Dagur - 25.10.1985, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 25. október 1985
líðarandinn
Ur bókinni: Aðlaðandi er konan ánægð eftir kvikmynda-
stjörnuna Joan Brennet, frá 1945.
Hvað gera skal ef karimaður verður of ágengur við stúlku.
Athugið eftirfarandi:
A. Drekkið ekki áfengi, svo þér verðið kennd eða ástleitin.
B. Sýnið manninum ekki nein blíðuatlot, þó sakleysisleg
séu. Það kann að misskiljast og er rangt gagnvart mannin-
um.
C. Verið ekki kæruleysisleg í orðum eða gróf, til þess að
sýna, hve „veraldarvön“ þér séuð.
D. Verið ekki í einrúmi með manninum, farið ekki í heim-
sókn til hans í einkaherbergi hans, eða ferðalag með honum
einum.
E. Látið yður ekki í kjass og kossa, með þeim lyktum, að
verða móðursjúk og móðguð, er maðurinn heldur yður fúsa
til fylgilags við sig.
F. I stuttu máli sagt: Lofið ekki meiru en þér viljið efna.
Þá vitið þið það stelpur. Umsjónarmaður hefur lúmskan
grun um að þessar reglur henti ykkur ekki síður strákar, ef
stelpurnar ganga of langt. SP
- Hvernig áttu konur að haga sér
á fimmta áratug aldarinnar?
- Gilda þær reglur ef til vill
um bæði kynin í dag?
Kæru konur.
Ekkert er eins erfitt og aö biöja
konu sem maður elskar um eitt-
hvaö.
Karlmaðurinn getur gengiö um
gólf í þungum þönkum tímunum
saman og byrgt inni þær óskir og
þrár sem hann vill svo gjarnan tjá
sinni heittelskuðu.
Hann er hræddur um að þau
orö sem hann velur til að tjá hug
sinn verði misskilin og konan sé
e.t.v. ekki í réttu hugarástandi til
að hlýða á mál hans.
Orð og setningar þvælast fyrir
honum.
Reynið því kæru dömur, næst
þegar maður yðar færir eitthvað í
mál við yður, leiðréttir yður, eða
biður yður einhvers. . . reynið að
skilja að hann vill yður vel, vegna
þess hvað hann elskar yður heitt
og skilur rétt sinn og skyldur, sér
í lagi þá skyldu að benda yður á
það sem betur má fara í fasi
yðar, benda yður á það sem þér
gerið rangt. Þetta eru hlutir sem
þér gerið yður enga grein fyrir en
hann kemur auga á.
E.t.v. er málfar hans rudda-
fengið og e.t.v. hefur hann ekki
valið réttu stundina til að tjá hug
sinn. Karlmenn skortir oft innsæi
í viðkvæmt hugarþel konunar,
því segi ég lærið af mistökum
hans. Lærið og breytið sam-
kvæmt því næst þegar þér finnið
yður knúða til að biðja mann yðar
einhvers.
Lítil og kvenleg handahreyfing
hlýlegt orð og blítt bros, allt hefur
þetta gegnum tíðina blíðkað
harðgerð karlmannshjörtu. Slík
framkoma gerir hann móttæki-
legan fyrir óskum yðar og fær
hann til að láta ýmislegt eftir yður
sem þér hafið ekki látið yður
dreyma um að hann samþykkti.
Kæru dömur, munið umfram
allt aö velja rétta stund og stað til
að tjá hug yöar, ergið hann ekki
með bónum yðar þegar hann er
þreyttur og önugur. Notið aldrei
þá stund sem þér innst inni vitið
að er röng, jafnvel þó að þér þrá-
ið það helst að öskra á mann
yðar.
Verið klók, munið að leiðin að
hjarta mannsins liggur í gegnum
magann, eldið eftirlætisréttinn
hans, kveikið á kertum og brosið
blítt, það er allur galdurinn.
Að síðustu, látið það vera að
reiðast og mótmæla þegar mað-
ur yðar gagnrýnir yður, lítið held-
ur í eigin barm og hugleiðið hvort
yðar heittelskaði hefur ekki rétt
fyrir sér.
Karlmaður.
Þýtt og endursagt úr: Mönster ti-
dende frá 1946.
Hollráð og
reglur
Baðreglur.
Úr bókinni: Aðlaðandi er konan ánægð eftir kvik-
myndastjörnuna Joan Brennet, frá 1945.
Við þrifabað þarf þetta fernt:
Heitt vatn, nóg af handsápu, gróft handklæði,
mjúkan en góðan baðbursta.
Hér eru leiðbeiningar um baðið. Reynið þær í tvær
vikur og dæmið sjálfar um árangur.
1. Látið þægilega heitt vatn renna í baðkerið,
meðan þér burstið tennurnar yfir vaskinum. (Vatnið
ætti helst að ná yður upp að mitti, er þér sitjið í ker-
inu.)
Nælið hárið upp.
2. Þvoið yður vel um andlit, háls og eyru, áður en
þér farið upp í baðkerið. Munið vel eftir hálsinum að
aftan, niður við hársrætur og framundir kjálka. Skol-
ið sápuna vel af, þurrkið andlitið og berið svolítið
nærandi smyrsl á andlit og háls.
Stígið síðan upp í baðkerið.
(Þetta atriði má sennilega alls ekki gleymast. Inn-
skot frá umsjónarmanni.)
3. Sápið og burstið handleggina og bringuna með
mjúkum baðbursta. Eyðið nokkrum aukasekúndum í
olnbogana. Skolið sápuna af.
4. Sápið og burstið bakið með mjúkum bursta
(helst með löngu skafti). Skolið sápuna af.
5. Sápið og þvoið það sem eftir er líkamans niður
að hnjám. Skolið sápuna af. (Stutt og laggott, enda
viðkvæmt mál. Innskot frá umsjónarm.)
6. Sápið og burstið fótleggina með mjúkum bað-
bursta. Skolið sápuna af.
7. Burstið hælana, ökklana, tærnar, iljarnar með
naglabursta. Skolið sápuna af.
8. Ef þér eigið kost á nægilega miklu vatni og haf-
ið tíma til þess, skulið þér tæma baðkerið og skola
yður undir sturtunni.
Nú eruð þér hreinar. Þetta var rækilegt bað.
Umsjónarmaður fór eftir leiðbeiningum þessum, í
von um aukið aðdráttarafl, og tók baðið alls 1 klst.
og 27 mín. Upp stóð gullhrein stúlka með sárindi í
olnbogunum. Því miður hefur hún ekki tekið eftir því
að fólk laðist að henni eins og flugur að hunangi,
enda er með eindæmum erfitt að draga athygli við-
mælenda sinna að silkimjúkum og tandurhreinum
olnbogum.
Sigríður
Pétursdóttir
skrifar