Dagur - 25.11.1985, Blaðsíða 5
inyndlist
Hámenntaður listamaður
- Myndhugsun Guðmundar Ármanns hefur tekið miklum breytingum
Guðmundur Ármann er einn
menntaðasti myndlistarmaður
á íslandi. Ef hann kærði sig um
gæti hann haldið því fram með
réttu, að hann væri best mennt-
aði myndlistarmaður utan höf-
uðborgarsvæðisins. Guðmund-
ur nam á sínum tíma, eða árin
1963 til ’67 við Myndlista- og
handíðaskóla fslands og á sama
tíma í Myndlistaskóianum í
Reykjavík. Honum nægði sem
sagt ekki að vera í einum skóla,
sem var í raun full vinna.
Guðmundur nam einnig
prentmyndagerð og er út-
skrifaður í þeirri iðngrein.
Framhaldsnám stundaði Guð-
mundur svo í þeim þekkta Va-
landskonsthögskola í Svíþjóð
1967 til '12. Síðustu tvö árin í
þeim skóla var hann á launum,
enda skipaður aðstoðarkennari
við skólann þau ár. Þó íslenskur
væri var hann valinn einn af
fulltrúum Svíþjóðar á Ungdoms
Biennalinn í Osló 1971. Síðan
hefur Guðmundur haldið marg-
ar einkasýningar og tekið þátt í
fjölda samsýninga heima og er-
lendis, bæði málverka- og graf-
iksýningum.
Guðmundi var boðin föst
kennarastaða í Svíþjóð, en
hann kaus að koma aftur heim
til íslands. Þegar Myndsmiðjan
sáluga var sett á fót hér á Akur-
Ragnar
Lár
skrifar
eyri á sínum tíma, þá var Guð-
mundur ráðinn kennari að
henni, en Myndsmiðjan var
forveri núverandi Myndlista-
skóla á Akureyri. Guðmundur
kennir við Myndlistaskólann og
er ekki amalegt að hafa hann
nærtækan, svo fjölmenntaðan
listamann.
Nýjustu verk Guðmundar
hanga nú uppi í Alþýðubankan-
um á Akureyri, en flestum mun
kunnugt um listkynningar þær
sem bankinn hefur staðið fyrir
frá upphafi starfsemi hans hér
á Akureyri. Undanfarin ár hef-
ur myndhugsun Guðmundar
verið að taka breytingum. Áð'ur
einkenndust myndir hans
gjarna af pólitískum sjónarmið-
um, þær voru innlegg í verka-
lýðsbaráttuna og baráttuna fyrir
heimsfriði. Margar þeirra voru
góðar sem slíkar og áttu fullt er-
indi til almennings. Guðmund-
ur hefur unnið jöfnum höndum
að grafik og olíumálverkum.
Breytinganna varð fyrst vart í
grafikmyndum hans. Hann fór
að stílfæra, (stilisera), manns-
líkamann og fuglar létu á sér
kræla, ekki neinir sérstakir
fuglar, heldur stílfærðir fuglar
sem áttu fyrst og fremst erindi í
myndirnar til að fullnægja upp-
byggingu þeirra og auka á
hreyfinguna. Olíumálverk Guð-
mundar hafa tekið miklum
breytingum síðustu tvö til þrjú
ár. Þetta á þó einkum við um
viðfangsefnin, þ.e.a.s. formið
sjálft. Litirnir eru glaðari, ef svo
mætti segja og leynir sér ekki að
Guðmundur er að leita nýrra
leiða í myndum sínum. Þetta
kemur skýrt fram í þeim mynd-
um sem nú hanga uppi í húsa-
kynnum Alþýðubankans á Ak-
ureyri, en þar eru 6 olíumálverk
eftir Guðmund Ármann.
Fyrir tveimur árum var Guð-
mundi boðin þátttaka í grafik-
verkstæði í Svíþjóð. Þar komu
saman listamenn víða að og unnu
saman um tíma. I kjölfarið
sigldi grafiksýning sem fór víða,
en það varð svo aftur til þess, að
nú hefur Guðmundi verið boðið
að halda grafiska einkasýningu í
Svíþjóð síðar í vetur. Þetta er
mikil upphefð fyrir Guðmund
og landið í heild og óska ég
honum og okkur til hamingju
með heiðurinn. R.Lár.
-högnL
j
og
Það var um svipað leyti, að
blöðin fluttu okkur þær fréttir að
Kári, sá sterki maður, hefði ekki
haft erindi sem erfiði á heims-
meistaramótinu í kröftum, - að
nafni hans mætti til leiks hér á
(slandi. Og sá var nú aldeilis
, ekki í vandræðum að lyfta og
henda til og frá, biýþungum
hlutum, - jafnvel heilu skipun-
um upp á þurrt land. Ef þar hef-
ur ekki „fokið" heimsmet, er ég
illa svikinn.
Annars erum við hér á
norðurslóðum allsendis óvanir
lofti, á svona mikilli ferð. Ég
man ekki í svipinn eftir nema
tveim dæmum um slíkt. Hið
fyrra er, þegar þakið fauk af
Lindu. Þá var vindhraðinn sagð-
ur um og yfir 14 stig. Síðara
dæmiö er þotuflug þingeyskra
bænda til Norðurlanda. Þá fór
þingeyskt loft með um og yfir
þúsund kílómetra hraða, um
loftin blá.
En að svo til öllu gamni
slepptu. Þeir fyrir sunnan eru
vanir þessum beljanda og þríf-
ast illa nema í suðvestan sex
og þaðan af meira.
Sú saga gekk hér um árið, að
á ónefndum stað „fyrir sunnan"
gengu íbúarnir flestir með
flumbruð og fleiðruð nef.
Ástæðan var sögð sú, að
skyndilega og sem allra
snöggvast, hefði hann „gengið
1“ logn. fbúarnir voru auðvitað
ekki viðbúnir þessu og héldu
sig viö sinn fjörutíu og fimm
gráðu halla upp í vindinn, með
fyrrgreindum afleiðingum: Þeir
duttu á „grillið".
Með hliðsjón af þessu, er
e.t.v. ekki að undra þó að mæt-
ur maður kæmist svo að orði í
viðtali í útvarpinu, að á Akureyri
væri oft svo „mikið“ logn. Erfitt
—
hlýtur að vera að skilgreina
muninn á miklu og litiu logni.
Við lítum einfaldlega svo á, að
annað hvort sé logn eöa ekki.
Hins vegar getum við tekiö und-
ir með manninum og sagt sem
svo, að um daginn, þegar allt
ætlaði af göflunum að ganga og
allt fauk, laust sem fast, - ja,
þá var iítið logn.
Það var líka haft eftir að- og
burtfluttum Akureyringi hér um
árið, að logn væri allra veðra
verst. Erfitt mun það vera aö
troöa slikri veðurfræði inn í
norðlenska hausa, nema hún
sé sönn, sagan sem óg heyrði
hér um daginn. Það átti að hafa
gerst á Suðurnesjum á útmán-
uöum fyrir nokkrum árum.
Skyndilega og fyrirvaralaust
datt vindhraði niður í fjögur
vindstig með þeim hörmulegu
afleiðingum, að fjórir köfnuðu.
Högnl.
25. nóvember 1985 - DAGUR - 5
IQclQens
Gleraugu - Gleraugu
Notar bamið þitt gleraugu?
Níðsterkar barna- og unglinga-
umgjarðir frá þekktum framleiðendum
Barnagleraugu eru sérgrein okkar.
Gleraugnaþjónustan
Skipagötu 7 - í miðbæ Akureyrar
Takið eftir I
Ulpur
St. L-XXL. Verð frá kr. 1.420.-
Vinnuskyrtur
St. 37-46. Verð frá kr. 390.-
Vinnupeysur
Verð frá kr. 915.-
Vinnusamfestingar
St. 50-56. Verð aðeins kr. 880.-
Mittisjakkar Snickers
Herrahl írabolir
Verð kr. 118.-
Stuttar nærbuxur
Verð kr. 110.-
Stuttar nærbuxur
Verð kr. 65.-
Síðar bómullarnær-
buxur drengja
og herra
Norsk ullarnærföt í
flestum stærðum á
dömur og herra
Mislitir herrasokkar
Verð kr. 60-70.-
Hvítir sokkar
St. 29-44. Verð kr. 65.-
BHI dömubolir með
breiðum hlírum
Vestispeysur
Verð kr. 1.360.-
Barnapeysur
Verð kr. 380.-
Kappklæði
flestar stærðir
Kanslarahúfur
Verð kr. 560.-
Stígvél
í öllum stærðum
Kuldaskór lágir
st. 31-39. Verð kr. 980.-
St. 40-46. Verð kr. 998.-
Margar gerðir
af inniskom
St. 36-45.
Verð frá kr. 195-260.-
Og ótal ótal margt fleira.
Opið laugardaga milli kl. 10 og 12.
Eyfjörö £
Hjalteyrargötu 4 simi 22275
Óska eftir starfsmanni.
Borgarsalan.