Dagur - 21.11.1985, Blaðsíða 3
21. nóvember 1985 - DAGUR - 3
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
NÝLAGNIR
VIDGERDIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
ENGIN HUS AN HITA
BOCH
VITRIBO
53
sphinx
Hvít hreinlætistæki.
Borð- og
vegghandlaugar.
Hvít WC frá
kr. 7.977,-
m/harðri setu.
mm
IHPI
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
HREiNLÆTISTÆKI
STURTUKLEFAR 0G HURDIR
BLÖNDUNARTÆKI
ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
OB&
C§c§§**&
Réttum gigtsjúkum hjálparhönd
ingastoðvum á fleiri stöðum á
landinu. Til þess að það geti orð-
ið verðum við að vinna saman.
Gigtsjúkir, vandamenn og
vinir. Komið og sjáið hjálpartæki
gigtsjúkra í göngugötunni
- „Turninum" - á morgun, föstu-
dag, og gangið í Gigtarfélagið!
Komið og mælið einn faðm af
„vonarbandinu“ og vindið upp á
hnykilinn - ekki einungis á Akur-
eyri heldur á öllu landinu.
Um næstu helgi verður Gigtarfé-
lag íslands með sölu á happ-
drættismiðum. Miðinn kostar að-
eins 100 krónur og verður ágóð-
anum varið til áframhaldandi
uppbyggingar gigtlækninga-
stöðvarinnar í Reykjavík sem
hefur verið starfrækt í nokkur ár
og sýnt og sannað að mikil þörf
er á slíkri stofnun. En ekki að-
eins í Reykjavík. Þörfin úti á
landi er ekki minni og í framtíð-
inni þarf að koma upp gigtlækn-
Konurnar á gangstéttinni fylgjast spenntar með því hvort karlarnir hafi peningaskápinn þunga upp á vörubflspallinn.
Það er ekki kvennastarf að setja þungan peningaskáp upp á vörubflspall, og svo fór reyndar að „atlaga“ karlanna
mistókst. Mynd: - KGA.
Þing Verkamannasambands íslands:
Launamisréttiö í landinu
Vasadiskó
kr. 1.990,-
Vasadiskó m/útvarpi
kr. 3.790,-
SÍMI
(96)21400
Öllu
er með
13. þing Verkamannasam-
bands íslands var haldið í
Reykjavík dagana 15.-17. nóv-
ember 1985.
Þingið sátu alls 138 fulltrúar
frá 50 pambandsfélögum, en 4
félög sendu ekki fulltrúa.
Nokkrar breytingar urðu á
sambandsstjórninni. Þau Hilmar
Jónasson Hellu, Hjálmfríður
Þórðardóttir Reykjavík, Jón
Helgason Akureyri, Kolbeinn
Friðbjarnarson Siglufirði og Sig-
urður Örn Hannesson Höfn
hurfu úr sambandsstjórn en sæti
þeirra tóku þau Hafþór Rós-
mundsson Siglufirði, Hrafnkell
A. Jónsson Eskifirði, Sigrún
Clausen Akranesi, Sigurður Ósk-
arsson Hellu og Sævar Frímanns-
son Akureyri.
Þingið samþykkti ályktun um
kjaramál og fara nokkur atriði
hennar hér á eftir:
*
Alyktun um kjaramál
Mikil umskipti hafa átt sér stað í
afkomu almennings undanfarin
þrjú ár. Annars vegar hefur
samningsbundinn kaupmáttur
launa rýrnað um 30% og er nú
sá lægsti um áratuga skeið.
Vegna þessara lélegu lífskjara
hefur atvinnuþátttaka kvenna og
barna farið vaxandi, um leið og
vinnutími almennt hefur lengst.
Er nú svo komið að íslenskt
verkafólk býr í senn við einhver
lélegustu launakjör (lífskjör) og
mesta atvinnuþátttöku allra
þjóða á norðurhveli jarðar.
Rangsnúið húsnæðismálakerfi og
allt of háir vextir gera fólki
ómögulegt að koma sér þaki yfir
höfuðið. Þeir sem það reyna
óþolandi
hrekjast á vergang fyrr en síðar.
Við blasir hörmuleg mynd þar
sem fjölskyldur leysast upp og
heimili eru eyðilögð.
Á hinn bóginn er það hinn
hluti þjóðarinnar - lúxusstéttin -
sem á valdatíma núverandi ríkis-
stjórnar hefur fengið frelsi til að
ákveða kjör sín sjálf, án þess að
vera bundin á klafa fastra samn-
inga.
í þeirri samningagerð sem er
framundan, er vandi verkalýðs-
hreyfingarinnar margþættur. Að
sjálfsögðu er meginmálið að bæta
almenn lífskjör frá því sem nú er.
Verkafólk er engu bætt með
kauphækkun, sem ríkisstjórnin
aðstoðar atvinnurekendur við að
ræna aftur við fyrstu hentugleika.
Miða skal kröfugerð við að ná
meðalkaupmætti ársins 1983, en í
síðari áföngum kaupmætti ársins
1980.
Launastiganum verði breytt
þannig, að mestar hækkanir verði
á lægstu töxtunum.
12. þing VMSÍ leggur áherslu
á að við gerð næstu kjarasamn-
inga verði stigið marktækt skref
til niðurfellingar á eftirvinnu.
Framfylgja verður lögum um
launajafnrétti karla og kvenna.
Gera verður þær kröfur til
ríkisvaldsins, að það gangi milli
bols og höfuðs á okurlánamark-
aðinum og komi skipulagi og
eftirliti á „frjálsa“ peningamark-
aðinn.
Almennt þarf að lækka vexti
frá því sem nú er, og setja á stig-
hækkandi eignaskatt.
Verkamannasambandið gerir
kröfur um kaupmáttartryggingu
og bætt lífskjör, og er reiðubúið
til viðræðu um nýjan kjarasamn-
ing, án þess að gera kröfur um,
að gamla vísitölukerfið verði aft-
ur upp tekið. Ástand, þar sem
allt er í reynd verðtryggt nema
vinnulaun verður ekki þolað.
19
Vorum að taka upp úrval
af quarts eklhus- og
vekjaraklukkum.
Vorum að fá mikið úrval af plötum
með sígildri tónlist og jass.