Dagur - 03.12.1985, Page 2

Dagur - 03.12.1985, Page 2
2 - DAGUR - 3. desember 1985 wmm, ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÓRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFÍ KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðan________________________ Umferöarslys og ökukennsla Oft hefur verið á því klifað að hvergi sé dýrara að eiga bifreið en hér á landi. Hvergi í heimin- um séu eins miklir tollar, dýrara eldsneyti, hærri tryggingaiðgjöld né meiri álögur á vara- hluti og alla þjónustu við bíleigendur. Erfitt er að hrekja þessar fullyrðingar og ekki skal það reynt hér. En í umræðunni um tolla og álögur á bíleigendur vill hæsta gjaldið oft gleymast, - sá tollur sem tekinn er í mannslíf- um í umferðinni á ári hverju. Það gjald er þungbærast allra gjalda og enginn veit hve- nær gjalddaginn er. Honum ræður auðna hvers og eins. Á árunum 1966-1984 létust 427 manns í umferðarslysum hér á landi sem jafngildir því að 23 einstaklingar hafi látist á ári hverju að jafnaði. Fjöldi slasaðra í umferð- inni er margfalt meiri og lætur nærri að 600 manns slasist í umferðinni árlega, þar af helmingur alvarlega. Þetta eru ógnvænlegar tölur og vissulega er ástæða til að staldra við og leita orsakanna. Sumir vilja kenna slæm- um vegum um háa tíðni umferðarslysa en skýrslur sýna að mikill meirihluti umferðar- slysa verður í þéttbýli, þar sem vegir eru góð- ir og öll akstursskilyrði hin bestu. Staðreynd- in er einfaldlega sú að ökumenn upp til hópa sýna ekki næga aðgæslu og tillitssemi í um- ferðinni, ökuhraði er of mikill og bílstjórar eru ekki nógu vel lesnir í umferðarfræðunum. Ökumenn taka ekki tillit til aðstæðna og bregðast ekki rétt við aðsteðjandi vanda. Þetta má að stórum hluta skrifa á reikning þjálfunarleysis. Þjálfunarleysið leiðir svo hug- ann að framkvæmd ökukennslu hér á landi. Furðulegt er til þess að hugsa að í landi þar sem ávallt er spurt um próf og réttindi þegar ráðið er í störf skuli ekki vera gerðar meiri kröfur til ökumanna. Tilvonandi ökumenn taka u.þ.b. 14 ökutíma og gangast síðan und- ir skriflegt og verklegt ökupróf og fá sín öku- réttindi ef þeir ná tilskilinni einkunn. 14 tíma nám er talið nægileg undirstaða ævilangs ökuferils! Og þeir sem taka sitt próf að vori eða sumri fá enga æfingu í vetrarakstri. Ef við ætlum okkur að lækka slysatíðnina í umferðinni þurfum við að eignast betri öku- menn. Raunhæfasta leiðin að því marki er að efla ökukennsluna og gera hana markvissari. Á þann hátt getum við komið í veg fyrir að fólk gjaldi með lífi sínu fyrir vankunnáttu og æfingaleysi í umferðinni. BB. Mynd: - KGA. „Núna er ég á saumanámskeiói" - Samúel Björnsson hönnuður í viðtali dagsins jviðtal dagsins. Á síðustu tímum er orðið hönnun mikið notað. Sumir segja ofnotað, því nú sé allt hannað. Hvort sem orðið á rétt á því að vera svo mikið notað eða ekki, er það á valdi ein- hverra annarra en okkar að ákveða það. Engu að síður eru til fatahönnuðir, híbýlahönn- uðir, skrúðgarðahönnuðir og alls konar hönnuðir. Viðmæl- andi okkar er ungur maður, Samúel Björnsson 22 ára og er að læra iðnhönnun. Vinnur hann sem slíkur hjá Iðnaðar- deild Sambandsins. Þ-ar hefur hann það verkefni að hanna skó á fætur landsmanna. Hann á eflaust hugmyndir að skóm sem þú gengur á, ef þeir eru af tegundinni ACT. „Á fínu máli heitir þetta skóhönnun og vöruþróun," segir Samúel. „Pað er frekar erfitt að skilgreina námið því það er ekki til í skólakerfinu hér á landi. Til þess að öðlast réttindi og fá papp- ír upp á að maður sé hönnuður þarf að fara utan.“ - Ætlarðu að fara til útlanda til að ná þér í pappírinn? Það stendur til. Það er allt á byrjunarstigi ennþá svo ég get lít- ið sagt um það. Það eina sem ég veit er að það er skóli í Leicester í Englandi sem er með kennslu í hönnun. Þetta er í athugun hjá vini mínum sem er úti.“ - Hvað gerir þú í verksmiðj- unni hér? „Fyrst skal taka fram að ég hef unnið við þetta í 2 ár. Vinn ég undir verndarvæng Kristins Bergssonar sem hefur unnið við skóhönnun árum saman. Ég er í námi hjá honum. Þau verkefni sem ég vinn við eru mörg. Fyrst vann ég við almenna vélavinnu og framleiðslu í verksmiðjunni. Síðan bauðst mér að fara í þetta nám og greip tækifærið um leið, því ég hef alltaf haft mikinn áhuga á öllu sem lýtur að hönnun. Það er ekki bundið við skó eingöngu, heldur langar mig að læra fatahönnun með skó- hönnuninni. Vinnan núna felst í því að teikna módel, sníða og það sem kallað er að pinna, eða strengja leðrið. Þetta er fyrsta skrefið í skóframleiðslunni. Ef mönnum líkar það sem búið er að gera má búast við að farið verði út í framleiðslu á þessari til- teknu tegund. Starfið er fólgið í því að koma með nýjar hug- myndir.“ - Fatahönnun sagðir þú. „Já fatahönnun. Eg hef mikinn áhuga á henni líka. Núna er ég á saumanámskeiði og verð eflaust kominn í nýjan frakka þegar ég hitti þig næst. Það er gaman að sauma. Margir telja þetta kven- mannsverk. Enda eru bara konur á þessu námskeiði fyrir utan mig. Þetta er engu síður fyrir karla, auk þess sem þetta er skemmti- legt.“ - ACT-skórnir eru framleiddir þar sem þú vinnur. Eru ekki fleiri tegundir framleiddar en þeir? „Jú, vissulega. Skóverksmiðj- an hér er eina verksmiðjan í heiminum sem framleiðir svo margar tegundir. Það eru fram- leiddir skór í númerunum 24-46. Er það frá barnaskóm og inni- skóm upp í öryggisskó með stáltá sem notaðir eru af mönnum í þungaiðnaði. Af þessu sést að fjölbreytnin er mikil.“ - Frá stáltánum að sjálfum þér. Hver ertu? „Ég er ættaður af Eyrinni og úr Keflavík. Hef búið á Akureyri frá því ég var 3 ára. Að vísu var ég 2 ár í Noregi.“ - Hvernig eru Norsarar? „Norðmenn eru gott fólk. Það er mjög gott að vinna með þeim, því þeir eru samviskusamir. Ansi eru þeir gamaldags og íhaldssam- ir. Þeir eru miklir sveitamenn, of miklir fyrir minn smekk. Ef við unglingarnir ætluðum út á kvöld- in að skemmta okkur var farið kl. 7 og komið heim fyrir miðnætti, því þá var búið að loka öllu. Norðmenn eru alltaf með bak- poka, í gallabuxum og sjóliða- skóm. Það halda þeir að sé al- heimstíska.“ - Margir tala um bakpokana. Veistu hvað þeir eru með í þeim? „Ætli það séu ekki varavettl- ingar og nesti. Ég veit ekki betur.“ - Þú segist hafa unnið með Norðmönnum. Við hvað vannstu? „Við byggingariðnað. Ég hafði áður en ég fór út, tekið eitt ár í iðnskóla og unnið við húsasmíð- ar, því ég ætlaði að læra þær. Hins vegar blundaði þessi hönn- unarárátta í mér. Þess vegna var ég feginn þegar mér bauðst vinn- an á skódeildinni. Þar er gott að vinna og þar er gott fólk,“ sagði Samúel. gej-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.