Dagur - 26.11.1985, Síða 12

Dagur - 26.11.1985, Síða 12
iMI Akureyri, þriðjudagur 26. nóvember 1985 Smidjan niinnir á leihústilboðið Sæsniglasúpa. Lambahnetusteikur með kryddjurtasósu. Kaffi og konfekt. Verð kr. 600,- Smiðjan opnuð kl. 18.00. Kristnesspítali: Akvörðun verður tekin fljótlega - um það hvort sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar leggi niður störf Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar hjá Kristnesspítala hafa ekki ákveðið hvort þeir hætta störfum hjá spítalanum í næsta mánuði eins og þeir höfðu boðað. Stjórn ríkisspítalanna hefur sent þessum tveimur starfshópum bréf þar sem þeirri túlkun ríkis- lögmanns er lýst að uppsagnirnar séu ólöglegar þar sem þær séu skilyrtar að því leyti að þær gangi til baka ef launakröfur ná franr að ganga. Liv Gunnhildur Stefánsdóttir, trúnaðarmaður sjúkraliða, sagði að þær ættu von á Gunnari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Starfsmannafélags ríkisstofnana, norður til fundar þar sem lagt verður mat á viðbrögð stjórnar ríkisspítalanna við uppsögnum og launakröfum sjúkraliða í Kristnesi. Eftir þann fund verða teknar ákvarðanir um það hvort sjúkraliðar leggja niður störf 4. desember eins og þeir höfðu boðað. -yk. „Alltaf að gerast ökuskírteini vegna hrað- bæjarfógeta á Akureyri - að menn séu sviptir aksturs," segir fulltrúi „Þaö er alltaf að gerast að menn séu sviptir ökuleyfi vegna of hraðs aksturs,“ sagði Ólafur Ólafsson fulltrúi hjá bæjarfógetaembættinu á Ak- ureyri í samtali við Dag í gær. Ólafur sagði að sviptingar vegna hraðaksturs kæmu upp í hverri viku og oftast væri um unga ökumenn að ræða. Um helgina var lögreglan með hraða- mælingar á Akureyri og tók a.m.k. 7 ökumenn. Þrír þeirra voru á yfir 100 km hraða, tveir óku á 109 og 103 km hraða á Norðurlandsvegi og einn á 105 km hraða á Drottningarbraut. Þegar slík dæmi koma upp eru málin metin og tekið tillit til þess hvernig ökuferill manna er, við hvaða aðstæður þeir hafa ekið og hversu hratt og hvort um er að ræða unga ökumenn, t.d. á fyrsta ári. gk-. m Gluggar vegar er eru augu húsanna, sagði einhver - kannski var það skáld. Hins betra að hafa gluggana hreina, þá sést betur inn. Mynd: - KGA. Utgerðarfélag Akureyringa: Nægur kvóti er eftir Hjá Útgerðarfélagi Akureyr- inga eru alls eftir ríflega 2000 tonn af kvóta, að sögn Einar Óskarssonar skrifstofumanns. Þar af eru rúm 1400 tonn af karfa en með því að nýta heim- ild til að breyta 10% af skrap- kvóta í þorskkvóta geta togar- ar ÚA átt eftir að veiða um 500 tonn af þorski. Þessi kvóti ætti að geta dugað öllum 5 togurum ÚA nokkurn veginn fram að áramótum og næg atvinna helst þar með í frystihús- inu. Þar vantar raunar fólk og hefur vantað um nokkurt skeið. Hrímbakur, nýjasti togari ÚA, hefur borið um 580 tonn að landi í þeim fimm veiðiferðum sem hann hefur farið frá því að hann hóf veiðar í haust. Einar sagði að Hrímbakur hefði reynst vel, þrátt fyrir smávægilega byrjunarörðug- leika. -yk. Akureyri: Óvenjumikið um veim- sýkingar Að sögn Hjálmars Freysteins- sonar sem gegnir nú störfum héraðslæknis á Akureyri er óvenjumikið um veirusýkingar í bænum um þessar mundir. Ekki er hægt að segja að hér sé um inflúensu að ræða, en veirusýkingunni fylgir talsverður hiti og kvef. „Það er oft mikið um þetta fyrripart vetrar en það er óhætt að segja að þetta sé með meira móti núna,“ sagði Hjálmar. gk-. Fundur Samtaka um jafnrétti milli landshluta með alþingismönnum: „Þingmenn voru jákvæðir“ Á laugardaginn hélt deild Samtaka um jafnrétti milli landshluta í V.-Húnavatns- sýslu, opinberan fund með al- i..”' . - .... -< ' Skógrækt? Mynd: - KGA. þingismönnum Norðurlands vestra í Félagsheimilinu á Hvammstanga. 130 manns mættu á fundinn og urðu um- ræður fjörugar. Allir þingmenn Norðurlands vestra töluðu á fundinum og fékk hver um sig 15 mínútur til um- ráða og máttu skipta þeim tíma í tvennt eða þrennt eftir þörfum. Talsmenn Samtakanna voru jafn- margir þingmönnum og kynntu þeir baráttumál sitt um breytta stjórnarskrá svo og önnur bar- áttumál fyrir þingmönnunum og leituðu eftir áliti þeirra. Magnús Kristinsson, starfs- maður Samtakanna, sagði að þessi fundur hefði verið mjög gagnlegur og þingmenn hefðu all- ir sem einn verið mjög jákvæðir í garð samtakanna. „Þeir lýstu ánægju sinni með að svona þjóðmálasamtök gætu starfað og jafnframt að við skyld- um nota svona fund til þess að koma á beinu sambandi milli þingmanna og og hins almenna kjósanda. Þeir voru sammála okkur í veigamiklum atriðum þótt erfitt sé að alhæfa nokkuð í því sambandi, því þarna voru jú 5 þingmenn úr þremur stjórn- málaflokkum. Þeir komu þó fram á vissan hátt sem einn nokkuð samstilltur aðili,“ sagði Magnús. Hann sagði að andrúmsloftið hefði verið mjög gott þótt stund- um hefði hvesst örlítið. „Tilgangurinn með þessum fundi var fyrst og fremst sá að fá fram skoðanir þingmanna á þeim drögum að stjórnarskrá sem sam- tökin hafa gert. Við viljum að kosið verði til sérstaks stjórn- lagaþings sem hafi það hlutverk að endurskoða stjórnarskrá lýð- veldisins. Við göngum svo langt að leggja til að þingmenn verði þar ekki kjörgengir, því við telj- um óeðlilegt að þingmenn seniji sjálfir þær reglur sem þeir eiga að starfa eftir.“ Magnús sagði þessar tillögur hafa hlotið misjafnar undirtektir þingmanna en meirihluti þeirra hefði ckki lýst sig andvígan þeim. „Nokkrir þingmenn lýstu áhyggjum sínum yfir því að völd- in í þjóðfélaginu væru smám saman að færast frá Alþingi og yfir til ýmissa stofnana í Reykja- vík og þar erum við þeim hjart- anlega sammála," sagði Magnús Kristinsson að lokum. BB.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.