Dagur - 21.11.1985, Síða 7
21. nóvember 1985 - DAGUR - 7
Valur Amþórsson, kaupfélagsstjóri, afhcnti Magnúsi Steinarssyni, formanni
Starfsmannafélags KEA, umráð yfir salnum, jafnframt því sem hann afhenti
Magnúsi málverk eftir Kristinn G. Jóhannsson.
KEA-menn fá sér KEA-kökur í KEA-salnum. Myndir: - KGA.
og á þeirri tíð er höfundur var að
alast þar upp fyrir svo sem 60
árum eða meira.
Bókin segir frá ógeðbiluðu
fólki í manneskjulegu umhverfi,
frá leikjum barna og störfum er
tilheyra tíma þeim er hún fjallar
um og lýsir beint og óbeint þjóð-
háttum og heimilisbrag öllum
eins og af sjálfu kemur.
Vitanlega skrifar höfundur
óbrenglaða íslensku eins og
vænta má af þeim er uxu af sömu
rót og hann.
Mín vegna má fólk velta sér
upp úr vandræðum og þjóðfé-
lagsmálum, góðum eða illum,
kynórum og hverju sem það hef-
ur hugstætt, en slíkt á ekki brýnt
erindi til barna, enda sjá ríkis-
fjölmiðlar okkur öllum fyrir
nægu sorpi. En er fróðleikur um
tíma afa og ömmu skaðlegur æsk-
unni? Er ekki hættulegt að klippa
sundur trefil tímans svo hann
rakni upp? Er venjulegt mannlíf,
glaður dagur við leik og starf í
heimi gróðurs og dýra, ævintýri
og „ömmusögur“ allt í einu orð-
inn heimill á þroska barns? Má
ekki æskan lifa með bros á vör og
birtu í augum á venjulegu heimili
við eðlilegt atlæti á bók, án þess
að bíða tjón? Kemur ekki sálar-
kreppan og erfiðleikar nógu
snemma í okkar kröfuhörðu vel-
megun? Kunna sál- og félags-
fræðingar betri uppeldisaðferðir
en náttúra landsins og það fólk er
hún mótaði mest?
Marinó L. Stefánsson telur
óhætt að skrifa eins og hann gerir
í bók sinni um Sigga litla, í sveit
við fortíðarháttu. Og þó flest
börn sé að finna í borg og bæ nú,
er þeim svo sannarlega hollt að
kynnast lífi áa sinna.
Þó bók þessi sé ekki í neinum
sérflokki meðal bóka af þessari
tegund er hún góðra gjalda verð
sem slík. En kannski eru teikn-
ingar Kristins G. Jóhannssonar
höfuðprýði hennar. Pað er minn
smekkur.
Kristján frá Djúpalæk skrifar
Dóra Stefánsdóttir:
Breiðholtsstrákurínn
fer í sveit
Teikningar eftir Kristinn G.
Jóhannsson. Skjaidborg.
Höfundur þessarar bókar er fé-
lagsfræðingur og málefni sem
fræðum hennar tengjast eru
henni því í hug. Söguhetjan,
Palli, er sonur einstæðrar móður
í Breiðholtinu. Hún vinnur úti.
Palli þvælist á götunni einn og
óhamingjusamur og samband
mæðginanna er miður gott er sag-
an hefst. En konan kemur Palla í
sveit. Ung hjón er stunda nú-
tíma, vélvæddan búskap taka
kaupstaðabörn í sumardvöl til að
drýgja tekjur sínar. Sum koma
þau fyrir tilstuðlan félagsmála-
stofnunar. Palla fellur mjög vel í
sveitinni og gegnir þar stærra
hlutverki en trúlegt sýnist um 8
ára dreng. Höfundur er vel ritfær
og virðist gjörþekkja nútíma bú-
skap á „blönduðu“ búi. Þetta er
ágæt saga, stíll ljúfur og hröð at-
burðarás, engar málalengingar.
Börnin eru misjafnlega virk í
bókinni, þó er þar leiðindaskarf-
ur kominn á vegum félagsmála-
stofnunar því móðir hans, ein-
stæð, er drykkjusjúk. En hann er
þó ekki dreginn mjög skýruni
dráttum, fyrr en undir sögulok er
við liggur að hann fremji voða-
verk; en þá sendur heim. Móðir
Palla kemur undir haust, vanfær
og vansæl. En þau nálgast hvort
annað og kveðja sem vinir. Saga
þessi sem virtist eiga að fylgja
formúlu, breyttist í „sveitaróm-
antík“ og fór vel á því. Teikning-
ar Kristins G. eru afbragð. Bók
þessi var lesin í útvarpi fyrir ekki
löngu og hljómaði vel. Eg get
mælt með henni handa börnum.
En ég hefði ekki útskýrt „lóðarí"
á hundum nánar, orðið er
fullnóg.
Afsláttar-
dagar
22. nóvember -
4. desember
10%
afsláttur!
Kaupfélag Eyfirðinga hefur ákveðið að gefa félags-
mönnum sérstakan 10% afslátt af staðgreiddri
vöruúttekt í öllum deildum Vöruhúss KEA,
Raflagnadeild og í Byggingavörudeild af
verkfærum, gólfdúkum og málningarvörum.
Á stærri rafmagns-
tækjum, húsgögnum
og gólfteppum er
veittur 7% afsláttur.
Þessi kjör gilda einnig
á sömu vöruflokkum í
öllum verslunum KEA
utan Akureyrar.
Sérstök afsláttarkort
hafa verið póstlögð til
allra félagsmanna og
er umræddur afsláttur
veittur gegn framvísun
afsláttarkortsins
hverju sinni.
Afsláttarkortið gildir
allt tímabilið, hversu
oft sem verslað er.
Afsláttur gildir ekki ef
greiðslukort eru notuð.
Félagsmenn! Nýtið ykkur þetta tækifæri
til óvenju hagstæðra innkaupa
á góðum og fjölbreyttum vörum.
Gerist félagsmenn!
Nýir félagsmenn fá einnig
afsláttarkort. Þeir sem
ekki eru félagsmenn eru
hvattir til að ganga í
félagið. Eyðúblöð fyrir
inngöngubeiðnir liggja
frammi á aðalskrif-
stofunni, Hafnarstræti 91,
Akureyri, og í öllum
verslunum KEA utan
Akureyrar.