björgvin Hjörleifsson, heima-
maður sem hefur þjálfað hjá
skíðadeild ÍR undanfarin ár.
Nói sigraði Þorstein
og skorar á Jónas
Nói Björnsson Liverpool-aðdáandi sló Þorstein Ólafsson út úr
keppninni um getraunakóng Dags. Nói var með 5 leiki rétta á
síðasta seðli en Þorsteinn aðeins 3. Nói heldur því áfram og hef-
ur hann skorað á félaga sinn úr Þór Jónas Róbertsson. Jónas er
mikill Manchester United-aðdáandi og er hann að vonum
ánægður með sína menn þessa dagana. Við skulum sjá hvernig
Jónasi tekst upp gegn Nóa og hér er spá þeirra.
Nói
Arsenal-Ipswich 1
Everton-Watford 1
Leicester-Sheff.Wed. 2
Luton-Southampton 1
Man.United-Liverpool 2
Newcastle-Nott.Forest 1
QPR-Man.City 1
WBA-Birmingham x
West Ham-Aston Villa 1
Blackburn-OIdham 1
Brighton-Charlton 1
Hull-Huddersfield x
Jónas
Arsenal-Ipswich 1
Everton-Watford 1
Leicester-Sheff.Wed. 2
Luton-Southampton 1
Man.United-Liverpool 1
Newcastle-Nott.Forest x
QPR-Man.City 1
WBA-Birmingham 1
West Ham-Aston Villa 2
Blackburn-Oldham 1
Brighton-Charlton 1
Hull-Huddersfleld x
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Bjöm Víkingsson skorar eitt af fjölmörgum mörkum sínum fyrir lögreglu Akureyrar. Mynd: KK
Hugbúnaðarkynning
á Norðurlandi
Við sölumenn Hugar sf. ætlum að sækja ykkur Norðlendinga heim til að
kynna:
Micro- SaFeS framleiðslustýringuna
Rhombus verkbókhaldskerfið
Hug-telex samskiptahugbúnaðinn
BOS viðskipta- og skrifstofuhugbúnaðinn
Við verðum í Sjallanum Akureyri miðvikudagínn 16. okt. frá kl. 13-18.