Dagur - 21.10.1985, Qupperneq 3
„Einblínt á Kolbeinsey"
- það eru jú til fleiri skip
Svo sem fram hefur komið í
fréttum er mikill hugur í Hús-
víkingum að halda togaranum
Kolbeinsey á Húsavík ef þess
er nokkur kostur, enda miklir
hagsmunir í húfl. Fram til
þessa hcfur ekki látið hátt í
Akureyri:
Viðtals-
tímar
bæjar-
fulltrúa
Frá og með næstu mánaðamót-
um verða viðtalstímar við
bæjarfulltrúa á Akureyri tekn-
ir upp að nýju.
Svo sem mönnum er kunnugt
voru bæjarfulltrúar með fasta
viðtalstíma sl. vetur og mæltist
það vel fyrir meðal bæjarbúa sem
fengu þar ákjósanlegt tækifæri til
að koma skoðunum sínum á
framfæri og fá gleggri innsýn í
málefni bæjarstjórnar.
Bæjarfulltrúar verða til viðtals
annan hvern miðvikudag svo sem
var sl. vetur en nákvæm tíma-
setning verður auglýst síðar.
BB.
Húsavík:
Reglugerð um
opnunartíma
verslana
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
samþykkt nýja reglugerð um
opnunartíma verslana í
bænum, en engin slík reglu-
gerð hefur verið í gildi þar í
nokkur ár.
í hinni nýju samþykkt er heim-
ild til að hafa sölustaði opna til
kl. 19 á föstudögum og til kl. 22 á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Að fenginni umsögn heilbrigðis-
nefndar getur bæjarstjórn leyft
að matvöruverslanir, söluturnar
og sambærilegir sölustaðir séu
opnir alla daga frá kl. 8 til 23.30 á
tímabilinu 15. maí til 14. septem-
ber. IM-Húsavík.
Páll og
Gunnar
ráðnir
Tveir nýlr menn hafa verið
ráðnir rannsóknarlögreglu-
menn á Akureyri. Þeir eru Páll
Þorkelsson og Gunnar Jó-
hannesson.
Við fráfall Ófeigs Baldursson-
ar varð Daníel Snorrason yfir-
maður rannsóknadeildar lögregl-
unnar á Akureyri. Páll starfaði
með Daníel og Gunnar bættist
svo í hópinn þegar heimild fékkst
til að bæta við einum starfs-
manni. Nýlega voru svo stöðurn-
ar tvær auglýstar lausar til um-
sóknar og þeir Páll og Gunnar
valdir úr hópi umsækjenda.
þeim sem véfengja réttmæti
þess að Kolbeinsey verði
áfram gerð út frá Húsavík.
Bjarni Sigurðsson, sjávarút-
vegsfræðingur í Noregi, er ekki
sammála þeim sem vilja halda í
Kolbeinsey.
Bjarni er 27 ára gamall Hús-
víkingur, stúdent frá MA árið
1977. Hann stundaði nám við út-
gerðardeild Tækniskóla íslands
veturinn ’79-’80 og hefur nú lokið
prófi sem sjávarútvegsfræðingur
eftir 5 ára nám í Noregi.
í símtali við blaðamann sagði
Bjarni að hann, ásamt tveimur
skólafélögum úr Tækniskólan-
um, hefðu gert hagkvæmnis-
könnun vegna kaupanna á Kol-
beinsey, þegar skipið var í smíð-
um árið 1980.
„Sú athugun sýndi að þurft
hefði að fiska u.þ.b. 8000 tonn
árlega til að standa í fullum skil-
um við lánardrottna, jafnvel þótt
lántökugjaldmiðillinn hefði hald-
ist stöðugur miðað við aöra
sterka gjaldmiðla," sagði Bjarni,
„en sem kunnugt er hefur skipið
aldrei náð helmingi þess magns
og varla við öðru að búast.“
„Talað er um að kaupverð
skipsins í dag sé 170 milljónir og
það er ennþá svo dýr fjárfesting
að miklar líkur eru á að sagan
endurtaki sig og útgerðin fari á
hausinn."
Bjarni sagði að það mætti bera
þessa fjárfestingu saman við Ak-
ureyrina, sem væri álíka dýr eftir
allar þær breytingar sem á því
skipi væri búið að gera.
„Það er til „þumalfingurs-
regla“ sem segir að árlegt skipta-
verðmæti skips verði að vera
jafnmikið og nemur skuldum
skipsins," sagði Bjarni ennfrem-
ur. Kolbeinsey þyrfti því í raun-
inn að fiska fyrir 170 millljónir á
ári, en eins og staðan er í dag
fiskar skipið fyrir ca. 50 milljónir.
Það dæmi gengur ekki upp.“
Bjarni sagðist ekki hafa sett sig
inn í málið „upp á krónu“, en
hins vegar hefði hann fylgst með
skipinu frá því það kom og séð
eins og aðrir að leið þess hefur
legið niður á við.
„Það sem fer í taugarnar á mér
er að menn einblína á Kolbeins-
ey. Þótt skipið sé í góðu ástandi
og allt það, þarf að skoða aðra
möguleika. Það eru jú til fleiri
skip,“ sagði Bjarni Sigurðsson að
lokum. BB
Togarinn Kolbeinsey.
„Mennt er mattur“
- skólastarf kynnt með nýstár-
legum
Kynningarnefnd Kennarasam-
bands Islands mun í samráði
við menntamálaráðuneytið
gangast fyrir sérstakri kynn-
ingu á almennu skólastarfi.
Samþykkt var að velja laugar-
daginn 2. nóvember nk. sem
kynningardag í grunnskólum
landsins. í staðinn falli niður
kennsla mánudaginn 4. nóv-
ember en kennt verði sam-
kvæmt stundaskrá þess dags á
laugardeginum.
Svo segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu frá Kennarasambandi ís-
lands sem blaðinu hefur borist.
Markmið með slíkum degi er
að kynna aðstandendum barna
og öðrum það starf sem fram fer
í grunnskólum landsins og vinnu-
aðstöðu kennara og nemenda.
Laufey
- giskaði rétt á
Nú er lokið keppni í trefla-
prjóninu mikla milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur. Þetta voru
ánægjulegir dagar fyrir okkur
hér í versluninni og viljum við
þakka öllum sem tóku þátt í
þessu gamni okkar og Álafoss.
Þáð var auðvitað meiningin
með þessu að minna á Álafoss-
lopann sem hentar mjög vel í
vetrarpeysurnar okkar, en vetur
er sem kunnugt er á næsta leiti.
En um leið vildum við fá sem
hætti
Laugardagur er valinn til þess
að sem flestir eigi þess kost að
koma í heimsókn.
Geti skóli af einhverjum
ástæðum ekki komið því við að
nota laugardaginn, hefur verið
mælst til þess að mánudagurinn
4. nóvember verði valinn í
staðinn.
Merki kynningardags verður
afhent öllum grunnskólanemend-
um og er það jafnframt happ-
drættismiði.
Það er ósk kynningarnefndar-
innar að aðstandendur barna og
aðrir velunnarar skóla noti þetta
tækifæri til að kynnast aðbúnaði á
vinnustað kennara og nemenda
og því fjölbreytta starfi sem fram
fer í skólum, einnig að dagurinn
stuðli að auknum samskiptum
milli heimila og skóla. BB.
sigraði
lengd trefilsins
flesta til að taka þátt í þessum
saklausa leik sem við vonum að
allir hafi haft nokkurt gaman af.
í lokin efndurn við til getraun-
ar um það hversu langur trefillinn
væri og sigurvegari varð Laufey B.
Þorsteinsdóttir, Kotárgerði 17 og
fær hún lopa í peysu í verðlaun.
Þátttakendur í prjónakeppninni
voru um tvö hundruð.
Úrslit urðu þau að Akureyr-
ingar prjónuðu 24,5 metra en
Reykvíkingar 29,3 metra.
21. október 1985 - DAGUR - 3
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
0
NÝLAGNIR
VIOGEROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
Lyfsöluleyfi
er forseti íslands veitir.
Lyfsöluleyfi Seyðisfjarðarumdæmis (Apótek Austur-
lands) er auglýst til umsóknar.
Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1.
janúar 1986.
Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa bor-
ist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 15.
nóvember nk.
Heiibrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
15. október 1985.
Gömludansanámskeið
fyrir unglinga
verður í Dynheimum dagana 25., 26. og 27. okt. ef næg
þátttaka fæst. Leiðbeinandi er Helga Þórarinsdóttir frá
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur.
Fyrirhugað er að stofna dansklúbb í lok námskeiðs fyrir
unglinga á aldrinum 12 - 18 ára.
Skráning og uppl. í Dynheimum í síma 22710
AKUREYRARBÆR
Lausar lóðir
Lausar eru til umsóknar:
Raðhúsalóðir v/Múlasíðu fyrir hús á 1 hæð og 1
hæð m/nýtanl. risi.
Raðhúsalóðir v/Vestursíðu fyrir hús á 1 hæð
m/nýtanl. risi og 2 hæðum.
Raðhúsalóð v/Litluhlíð fyrir hús á 2 hæðum.
Einbýlishúsalóðir í Síðuhverfi 3:
Fyrir hús á 1 hæð, 1 hæð m/kjallara og 1 hæð
m/nýtanl. risi.
Einbýlishúsalóðir v/Stórholt 14 og 16 fyrir hús á 2
hæðum.
Iðnaðarhúsalóðir v/Fjölnisgötu og Frostagötu.
Upplýsingar um lóðirnar eru veittar á skrifstofu
byggingarfulltrúa, Geislagötu 9.
Ath! Umsóknarfrestur um lán frá Húsnæðis-
stofnun ríkisins vegna íbúða er fokheldar
verða árið 1986 þurfa að berast fyrir 1. nóv.
1985.
Byggingarfulltrúinn á Akureyri.