Dagur - 25.11.1985, Page 7
6 - DAGUR - 25. nóvember 1985
íþróttÍL
Það var hart barist í leikjunum í körfubolta um helgina. Hér hafa Þórsarar
komið knettinum rétta leið. Mynd: - KGA.
Körfubolti 1. deild:
Naumt tap
Þórs
- gegn Grindvíkingum
Á laugardag léku lið Þórs og
UMFG annan leik í 1. deild-
inni og þá snérist dæmið við,
því þá sigruðu Grindvíkingar
naumlega 69:65.
Leikurinn var betur leikinn af
báðum liðum heldur en daginn
áður. Fyrri hálfleikur var mjög
jafn og var munurinn aldrei meiri
en 1 stig til eða frá fyrr en í lok
hálfleiksins en þá tóku Þórsarar
góðan kipp og voru komnir með
10 stiga forystu í hálfleik 40:30.
Og á þeim tíma fór Konráð Ósk-
arsson á kostum og skoraði hann
helming stiga Þórs í hálfleiknum.
Ný sQóm
KRA
Á aðalfundi Knattspyrnuráðs
Ákureyrar þann 14. nóvember
síðastliðinn var m.a. kosin ný
stjórn fyrir næsta starfsár.
Hina nýju stjórn skipa eftir-
taldir; formaður Davíð Jóhanns-
son KA, varaformaður Páll
Magnússon Þór, gjaldkeri Sveinn
Björnsson Vaski, ritari Gestur
Davíðsson Þór og meðstjórnend-
ur eru Páll Leósson Þór, Árni
Arason KA, Karl Haraldsson
KA og Haukur Ásgeirsson KA.
í seinni hálfleik misstu Þórsar-
ar tökin á leiknum og Grindvík-
ingar söxuðu á forskotið jafnt og
þétt. Um miðjan síðari hálfleik
var aðeins eins stigs munur 50:49
Þór í vil. Grindvíkingar komust
síðan yfir og héldu þeir því til
leiksloka og sigruðu eins og áður
sagði 69:65.
Það var fyrir stórleik Hjálmars
Hallgrímssonar að Grindvíkingar
náðu að sigra í þessum leik, en
hann skoraði 33 stig og þar af 27
í seinni hálfleik fyrir þá.
Þó Þórsarar hafi leikið betur
en daginn áður áttu þeir engan
stórleik, Konráð var góður í fyrri
hálfleik en dalaði er á leikinn
leið. Hólmar var ágætur, svo og
Ómar Birgisson.
Hjá Grindvíkingum var
Hjálmar langbestur, einnig voru
þeir Eyjóifur Guðlaugsson og
Ólafur Jóhannsson góðir.
Stig Þórs skoruðu, Konráð
Óskarsson 24, Hólmar Ástvalds-
son 9, Ómar Birgisson og Hall-
dór Arnarson 8 hvor, Björn
Sveinsson 7, Eiríkur Sigurðsson
6, Ólafur Adolfsson 2 og Jón
Héðinsson aðeins 1 sfig, sem
verður að teljast all óvenjulegt af
honum.
Flest stig UMFG skoruðu
Hjálmar Hallgrímssom 33 og þeir
Eyjólfur Guðlaugsson og Ólafur
Jóhannsson 12 stig hvor.
Knal tl-
spyn úrsli 111 it
Úrslit leikja í 1. og 2. deild ; ensku knattspyrnunnar um
helgina urðu þessi: l.deild:
Birmingham-Liverpool 0-2 2
Chelsea-Aston Villa 2-1
Coventry-West Ham 0-12
Everton-Nottm.F 1-1 X
Leicester-Man.United 3-0 1
Man.City-Newcastle 1-01
Oxford-Ipswich 4-31
Sheff.Wed-Southampt 2-1 1
Tottenham-Q.P.R. 1-1 X
Watford-Luton 1-2 2
W.B.A.-Arsenal 0-0
2. deild: Blackbum-Charlton 0-0 X
Carlisle-Leeds 1-2
C.Palace-Barnsley 1-0
Huddersfield-F ulham 1-3
Hull-Wimbledon 1-1 X
MOIwall-Middlesbro 3-0
Norwich-Grimsby 3-2
Oldham-Stoke 24
Portsmouth-Sheff.U 0-3
Shrewsbury-Bradford 2-0
Sunderland-Brighton 2-1 1
STAÐAN
1. deild
Man.United 18 13-3- 2 35: 9 42
Liverpool 18 12-4- 2 41:16 40
Chelsea 18 11-3- 4 30:19 36
West Ham 18 10-4- 3 31:19 35
Sheff.Wed 18 10-5- 3 26:23 35
Evcrton 18 9-4- 5 38:23 31
Arsenal 18 9-4- 5 22:22 31
Luton 18 7-6- 5 31:22 27
Q.P.R. 18 8-3- 7 20:22 27
Nottm.For. 18 8-2- 8 29:29 26
Newcastle 18 7-5- 6 25:27 26
Tottenham 17 6-4- 7 29:23 22
Watford 18 6-4- 8 33:33 22
Southampt. 18 5-6- 7 21:25 21
Coventry 18 5-5- 7 22:25 20
Aston Villa 18 4-7- 7 23:25 19
Man.City 18 4-6- 8 17:25 18
Oxford 19 4-6- 9 28:38 18
Leicester 19 4-6- 9 24:36 18
Birmingham 17 5-1-11 11:25 16
Ipswich 18 2-3-13 14:33 9
W.B.A. 18 1-4-13 14:43 7
STAÐAN
2. deild
Portsmouth 17 11-2- 4 29:12 35
Sheff.U. 18 9-6- 3 37:22 34
Wimbledon 18 9-5- 4 21:16 32
Charlton 16 9-3- 4 30:19 30
Norwich 18 8-6- 4 31:20 30
C.Palace 18 9-3- 6 26:21 30
Blackburn 18 7-6- 5 20:18 28
Oldham 18 8-3- 7 20:27 27
Barnsley 18 7-5- 6 20:15 26
Hull 18 6-7- 5 30:23 25
Brighton 18 74- 7 30:28 25
Sunderland 18 74- 7 19:25 25
Leeds 18 6-5- 7 22:25 23
Grimsby 18 5-6- 7 27:25 21
Millwall 17 6-3- 8 24:27 21
Stoke 18 4-8- 6 21:23 20
Fulham 15 6-1- 8 15:20 19
Bradford 16 5-3- 8 17:24 18
Huddersf. 18 4-6- 8 19:31 18
Shrewsbury 18 4-5- 9 22:28 17
Middlesbro. 17 3-6- 8 10:2115
Carlisle 17 2-3-1218:43 9
Körfubolti 1. deild:
Þórssigur í
lélegum
Á föstudagskvöld léku lið Þórs
og UMFG í 1, deildinni í
körfuboita. Leikurinn fór frarn
í íþróttahöllinni á Ákureyri og
lauk með sigri Þórs 66:58.
Þórsarar höfðu undirtökin í
fyrri hálfleik og var staðan um
miðjan hálfleik 20:l5 Þór í vil.
Þórsarar juku síðan muninn fyrir
leikhlé og var staðan þá 36:22.
Grindvíkingar byrjuðu seinni
hálfleikinn með miklum látum og
eftir 7 mínútur var staðan orðin
40:39 Grindvíkingum í vil. Þórs-
arar léku vægast sagt mjög illa á
þeim tíma, þeir náðu þó foryst-
unni strax aftur og héldu henni til
leiksloka og sigruðu 66:58.
Leikurinn var illa leikinn og
þá sérstaklega af Þórsurum og er
langt síðan að sést hefur jafn lé-
legur leikur hjá liðinu. Bestur
Þórsara var Hólmar Ástvaldsson
og hefði mátt nota hann meira í
leiknum en gert var, en hann
kom ekki inná fyrr en í síðari
hálfleik.
Stig Þórs skoruðu Björn
Sveinsson 19, Jón Héðinsson og
Hólmar Ástvaldsson 12 hvor,
Jóhann Sigurðsson 8, Ómar Birg-
isson 7, Konráð Óskarsson 6 og
Eiríkur Sigurðsson er lék sinn
200. leik fyrir Þór skoraði 5 stig.
Flest stig UMFG skoruðu
Eyjólfur Guðlaugsson 20 og
Ólafur Jóhannsson 16.
Handbolti 3. deild:
Þórsarar hörmulegir
gegn IBK
„Það er eiginlega ekkert hægt
að segja um þennan leik annað
en það að þetta var hreinasta
hörmung hjá liðinu. Varnar-
leikurinn í molum, ekkert tal-
að saman á vellinum og ég held
að það sé best að reyna gleyma
þessum leik sem fyrst,“ sagði
Gunnar Gunnarsson þjálfari
og leikmaður Þórs í handbolta
eftir ósigur gegn Keflvíkingum
í 3. deildinni á laugardag.
Það eru orð að sönnu, því að
eftir hörmungarleikinn gegn
Fylki á dögunum, bjóst undirrit-
aður ekki við að sjá verri leik hjá
Þórsurum. En því miður verður
að segjast eins og er að þessi leik-
ur var verr leikinn heldur en sá
leikur og er þá mikið sagt.
Þórsarar komust yfir í byrjun
2:1, en þá þótti Keflvíkingum
og töpuðu stórt 25:17
nóg komið og þeir jöfnuðu leik-
inn á 5. mínútu og tóku síðan
leikinn í sínar hendur og voru
komnir með örugga forystu í
hálfleik 11:6. Sjötta markið skor-
aði Hörður Harðarsson úr hraða-
upphlaupi á allra síðustu sek-
úndu hálfleiksins.
í síðari hálfleik dró enn í sund-
ur með liðunum og um miðjan
hálfleikinn var orðinn 10 marka
munur 20:10. Liðin skoruðu síð-
an til skiptis fram á síðustu mín-
útur leiksins, Þórsarar náðu þó
að minnka muninn niður í 8
mörk með því að skora 2 síðustu_
mörk leiksins. Lokatölur voru
því 25:17 Keflvíkingum í vil.
Ekki er hægt að hæla einum
einasta Þórsara eftir þennan leik.
Vandræðagangur og mistök á
mistök ofan leikinn út í gegn hjá
Þórsurum.
í liði Keflavíkur voru þeir best-
ir Freyr Sverrisson, Elvar Sig-
urðsson og Pétur Magnússon
markvörður.
Mörk Þórs: Sigurpáll Aðal-
steinsson 5, Jóhann Samúelsson
4, Hörður Harðarson 3, Ingólfur
Samúelsson 2 og þeir Aðalbjörn
Svanlaugsson, Kristinn Hreins-
son og Ólafur Hilmarsson 1 mark
hver.
Flest mörk Keflvíkinga skor-
uðu þeir Elvar Sigurðsson 8 og
Freyr Sverrisson 5.
Ekki má nú gleyma þætti dóm-
aranna, en þeir Árni Sverrisson
og Guðmundur Stefánsson voru
vægast sagt hörmulegir. Það væri
nær að nota þá dómara sem hér
fyrir norðan eru, heldur en að fá
slíkar sendingar.
Ingólfur Samúelsson svífur inn í teiginn og skorar annað marka sinna í leiknum.
Mynd: - KGA.
25. nóvember 1985 - DAGUR - 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Pálmi Pálmason þrumar boltanum í netið þrátt fyrir góða varnartilburði Keflvíkinga Mynd: KK.
Handbolti 3. deild:
Keflvíkingar sigruðu
Völsunga naumlega
- dómararnir í aðalhlutverki
„Við vorum óheppnir í upp-
hafi leiksins og þá aðallega fyr-
ir það hvað dómararnir voru
fljótir að flauta á brot. Ætli
það hafi ekki verið ein 3 mörk
sem við misstum fyrir það. Nú
varnarleikurinn var slakur og
sóknarleikurinn frekar ráð-
villtur. En dómararnir verða
að gera sér grein fyrir því að
þeir eiga ekki að vera í aðal-
hlutverki, eins og þessir gerðu
í kvöld, þó það hafi ekki verið
ástæðan fyrir tapinu,“ sagði
Pálmi Pálmason þjálfari og
leikmaður Völsungs eftir
naumt tap gegn ÍBK á föstu-
dagkvöld á Laugum.
Völsungar voru aðeins yfir í
byrjun leiksins, en síðan náðu
Keflvíkingar forystu. Munurinn
var þó aldrei nema 1 til 2 mörk. í
hálfleik var staðan 13:11 fyrir
ÍBK. Pálmi Pálmason var tekinn*
úr umferð mestan hluta hálfleiks-
ins og gaf það góða raun fyrir
Keflvíkinga.
Þeir Arnar Guðlaugsson og
Helgi Helgason jöfnuðu fyrir
Völsung í upphafi síðari hálf-
leiks. Keflvíkingar voru þó ekki
á því að hleypa Völsungum
lengra en það og skoruðu næstu 2
mörk. Völsungar misstu Keflvík-
inga aldrei langt frá sér og jöfn-
uðu þeir aftur, 18:18. Síðan var
jafnt 20:20, en Keflvíkingar voru
sterkari á endasprettinum og
sigruðu 29:26.
Leikurinn var þokkalegur á að
horfa. Völsungsliðið sýnir fram-
farir í hverjum leik. Liðinu hefur
þó ekki tekist að sigra á heima-
velli þrátt fyrir dyggan stuðning
fjölmargra áhorfenda, en það
hlýtur að fara að koma að því.
Bestir Völsunga voru þeir Arn-
ar Guðlaugsson, Helgi Helgason
og Pálmi Pálmason sem var þó
nokkuð bráður í lokin.
í liði ÍBK voru þeir Freyr
Sverrisson og Theódor Sigurðs-
son bestir. Þá var markvörður
Keflvíkinga Magnús Jónsson
einnig góður.
Dómarar voru þeir Árni Sverr-
isson og Guðmundur Stefánsson
og voru þeir hörmulegir. Flaut-
uðu alltaf of fljótt og höfðu eng-
in tök á leiknum. Þeir útilokuðu
Arnar Guðlaugsson leikmann
Völsung rétt fyrir leikslok og
einnig liðstjóra Keflvíkinga fyrir
munnsöfnuð. Ekki bitnaði þó hin
slaka dómgæsla niðri á öðru lið-
inu fremur en hinu.
Ársþing KDSÍ haldið um helgina:
Stjómin var
öll endurkjörin
- tveir kepptu um formannssætið
Á 16. ársþingi Knattspyrnu-
dómarasambands íslands sem
haldið var í Reykjavík um
helgina, bar það helst til tíð-
inda að öll stjórnin var endur-
kjörin til 2ja ára.
Mótframboð kom um for-
mannsembættið og var það frá
Grétari Norðfjörð gegn Inga
Jónssyni. Ingi sigraði í kjörinu
með miklum yfirburðum eða
með 32 atkvæðum gegn 17.
Mikill tími fór í umræður um
hæfnisnefnd þá er starfar innan
KDSÍ og var deilt á störf hennar
sem og algegnt er á ársþingum.
Þá var einnig rætt um auglýsinga-
samning þann sem KDSÍ hefur
haft við Þýsk-íslenska verslunar-
félagið. Var stjórninni falið að
reyna að laga þann samning fyrir
sambandið. Einnig var stjórninni
falið að koma tryggingamálum
dómara í almennilegt horf.
Að lokum má geta þess að hin-
um kunna dómara, Óla Olsen var
veittur afreksbikar Knattspyrnu-
sambands íslands fyrir þetta ár.
Og var það bæði fyrir góð störf
innan sem utan vallar og er þetta
í annað sinn sem Óli hlýtur þessa
viðurkenningu.
Knattspyrna:
Steinþór
með
Dalvíkinga?
Dalvíkingar eru um þessar mundir að reyna
að fá Steinþór Þórarinsson til að taka að sér
þjálfun á meistaraflokki sínuni í knattspyrnu
á næsta árí. Eru taldar góðar líkur á því að
Steinþór taki staifið að sér, en hann er bú-
settur í Reykjavík um þessar mundir.
Steinþór er ekki alveg ókunnugur þjálfun,
því hann var aðstoðarþjálfarí KA í fyrra við
hlið Gústafs Baldvinssonar.
Ný stjóm
Völsungs
Á almennum fundi hjá knattspyrnudeild
Völsungs um daginn var kosin ný stjórn fyrir
næsta ár.
Formaður er Ævar Ákason sem nú er
komin í stjórn aftur eftir stutt hlé, varafor-
maður er Arni Grétar Gunnarsson, gjaldkeri
Leifur Grímsson, ritari Þorgrímur Aðlgeirs-
son og meðstjórnendur eru þeir Pétur Skarp-
héðinsson Sveinn Rúnar Arason Jósteinn
Hreiðarsson og Hafliði Jósteinson.
Fyrsta verkefni hinnar nýju stjórnar verð-
ur að ráða þjálfara meistaraflokks fyrir kom-
andi knattspyrnutímabil. Völsungar eru
orðnir einir af fáum liðum í efri deildunum
sem ekki hafa gengið frá ráðningu þjálfara.
Eiríkur með skjöldinn góða. Mynd: KGA.
Eiríkur lék
sinn 200. leik
- með Þór á föstudag
Eiríkur Sigurðsson þjálfari og leikmaður
Þórs í körfubolta lék á föstudagskvöld sinn
200. leik með félaginu. Af því tilefni var Ei-
ríki færður veglegur skjöldur frá félaginu og
strákarnir í liðinu gáfu Eiríki sigur þó svo
leikurinn hafí ekki þótt góður, eins og fram
kcmur hér á síðunni. Eiríkur liefur átt við
þrálát meiðsli að stríða og lék til að mynda
ekkert með liðinu í fyrra, en er á fullri ferð í
dag.