Dagur - 16.10.1985, Qupperneq 12
Volkswagen
bílasýning
verður helgina 19.-20. október
á sýningasvæðinu við Þórshamar.
Útivistarsvæðið í Kjarna:
Girðingin var rifin
niður að næturlagi
- Ábúandinn sættir sig ekki við skiptingu á landi Hamra II
„Við lukum við að setja upp
girðinguna á fímmtudag, en á
föstudagsmorgun var hún horf-
in með öllu. Hún hafði verið
rifín niður að næturlagi. Málið
var því kært til lögreglunnar,
því hér er um að ræða
skemmdarverk og þjófnað að
okkar mati,“ sagði Hallgrímur
Indriðason, framkvæmdastjóri
útivistarsvæðisins í Kjarna.
Girðingin sem um ræðir var
sett upp í síðustu viku í landi
Hamra II, en bærinn á það
land og var ákveðið í aðal-
skipulagi 1972 að þarna yrði
útivistarsvæðið stækkað til
norðvesturs.
„Ábúandinn hefur ekki sætt sig
við þessa skerðingu á landinu,
sem er í erfðafestu en eigu bæjar-
ins. Einnig snýst málið um bætur
fyrir ræktun og girðingar," sagði
Stefán Stefánsson, bæjarverk-
fræðingur í viðtali við Dag.
„Við höfum reynt til þrautar
að ná samkomulagi, en án árang-
urs því miður. Bærinn hefur boð-
ið bætur samkvæmt reglum sem
Búnaðarfélag íslands notar varð-
andi ræktun og girðingar og enn-
fremur uppígreiðslu að fjárhæð
200 þúsund krónur. Girðinga-
matið er nokkuð ríflegt, en ábú-
andinn, Jón Matthíasson, hafn-
aði því. Honum hefur ennfremur
verið boðinn skiki úr landi
Hamraborga í stað þess sem fer
undir útivistarsvæðið, en því var
einnig hafnað. Framkvæmdum
hefur verið frestað í von um að
samkomulag næðist, en þegar
Ijóst var að svo yrði ekki var
ákveðið að girða landið.
Það sem hefur þó áunnist núna
er að samkomulag hefur náðst
um að dómkvödd matsnefnd
meti endurgjaldið fyrir ræktunina
og girðingar. Þar með ætti að
vera hægt að fara í framkvæmdir,
en því var hins vegar alfarið neit-
að,“ sagði Hreinn Pálsson,
bæjarlögmaður, um málið.
Girðingin sem rifin var niður
var 500 metra löng með 200
staurum, þar af 5 stórum sem
voru vel festir og púkkaðir niður.
En hún hvarf sem sagt með öllu
aðfaranótt föstudagsins.
„Ég sé eftir að hafa ekki tekið
blaðamenn með þegar ég tók upp
í gær máttu menn byrja að
fara til rjúpna og er ekki að
efa að marga hefur farið að
klæja í „gikkfíngurinn“.
Þannig hefur því sennilega
verið farið með mennina tvo frá
Raufarhöfn sem héldu á Axar-
fjarðarheiði í fyrradag til
rjúpnaveiða, einum degi áður
en það var leyfilegt.
Þegar mennirnir höfðu lokið
girðinguna. Bærinn getur ekki
farið inn á land sem þeir hafa
ekki greitt neinar bætur fyrir. Ég
mótmæli því ekki að þeir geti
tekið landið, en þeir verða' að
greiða eðlilegar bætur. Lögfræð-
ingur minn ráðlagði mér að taka
upp girðinguna. Meðan starfs-
menn Kjarna voru að ljúka við
að setja hana niður var ég byrjað-
ur að taka hana upp á hinum
endanum. Ég var 4 tíma að kippa
þessu upp með aðstoð og girð-
ingarefnið hef ég í minni vörslu,“
Fyrir skömmu bárust torkenni-
legir reikningar inn á borð
forstöðumanns æskulýðsmið-
stöðvarinnar Dynheima. Þar
var um að ræða úttektarnótur
frá versluninni Fálkanum í
Reykjavík. Einhver hafði gert
veiðinni þann daginn fóru þeir í
sæluhúsið á heiðinni og létu fara
vel um sig eftir erfiði dagsins.
En þeir fengu ekki að vera lengi
í friði, lögreglan frá Raufarhöfn
var nefnilega á ferðinni og kom
hún að mönnunum í húsinu.
í ljós kom að þeir höfðu haft
11 rjúpur upp úr krafsinu þenn-
an ólöglega veiðidag. Voru
mennirnir fluttir til Raufarhafn-
ar til yfirheyrslu en skotvopn
sagði Jón Matthíasson, ábúand-
inn á Hömrum II. Hann sagði að
hann teldi skiptin á landsspildum
ekki hafa verið hagstæð fyrir sig
og því hefði hann hafnað þeim.
Hafsteinn Baldvinsson hrl.,
lögmaður Jóns, sagði það rétt
vera að hann hefði ráðlagt hon-
um að rífa niður girðinguna:
„Við höfum andmælt uppsögn
erfðafestusamningsins sem ólög-
legri, þar sem bærinn ætlar ekki
að nota landið í eigin þágu heldur
afhenda það Skógræktarfélagi
í nafni Dynheima
sér lítið fyrir og iekið út
hljómplötur og snældur með
leikverkunum „Gullna hlið-
inu“ og „íslandsklukkunni“, í
nafni leikklúbbsins Sögu og
Dynheima að andvirði 20.000
krónur.
ferð
þeirra og rjúpurnar 11 voru tek-
in af þeim.
Það er almannarómur að tals-
vert sé um það á hverju hausti
að menn þjófstarti þegar
rjúpnaveiðitíminn er að hefjast.
Ér þá farið einum eða tveim
dögum áður á veiðar og aflinn
síðan falinn áður en haldið er
heim. Svo er farið fyrsta leyfi-
legan veiðidag og rjúpurnar
sóttar. gk-.
Eyfirðinga. Bærinn getur tekið
landið ef hann ætlar að nota það
undir vegi eða byggingar og ég tel
heimildir til uppsagnar ekki til
staðar. Þá féllust þeir á að hrófla
ekki við landinu meðan mat færi
fram, sem var forsenda þess frá
okkar hálfu að við drógum lög-
bannsbeiðni til baka,“ sagði Haf-
steinn Baldvinsson.
Sem sagt, lögfræðilegur ágrein-
ingur um spilduna, sem er um
þriðjungur af landi Hamra II.
Steindór Steindórsson for-
stöðumaður Dynheima kannaðist
ekki við þessa vöruúttekt og
ómögulegt var að lesa undirskrift
þessa leikritaunnanda.
Þar með var rannsóknarlög-
reglunni gert viðvart um mál
þetta. Við rannsókn kom í ljós að
vöruúttektin hafði farið fram í
fjórum hlutum, dagana 23.-30.
september sl.
Úttektarmaðurinn kom vel fyr-
ir og var þar að auki „vel inn í“
málefnum leikklúbbsins Sögu.
Var hann því ekki tortryggður af
afgreiðslufólkinu.
Hann mun síðan hafa reynt að
gera sér peninga úr hinum list-
ræna plötustafla með því að selja
leikverkin í heimahúsum.
Eftir nokkra eftirgrennslan
hafðist upp á manninum og hefur
hann nú játað brot sitt. Maður
þessi mun hafa verið búsettur
lengi á Akureyri. BB.
Veiðiþjófar á
HS
„Girðingin farin,“ hafa þau e.t.v. hugsað hrossin sem voru að virða verksummerki fyrír sér í landi Hamra II í gær.
Fyrír framan þau er annar tveggja staura úr girðingunni sem Jón Matthíasson tók ekki með sér. Holan eftir staurinn
sést til hægrí við staurínn. Mynd: KGA
Sveik út vörur
Grafan í skurðinum. Mynd: gej
Grafan
fórí
skurðinn
Þeim varð hálfbylt við bæjar-
starfsmönnunum sem voru að
vinna við aðkeyrsluna að
íþróttaskemmunni á Akureyri
í gær þegar traktorsgrafa sem
þeir notuðu við verkið steypt-
ist skyndilega niður í skurð.
Skurðurinn var nokkuð djúpur
og bakkaði grafan niður í skurð-
inn og stóð næstum því upp á
endann. Ökumaðurinn slapp
með skrekkinn og strax var hafist
handa við að ná gröfunni upp.
Óslax hf.:
Miklar
fram-
kvæmdir
Framkvæmdir við byggingu
fískeidisstöðvar Óslax hf. í
Ólafsfírði eru nú í fullum gangi
og er fyrirhugað að bygginga-
framkvæmdum verði lokið í
desember.
Reiknað er með að stöðin
muni taka um 400 þúsund laxa-
seiði fullbúin en strax nú í vetur
verður helmingur þess fjölda í
stöðinni.
Ólafsfirðingar binda miklar
vonir við að fiskeldið muni verða
lyftistöng fyrir staðinn, en óvíða
eru skilyrði betri til fiskeldis hér á
landi en í Ólafsfjarðarvatni. Um
10 þúsund sjógönguseiðum hefur
verið sleppt í vatnið sl. tvö ár og
í ár hafa á annað hundrað laxar
skilað sér í vatnið aftur úr sjó.
Vitni
vantar
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri óskar eftir vitnum að
ákeyrslu er varð á planinu
austan Landsbankans á tíma-
bilinu 22.30 sl. föstudagskvöld
til kl. 00.30 eftir miðnætti.
Það var ekið á brúna Mazda
626 bifreið og urðu nokkrar
skemmdir á henni, en sá er olli
árekstrinum stakk af. Þar sem
þetta átti sér stað á þeim tíma
sem fólk er yfirleitt á ferli á þessu
svæði er það ósk rannsóknarlög-
reglunnar að sjónarvottar gefi sig
fram hið fyrsta.