Dagur - 25.11.1985, Side 12
Akureyri, mánudagur 25. nóvember 1985
Alltaf vex vöruúrvalið
Vinsamlegast komið og skoðið
I
S
i
w
Ekkert byggt
á næsta ári
Mjög alvarlegt ástand er nú
framundan í byggingariðnadi
á Blönduósi og ekki að sjá í
dag að úr þeim málum muni
rætast.
Eik hf. sem er annað stærsta
byggingafyrirtæki á staðnum hef-
ur nú sagt upp öllum starfsmönn-
um sínum, og áform eru uppi um
sölu á fyrirtækinu. Þá hefur iðn-
aðarmönnum hjá fleiri fyrirtækj-
Blönduós:
um verið sagt upp störfum.
Útlitið fyrir næsta ár er mjög
dökkt. Engar opinberar fram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar og
reyndar engin verkefni fyrirsjá-
anleg því einkaaðilar og fyrirtæki
halda að sér höndum hvað varðar
byggingaframkvæmdir. Reynt
hefur verið að þrýsta á með opin-
berar framkvæmdir en ekki er að
sjá eins og málin standa í dag að
sá þrýstingur beri árangur. gk-.
Málverk að gjöf
Á laugardaginn allienti Kristinn G. Jóhannsson listmálari Aintsbókasafninu málverk af Guðmundi Frímann, skáldi.
Formaður Bókasafnsnefndar, Tryggvi Gíslason, veitti málverkinu viðtöku. Hér eru þcir að ræða um málverkið,
Tryggvi, Guðmundur og Kristinn G. Mynd: - KGA.
Jón Helgason.
Jón
hættir
- verður Sævar Frí-
mannsson næsti
formaður Einingar?
Jón Helgason, formaður
verkalýðsfélagsins Einingar,
'hefur tilkynnt að hann hyggist
láta af formennsku Einingar
fljótlega eftir helgi. Fram að
næsta aðalfundi sem haldinn
verður snemma á næsta ári
inun varaformaður Einingar,
Sævar Frímannsson, gegna
formennsku félagsins.
í samtali við Dag sagði Jón
ástæðu þess að hann kysi að láta
af störfum nú í stað þess að sitja
út kjörtímabilið vera þá að nú
færi í hönd erfið kjarabarátta og
hann vildi frekar fara frá
áður en hún hefst en að láta ann-
an mann taka við í miðju stríði.
Aðspurður um það hvort þetta
þýddi það að hann ætlaði Sævari
að verða næsti formaður Einingar
sagði Jón að það væri vissulega
ekki sitt að segja til um það hver
ætti að taka við starfinu. Þó
kvaðst hann vona að Sævar nyti
þess trausts að hann yrði fyrir
valinu sem næsti formaður Ein-
ingar. Á þingi Verkamannasam-
bands íslands sem haldið var í
Reykjavík fyrir skömmu var
Sævar kjörinn í stjórn í stað Jóns
og er það önnur vísbending um
að honum sé ætlað að taka við
formennsku Einingar. Þess má
að lokum geta að Jón og Sævar
eru báðir alþýðuflokksmenn.
-yk.
Bifvélavirkjun: r
,Fyrsta konan a
Islandi lýkur prófi
A laugardagsmorgunínn þreyttu
þrír nemar í bifvélavirkjun
sveinspróf. Það væri ekki í frá-
sögur færandi nema fyrir það
að fyrsta konan á íslandi sem
tekur sveinspróf í bifvélavirkj-
un var þeirra á meðal. Konan
heitir Ólöf Tryggvadóttir.
„Það þurfa allir að hafa ein-
hverja vinnu og ég fékk eitt sinn
vinnu á verkstæði og þar kvikn-
aði áhuginn að læra bifvélavirkj-
un,“ sagði Ólöf er hún var spurð
um áhuga sinn á þessu fagi. „Ég
er ekki með neina bíladellu, en
þetta er góð vinna.“
Ólöf lærði hjá Bjarna Sigur-
jónssyni á Mazdavérkstæðinu og
Menntaskólinn:
leysir
Flestar likur benda til þess að
Jóhann Sigurjónsson konrekt-
or muni gegna embætti skóla-
meistara Menntaskólans á Ak-
ureyri í fjarveru Tryggva
Gíslasonar sem hefur verið
ráðinn deildarstjóri við Nor-
rænu menningarmálastofnun-
ina í fjögur ár frá næsta vori að
telja.
Eftir því sem Dagur kemst
næst ríkir um það einhugur með-
al kennara skólans að konrektor
leysi skólameistara af og eru ekki
dæmi þess að gengið hafi verið
gegn vilja kennara Menntaskól-
ans á Akureyri við ráðningu
yfirmanna þar.
í slúðurdálki nýjasta tölublaðs
Heigarpóstsins segir að Guð-
mundur Heiðar Frímannsson
hafi verið orðaður við stöðuna en
sá kvittur á ekki við nein rök að
styðjast, að sögn Guðmundar,
sem reyndar hyggst taka sér frí
frá kennslu næsta vetur í þeim til-
gangi að auka við menntun sína.
-yk.
vann þar um tíma. Sem stendur
er hún heimavinnandi húsmóðir,
segist ekkert hafa unnið frá því
hún átti fyrri stelpuna sína, en
hún á tvær. Maður Ólafar, Hauk-
ur ívarsson er einnig bifvélavirki.
Á prófinu fékk Ölöf þau verk-
efni að setja saman gírkassa,
setja saman og stilla stýrisvél og
einnig þurfti hún að teikna raf-
kerfi bifreiðarinnar.
- Hvernig tilfinning er að vera
fyrsta konan á íslandi sem lýkur
prófi í bifvélavirkjun?
Ólöf yppir öxlum og lætur sér
fátt um finnast. Brosir. „Þegar ég
var í iðnskólanum var talað um
það í einhverjum þætti í útvarp-
inu að engin kona væri í bifvéla-
virkjun. Þá var landsbyggðin
ekki talin með og mér sárnaði
það svolítið.“
Ólöf segist sjálf eiga nýjan bíl.
„Ég vil hafa minn bíl í lagi!“
- Varstu stressuð kvöldið fyrir
prófið?
„Nei, ég horfði á Derrik og var
tiltölulega róleg.“ -mþþ
, Ölöf Tryggvadóttir.
Sauöárkrókur:
Erfið lausafjárstaða
- en ekkert
„Þessi frétt blaðsins er af-
skræmd og slitin úr öllu sam-
hengi,“ sagði Þórður Þórðar-
son bæjarstjóri á Sauðárkróki,
er hann var inntur eftir sann-
leiksgildi fréttar sem birtist í
NT á fímmtudaginn. Þar sagði
að Steinullarverksmiðjan og
bygging verkamannabústaða á
staðnum hefði steypt bæjar-
sjóði Sauðárkróks í meiri
skuldir en nokkru sinni fyrr.
Þórður sagði að lausafjárstað-
an hjá bæjarsjóði væri erfið eins
og hjá flestum öðrum sveitarfé-
neyðarástand segir bæjarstjóri
lögum.
„Við höfum vissulega þurft að
taka mikil lán vegna hlutafjár-
kaupa í Steinullarverksmiðjunni
og t.d. þurfum við að greiða 13
milljónir vegna þeirra á þessu
ári.“
Bæjarstjóri fullyrti að ekkert
bæjarfélag hefði lagt hlutfallslega
jafn mikla fjármuni í atvinnuupp-
byggingu á allra síðustu árum og
Sauðárkrókur hefði gert. Hann
benti á að sú fjárfesting ætti eftir
að skila bæjarfélaginu miklum
tekjum á komandi árum auk þess
að veita mörgum atvinnu.
„Hér er mikil uppbygging í
gangi. Verið er að ljúka smíði
nýja íþróttahússins og við stefn-
um að því að taka það í notkun
um áramót. Mikið hefur verið
byggt af verkamannabústöðum,
en salan gengið treglega og loks
má nefna að framlög úr jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga hafa verið
skert. Allt þetta leggst á eitt með
að gera lausafjárstöðuna erfiða.
En hér er ekkert neyðarástand
ríkjandi, langt í frá,“ sagði Þórð-
ur Þórðarson, bæjarstjóri á Sauð-
árkróki að lokum. BB.