Dagur - 25.10.1985, Blaðsíða 16
H tilefni af vetrarkomu býður Bautinn-
og Smiðjan eftirfarandi, sunnudaginn
27. okt. í hádeginu og um kvöldið.
Rjómalöguð spergilsúpa
Pekingönd með sykurbrúnuðum kartöflum, rauðkáli og ribsberjahlaupi
Verð á Bauta 350.00, verð í Smiðju 400.00
Fyrír 12 ára og yngri í fylgd foreldra, frír hamborgari
eða samloka
Konur fjölmenntu í Alþýðuhúsið á Akureyri í gærdag. Reyndar var hinn nýi samkomusalur hússins of lítill þegar já reyndi, þannig að konurnar „hertóku“
Sjallann cinnig og þar var einnig samfclld dagskrá eins og í Alþýðuhúsinu, þar sem þessi mynd var tekin. Mynd: gk,-
innbæjarskipulag a Akureyri:
Bæjarstjóm
ræðir
Skipulagsnefnd Akureyrar
hefur ekki gert neinar stór-
vægilegar breytingar á tillög-
um að deiliskipulagi fyrir Inn-
bæinn, að sögn Finns Birgis-
sonar skipulagsstjóra.
Þó hafa nokkrar breytingar
verið gerðar á tillögum um bíla-
stæði og var þar reynt að taka til-
lit til athugasemda sem bárust
frá íbúum í Innbænum eftir að al-
menningi hafði verið gefinn kost-
ur á að kynna sér skipulagsdrögin
og gera athugasemdir. Nokkrar
athugasemdir bárust, þar á meðal
tveir undirskriftalistar frá stórum
hópum Innbæinga. Skipulags-
málið
nefnd hefur nú lokið við að fara
yfir athugasemdirnar og eru
breytingartillögur hennar nú
komnar til Hjörleifs Stefánssonar
arkitekts sem er höfundur skipu-
lagstillögunnar og mun hann
breyta uppdráttum í samræmi við
tillögur skipulagsnefndar.
Líklega fer skipulagstillagan
fyrir næsta fund bæjarstjórnar, til
staðfestingar og að lokinni af-
greiðslu bæjarstjórnar, til Skipu-
lagsstjórnar ríkisins sem þarf
einnig að staðfesta skipulagstil-
löguna. Að því búnu verður
deiliskipulag Innbæjarins í fullu
gildi og allar framkvæmdir á
svæðinu í samræmi við það. -yk.
skipulega dagskrá að ræða í til-
efni dagsins var minna um að
konur tækju sér frí frá vinnu. En
þegar á heildina er litið er óhætt
að segja að konur hafi í gær
hressilega vakið athygli á kjara-
og jafnréttisbaráttu sinni, og í
dag mæta þær til starfa þannig að
hjól atvinnulífsins fara að snúast
eðlilega. gk-.
Sjómaður í vanda:
Björgunarsveitin
leysti málið!
Viöar Þórðarson á Húsavík
hélt í róöur í fyrrinótt sem
ekki þykir í frásögur færandi.
Hann lenti hins vegar í erfiö-
leikum og varð að kalla út
björgunarsveit í gær til þess
að bjarga honum í land.
Viðar hreppti vont veður í
gærmorgun og tók hann það ráð
að leita inn á Breiðuvík í var.
Þar var hann svo í bátnum fram
undir kvöldmat í gærkvöldi og
komst ekkert.
Björgunarsveitin Garðar á
Húsavík fór á staðinn í gær og
tókst að ná manninum í björg-
unarbát, en bátur Viðars var
skilinn eftir á staðnum eftir að
gengið hafði verið vel frá
honum. Viðari varð ekki meint
af volkinu og „björgun" hans
tókst mjög vel. IM/gk.-
Um klukkan sex í gær var unnið við að draga flutningabílinn upp á veginn
aftur. Veðrið var heldur leiðinlegt eins og sjá má. Innfellda myndin var tekin
um klukkan tvö, skömmu eftir að bíllinn fór útaf. Myndir: KGA.
Ljóst er að konur víða um land
voru mjög samstíga í því í gær
að taka sér frí á „Kvennadag-
inn“ og halda þannig upp á lok
„Kvennaáratugarins“. Víða
var atvinnustarfsemi lömuð
vegna þessa og mikið var um
að „grobbgeltirnir“ yrðu að
taka að sér störf sem þeir sinna
ekki að öllu jöfnu.
Dagur kannaði í gær á nokkr-
um stöðum á Norðurlandi hvern-
ig mæting hefði verið hjá útivinn-
andi konum. Á Akureyri mættu
t.d. sárafáar konur í vinnu í
frystihús Útgerðarfélagsins. Hjá
Iðnaðardeild Sambandsins þar
sem vinna 300-400 konur mættu
ekki nema á milli 30 og 40 eða
um 10%. Mætingin var öllu betri
í Skógerð Iðunnar, þar mættu um
10 konur af 25, og þær unnu á
tvöföldum launum!
Hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á
Akureyri voru tvær matvöru-
verslanir opnar, og afgreitt var
um lúgu f einni þeirra. Tvær
deildir voru opnar í Vöruhúsinu,
skrifstofan var nær mannlaus og
áfram mætti telja.
Þær konur sem starfa hjá KEA
og tóku sér frí í gær héldu upp á
daginn á fullu kaupi, en svo var
ekki alls staðar.
Það var áberandi að á þeim
stöðum þar sem ekki var um
Ólafsfirðingar:
Vilja
fá Rás 2
Ólafsfirðingar eiga þess ekki
kost að hlusta á „Rás 2“ Ríkis-
útvarpsins, og þar af leiðandi
heyra þeir heldur ekki útsend-
ingu svæðisútvarpsins á Akur-
eyri.
Eins og gefur að skilja eru
Ólafsfirðingar lítt hrifnir af þessu
ástandi. Á fundi bæjarstjórnar
Ólafsfjarðar hinn 15. októbervar
saniþykkt tillaga þar sem skorað
var á útvarpsráð og útvarps-
stjóra að gera Ólafsfirðingum
sem fyrst kleift að hlusta á Rás 2
og svæðisútvarpið á Akureyri, og
verða þar með við áskorun þeirra
fjölmörgu er undirrituðu beiðni
um sama efni í bænum sl. sumar.
Þessi tillaga var samþykkt sam-
hljóða. gk-.
Lágheiði:
Vörubílar
fóru útal
í gær var víða snjókoma á fjall-
vegum Norðanlands, sem
leiddi til blindu, hálku og jafn-
vel ófærðar fyrir fólksbíla.
í gærkvöldi var komin þæf-
ingsfærð á Lágheiði og hún þá
ekki talin fær nema jeppum og
stórum bílum. Vöruflutningabíll
á leið vesturyfir heiðina lenti þar
útaf og vörubíll á leið austuryfir
lenti í erfiðleikum skammt innan
við Þrasastaði í Stíflu. Báðir bíl-
arnir komust óskemmdir á rétta
leiö með aðstoð kraftmikilla
dráttartækja. Einnig lentu veg-
farendur um Víkurskarð og
Öxnadalsheiði í kröppum dansi,
en engin teljandi óhöpp urðu.
-GS
Konurnar fjölmenntu í
„Allann og Sjallann“