Dagur - 21.11.1985, Síða 8
8 - DAGUR - 21. nóvember 1985
Þórgnýr Dýrfjörð, M.A., flytur Magnús Albert Sveinsson, G.Ó.
framsöguerindi sitt.
Stjórn fjórðungsþings
æskunnar.
Forseti þingsins, Reyn
ir Kristjánsson.
Tveir ungir menn
reknir af þinginu
Síödegis þegar umræður og til-
lögur fóru fram á þinginu birtust
tveir menntskælingar. Það var
ætlun þeirra að útbýta dreifiblöð-
um til allra þeirra sem á þinginu
voru. Þeir höfðu tekið að sér að
dreifa blöðunum í forföllum
stjórnar Félags vinstri manna í
M.A.
Á þessum blöðum deildu þeir
hart á þá sem að þinginu stóðu
og skipulag þess, helst það að
vinnandi æskufólk fengi ekki að
taka þátt í þinginu.
Aðeins fáir höfðu fengið þessi
blöð í hendur þegar fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, Áskell Ein-
arsson benti þeim á að þeir
hefðu engan rétt til að koma
þessu á framfæri á þennan hátt
án leyfis og vísaði þeim því taf-
arlaust á brott. Eftir stutt og frem-
ur óvinsamleg orðaskipti lögðu
ungu mennirnir blöðin til hliðar og
bentu fólki á að taka sér eintak
að þingi loknu. Þessir menn voru
Theódór Guðmundsson og Uggi
Jónsson.
Þeir sögðuðst vilja með þess-
um biöðum benda á það órétt-
læti, sem felst í því að boða ein-
ungis skólafólk til þingsins og
vildu vekja umræðu um það á
staðnum.
Ætlun þeirra var að koma
þessum skoðunum á framfæri á
friðsamlegan hátt en þeir bjugg-
ust ekki við brottrekstri út úr hús-
inu af þeim sökum.
Á fjórðungsþingi æskunnar
Laugardaginn 16. nóvember fór
fram þinghald á vegum Fjórð-
ungssambands Norðlendinga í
tilefni af ári æskunnar. Þetta var
fjórðungsþing æskunnar. Þingið
sátu 57 fulltrúar úr öllum fram-
haldsskólum á Norðurlandi og
skiptust þannig niður: 10 frá Fjöl-
brautaskólanum á Sauðárkróki,
5 frá Bændaskólanum að Hólum,
4 úr framhaldsdeild Grunnskóla
Siglufjarðar, 5 úr framhaldsdeild
Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar, 5
úr framhaldsdeild Grunnskóla
Dalvíkur, 10 úr Menntaskólanum
á Akureyri, 11 frá Verkmennta-
skólanum á Akureyri, 5 frá Hér-
aðsskólanum að Laugum og 2 úr
framhaldsdeild Gagnfræðaskóla
Húsavíkur.
Umræðuefni þingsins var
Norðurlandsbyggð framtíðarinn-
ar þar sem fjallað var um
mennta-, atvinnu-, húsnæðis- og
samgöngumál.
Þingið var sett kl. 9.30 af for-
seta Fjórðungssambands Norð-
iendinga, Magnúsi Sigurjóns-
syni. í ræðunni sagði hann með-
al annars að Fjórðungssamband
Norðlendinga væri vettvangur til
að ræða málin. Ná samstöðu og
fylgja málum fram í krafti sam-
einingar og samvinnu. Þar sem
unga fólkið væri framtíðin þyrfti
það að fara að mynda sér
skoðanir á þessum málum og
þeim tilgangi þjónaði þetta þing.
Að loknu ávarpi Magnúsar
voru framsöguerindi um fyrr-
greind málefni flutt af 12 þingfull-
trúum. Þar komu fram margar
góðar hugmyndir og voru fram-
sögumenn yfirleitt vel undirbúnir.
Þingfulltrúar virtust meðvitaðir
um það þjóðfélag sem við búum
við í dag og deildu nokkuð hart á
það misrétti sem þeir töldu vera
á milli landsbyggðarinnar og suð-
vesturhornsins.
Er framsögumenn höfðu lokið
máli sínu skiptust fulltrúarnir nið-
ur í 4 hópa þar sem hver hópur
fjallaði um eitt málefnanna. Hóp-
arnir störfuðu fram að kaffi en þá
var þeim boðið upp á veitingar.
Að lokum kom þingið saman
og þar báru hóparnir fram tillögur
sem síðan voru ræddar. Flestar
tillögurnar voru samþykktar meö
smávægilegum breytingum af
nær hreinum meirihluta. Það var
til merkis um að hóparnir voru vel
að sér og virtust hafa rætt málin
ofan í kjölinn.
Þinginu lauk með kvöldverði í
Dynheimum fyrir fulltrúa, að-
standendur þingsins og bæjar-
stjóra (og blaðamenn) og síðan
var þeim boðið á diskótek á
sama stað síðar um kvöldið.
Eftir að hafa rætt við ýmsa full-
trúa þingsins virtist okkur það
nokkuð almenn skoðun þeirra að
skipulagi væri ábótavant. Aðal-
lega það að undirbúningstími
hafi verið of stuttur og að hinn
vinnandi æskulýður hefði ekki
fulltrúa á þinginu, þingfulltrúar
M.A. afhentu undirbúningsnefnd
opið bréf þess efnis. En þar sem
þingið var hið fyrsta sinnar teg-
undar fannst þeim þetta eðlilegt
og töldu það hafa tekist vonum
framar.
Virkni fulltrúa í umræðum var
misjöfn, sumir virtust illa undir-
búnir og örfáir jafnvel áhugalaus-
ir en yfir höfuð voru flestir virkir.
Okkur umsjónarmönnunum
sem vorum staddir þó nokkuð
lengi á þinginu fannst almenning-
ur hafa sýnt því lítinn áhuga því
gestir voru fáir og þykir okkur það
sorglegt.
Ingi Jónsson, F. á $.
Magnús Sigurjónsson, for-
maður Fjórðungssambands
Norðlendinga.
- Hverjir áttu hugmyndina
að þessu þingi?
„Það var Fjórðungssam-
band Norðlendinga.
Kannski hefur hugmyndin
komið fram vegna þess hve
vel tókst til með Norður-
landsleika æskunnar á Sauð-
árkróki nú í sumar.“
- Hafa sams konar þing
verið haldin áður?
„Nei, ekki svo ég viti til.“
- Reiknarðu með að sams
konar þing verði haldin ár-
lega í framtíðinni?
,.Það eru ekki áform um
það, en ég tel æskiiegt að
unga fólkið taki virkan þátt í
störfum sveitarfélaga."
- Hvernig hefur undirbún-
ingi verið háttað?