Dagur - 21.11.1985, Síða 16
Ki úlilit
nn
ar - Kjúkiinqar - Kjúkii
• ri
CROWN J
CHICKEN *■
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Kjúkíingar
eru (jœðafæða
v CROWN J
VI IV Mll Afc
CHICKEN *
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
^ Dalvík:
Gerpla saumar
bamaföt
Nýlega var opnað nýtt sauma-
verkstæði á Dalvík sem hlaut
nafnið Gerpla. Eru það tvær
ungar konur, Þórunn Þórðar-
dóttir og Svanfríður Jónasdótt-
ir sem stofnuðu fyrirtækið.
Aðaláhersla verður lögð á
barnafatnað ýmiss konar. Kaupa
þær stöllur efni frá Kanada til
framleiðslunnar. Eingöngu verð-
ur notað bómullarefni sem þær
lita sjálfar. Að sögn Þórunnar
hefur verið lítið um aðra vinnu
en fiskvinnu fyrir konur á Dalvík
og þvf mikil eftispurn eftir vinnu
við saumaverkstæðið. Þessa
stundina vinna fimm konur hjá
fyrirtækinu. Þórunn sagði að sú
framleiðsla sem þegar væri kom-
in á markað hefði fengið mjög
góðar viðtökur og væru þær því
bjartsýnar á framhaldið. gej-
Það er inikil gluöværö í vinnunni hjá nýja fyrirtækinu Gerplu á Dalvik. Þama era þær stöllumar Erla Vigdís Óskars-
dóttir, Þórann Þórðardóttir og Sólveig Björk Ingvarsdóttir við nýju saumavélarnar. Mynd: - gej
Er hann ekki að verða fullur?
Mynd: KGA
Vatnsveita Akureyrar:
Lætur hanna
miölunartank
- Á sama tíma á hitaveitan ónotaðan
tank á svipuðum slóðum
Bæjarstjóm Akureyrar stað-
festi á fundi sínum síðastliðinn
þriðjudag þá ákvörðun vatns-
veitustjórnar að láta hanna
nýjan 4000 rúmmetra vatns-
tank sem staðsettur yrði á Mið-
húsaklöppum.
Að sögn Freys Ófeigssonar,
formanns Vatnsveitustjórnar,
hefur engin ákvörðun verið tekin
um það hvenær tankurinn verður
reistur. Freyr sagði að tankur
þessi kæmi til með að spara
vatnsveitunni nokkuð í reksturs-
kostnaði þar sem með tilkomu
hans yrði unnt að draga úr dæl-
ingu vatns með rafmagni á álags-
tímum.
Gunnar Ragnars, bæjarfulltrúi
sjálfstæðismanna, benti á annan
tank sem fyrir er nokkru austan
við Miðhúsaklappir og er í eigu
hitaveitunnar. Sá tankur hefur
„Ekkert um málið að
segja á þessu stigi“
-segir Björg Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur í Kristnesi um
það álit ríkislögmanns að uppsagnir hjúkrunarfólks þar séu ólöglegar
„Við
gögnin
erum
nýbúnar að fá
hendurnar og ekki
einu sinni farnar að hittast
þannig að það er ekkert um
málið að segja á þessu stigi,“
sagði Björg Guðmundsdóttir
trúnaðarmaður hjúkrunar-
fræðinga við Kristnesspítala í
samtali við Dag í gær.
Eins og Dagur hefur skýrt frá
telur ríkislögmaður að uppsagnir
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða
við Kristnesspítala sem koma
eiga til framkvæmda í næsta mán-
uði séu ólöglegar, þar sem þær
hafi verið skilyrtar að því leyti að
þær yrðu dregnar til baka ef lausn
fengist á málinu.
Það voru 6 hjúkrunarfræðingar
sem sögðu upp eða allir starfandi
hjúkrunarfræðingar við spítalann
á þeim tíma er uppsagnirnar fóru
fram, og eiga uppsagnir þeirra að
koma til framkvæmda 15. des-
ember. Sjúkraliðarnir sem sögðu
upp munu hafa verið fleiri en
þeirra uppsagnir eiga að koma til
framkvæmda 4. desember að öllu
óbreyttu.
Eins og Björg sagði hér að
framan hafa aðilar ekki tekið til
skoðunar rök ríkislögmanns
varðandi ólögmæti uppsagnanna
en þess mun þó að vænta áður en
langt um líður að það gerist. gk-.
víst aldrei komist í notkun og
spurði Gunnar hvort það væri
ekki verðugt verkefni fyrir vænt-
anlega veitustjórn að afhenda
vatnsveitunni þennan tank til af-
nota og spara þannig byggingu
nýs tanks. Freyr svaraði því til að
þessi hugmynd hefði verið athug-
uð og væri vissulega fram-
kvæmanleg þótt að einhverjum
dælubúnaði yrði að bæta við
tankinn ef af yrði, sem ekki væri
vitað hvað kostaði. Hins vegar
hefði verið hætt að ræða það þeg-
ar fram kom hörð andstaða við
þessa hugmynd hjá stjórn hita-
veitunnar. Enda hefði verið sýnt
fram á það, með nokkrum
rökum, að tankurinn ætti eftir að
geta nýst hitaveitunni. -yk.
Greiðslukoit
í sókn
„Þetta fór nú rólega af stað
hjá okkur en viðskiptin fara
vaxandi dag frá degi,“ sagði
Magnús Gauti Gautason full-
trúi hjá KEA er hann var
spurður hvort greiðslukorta-
viðskipti væru mikil í verslun-
um KEA.
Svo sem kunnugt er tóku bæði
KEA og Hagkaup upp greiðslu-
kortaviðskipti fyrir skömmu.
Magnús Gauti sagði að vissu-
lega sæju þeir mun á viðskipta-
háttunum eftir því hvaða mánað-
ardagur væri. „í byrjun mánaðar
er mikið um peningaviðskipti en
eftir miðjan mánuðinn notar fólk
greiðslukortið sitt mikið. Hins
vegar er svo lítil reynsla komin á
þessi viðskipti hér enn“. BB.