Dagur - 21.11.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 21.11.1985, Blaðsíða 1
1960*1985 Gullsmiðir Sigtryggur & Pétur Akureyri Það var ekki nema von að krakkamir á Pálmholti á Akureyri störðu undmnaraugum á furðuvemna sem heimsótti þau í gær. Hér er á ferðinni furðufugl frá Reykjavík, „Oskar“ að nafni en hann mun vera hér á vegum Iðnaðarbankans sem fagnar 20 ára afmæli sínu á Akureyri í dag. Mynd: KGA Mikill hiti á fundi eyfirskra kartöflubænda - Neitar formaðurinn að fylgja eftir samþykkt aðalfundarins? Kjötsala: 4 tonn á dag - Hjá Sláturhúsi KEA á Akureyri Sláturhús KEA á Akureyri hefur selt 64 tonn af dilkakjöti Yignis Jónassonar hjá Slátur- frá því útsala á því hófst 4. nóvember síöastliöinn, að sögn Vignis Jónassonar hjá slátur- húsi KEA. Ekki er vitað hvenær útsölunni lýkur en áætlað var að selja 2000 tonn með 20% afslætti á landinu öllu. Að sögn Vignis gekk kjöt- sala hjá sláturhúsinu vel áður en útsalan hófst og betur en gert hafði verið ráð fyrir. Það getur því verið að margir hafi verið búnir að birgja sig eitthvað upp af kjöti áður en útsalan hófst. Ekki er neitt eftir af gömlu kjöti frá því í fyrra hjá sláturhús- inu á Akureyri. -yk. Grímsey: Ríkisskip og F.N. - Yfirtaka flutninga Drangs Grímseyugar verða ekki látnir líða fyrir það að Drangur hefur verið leigður úr landi. Ríkiskip mun taka að sér að flytja þungavöru út í Grímsey tvisvar í mánuði, eða jafn oft og Drangur fór í Eyjuna, og Flugfélag Norðurlands tekur að sér flutninga á þeim varn- ingi sem vélar þess geta með góðu móti borið. Ofanritað kom fram í máli Al- freðs Jónssonar í Grímsey, en hann er fulltrúi Grímseyjar- hrepps í stjórn Flóabátsins Drangs hf. Alfreð sagði að eng- inn grundvöllur hefði verið fyrir því lengur að reka Drang sem flóabát vegna verkefnaskorts. Gerður hefur verið kaupleigu- samningur við bandaríska aðila með milligöngu Norðmanna og sagði Alfreð að stefnt væri að því að selja skipið. Fjögurra manna íslensk áhöfn fer með Drang til karabíska hafsins þar sem hann verður í siglingum á milli eyja.- yk. Drangur. Mikill hiti var í fundarmönnum á aðalfundi Félags kartöflu- bænda í Eyjafirði sem haldinn var í fyrrakvöld. Á fundinum kom fram tillaga frá Stefáni Kristjánssyni bónda á Grýtubakka þar sem þess var krafist að stjórn félagsins hlutað- Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum í fyrradag að frá og með áramótum skuli veitustofnanir bæjarins vera undir einni yfirstjórn. Hér er um að ræða Hitaveitu Akureyrar, Rafveitna og Vatns- veituna, en þessar veitur hafa í dag hver sína yfirstjórn. Jafnframt var bæjarlögmanni fal- ist til um það að kartöflubændur fái fullt verð ásamt áföllnum vöxtum fyrir innlegg frá haustinu 1984. Á fundinum voru 45 kartöflu- bændur. 27 þeirra greiddu at- kvæði um tiiíöguna og fóru at- kvæðin þannig að 25 voru með og tveir voru á móti. Annar þeirra ið að gera tillögur um nauðsyn- legar breytingar á samþykkt um stjórn Akureyrar og reglugerðum veitustofnanna og leggja fyrir bæjarráð. „Ég tel að þetta sé eðlileg þró- un og skapi forsendur til skjótari ákvarðanatöku í þeim málefnum sem snerta þessar stofnanir sam- eiginlega," sagði Sigurður Jó- var Guðmundur Pórisson for- maður félagsins. Að sögn Svein- bergs Laxdal kartöflubónda i Túnsbergi stóð formaðurinn upp er úrslit atkvæðagreiðslunnar lágu fyrir og sagðist ekki myndu vinna að framgangi þessa máls. „Það ber honum þó að gera því stjórninni ber að sjálfsögðu að hannesson bæjarfulltrúi er við ræddum við hann. „Það er meiri efi hjá mér um það hvort brýn nauðsyn hafi ver- ið til að koma þessari skipulags- breytingu á nú um næstu áramót, hvort breytingin hefði ekki mátt tengjast nefndakjöri að loknum bæjarstjórnarkosningum í vor,“ sagði Sigurður gk-. fylgja eftir samþykktum aðal- l'undar," sagði Sveinberg. „Það var mikill hiti á fundin- um,“ sagði Sveinberg. „Það er jú talað um að við höfunt fengið 78% af fullu verði fyrir kart- öflurnar. Það er hins vegar ekki rétt því með vaxtatapi förum við langt niður fyrir það að fá hálfvirði fyrir framleiðsluna," sagði Sveinberg. Því miður tókst ekki að ná í Guðmund Þórisson formann fé- lagsins í gær til þess að fá hans sjónarmið í málinu. gk-. Atvinnuleysi á Akureyri: 865 dagar í október Samkvæmt upplýsingum Vinnumiðlunarskrifstofunnar á Akureyri voru 62 skráðir atvinnulausir í lok október- mánaðar, 38 karlar og 24 kon- ur. í október voru skráðir 865 heil- ir atvinnuleysisdagar á Akureyri sem svarar til þess að 38 hafi ver- ið atvinnulausir allan mánuðinn. Gefin voru út 108 atvinnuleysis- bótavottorð í október með sam- tals 743 heilum bótadögum. gk-. Ein yfirstjórn veitustofnana á Akureyri: „Ég tel að þetta sé eðlileg þróun“ - segir Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.