Dagur - 24.10.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 24. október 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUFI:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÓRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFÍ KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDIS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leidarL
Jafnréttis krafist
„Vér óskum fulls jafnréttis fyrir konur og
karla að lögum og í framkvæmd laganna, og
vér viljum gera alla þjóðina færa um að nota
sér slík réttindi. Vér óskum að tryggja konum
jafngóð lífsskilyrði og körlum við alla þá at-
vinnu sem þær komast að.“
Þessar óskir bar Bríet Bjarnhéðinsdóttir
fram í ræðu sem hún flutti á hátíðisdegi
kvenna 19. júní 1918. Því miður hafa þessar
óskir ekki ræst þrátt fyrir að lög um launajöfn-
uð karla og kvenna hafi tekið gildi í áföngum
á árunum 1961-1967 og lög um jafnrétti
kvenna og karla árið 1976.
Hvað er það sem veldur því að lögunum er
ekki framfylgt betur en raun ber vitni? Ef til
vill má segja sem svo að það sé flókið mál að
vega það og meta hvað séu jafnverðmæt og
sambærileg störf. Það er samt ekki næg
ástæða til að réttlæta það að hefðbundin
kvennastörf lenda neðar í starfsmati en önn-
ur hliðstæð störf. Við höfum í höndum niður-
stöður úr ótal könnunum sem gerðar hafa
verið á undanförnum árum sem segja m.a.:
Skipting í karla- og kvennastörf er augljós,
meiri hluti kvenna vinnur við verslunar-,
þjónustu- og iðnaðarstörf, þær eru í meiri-
hluta í störfum ófaglærðs verkafólks, þær eru
mun færri í stéttum eigenda, sérfræðinga,
stjórnenda og faglærðra, mjög margar konur
vinna hlutastörf. Þegar laun hafa verið um-
reiknuð og miðað við fullt starf allt árið kemur
í ljós að karlar hafa að jafnaði 49% hærri laun
en konur.
Þessi staðreynd að karlar hafa miklu hærri
laun en konur varð tilefni til kvennafrídagsins
fyrir 10 árum. Þá spurðu konur: Hvers vegna
kvennafrí? Og svarið: Vegna þess að karlar í
verslunar- og skrifstofustörfum hafa 73%
hærri laun en konur og mismunur á launum
verkakvenna og verkakarla er 30.000 kr.
(g.kr.) á mánuði. Launamunur hjá öðrum
stéttum var einnig umtalsverður.
í dag er kvennafrídagur nr. 2 og í tilefni af
því er rétt að staldra aðeins við og athuga
hvort eitthvað hefur áunnist sl. áratug. Því
miður sýna kannanir að í flestum starfsgrein-
um hefur ekkert lagast og í sumum hefur
ástandið jafnvel farið versnandi, hvað varðar
samanburð á launum. Það sem helst hefur
áunnist er hugarfarsbreyting, það er ekki
lengur efast um hæfni kvenna til starfa né
rétt þeirra á sömu launum og karlar hafa fyrir
sömu vinnu.
Hvað er til ráða? Einfaldlega það að konur
sýni samtakamátt sinn og standi virkilega
saman. Það er ekki vænlegt eitt sér til árang-
urs að leita að sökudólg sem hægt er að skella
skuldinni á. Eitthvað verður að gera til að ár-
angur náist í tíð þessarar kynslóðar. Konur
tökum á, lítum bjartsýnar fram á veginn því
allt er hægt ef vilji er fyrir hendi. — ám.
_viðtal dagsins____________________
„Pabbi hafði engin
áhrif á valið”
Kristín Jónsdóttir smiður í viðtali dagsins
Kvennastörf, karlastörf. Þetta
eru orð sem reynt er að gefa
aðra og jafnréttislegri merk-
ingu en þau hafa haft á undan-
förnum árum, áratugum og
jafnvel öldum. Það þótti til
dæmis ekki eðlilegt að konur
gerðu annað en það sem þótti
þeim hæfa samkvæmt gamalli
hefð. Konur áttu að vinna við
heimilisstörf, barnauppeldi og
annað sem tengdist þvflíku og
ekki skipta sér af því sem karl-
ar voru að gera.
Nú er öldin önnur og konur
keyra strætó, fljúga flugvélum
og annað sem þótti einungis á
færi karla i eina tíð.
Kristín Jónsdóttir er húsgagna-
smiður að mennt og starfi. Hún
vinnur nú á Trésmíðaverkstæð-
inu í>ór á Akureyri.
Kristín vildi halda því fram að
hún hefði ekkert fram að færa í
dagblaði. Samt sleppur hún ekki
við það að segja okkur lítillega af
sér.
Hún er frá Vík í Mýrdal, en
flutti 1977 til að fara í Iðnskólann
í Reykjavík. Þar lærði hún hús-
gagnasmíði bæði bóklegu og
verklegu hlið námsins. Sveins-
próf tók hún 1980. „Ég smíðaði
barskáp sem arkitekt hafði teikn-
að. Þessi skápur var alveg forljót-
ur,“ sagði Kristín.
- Áttu hann þá ekki heima í
stofu?
„Nei, ég gaf hann þegar ég var
búin að smíða hann. Ég hefði
viljað smíða eitthvað annað en
barskáp, en ég fékk engu um það
ráðið.1'
Kristín fluttist til Akureyrar
haustið ’81. Það er með hana sem
svo marga sem koma hingað frá
öðrum stöðum af landinu að þeir
ætla aðeins að vera eitt ár eða
svo en ílendast. Það fór eins með
Kristínu og sambýlismann
hennar, Ólaf Þórðarson íþrótta-
kennara. Þau ætluðu að vera eitt
ár til að byrja með. En eru enn á
Akureyri.
- Ætlar þú að setjast að?
„Ekkert ákveðið ennþá. Ég
þarf ekki langan tíma til að
ákveða flutning. Eins og er þá
erum við hér og ætlum að vera
eitthvað lengur. Hvað verður í
framtíðinni fer eftir ýmsu.“
- Byrjaðir þú strax að vinna á
verkstæði?
„Nei, ég var fyrst við kennslu
hjá Þjálfunarskóla ríkisins hér í
bænum áður en ég byrjaði hjá
Þór.“
- Kom ekkert annað til greina
í sambandi við nám?
„Nei, þetta og ekkert annað,“
segir Kristín ákveðin. „Pabbi
minn er smiður, en hann hafði
engin áhrif á mig í þessu starfs-
vali. Ég ætlaði að gera þetta og
ekkert annað.“
- Hvernig kom Akureyri inn í
myndina?
„Mig langaði til að prófa eitt-
hvað nýtt. Ég hafði keyrt hér í
gegnum bæinn á leið austur í Mý-
vatnssveit. Það var ekki glæsilegt
veðrið þá ausandi rigning."
- Hvernig áhrif hafði Akur-
eyri í ausandi rigningu á mann-
eskju sem ekki hafði verið hér
áður?
„Ótrúlega vel. Mér fannst
strax mjög fallegt hér og hreifst
af staðnum.“
- Hvernig hefur gengið að fá
vinnu við sitt fag?
„Mér var strax vel tekið á Þór.
Því er ekki að leyna að þegar ég
talaði við menn á öðrum stöðum
og bað um vinnu, var svarið:
Það þarf ekki konur hingað,
eða við höfum konu á skrifstof-
unni og í kaffinu. Þegar ég sagði
þeim að ég væri smiður, reyndu
menn að eyða talinu.“
- Ekkert hrædd við trésmíða-
vélarnar?
„Þá þýddi lítið að vera í þessu.
Eins gott að fá sér starf á skrif-
stofu.“
- Puttarnir!
„Er með alla mína og stefni að
því að halda þeim öllum. Það eru
ansi margir í þessu starfi sem
hafa fengið að finna fyrir vélun-
um. Það verður að fara gætilega
þá á þetta að vera í lagi.“
- Éitthvað annað en vinnan?
„Er í öldungadeild Mennta-
skólans. Stefni á stúdentspróf eft-
ir tvö ár ef ég verð dugleg."
- Hver getur efast um dugnað
Kristínar? Hún sem vinnur fulla
vinnu við trésmíðar og er síðan í
skóla á hverju kvöldi.
- Hvenær hittir þú þá sambýl-
ismanninn?
„Hann er mikið úti líka þannig
að tíminn milli kl. ellefu á kvöld-
in og sjö á morgnana er okkar
tími.“ - gej
8
o
■
M
A
N
U
O
A
Gí
U
R