Dagur - 24.10.1985, Blaðsíða 6

Dagur - 24.10.1985, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 24. október 1985 ALLTá tónleikum með Bubba Síðastliðið sunnudagskvöld hélt Bubbi Morthens tón- leika í Dynheimum á Akur- eyri. Þetta voru síðustu tón- leikarnir í nokkurra daga ferðalagi um Norðurland og að sögn Bubba þeir bestu ásamt tónleikunum í Hrísey. Áheyrendur þetta kvöld voru um 60 aðallega á aldrinum 15- 20 ára og ekki var annað að sjá en að allir „fíluðu Bubba í botn“. Prógrammið var byggt upp á gömlum og nýjum lögum, flestum eftir Bubba sjálfan, og inn á milli var kryddað með sögum af tilurö laganna o.fl. Oft á tíðum náðist upp mjög góð stemmning og Bubba tókst mjög vel að ná til áheyrenda og fá þá með. Tón- leikarnir hófust um kl. 21.30 og stóðu í tvo tíma án hlés. Fyrri hlutann lék Bubbi einn en þegar nokkuð var liðið á dagskrána bættist honum ágætur liðsauki þar sem var Björgúlfur Egilsson bassaleikari Kamarorghestanna. Eftir þessa stórgóðu törn náðum við tali af konsertmeistaranum sjálfum Ásbirni Kristinssyni: - Ertu ánægður með þessa tónleika? „Já ég er það. Ég var í mjög góðu formi í kvöld. Annars er mjög misjafnt hvernig maður dettur niðrí ’etta." - Er munur á að spila hérna og fyrir sunnan? „Það fer eftir forminu. Þetta form, að vera einn með gítarinn gengur alveg eins hérna. Maður nær betur til áheyrenda og þetta gerir líka þá kröfu til þeirra að þeir taki afstöðu en séu ekki al- veg dauðir gagnvart músíkinni. Þetta er persónulegra. Aftur á móti er auðveldara að vera með hljómsveitartónleika fyrir sunnan. Ég fíla bara miklu betur að vera einn og bera þá sjálfur ábyrgð á öllu. Þetta form var mjög algengt svona ’64-’65 en þekkist lítið varðandi unglmga „Ég hef fóbíu gagnvart Ijósmyndurum. Texti: Eggert Tryggvason og Helga Björk Eiríksdóttirl- Myndir: Gísli Tryggvason núna. Það má eiginlega segja að ég sé sá eini sem hefur meikað það svona." - Varstu ánægður með plöt- una (Kona)? „Já, mjög ánægður. Ég ákvað það þegar ég gerði þessa plötu að spila bara það sem ég fílaði sjálfur. Það er miklu meiri ein- lægni í þessari plötu en hinum. Þetta er líka eina platan sem ég á með sjálfum mér og hlusta á.“ - Hvaða tónlist hlustarðu ann- ars á? „Blessaður ég hlusta á allt.“ - Duran Duran? „Já já, mér finnst þeir ágætir. Ég átti fyrstu plötuna með þeim og fannst hún þrælgóð. Ég er á móti þeirri gagnrýni sem Duran Duran aðdáendur hafa fengið. Mér finnst þetta eiga rétt á sér eins og öll tónlist. Hins vegar verð ég að segja að ég fíla ekki Boy George og Madonna er hryllingur, bara einnvert fyrirbæri sem hefur verið búið til.“ - Hvað er svo framundan? „Ég er búinn að gera fjögurra ára plötusamning í Stokkhólmi og er að fara þangað í upptöku. Síðan er tónleikaferð í Evrópu. Annars hefur mig alltaf langað til að gera plötu fyrir krakka,“ sagði Bubbi að lokum. Þakka þér fyrir og góða ferð. Rosalega góður á gítar Meðan á tónleikunum stóð tók- um við afsíðis örfáa unglinga. Við töluðum fyrst við Viðar Garð- arsson. „Þetta eru alveg ágætir tón- leikar.“ - Ertu mikill aðdáandi Bubba? „Nei, ekki mikill, en mér finnst hann góður einn. Ég vissi ekki að hann væri svona rosalega góður á gítar.“ - Áttu einhverja plötu með honum? „Já, ég á eina.“ Góðir hljómleikar Kristín Ingólfsdóttir varð næst fyrir svörum. - Ertu aðdáandi Bubba? „Nei, ekki beint, en mér finnst hann bæði góður söngvari og gítarleikari." - En hvernig finnast þér hljómleikarnir? „Þetta eru góðir tónleikar." - Kaupirðu plöturnar hans? „Nei, ég hlusta ekki á plötur.1' Djöfull er hann geðveikislega góður Þetta hrópaði mikill Bubbaaðdá- andi í uppnámi. Það var Arnar Kristinsson. - Það þarf nú varla að spyrja Héraðsfundur Eyjafjarðarprófastsdæmis 1985: saman“ „Besl að bræða brúðhjónin Héraðsfundurinn var að þcssu sinni haldinn að Grund og Laug- arborg, sunnudaginn 1. scpt. og hófst mcð mcssugjörö í Grundar- kirkju kl. 13.30. Sr. Jón Hclgi Þórarinsson prcdikaði, cn sr. Vigfiís Þór Árnason, Siglufirði og sr. Birgir Snæbjórnsson á Akur- cyri, þjónuðu fyrir altari. Sam- cinaður kór úr sóknum prcsta- kallsins söng undir stjórn organ- istans, frú Sigríöar Schiöth. Frú Kolfinna Gcrður Pálsdóttir var mcðhjálpari að vanda og hringj- arar Rcynir Schiöth og Ketill Hclgason. Var athöfnin öll hin virðulegasta, gcstir fast að 90. í mcssulokin stc hinn nyi próf- astur í stólinn, sr. Bjartmar Kristjánsson á Syðra-Laugalandi, og flutti yfirlitsræðu sína um það helsta frá liðnu hcraðsfundarári: Scra Stcfán V. Snævarr hafði látiö af störfum fyrsta okt. sl., cftir farsælan starfsferil, sem prestur í Vallaprestakalli í 43 ár og prófastur héraðsins í 6 ár. Þakkaði prófastur séra Stefáni og hans göfugu frú, Jónu Gunn- laugsdóttur, störfin og kvað margan sakna þeirra burtfluttra úr héraðinu. „En maður kemur í manns stað.“ Sr. Jón Helgi Þórarinsson var í fyrrasumar kjörinn prestur í Dalvíkurprestakalli. En svo heit- ir nú það sem áður hét Valla- prestakall. Kona sr. Jóns er Margrét Einarsdóttir. Bauð próf- astur þau velkomin til starfa í héraðinu og kvað mikils af þeim vænta mega. Þá hafði sr. Helgi Hróbjartsson verið settur prestur í Hríseyjarprestakalli frá 1. októ- ber til jafnlengdar á þessu ári. Er hann í tveggja mánaða fríi frá byrjun ágúst og fór til Eþíópíu. En þar hefir hann starfað áður sem kristniboði. Voru honum þökkuð störf hans og þess óskað, að söfnuðirnir í Hríseyjarpresta- kalli mættu sem lengst njóta krafta hans. Þá gat prófastur þess, að í Laugalandsprestakalli yrði sú breyting, að í næstu fardögum myndi núverandi prestur hverfa þaðan fyrir aldurs sakir, og myndi þá væntanlega búið að kjósa nýjan prest. Á síðastliðnu sumri, hinn 15. júní, hélt Kirkjukórasamband prófastsdæmisins sitt 8. söngmót meö veglegum hætti, og lét þann- ig ekki sitt eftir liggja á þessu al- þjóðlega tónlistarári. Var sungið bæði í Ólafsfirði og á Akureyri og var það mál manna, að söng- mót þetta mætti óhikað telja til merkisviðburða í kirkjusögu hér- aðsins. Þá minntist prófastur á nýliðna Hólahátíð. (Þá fyrstu „biskups- lausu" frá upphafi vega, sem þrátt fyrir það þótti á marga lund takast hið besta! Seinna innskot. B.K.) En á þessari hátíð á Hóla- stað annaðist sönginn sama fólk- ið og við messuna í upphafi hér- aðsfundarins. En þegar hér var komið sögu, leyfði ræðumaður sér svolítinn útúrdúr, þó ekki al- veg að tilefnislausu. Vék hann fá- einum orðum að nöfnum presta-t kalla. Kvað hann það hafa verið misráðið, með kirkjulögunum frá 1952, að breyta gömlum og góðum heitum prestakalla. Þá nefndi prófastur og þakkaði þá miklu réttarbót, sem kirkjur hafa nú fengið með lækkun rafmagns- verðs, sem verið hefði áður óheyrilega hátt. í lok orða sinna þakkaði próf- astur sóknarnefnd Grundarsókn- ar, er svo vel hefði brugðist við ósk sinni um að hafa þennan fund þar í sókn, og byði nú til kaffi- veitinga í Laugarborg, með til- styrk kvenna í sókninni. Formað- ur sóknarnefndar Grundarsóknar er Haraldur Hannesson, bóndi og oddviti í Víðigerði. Og próf- astur þakkaði öllum, sem „prýtt hefðu þessa guðsþjónustu og aukið enn einum veglegum og helgum þætti í sögu hins aldna musteris, sem áttrætt væri á þessu ári“. Að lokum var sunginn hinn fagri héraðsfundarsálmur Valdi- mars Snævars skálds: „Vér lyft- um hjörtum hátt frá jörð...“ Var síðan ekið snúðugt að Laugar- borg og skorti þar ekkert á rausn- arlegar viðtökur heimamanna. Var kaffið á könnunni svo lengi sem menn entust til fundarset- unnar, sem var til kl. 8 eða vel það. Er veitingum höfðu verið gjörð hin bestu skil, var sest við lang- borð mikið í salnum og tekið til fundarstarfa á hefðbundinn hátt. Bauð prófastur fundarmenn velkomna til starfa. Og sérstak- lega bauð hann velkominn heið- ursgest fundarins, séra Trausta Pétursson, áður prófast á Djúpa- vogi, sem hann setti sér við hægri hönd, bað hann vera aðstoðar- fundarstjóra og forða nýliðanum frá vellíklegum axarsköftum í fundarstjórninni. Fór svo fundur- inn fram af hinni mestu prýði og æsingalaust! Prestar voru allir mættir nema séra Helgi. Safnað- arfulltrúar voru úr flestum sóknum, en þær eru 21 (22). Alls sátu fundinn 30 manns. Fundarrit- arar voru þeir beðnir að vera: Sr. Pétur Þórarinsson á Möðruvöll- um og Árni Óskarsson, Dalvík. Og verður nú bókun þeirra félaga mjög höfð til hliðsjónar þessu yfirliti héðan í frá. „En hvat mis- sagt kann að vera í fræðum þessum", verði sett á reikning undirritaðs. Kirkjureikningarnir og skilin á þeim, hafa löngum verið þúfa í götu prófastanna. En með kirkjulögunum nýju er sú breyt- ing gerð, að kjörnir endur- skoðendur skulu afgreiða þau mál. Svo var nú, sem stundum áður, að prófastur fékk samþykki fundarins til þess, að frá reikn- ingunum yrði gengið síðar. „Þá lagði prófastur fram fjöl- ritaða skýrslu með ýmsum tölu- legum upplýsingum um starfsem- ina í prófastsdæminu. Skoðuðu menn skýrsluna og urðu nokkrar umræður um hana.“ Og í því sambandi barst talið lítillega að ársskýrsluforminu, sem prestum er sent til útfyllingar. Er ekkert nýtt, að slíkt beri á góma, og margir óánægðir með þessi skýrsluform, telja þau úrelt og ófullkomin. En í þessu sambandi hefir maður heyrt, að svo mikið sé enn til á „lager“ af þessum forngripum, að ekki þyki fært að fleygja þeim. Kemur manni þá í hug sagan af Skotanum, sem hjó gat á ísinn til þess að geta notað baðmiðann frá sumrinu. „Prófastur minnti á hið mikla starf presta við vitjun sjúkra og almennar húsvitjanir, sem væru mjög mikilvægar, hvort sem prestarnir væru við slíkar heim- sóknir stútfylltir af guðsorði eður ei.“ Skýrslur presta um þessa hlið starfsins taldi prófastur tæpast nógu glöggar til þess að hægt væri að gefa um það tölulegt yfirlit. í skýrslu prófasts kom fram eftirfarandi: Messur í héraðinu á liðnu ári voru 569, árið 1983: 542. Skírð voru 356 börn, en árið 1983: 406. Fermdir voru 359, árið 1983: 396. Altarisgestir voru á sl. ári: 1.967, árið 1983: 2.379. Hjónavígslur: 109, en 1983: 115. Greftranir voru: 143, en 1983: 148. í nefndri skýrslu kom fram, að borgaralegar hjónavígslur á liðnu almanaksári voru 10. Skilnaðir að borði og sæng voru 34. Mann- fjöldi í prófastsdæminu er 20.781. Um „önnur störf presta" segir skýrslan þetta: Einn prestur rek- ur myndarlegan búskap, að forn- um sið. „Aukagreinar" annarra eru einkum kennsla. Er sýnis- horn kennslugreina sem hér segir: Kristinfræði, kristinsaga, siðfræði, íslenska, enska, þýska, reikningur, teikning, saga og samfélagsfræði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.