Dagur - 28.11.1985, Blaðsíða 11

Dagur - 28.11.1985, Blaðsíða 11
28. nóvember 1985 - DAGUR - 11 Jþróttic Umsjón: Kristján Kristjánsson Það er betra að vera vel klæddur á æfingu í nýja húsinu á Húsavík. Mynd: IM Misjöfn æfingaaðstaða liðanna í handbolta - Völsungar byrjaðir að æfa í nýja húsinu Þeir munu kljást á Skaganum á sunnudag Nói Bjömsson Þórsari og Hilmar Sighvatsson Valsari. Stórmót íþrótta- fréttamanna Fyrir skömmu var haldin fyrsta æfingin í handbolta í nýja íþróttahúsinu á Húsavík. Æfingin var óvenjuleg fyrir þá sök, að húsið varð fokhelt fyrir nokkru og er töluvert frá því að vera tilbúið til æfinga eins og til er ætlast. Ingibjörg Magnúsdóttir blaða- maður Dags á Húsavík var mætt á þessa fyrstu æfingu, tók nokkr- ar rnyndir og spjallaði við Pálmi Pálmason þjálfara Völsungs. Hann var spurður hverju það breytti fyrir þá að geta verið við æfingar í húsinu þrátt fyrir að enn væri langt í land með að það væri tilbúið. „Það kemur sér vel, við höfum verið á hrakhólum hingað til. Litli salurinn hér á Húsavík er allt of lítill. Aðstaðan í nýja hús- inu er ekki góð, við notumst við vinnuljós, það er steinsteypt gólf, sem þykir nú ekki það besta fyrir menn sem þurfa að henda sér í gólfið og hitastigið rétt ofan við frostmark. Það þýðir ekki annað en að vera vel klæddur á æfingu, bæði vegna gólfsins og kulda. Við notum þennan tíma aðallega fyrir „taktískar“ æfingar sem ekki er hægt að æfa í litla salnum. Leik- mennirnir máluðu línur á steyp- una og mörk erum við með, en við munum samt sem áður æfa einu sinni í viku á Laugum í Reykjadal sem er okkar heima- völlur ennþá,“ sagði Pálmi Pálmason. Ársþing KSÍ um helgina Ársþing Knattspyrnusam- bands Islands verður haldið í Vestmannaeyjum nú um næstu mánaðamót. Búast má við átakaþingi og þá aðallega vegna hins svokallaða Jóns- máls sem var mikið í fréttum í sumar. Á slíkum þingum eru bornar fram margar nýjar til- lögur félaganna um breytingar á fyrirkomulagi móta, um ný mót og svo framvegis. Hér á eftir verður minnst á nokkrar þær tillögur sem bornar verða upþ á þinginu. Þá ber fyrst að nefna tillögu sem knattspyrnu- félögin Víkingur og Þróttur munu leggja fram, um fjölgun liða í 1. deild á næsta ári. Það sem athyglisverðast er við þá til- lögu er að þessi tvö lið féllu í 2. deild á síðasta ári og lítur dæmið þannig út fyrir umsjónarmanni íþróttasíðunnar, að forráðmenn félaganna geti ekki sætt sig við það hlutskipti. Ef þessi tillaga verður samþykkt yrði að spila um þau sæti sem losna, jafnt um sæti í 1. deild sem og hinum neðri deildum. Er hætt við að það raski sjálfu íslandsmótinu og myndi koma í veg fyrir útkomu móta- bókarinnar fyrr en allt of seint. Samt sem áður er hætt við að til- laga þessi nái fram að ganga, þar sem lið í neðri deildunum sjá þar tækifæri á að flytjast upp um deild. Þá má nefna tillögur frá milli- þinganefnd KSÍ um styttingu 2. flokks um eitt ár og að félög í 1. og 2. deild fái að senda b-lið til keppni í 3. eða 4. deild en ekki ofar. B-liðið fái þó ekki rétt til þátttöku í Bikarkeppni KSÍ. Nefndin bendir á ýmis rök með tillögum sínum og má þar nefna, að það að lækka aldur í 2. flokki ætti ekki að koma að sök, ef einnig yrði samþykkt að leyfa lið- um í 1. og 2. deild að senda b-lið til keppni. Þá komi þetta sér bet- ur fyrir þá stráka sem eru á fyrsta ári í 2. flokki, sem eiga í vök að verjast gagnvart þeim elstu. Þá bendir nefndin á að stytting 2. flokks um eitt ár mundi henta unglingalandsliðinu betur en ver- ið hefur. Þá segir í lok greinar- gerðar milliþinganefndar að þetta fyrirkomulag muni vafa- laust auka gæði knattspyrnunnar í neðri deildunum, auka sam- skipti fjölmennari og fámennari félaganna og gefa fleirum tæki- færi á að vera með, sem hlýtur að vera af því góða. Stjórn KSÍ mun leggja fram til- lögu um að sett verði á fót deild- arbikarkeppni og verður hér drepið á punkta úr þeirri tillögu. Þátttökulið verði 48, þ.e. liðin sem léku í 1., 2. og 3. deild árið áður, auk þeirra liða sem færðust upp í 3. deild. Afgangurinn kæmi úr 4. deild og verði tekið mið af árangri úr 4. deild árið áður. Stjórn KSÍ úrskurði um þátt- tökulið. Liðum verði skipað í riðla eftir styrkleika, þar sem því verður við komið. í undankeppni skal svæðakeppni viðhöfð. í undankeppni verði tólf fjög- urra liða riðlar. Þó verði heimilt að hafa minnst 3 lið og mest 5 lið í einstökum riðlum, ef aðstæður kalla á slíkt. Liðin leiki tvöfalda stigakeppni, heima og heiman og fari undankeppnin fram í apríl. Efsta lið í hverjum riðli undan- keppninnar komist í milliriðil, sem verði fjórir og þrjú lið í hverjum og leiki liðin heima og heiman. Þeir leikir fari fram í maí, áður en íslandsmótið hefst. Efsta liðið í hverjum milliriðli komist í undanúrslit, þar sem tveir leikir fara fram og verði dregið um hverjir leika saman. Leikið verði til þrautar og skulu leikirnir fara fram fyrri hluta júní. Úrslitaleikurinn verði síðari hluta júní og leikið til þrautar. Hætt er við, að ef þessar tillög- ur um deildarbikar og fjölgun í 1. deild, nái fram að ganga, verði að lengja sumarið á íslandi með ein- hverjum ráðum. Að lokum má nefna tillögu frá Aganefnd KSÍ um breytingar á starfsreglum nefndarinnar. Hljóðar tillagan þannig. í stað orðanna: „Úrskurð Aganefndar skal tilkynna strax að loknum fundi og taka þeir gildi kl. 12.00 á hádegi næsta laugardag. Óheim- ilt er að taka út refsingu áður en úrskurður tekur gildi. Úrskurð sinn skal Aganefnd tilkynna með skeyti og skal móttökustimpill hjá símstöðinni í Reykjavik gilda.“ Komi „Úrskurð Aganefndar skal tilkynna strax að loknum fundi og taka þeir gildi kl. 12.00 á há- degi næsta föstudag. Það er alfar- ið á ábyrgð einstakra félaga að fylgjast með leikbönnum liðs- manna sinna. Óheimilt er að taka út refsingu áður en úrskurður tekur gildi." Þá er talað um að 5. gr. falli brott. Einnig er tillaga um að leikmaður sem rekinn er af leik- velli, verði úrskurðaður í eins leiks bann og leikmaður sem rek- inn er af leikvelli í annað sinn á keppnistímabilinu, skal úr- skurðaður í tveggja leika bann. Margar aðrar tillögur munu verða lagðar fyrir þingið í Eyj- um, en við látum þessu lokið, með von um að það verði bestu tillögurnar ganga. sem ná fram að Getraunakeppni fjölmiðia JO O 3 3 3 »o -O. < Dagur > a «C J2 j5 c 3 BC 1- 1 Z c c «c 'C »c '§■ 08 > '3 3 X Aston Villa-Tottenham X X 2 1 i 2 1 Ipswich-ShefTíeld Wed. 2 2 2 X X X X Luton-Manchester City 1 1 1 1 1 1 1 Manch.United-Watford 1 1 1 1 1 1 1 Newcastle-Leicester 1 X 1 X 1 1 1 Q.P.R.-Coventry 1 1 1 1 X 1 1 Southampton-Everton 1 X X 2 2 X X Bradford-Portsmouth X 2 2 2 2 2 2 FuIham-OIdham 1 1 1 1 1 1 1 Grimsby-Blackburn 1 X 2 1 X 1 X Leeds-Norwich X 1 2 1 1 2 1 Stoke-Sunderland 1 X 1 X X X X Sunnudaginn 1. des. fer fram í íþróttahúsinu á Ákranesi, Stórmót Samtaka íþrótta- fréttamanna í innanhússknatt- spyrnu. Til mótsins er boðið þeim Iiðum er léku best í 1. deild á síðasta sumri og því liði er sigraði á Islandsmóti innan- húss síðastliðinn vetur. Einnig eru íþróttafréttamenn með lið í mótinu. Leikið verður í tveimur riðlum og í a riðli eru: KR, Fylkir, ÍBK og ÍA og í b riðli: Þór, Fram, Valur og lið íþróttafréttamanna. Mótið hefst kl. 12 á hádegi með Ný stjóm KA Á aðalfundi knattspyrnu- deildar KÁ sem haldinn var fyrir skömmu var m.a. kosin ný stjórn fyrir næsta ár. Stjórnina skipa, Stefán Gunnlaugsson formaður, Gest- ur Jónsson, Gunnar Kárason, Örlygur ívarsson, Ólafur Ólafs- son og Erling Aðalsteinsson. Að sögn Stefáns Gunnlaugs- sonar gekk rekstur deildarinnar mjög vel á síðasta ári og fjár- hagsstaðan var réttum megin við núllið. leik KR og Fylkis og síðan verður leikið í þessari röð: Kl. 12.17 Þór-Fram, kl. 12.34 ÍBK-ÍA, kl. 12.51 fréttamenn-Valur, kl. 13.08 ÍBK-KR, kl. 13.25 frétta- menn-Þór, kl. 13.42 ÍA-Fylkir, kl. 13.58 Valur-Fram, kl.14.16 KR-ÍA, kl. 14.33 Þór-Valur, kl. 14.50 Fylkir-ÍBK, kl. 15.07 Fram-f réttamenn. Að loknum þessum leikjum verða þau lið sem komust í undanúrslit kynnt og síðan spila þau 4 lið sem eftir verða, kl. 15,40, efsta liðið í a riðli og næst- efsta liðið í b riðli. Síðan kl. 16.00 leika næstefsta liðið í a riðli og efsta liðið í b riðli. Að þeim leikjum loknum eða um kl. 16.20 munu hinir svoköll- uðu Vígamenn sýna atriði, eins og að brjóta hellur með hausnum og fl., sá flokkur er frá Karatefé- lagi Reykjavíkur. Um kl. 16.35 verður leikið um 3ja sætið á mótinu og strax að þeim leik loknum, leiða saman hesta sína, Gullaldarlið ÍA með Ríkharð Jónsson í broddi fylk- ingar og stjörnulið Ómars Ragn- arssonar með Ómar og Albert Guðmundsson fremsta í flokki. Að þeim leik loknum verður síð- an háður sjálfur úrslitaleikurinn í Stórmótinu og fer hann fram um kl. 17.10. Selt verður inn á mótið í einu lagi og kostar kr. 200 fyrir full- orðna, en 100 kr. fyrir börn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.