Dagur - 08.11.1985, Blaðsíða 16
-------------Fjölskyldutilboð--------------------
sunnudaginn 10. nóv. á Bauta í hádeginu og um kvöldið
og í hádeginu í Smiðju:
Spergilkremsúpa og grillsteikt lambalæri með bakaðri kartöflu og
bearnisesósu
Verð á Bauta kr. 350 pr. mann Verð í Smiðju kr. 400 pr. mann
Fyrír börn 12 ára og yngrí í fylgd með foreldrum:
Frír hamborgarí eða samloka
Kaupin a
Kolbeinsey
- Félag stofnað í dag
Stofnfundur hlutafélags sem
hefur það að markmiði að
kaupa togarann Kolbeinsey af
Fiskveiðasjóði verður haldinn
á Húsavík í dag.
Að stofnfundinum standa
Fiskiðjusamlag Húsavíkur,
Kaupfélag Þingeyinga, Verka-
lýðsfélag Húsavíkur og Húsavík-
urbær. Stefnt er að því að hlutafé
verði 30 milljónir króna og leggja
fyrrnefndir aðilar fram fjárhæð
sem nemur nær allri þeirri
upphæð. Einnig hefur starfsfólk
Fiskiðjusamlagsins lagt fram
verulega fjárhæð. Eftir stofn-
fundinn geta aðrir orðið aðilar að
hinu nýja félagi. Nánar verður
fjallað um stofnun félagsins í
Degi nk. mánudag. gk-.
Trillukarlar
stofna félag
Nú, er spenna í hámarki og vinnuálag líka þegar aðeins ein vika er til frum-
sýningar fjölskylduleikritsins um „Jólaævintýrið“ íSamkomuhúsinu á Akur-
eyri. Búningar voru að koma á leikendur hvern af öðrum. Æfingar eru alla
daga og öll kvöld fram að frumsýningunni, sem verður föstudaginn 15. nóv-
ember. Uppselt er að verða á frumsýninguna og mikil eftirspurn eftir miðum
á þær næstu. Á þessari mynd er Árni Tryggvason, sem leikur nirfilinn Scro-
oge ásamt börnunum sem koma fram í sýningunni. Samkvæmt sögunni var
Scrooge ekki jafn hrifinn af börnum og Árni er hér í miðjum hópnum. Enda
er þetta bara leikrit eins og börnin segja. Mynd: -gej
Veðurfarsathuganir Staðarvalsnefndar:
Hitamælingum hætt
- Áhrif flúors á búfé og gróður í Eyjafirði könnuð
Nú er unnið að stofnun svæðis-
deilda innan félags smábáta-
eigenda á landinu. Arthúr
Bogason sem verið hefur
málsvari væntanlegs félags hef-
ur verið á ferð um landið í
þeim tilgangi að kynna mönn-
um væntanlegt félag og það
sem það hyggst beita sér fyrir
varðandi hagsmuni smábáta-
eigenda.
Arthúr hefur verið í Vest-
mannaeyjum, Norðurlandi eystra
og vestra og er á leið til Grímsey-
inga. Svæðisfélagið sem er fyrir
Norðausturland, nær frá Siglu-
firði til Húsavíkur að meðtalinni
Grímsey.
Að loknum kynningum urr
landið verður aðalstofnfundui
haldinn í Reykjavík í byrjun des-
ember. Þar þinga kjörnir fulltrú-
ar svæðisfélaganna. Aðrir félagar
hafa málfrelsi og tillögurétt en
ekki atkvæðisrétt.
Stofnfundurinn á Akureyri
verður haldinn að Hótel Varð-
borg næstkomandi laugardag og
hefst klukkan 16.00. gej-
Fyrir allnokkru síðan var tekin
sú ákvörðun í Staðarvalsnefnd
að hætta þessum athugunum
sem staðið hafa yfir í rúm tvö
ár, sagði Pétur Stefánsson,
verkefnisstjóri Staðarvals-
ncfndar, þegar hann var spurð-
ur um ástæðu þess að teknir
hafa verið niður mælar sem
ætlað var að mæla hitastig á
nokkrum stöðum í Vaðlaheiði.
Þessar mælingar eru liður í
veðurfarsathugunum sem unn-
ar hafa verið til þess að afla
vitneskju um hugsanlega dreif-
ingu mengunar frá álveri við
Eyjafjörð.
Upphaflega var ætlunin að
hafa þessa mæla, sem eru sírit-
andi hitamælar, uppi í eitt ár en
m.a. vegna þess að veðurfar var
óvenjulegt fyrsta árið var ákveð-
ið að hafa þá uppi eitt ár til við-
bótar og er nú liðið á þriðja ár
síðan þeir voru settir upp. Vind-
mælir sem settur var upp við
Ytri-Bakka í Arnarneshreppi
stendur áfram.
Staðarvalsnefnd bíður nú eftir
lokaskýrslu frá norskum aðilum
sem tóku að sér að rannsaka og
segja til um hugsanlega mengun
frá álveri við Eyjafjörð út frá
þeim upplýsingum sem fyrir lágu
og er þessi skýrsla væntanleg ein-
hvern næstu daga. Bráðabirgða-
útgáfa hennar var kynnt hér í vor
og hefur ekkert nýtt komið fram
sem breytir þeim niðurstöðum
sem þá lágu fyrir.
Rannsóknarstofnun landbún-
aðarins vinnur nú að gerð skýrslu
um áhrif þeirrar flúormengunar,
sem gert er ráð fyrir í norsku
skýrslunni, á búfé og gróður í
Eyjafirði og sagði Pétur að sú
skýrsla væri væntanleg um miðj-
an áesember.
Þegar báðar þessar skýrslur
sem hér hafa verið nefndar eru
komnar til skila er þeim verkefn-
um sem Staðarvalsnefnd hefur
verið falið til þessa lokið.
Pétur vildi engu spá um það
hvert framhaldið yrði í þessum
málum, nú væri kominn nýr iðn-
aðarráðherra og hann þyrfti að
Þó að ekki hafi vantað hrak-
spárnar, þegar stappið við að
kaupa Stakfellið til Þórshafnar
stóð sem hæst, virðist togarinn
ætla að standa undir eigin fjár-
magnskostnaði sem er meira
en hægt er að segja um mörg
önnur skip sem bættust í flot-
ann um svipað leyti.
Stakfellið hefur frá upphafi
verið útbúið til frystingar um
borð og hefur sá útbúnaður aðal-
lega nýst við frystingu á grálúðu
og karfa en nú eru uppi áform um
að bæta við tækjum til flokkunar
og frystingar á rækju. Að sögn
Þórólfs Gíslasonar á Þórshöfn er
vonast til að með því að bæta
rækjuveiðum við verði hægt að
auka aflaverðmæti skipsins um
20% á næsta ári en nú stefnir í að
ákveða hvað næst yrði gert í
sambandi við hugsanlega upp-
setningu álvers við Eyjafjörð.
Pétur taldi þó sennilegt að áfram
yrði haldið að vinna úr niðurstöð-
um veðurfarsmælinga og munu
starfsmenn Veðurstofu íslands
að öllum líkindum sjá um það
verk. -yk.
aflaverðmæti þessa árs verði um
80 milljónir króna. Rækjuveið-
arnar eru hugsaðar sem hrein
viðbót við þær veiðar sem skipið
stundar fyrir. -yk.
Óbreytt veður
til sunnudags
Samkvæmt þriggja daga spá
Veðurstofu Islands er líklegt
að veður haldist svipað á
Norðurlandi í dag og á
morgun, norðanátt með frosti
og einhverjum éljum. Á
sunnudag mun líklega hlýna
eitthvað með sunnan- og suð-
vestan átt. BB.
Verður stofnuð
Mjólkursamsala
Norðurlands?
I dag og á laugardag verður
haldin helgarráðstefna um
mjólkurframleiðslu á Norður-
urlandi á Illugastöðum í
Fnjóskadal. Forsvarsmenn og
starfsmenn mjólkursamlaga á
Norðurlandi munu þar bera
saman bækur sínar og hefur
því jafnvel verið varpað fram
hvort úr þessu samstarfi gæti
orðið Mjólkursamsala Norður-
lands.
Þessi ráðstefna miðar að því að
koma á auknu samstarfi í því
skyni að auka hagkvæmni við
mjólkurframleiðsluna. Rætt
verður hvernig mæta megi sam-
drætti í mjólkurframleiðslu á
skipulegan hátt.
„Menn eru staðráðnir í því að
hagræða þessum rekstri og stuðla
að sem bestri framleiðslu og sem
lægstu verði, þrátt fyrir þann
samdrátt sem fyrirsjáanlegur er,“
sagði Valur Arnþórsson, kaupfé-
lagsstjóri á Akureyri, en hann
verður ráðstefnustjóri ásamt
Ólafi E. Friðrikssyni, kaupfélags-
stjóra á Sauðárkróki. Þórarinn
Sveinsson hjá Mjólkursamlagi
KEA mun flytja erindi um sam-
starf mjólkursamlaganna og
Árni S. Jóhannsson, kaupfélags-
stjóri á Blönduósi, um ný fram-
leiðsluráðslög og ný viðhorf. HS
Stakfellið:
Útbúið á rækju
Akureyri, föstudagur 8. nóvember 1985