Dagur - 28.11.1985, Síða 13
28. nóvember 1985 - DAGUR - 13
„Við gátum boðið
konunum út að borða“
- Árni Björn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Bílaleigu Húsavíkur, tekinn tali í tilefni af
10 ára afmæli bílaleigunnar
„Ég mun hafa verið hvata-
maður að þessu, en við sett-
um markið ekki hátt í upp-
hafi,“ segir Árni Björn Þor-
valdsson framkvæmdastjóri
Bflaleigu Húsavíkur. Bfla-
leigan átti 10 ára afmæli 20.
nóv. sl. og í tilefni þessara
tímamóta leit ég við á skrif-
stofunni hjá Árna Birni til að
forvitnast um fyrirtækið. Og
að sjálfsögðu byrjuðum við á
byrjuninni.
„Þá vann ég á Bifreiðaeftirlit-
inu. Einar Olgeirsson var ný-
tekinn við sem hótelstjóri hér.
Ég kom að máli við hann og
spurði hvort ekki væri tilvalið
að koma á fót bílaleigu og hafa
afgreiðsluna á hótelinu.
Einar var til með þetta og við
fengum fleiri til liðs við okkur.
Alls vorum við átta sem stóðum
að þessu í upphafi. Ég man að
Einar sagði: „Ég verð ánægður
ef þetta skilar svo miklu af sér
fyrsta árið að við getum boðið
konunum út að borða.“ Ég hef
stundum minnt hann á þetta
síðan.“
- Þið hafið getað boðið kon-
unum út?
„Já, eftir fyrsta árið var það
örugglega hægt.
í dag er staðan sú að bílaleig-
an skapar atvinnu sem nemur
15-17 heilum störfum. Að vísu
er þetta orðið meira en bíla-
leiga, við erum einnig með bíla-
verkstæði og verslun.
Fyrsta árið áttum við þrjá
bíla, í dag munu þeir vera ná-
lægt 25. í byrjun var fyrirtækið
rekið í tómstundum síðan hefur
það hlaðið utan á sig og þróast,
þannig að 1979 stóðum við
frammi fyrir því að reksturinn
var orðinn það umfangsmikill,
að ekki var lengur hægt að
stunda þetta í hjáverkum. Þá
var aðeins um tvennt að velja,
minnka fyrirtækið eða fara út í
annan rekstur samhliða.
Þá tókum við húsnæði að
Garðarsbraut 66 á leigu og sett-
um upp verkstæðið og verslun.
Ég hætti hjá bifreiðaeftirlitinu
og við störfuðum hér tveir til að
byrja með. Þá höfðum við 400
fm húsnæði, stækkuðum svo
upp í 600 og nú erum við með
800 fm.
Við erum með alhliða við-
gerðarþjónustu á verkstæðinu
en einnig umboð fyrir Toyota
og Bifreiðir og landbúnaðarvél-
ar. 1979 fluttum við afgreiðslu
bílaleigunnar frá hótelinu og
hún samræmdist vel verslunar-
rekstrinum.
Þetta hefur sem sagt alltaf
þróast upp á við og orðið stærra
en reiknað var með í upphafi."
- Hvaða aðilar taka oftast
bíla á leigu?
„Mikið aðkomumenn sem
hér koma í einhverjum erinda-
gjörðum, ýmsir verktakar t.d.
og hlutur erlendra ferðamanna
er mjög vaxandi. Annars höfum
við lítið auglýst á ' erlendum
vettvangi enda er það mjög
dýrt.“
- Er meira að gera hjá ykkur
á sumrin?
„Já, mest er i júlí og ágúst.
Við erum með útibú á Akur-
eyri, Egilsstöðum, Reynihlíð og
í Reykjavík. Þar er mikil aukn-
ing og meira en helmingur af
bílunum er þar yfir vetrarmán-
uðina.“
- Hvernig fer fólk með bíla-
leigubíla? Verðið þið oft fyrir
skakkaföllum?
„Ég sá viðtal í blaði við bíla-
leigumann í Reykjavík. Honum
fannst ítalir og Frakkar þeir
viðskiptavinir sem verst gengu
um bíla. Ég vil meina að við
höfum fengið versta útreið hjá
ungum Dönum. Þeir leigðu bíl
hjá okkur og voru með hann í
viku. Hringja síðan frá Laugum
og segja að hraðamælissnúran
hafi bilað. Þegar þeir koma með
bílinn sjáum við að 10-20 cm
vantar á snúruna. Þá hafa þeir
trúlega tekið hana úr sambandi
og hún dregist niður, þegar þeir
hafa ætlað að tengja hana aftur
hefur endinn verið farinn af.
Þeir sluppu en hafa örugglega
platað mig illa, þar fyrir utan
var bíllinn allur gegnsósa í
vatni.“
- Er algengt að svona komi
fyrir?
„Nei, það er ekki algengt, en
auðvitað eru bílarnir misjafn-
lega með farnir. íslendingar
ganga yfirleitt vel um bílana.
IM
Basar í Laugaborg
Sameiginlegur muna- og kökubasar Kvenfélagsins
Iðunnar og Kristnesspítala verður haldinn í Lauga-
borg laugard. 30. nóv. og hefst kl. 15.30.
Húsið opnað kl. 14.30. Kafffsala.
Nefndin.
Frá Oddeyrarskóla
Vegna orlofsveitingar vantar kennara í fullt starf
frá og með 1. jan. nk. og til loka skólaársins. Einn-
ig þarf að ráða kennara til afleysinga vegna
barnsburðarleyfis, sem hefst 1. febr. nk. Um er að
ræða kennslu yngri nemenda (forskóli -4. bekk).
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 23496
eða yfirkennari í síma 25377.
Skólastjóri.
★ Bílasprautun
Við leitum að vönum manni eða nema til starfa
hjá góðu fyrirtæki.
Góð laun í boði fyrir hæfan mann.
★ Rafvirki
Við óskum að ráða rafvirkja til starfa hjá rafverk-
takafyrirtæki sem fyrst.
Næg vinna.
Umsóknareyðublöð á skristofunni
f f
Svæðisstjórn málefna fatlaðra Norður-
landi eystra. - Vistheimilið Sólborg.
Lausar stöður
við aðhlynningu vistmanna á deildum.
Upplýsingar í síma 21755 frá kl. 10-16 virka daga.
Forstöðumaður.
Óskum að ráða
starfskraft
Viðkomandi þarf að:
- hafa reynslu í félagsmálum,
- hafa haldgóða stærðfræðiþekkingu,
- geta hafið störf sem fyrst.
Starfið er fjölbreytt, felur í sér mikil mannleg sam-
skipti og ferðalög.
Upplýsingar eru veittar í síma 26333, eftir kl.
18.00 í síma 23005.
Umsóknarfrestur er til 10. desember nk. og skal
umsóknum skilað í pósthólf 128.
Alþýðusamband Norðurlands,
Skipagötu 14, Akureyri.