Dagur - 24.10.1985, Side 3

Dagur - 24.10.1985, Side 3
24. október 1985 - DAGUR - 3 Hitaveitan í Öngulsstaðahreppi: Langar leiðslur skila köldu vatni Kylfíngar Spilakvöld í golfskálanum föstudaginn 25. október og hefst kl. 20.30. Fjölmenniö og takið með ykkur gesti. Skemmtinefnd G.A. íbúar Öngulsstaðahrepps hafa verið mjög óhressir með það hversu lágt hitastig er á vatn- inu sem þeir fá frá Hitaveitu Akureyrar. Notendur í Öngulsstaðahreppi og stjórn Hitaveitu Akureyrar hafa staðið í bréfaskiptum vegna þessa máls i nokkurn tíma. Hákon Hákonarson, formaður stjórnar Hitaveitu Akureyrar, sagði að málið snerist um það að frammi í Öngulsstaðahreppi væru lagnir mjög langar og not- endur fáir og langt á milli þeirra. Hitastig vatnsins væri því mjög lágt. Hann ságði að sú aðferð sem notuð væri á Akureyri til að leiðrétta verð miðað við hitastig gengi einfaldlega ekki upp frammi í Firði vegna þess að að- stæður þar væru allt aðrar en í bænum. „Munum leita allra leiða“ „Við erum ekki að leita að lausn í því formi að veita afslátt vegna lágs hitastigs,“ sagði Hákon, „heldur munum við heldur leita allra leiða til að tryggja að bænd- ur fái vatnið svo heitt að það nýt- ist þeim til allra þeirra þarfa.“ Stjórn Hitaveitu Akureyrar hefur haldið fund með hrepps- nefnd Öngulsstaðahrepps þar sem málin voru rædd og farið í gegnum ágreiningsatriði. Að sögn Hákonar kemur fleiri en ein leið til greina til að leysa þetta mál en of snemmt að segja á þessu stigi hvaða leið yrði farin. - „Við munum vinna að þessu í nánu samráði við hreppsnefndina og ég er vongóður um að fram- búðarlausn finnist sem allir geti sætt sig við,“ sagði Hákon, „en þar til hún finnst fá íbúar Önguls- staðahrepps að sjálfsögðu afslátt frá gjaldskrá vegna hins lága hita- stigs.“ „Fæ nóg af köldu vatni“ „Mér finnst ekki hægt að fella neina dóma, þótt maður sé óhress, fyrr en eftir veturinn,“ sagði Gunnar Jónasson bóndi á Rifkelsstöðum. „Þegar fer að kólna virkilega kemur þetta í Ijós. “ Gunnar sagði að þegar veðrið væri gott og hlýtt þá kæmi vatnið inn ca. 40° heitt en það hefði hjá honum farið niður í 29° og það fyndist sér nokkuð kalt! „Bæirnir á endunum hljóta samt að vera verst settir," sagði hann. „En ég fæ nóg af köldu vatni úr hinum krananum og þarf ekki að fá það frá hitaveitunni." Þegar hann notaði rafmagn til kyndingar sagðist hann hafa þurft 10 kílówött og fengið með því móti meiri hita en nú fæst með heita vatninu. „Við höfum reynd- ar fengið þriðjungs afslátt vegna lágs hitastigs og ég veit að starfs- menn Hitaveitu Akureyrar eru allir af vilja gerðir til að kippa þessu í liðinn. En vatnið er ekki söluvara ef það er kalt og þá finnst mér að seljandinn eigi að taka kostnaðinn á sig. Þetta er eins og ef við bændur tækjum upp á því að segja að við ætluðum bara að keyra mjólkina í bæinn einu sinni í viku, því ann- að væri óhagkvæmt fyrir okkur, burtséð frá því að varan væri þá að meira eða minna leyti ónýt,“ sagði Gunnar á Rifkelsstöðum að lokum. „Greiði ekki reikninga“ Óli Þór Ástvaldsson á Þórustöð- um í Öngulsstaðahreppi sagðist hafa skrifað hjá sér hitastig vatns- ins daglega í heilan mánuð og þann tíma hefði hitastigið verið 48° að meðaltali en veður verið kalt. „Á meðan að hemlarnir voru við lýði var þegjandi samkomu- lag um að þeir sem hefðu lægst hitastig á vatninu fengju umfram stillingu, þeim að kostnaðarlausu og ég veit ekki betur en að allir hafi unað vel við sitt,“ sagði Óli Þór. „En síðan rennslismælarnir voru settir upp hefur enginn af- sláttur verið gefinn og auk þess var skrúfað fyrir rennslið á báð- um endum lagnarinnar og við það kólnaði vatnið enn meira.“ Óli Þór sagðist vera með lægra hitastig en þeir lægstu í bænum en samt hefði hann ekki fengið krónu í afslátt. „Ég hef því ekki greitt einn einasta reikning síðan mælirinn var settur upp og ætla ekki að gera það miðað við óbreytt ástand og ég veit að svo er með fleiri. Ég þarf að greiða helmingi meira frammi í Firði en menn þurfa að greiða í sambæri- legu húsi á Akureyri.“ Óli Þór sagði að þetta mál þyrfti að leysa á sameiginlegum grundvelli og hreppsnefndin hefði umboð allra íbúa Önguls- staðahrepps til þess. „Erum óhressir“ Birgir Þórðarson oddviti á Öng- ulsstöðum sagði að það kæmi sér á óvart að heyra að einhver hefði Briddsmót á Húsavík Bridgesamband íslands gengst fyrir opnu tvímenningsmóti í bridds á Húsavík helgina 9.-10. nóvember nk. Mót þetta er haldið í samvinnu við Samvinnuferðir/Landsýn og eru glæsilegir ferðavinningar í verðlaun. Flugleiðir bjóða helmings af- slátt á flugi til Húsavíkur, auk þess sem mjög hagstætt verð gild- ir hvað varðar gistingu og fæði á Hótel Húsavík. Spilað verður eftir Mitchell- fyrirkomulagi og um gullstig. Spilamennska hefst kl. 13 á laug- ardaginn og verða spiluð 90 spil í það minnsta. Þetta er fyrsta mótið af þremur sem fyrirhugað er að halda á Húsavík. Öll verða þau í eins konar keðju, þ.e. hvert mót er sjálfstæð eining, en jafnframt verða veitt heildarverðlaun fyrir öll kvöldin. Mikill áhugi virðist vera fyrir móti þessu og skráning er þegar hafin hjá Bridgefélagi Akureyrar og Húsavíkur. Þátttökugjald er kr. 1.500 fyrir parið. Væntanlegum þátttakend- um er bent á að láta skrá sig hjá Frímanni í síma 24222, Pétri í síma 22842 eða Gunnari í síma 21503 fyrir miðvikudag 6. nóv- ember. BB. fengið afslátt á hitaveitureikning- um. Það væri sameiginlegt álit hreppsnefndar og hitaveitu- stjórnar að sú viðmiðun sem not- uð væri á Akureyri til að reikna út afsláttinn gengi ekki í Önguls- staðahreppi og þess vegna hefði enginn afsláttur verið veittur enn að því að hann vissi. „Við erum óhress með hvernig að þessu málum hefur verið stað- ið og hversu langan tíma tekur að leysa þessi mál. En við treystum því að þessum málum verði kippt í liðinn alveg á næstunni," sagði Birgir Þórðarson. Hann ítrekaði að sú viðmiðun sem ætti að nota hjá þeim hefði ekki fundist en hreppsnefndin hefði gert tillögu um það mál og hún væri nú í athugun hjá stjórn Hitaveitu Akureyrar. „Við höf- um einnig gert tillögu um hvernig eigi að leysa þessi mál til fram- búðar, en ég vil ekki fara út í það á þessu stigi hvers eðlis sú tillaga er.“ Og þá er bara að sjá hvað ger- ist í málinu á næstu dögum og vikum. Fá íbúar Öngulsstaða- hrepps verulegan afslátt á hita- veitureikningum sínum? Finnst lausn á málinu sem leiðir til þess að vatnið haldist heitt eða þurfa hreppsbúar að fjárfesta í raf- magnsofnum og ábreiðum og búa sig undir kaldan vetur? BB. Takið eftir! Dansleikur verður í Hlíðarbæ laugard. 26. október fyrsta vetrardag. Hljómsveit Steingríms Stefánssonar sér um fjörið frá kl. 23.00. Mætum öll. Kvenfélagið. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI Halnarslræli 99 og 104 Simi (961-22311 (961-25831 602Akureyri Bólusetning gegn innflúensu Fyrirhugað er að gefa á næstunni kost á bólusetningu gegn innflúensu. Mælt er með að aldraðir og þeir sem haldnir eru viss- um langvinnum sjúkdómum fá bólusetningu. Þeir sem hug hafa á bólusetningu eru beðnir að hafa samband við heimilislækni sinn sem fyrst eða fyrir 1. nóvember 1985. Heilsugæslustöðin á Akureyri. =/AMA Hækill og huppur á um 300 krónur kflóið Ýmsir selja lambalæri með hækli og hupp (nárafitu) og lækka þannig kílóverðið. í nýju pökkunardeildinni okkar fjarlægjum við þetta, en pökkum aðeins nýtan- legum hluta lærisins í lofttæmdar um- búðir sem varðveita gæði kjötsins. Við teljum okkur því bjóða hagstæðara verð. Gerðu raunhæfan verðsamanburð! A K U R E Y R 1 KJÖTIÐ FRÁ OKKUR FÆST í ÖLLUM BETRI VERSLUNUM!

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.