Dagur - 21.10.1985, Síða 1

Dagur - 21.10.1985, Síða 1
68. árgangur Akureyri, mánudagur 21. október 1985 124. tölublað „Akaflega slakir bónussamningar“ - segir Kolbeinn Friðbjarnarson formaður Vöku á Siglufirði „Samningur sem er þannig gerður að þeir sem minnst höfðu fyrir lækka í Iaunum en þeir sem voru háir fyrir hækka, er að mínu mati slæmur samn- ingur,“ sagði Kolbeinn Frið- bjarnarson, formaður Verka- lýðsfélagsins Vöku á Siglufirði í samtali við Dag. Snældu-Blesi: Brotið að gróa „Sárið hefst betur við en við áttum von á. Það er ekki gróið en það er gróið virkilega vel að því.“ Þannig svaraði Magni Kjartansson, bóndi í Árgerði spurningu Dags um líðan stóð- hestsins Snældu-BIesa. Svo sem frægt er orðið hefur Snældu-Blesi notið umönnunar færustu lækna og gervilimasmiða vegna brotfris afturfótar. Síðast- liðinn föstudag var brotið mynd- að á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og kom þá í ljós að brotið er að gróa og allt á réttri leið, en menn voru farnir að ótt- ast að brotið greri ekki eðliiega. Sem betur fer reyndist sá ótti ástæðulítill og sagði Magni að næsta skref væri að endurhæfa fótinn. Magni sagði að hann hefði ekkert verið að leggja það á hest- inn að láta hann gegna sínu aðal- hlutverki, að fylja merar, en bjóst við að hann fengi að reyna sig í vor þegar fóturinn verður orðinn traustari. -yk. í bónussamningum þeim sem nýlega voru samþykktir á Siglu- firði fólust m.a. breyttar reglur um útreikning á nýtingu sem leiða til þess að þeir sem voru yfir meðallagi í afköstum hækka nokkuð í launum en þeir sern höfðu lakari afköst og þar með lægri laun, lækka. Kolbeinn kvaðst telja að enn væri ekki komin næg reynsla á samningana til að hægt væri að fullyrða um það hvernig þeir kæmu út þar sem svo skammur tími er liðinn frá því að útreikningunum var breytt. Eitt af því sem skiptir máli er gæði hráefnisins en þessa daga sem liðnir eru síðan samningarnir tóku gildi hefur verið unnið úr mjög góðu hráefni á Siglufirði. Kolbeinn sagðist óttast að ef hrá- efnið versnaði myndi það leiða til lakari útkomu fyrir verkafólkið í bónusvinnunni. Þrátt fyrir að sér þættu samningarnir í heild vera ákaflega slakir sagði Kolbeinn að þeim hefði fylgt tvenns konar ávinningur fyrir verkafólk. í fyrsta lagi hefði bónusgrunnurinn hækkað um 10 krónur og í öðru lagi hefðu premíulaun hækkað verulega. Aðeins eins mánaðar uppsagn- arfrestur er á samningunum en Kolbeinn vildi ekki spá fyrir um það hvort þeim yrði sagt upp fljótlega. Áður en það yrði gert þyrfti að fá betri reynslu og ef- laust verður einnig litið til þess hvernig samningar nást á félags- svæði Einingar við Eyjafjörð en þar standa nú yfir samningaum- leitanir þar sem Eining setur fram kröfur um talsvert annan samning en náðist á Siglufirði. í sem stystu máli má segja að kröfur Einingar miði að því að þeir sem eru lægstir fái mesta hækkun en allir hækki eitthvað. -yk. Þórsarar fóru glæsilega af stað í 1. deildinni í körfubolta. Sigruðu UBK í tveim leikjum nú um helgina. Hér stekkur Konráð Óskarsson Þórsari hærra en aðrir og skorar 2 stig. Sjá íþróttir. Mynd: KGA. Það verður að vanda vel til þessarar kennslu" - segir Tryggvi Gíslason sem fagnar ákvörðun menntamálaráðherra um að háskólakennsla hefjist á Akureyri næsta haust „Jú ég er mjög ánægður með þá yfirlýsingu menntamálaráð- herra að háskólakennsla skuli hefjast á Akureyri næsta haust,“ sagði Tryggvi Gíslason Þórshöfn: Bygging heilsugæslu- stöðvar hafin - Læknar koma og fara Á Þórshöfn er nú hafin vinna við nýja heilsugæslustöð. Ver- ið er að grafa fyrir grunni og áætlað að steypa hann upp á þessu hausti. „Við gerum nú varla ineira en að koma grunninum upp úr jörð- inni í ár en á næsta ári verður byggingin væntanlega gerð fokheld,“ sagði Stefán Jónsson sveitarstjóri á Þórshöfn. Af öðrum framkvæmdum á Þórshöfn er það helst að frétta að uppbyggingu brimvarnargarðsins er nú endanlega lokið. Fram- kvæmdir stóðu yfir í ágúst og september og kostuðu þær 7,9 milljónir króna. En þótt hafin sé vinna við byggingu heilsugæslustöðvar eru læknamál þeirra Þórshafnarbúa í hálfgerðum ólestri og hafa verið um nokkurt skeið. Læknar hafa komið og farið og stoppað stutt. Stefán sveitarstjóri sagðist ekki hafa tölu á því hversu margir læknar hefðu starf- að á Þórshöfn á þessu ári. „Ég er hættur að telja þá,“ sagði hann, „og sá sem er hér nú hættir um næstu mánaðamót og mér er ekki kunnugt um að tekist hafi að ráða annan í hans stað.“ íbúar Þórshafnar hafa nú sent inn undirskriftalista til heilbrigð- isyfirvalda þar sem knúið er á urn langtímalausn í þessu máli. BB. skólameistari MA en hann á einnig sæti í nefnd sem bæjar- stjórn skipaði til þess að vinna að framgangi þessa máls. „í ummælum hins nýja menntamálaráðherra kemur fram að viljinn skiptir mestu máli,“ sagði Tryggvi, og við spurðum hann hvar hin nýja menntastofnun á Akureyri myndi fá inni. „Það verður hægt að leysa það mál. Að vísu gera fjárlög ekki ráð fyrir nema 10 milljóna króna framlagi til Verkmenntaskólans á Akureyri á næsta ári, en það standa þó vonir til þess að bók- námsálman við skólann verði fullgerð næsta haust og Verk- menntaskólinn geti þar af leið- andi farið úr hluta af gamla Iðn- skólahúsinu og því verði hægt í sambýli við Verkmenntaskólann að hefja kennsluna þar. Hús- næðismálin verða ekki vandamál a.m.k. til að byrja með.“ - Hver verða helstu vanda- málin við að koma þessu af stað? „Vafalítið verða það peninga- málin sjálf sem verða aðal vanda- málin en auk þess þarf að hefja undirbúning þegar því það verð- ur að vanda þessa kennslu. Bæjarstjórn hefur kosið nefnd til að vinna að þessu máli og sú nefnd tekur til starfa nú þegar. Háskólinn hefur tekið allvel undir þetta mál en þó með hang- andi hendi og mikillar íhaldssemi virðist nú gæta hjá sumum starfs- mönnum Háskólans en þeir trúa því að háskólakennsla geti aðeins farið fram í Reykjavík, það eru ekki allir sem trúa því að Háskóli íslands rísi undir nafni," sagði Tryggvi Gíslason. gk-. „Líklegt að endur- sagan taki sig - segir Bjami Sigurðsson sjávarútvegsfræð- ingur um þær hugmyndir Húsvíkinga að kaupa Kolbeinsey á 170 milljónir á uppboði „Það er til „þumalfíngurs- regla“ sem segir að áriegt skiptaverðmæti skips verði að vera jafn mikið og nemur skuldum þess. Kolbeinsey þyrfti því í rauninni að físka fyrir 170 milljónir á ári til þess að dæmið gengi upp.“ Þetta m.a. segir Bjarni Sig- urösson, 27 ára gamall sjávarút- vegsfræðingur frá Húsavík, að þurfi að taka með í reikninginn áður en lokaákvörðun verði tekin um að halda togaranum Kolbeinsey á Húsavík. Hann leggur áherslu á nauð- syn þess að skoða aðra mögu- leika jafnframt, því vissulega séu til fleiri skip en þetta eina. Bjarni bcndir á að sú hætta sé fyrir heridi að menn brenni sig á sama soðinu tvisvar. Sjá bls. 3.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.