Dagur - 03.12.1985, Page 1

Dagur - 03.12.1985, Page 1
68. árgangur Akureyri, þriðjudagur 3. desember 1985 155. tölubiað rwwm Filman þín á skiliö þaö besta! FILMUHUSIÐ Hafnarstræti 106- Sími 22771 • Pósthólf 198 gæðaframköllun Filman inn fyrir kl. 10.45. Myndirnar tilbúnar ki. 16.30. Opiö á' laugardögum frá kl. 9-12. „Heyrðu, ég er orðinn lúinn ■ hendinni...“ Og hvað skyldi vera tínt af trjám þessa dagana? Mynd: KGA Pálmholt: Verður að loka vegna fóstmskorts? - Enginn hefur sótt um forstöðumannsstarfið Engin umsókn hefur enn borist um stöðu forstöðumanns við Dagheimilið Pálmholt og ekk- ert útlit er fyrir að slík umsókn berist. Félagsmálastofnun hef- ur auglýst margsinnis, bæði í blöðum hér og fyrir sunnan en án árangurs. Auk þess hefur verið leitað til starfandi fóstra hér um tilfærslur á stöðugild- um o.fl. en allt kemur fyrir ekki. Núverandi forstöðumaður Pálmholts hættir störfum 1. jan- úar n.k. og þar með verður dag- heimilið fóstrulaust. Samkvæmt lögum er ekki heimilt að reka dagvistun án þess að forstöðu- maður hennar sé menntuð fóstra, nema með sérstakri undanþágu sem menntamálaráðuneytið get- ur veitt. Félagsmálaráð Akureyr- ar hefur nú falið Jóni Björnssyni félagsmálastjóra að leita undan- þáguheimildar til þess að ráða forstöðumann án fóstrumenntun- ar. Aðspurður sagði Jón Björns- son að ástæða þess að enginn hef- ur sótt um forstöðumannsstöð- una væri tvíþætt. Annars vegar væri fóstruskortur í bænum og hins vegar væri of lítill launamun- ur á milli fóstru og forstöðu- manns til þess að verka livetj- andi. „Við stöndum frammi fyrir því að sækja um undanþágu til menntamálaráðuneytisins ellegar loka dagvistuninni að öðrum kosti. Pá leið viljum við forðast í lengstu lög," sagði Jón Björnsson. Ef undanþágan fæst mun verða leitað eftir reyndu og góðu starfs- fólki sem starfað hefur lengi við dagvistirnar á Akureyri, þótt án réttinda sé. BB. Stýri Siglfirðings ur sambandi: Siglufjarðartogarinn Siglfirð- ingur lenti í erfiðleikum um kl. 2 í fyrrinótt er skipið var að veiðum út af Sléttugrunni. Ekki er vitað nákvæmlega hvað gerðist, en skipið lét skyndilega ekki að stjórn. „Ég hef grun um að þeir hafi misst stýrið,“ sagði Ragnar Ólafsson skipstjóri á Siglfirðingi er Dagur ræddi við hann í gær, en Ragnar var í fríi þennan túr. heim tog- band við skipstjórann og sagt honum að reyna að komast til hafnar með því að stýra með tog- hlerunum. Það virðist hafa borið árangur því Siglfirðingur var væntanlegur til Siglufjarðar seint í gærkvöld eða í nótt án aðstoð- ar. Siglfirðingur var langt kominn með veiðiferðina og var aflinn orðinn um 90 tonn, grálúða og þorskur. gk-. Húsavík: Sigurður Briem settur sýslumaður Siguröur Briem Jónsson full- trúi hefur verið settur sýslu- maður í Þingeyjarsýslum og bæjarfógeti á Húsavík frá 1. desember til 15. janúar n.k. Halldór Kristinsson bæjarfó- geti á Bolungarvík sem skipaður hefur verið til að gegna embætt- inu mun taka við því 15. janúar. Fráfarandi bæjarfógeti á Húsa- vík, Sigurður Gizurarson, tók við embætti bæjarfógeta á Akranesi l.desember s.l. og er Sigurður Briem því settur í embættið til þess að brúa þetta 45 daga bil. IM.-Húsavík Hjúkrunarfræðingar á Hlíð: Vilja sömu laun og greidd em á FSA Hjúkrunarfræðingar á Dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri hafa sent bréf til dvalarheimilis- stjórnar þar sem þeir fara fram á að fá sömu laun og hjúkr- unarfræðingar á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Svo sem kunnugt er fá hjúkr- unarfræðingar í fullu starfi á F.S.A. 15 þúsund króna ábót á sín mánaðarlaun en slíkt hefur ekki verið greitt á öðrum sjúkra- stofnunum. Eftir því sem næst verður kom- ist er forsenda þessarar beiðni hjúkrunarfræðinganna á Hlíð sú, að eini hjúkrunarfræðingurinn í fullu starfi á Skjaldarvík, fær sömu launauppbót og tíðkast á F.S.A. og vilja þeir því sitja við sama borð. A Hlíð eru tveir hjúkrunarfræðingar í fullu starfi. Dvalarheimilisstjórn tók beiðni þessa fyrir á fundi þann 6. nóvember s.l. og taldi sér ekki fært að verða við ósk hjúkrunar- fræðinganna á Hlíð um kaup- hækkun. m-.a. vegna þess að stjórn F.S.A. hefur ekki tekið ákvörðun um framhald á bónus- greiðslum eftir 1. janúar 1986. Stjórnin synjaði því erindinu og mun halda að sér höndum eins og stjórnir annarra sambærilegra stofnana haft gert í hliðstæðum tilvikum. " BB. Sveinborg fékk á sig brotsjó Nokkrir gluggar brotnuðu í brúnni og nær öll tæki skemindust meira og minna er togarinn Sveinborg frá Siglu- firði fékk á sig brotsjó í fyrri- nótt. Skipið var statt um 150 mílur suðaustur af Vestmannaeyjum á leið í söluferð til Englands með um 120 tonn af fiski. Skipverjum tókst að koma einhverju af tækj- unum aftur í lag, þannig að hægt var að halda áfrarn ferðinni til Englands, en þar á skipið að selja á fimmtudag. gk-.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.