Dagur - 26.11.1985, Qupperneq 9
26. nóvember 1985 - DAGUR - 9
JþróttiL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
KA lék fyrir sunnan um helgina í blaki:
„Ágætt á laugardag
en lélegt á sunnudag"
segir Sigurður Harðarson þjálfari
Ekki tókst liðum KA í blaki að sækja stig fyrir sunnan um helgina.
Um helgina spiluðu karla- og
kvennalið KA í blaki sína 2
leikina hvort í 1. deildinni fyrir
sunnan.
Ekki er hægt að segja að vel
hafi gengið í þeirri ferð, bæði lið-
in töpuðu sínum leikjum. Dagur
hafði samband við Sigurð Harð-
arson þjálfara kvennaliðsins og
liðstjóra karlaliðsins til að fá nán-
ari fréttir af þessum leikjum.
„Laugardagsleikirnir voru
ágætir þrátt fyrir tap hjá báðum
liðum gegn Prótti. í kvennaleikn-
um sigruðu Þróttarar 3:0. Fyrsta
hrinan var mjög góð, jafftt á svo
til öllum tölum upp í 12:12, en
Þróttarastelpurnar skoruðu síð-
ustu 3 stigin og sigruðu 15:12.
Það vantaði aðeins herslumuninn
í þessari hrinu, en það er eins og
KA-stelpurnar hafi ekki næga
Unglingameistaramót íslands í sundi:
Mjög góður árangur
sundfólks Óðins
Átta keppendur frá sundfélag-
inu Óðni fóru á Unglinga-
meistaramót íslands í sundi
sem haldið var í Reykjavík um
síðustu helgi. Árangur var
góður og flestir keppendanna
bættu sig. Engin Islandsmet
féllu að þessu sinni, en óhætt
er að fullyrða að litlu munaði.
Svavar Þór Guðmundsson setti
glæsilegt Akureyrarmet í 50 m
baksundi á tímanum 31,62 sek.
Þetta er aðeins 2Vm úr sek. frá ís-
landsmeti Eðvarðs Þ. Eðvarðs-
sonar í drengjaflokki. Þessi tími
Svavars er þriðji besti árangur ís-
lendings á þessu ári í karlaflokki,
en hann er aðeins 14 ára gamall.
Svavar náði einnig athyglisverð-
um árangri í 50 m skriðsundi, þar
synti hann á tímanum 27,26 sek.
sem er 2. besti árangur frá upp-
hafi í hans aldursflokki. Hann
setti samtals 19 Akureyrarmet á
mótinu.
Birna Björnsdóttir setti 12 Ak-
ureyrarmet og bar þar hæst tíma
hennar í 50 m baksundi, 37,40
sek. Þessi tími er aðeins 6/io úr
sek. frá íslandsmetinu í hennar
aldursflokki. Einnig má geta þess
að besti tími Birnu í 100 m bak-
sundi er einnig ¥w frá íslandsmeti.
Henni tókst því miður ekki vel
upp í því sundi á þessu móti.
Arangur hennar í 200 m bak-
sundi var líka glæsilegur á mót-
inu, hún varð í 6. sæti á tímanum
2:51,68, glæsilegur fyrir þá sök að
á Unglingameistaramóti íslands
er einungis keppt í einum flokki
pilta og stúlkna, 17 ára og yngri,
en Birna er aðeins 12 ára gömul.
Tími Birnu í 50 m skriðsundi var
31,47 sek. sem er 2. besti tími í
hennar flokki frá upphafi.
Tvö Akureyrarmet voru sett í
boðsundum stúlkna, sveit Óðins
synti 4x50 m fjórsund á 2:29,94
mín. og 4x50 m skriðsund á
2:14,47 mín. Þetta eru met í
kvenna- og stúlknaflokki. Sveitina
skipuðu Guðrún Y. Tómasdóttir,
Aðalheiður Sigursveinsdóttir,
Elsa Guðmundsdóttir og Birna
Björnsdóttir.
STAÐAN
3. deild:
Staðan í 3. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik eftir leiki
helgarinnar er þessi i:
Völsungur-ÍBK 26: :29
Selfoss-Fylkir 24; :20
UMFN-IA 23: :26
UFHÖ-Ögri 28: :23
Þór-ÍBK 17: :25
ÍBK 7 6 0 1 186:140 12
Týr 8 6 0 2 221:164 12
Revnir 8 5 2 1 189:173 12
ÍA 7 5 1 1 171:145 11
Þór 9 5 1 3 208:183 11
Fylkir 9 4 1 4 189:172 9
UMFN 8 3 1 4 215:197 7
Völsungur 9 3 1 5 222:220 7
Selfoss 7 2 2 3 164:159 6
ÍH 7 3 0 4 170:193 6
LiFHÖ 7 2 1 4 176:209 5
Skallagrímur 6 1 0 5 126:162 2
Ögri 8 0 0 8 117:224 0
trú á því að þær geti sigrað. 1
annarri hrinunni sigruðu Þ'rótt-
arastelpurnar örugglega 15:3 og í
þeirri þriðju 15:8 og í þeim hrin-
um datt botninn alveg úr leik
KA-stelpnanna.
Á eftir kvennaleiknum léku
sömu lið í karlaflokki og sigruðu
Þróttarar einnig 3:0 í þeim leik.
Sá leikur var betur leikinn heldur
en kvennaleikurinn af KA-liðinu.
Þróttur sigraði í fyrstu hrinunni
15:10, eftir að hafa verið kominn
í 9:0 í byrjun. Önnur hrinan end-
aði 15:9 fyrir Þrótt og sú þriðja
15:12. Þróttur er með mjög gott
lið og þeir byrjuðu hverja hrinu
af miklum krafti og náðu oftast
góðri forystu strax. KA-strákarn-
ir náðu þó að rétta sinn hlut með
því að spila af yfirvegun, þó ekki
hafi það dugað til sigurs. Stærsta
tromp Þróttar er stórgóður sókn-
arleikur, þeir eru aftur slakir nið-
ur við gólf í vörninni, en hávörn-
in er ágæt.
Þá erum við komnir að sunnu-
dagsleikjunum og þeir voru öllu
daprari hjá liðunum. Kvennalið-
ið lék gegn UBK og tapaði þeim
leik 3:0. Það var slæmt tap því
KA-stelpurnar eru með betra lið
en UBK, þær byrjuðu hverja
hrinu illa og gáfu UBK alltaf 5-6
stiga forskot sem þær náðu svo
aldrei að vinna upp. UBK vann
fyrstu hrinuna 15:11, aðra hrin-
una 15:13 og þá þriðju einnig
15:13, þannig að ekki munaði
miklu. KA-stelpurnar léku allar
undir getu í þessum leik, mikið
um misskilning í stöðum og mik-
ið af uppgjöfum sem fóru í
súginn.
Karlaliðið lék við HK og þar var
svipað uppi á teningnum, að liðið
lék miklu verr heldur en daginn
áður. HK sigraði í fyrstu hrin-
unni 15:12, KA í annarri hrin-
unni 15:10, en HK síðan í tveimur
síðustu hrinunum 15:11 og 15:7.
Þessi tvö lið eru einna líkust í
deildinni, þau eru ekki með eins
sterkar sóknir og hin liðin, en
berjast bæði mjög vel. Það sem
gerði útslagið í þessum leik var
hvað KA-menn léku illa, fyrir
utan Sigurð Arnar Ólafsson sem
var sá eini er hélt haus og lék vel.
Þá átti Kjartan Busk stórleik fyrir
HK og hafði það einnig áhrif á
sigur HK,“ sagði Sigurður Harð-
arson að lokum.
1
STAÐAN
1. deild:
Staðan í 1. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik:
Víkingur 11 9 0 2 270:209 18
Stjarnan 11 7 2 2 256:221 16
Valur 9 7 0 2 204:184 14
FH 11 6 0 5 268:255 12
KA 11 4 1 6 223:229 9
Fram 10 4 0 6 236:237 8
KR 11 3 1 7 234:233 7
Þróttur 10 0 0 10 208:308 0
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Jónas „saltaöi"
Gunnar Níelsson
Gunnar Níelsson var lítil fyrirstaða fyrir Jónas Róbertsson um helg-
ina. Jónas var með 6 leiki rétta, Gunnar aðeins 3, þrátt fyrir það að
United hafi steinlegið gegn Leicester. Er það mál manna að United-
liðið sé endanlega búið að gefa það upp á bátinn að sigra í 1. deild-
iinni þetta keppnistímabil. Hvað um það Jónas ætlar að gefa öðrum
KA-manni tækifæri um næstu helgi, en það er Níels Halldórsson
faðir Gunnars. Níels er aðdándi Q.P.R. og var hann ekki í vand-
ræðum með að tippa, eins og sést hér að neðan.
Jónas
Níels
Aston Villa-Tottenham
Ipswich-Sheff.Wed.
Luton-Man.City
Man.United-Watford
Newcastle-Leicester
Q.P.R.-Coventry
Southampton-Everton
Bradford-Portsmouth
Fulham-Oldham
Grimsby-Blackburn
Leeds-Norwich
Stoke-Sunderland
1
2
1
1
1
1
2
x
x
1
X
Aston Villa-Tottenham
Ipswich-Sheff. Wed.
Luton-Man.City
Man.United-Watford
Newcastle-Leicester
Q.P.R.-Coventry
Southampton-Everton
Bradford-Portsmouth
Fulham-Oldham
Grimsby-Blackburn
Leeds-Norwich
Stoke-Sunderland
Athugið!
Sundfólk Óðins náði góðum árangri í Reykjavík um helgina.
Fólk sem spilar í getraunum er minnt á að skila seðlunum inn fyrir
hádegi á fimmtudögum, svo enginn verði nú af vinningi.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2