Dagur - 03.12.1985, Side 9

Dagur - 03.12.1985, Side 9
3. desember 1985 - DAGUR - 9 -JþróttÍL Umsjón: Kristján Kristjánsson Söngglaðir landsliðsmenn: Hljómplata til fjáröflunar - fyrir HM í Sviss Framkvæmdanefnd hljómplötuútgáfunnar ásamt formanni HSÍ. Mynd: KK. Stórmót Samtaks íþróttafréttamanna: KR-ingar sigruðu í úrslitaleik Fimmtudaginn 5. des. kemur út hljómplata, þar sem ís- Ienska handboltalandsliðið syngur tvö gullfalleg lög eftir þá Jón Ólafsson og Helga Má Barðason. Lögin heita Söngur íslensku berserkjanna og Allt að verða vitlaust, en í því lagi nýtur landsliðið góðrar aðstoð- ar Péturs Hjálmarssonar, fyrr- verandi Galdrakarls, við sönginn. Mikil vinna er á bak við þessa hljómplötu og var skipuð fram- kvæmdanefnd vegna útgáfu hennar. í henni eru þeir Porgils Óttar Mathiesen sem er fram- kvæmdastjóri, Þorbjörn Jensson, Guðjón Guðmundsson og Jón Ólafsson. Útkoma hljómplötunnar er hugsuð sem fjáröflunarleið vegna þátttöku handboltalandsliðsins í úrslitakeppni HM í Sviss á næsta ári. Auk þess var löngu kominn’ tími til þess að hljóðrita þessar engiltæru raddir. Allir þeir sem koma nálægt gerð þessarar hljómplötu lögðu Um helgina fór fram í Vest- mannaeyjum ársþing Knatt- spyrnusambands Islands. Var reiknað með átakaþingi en raunin varð önnur. Sem dæmi má nefna, að ekki var minnst einu orði á Jónsmálið svokall- aða sem ýmsir höfðu talið að yrði hitamál þingsins. Ellert B. Schram var endur- kjörinn formaður sambandsins á þessu þingi. Mikið af tillögum var borið upp á þinginu, en færri samþykktar. Meðal tillagna sem voru samþykktar, eru t.d. að nú var formaðurinn kosinn til tveggja ára í stað eins áður, fjölg- að í framkvæmdastjórn úr 7 í 9 og í stjórn KSÍ úr 11 í 13. Þá var samþykkt að stjórn KSÍ kæmi af stað b-liða keppni í meistara- flokki. Einnig voru samþykktar breytingar á lögum Aganefndar KSI, þar sem m.a. það kemur í hlut félaganna sjálfra að fylgjast með leikbönnum leikmanna sinna. Af þeim tillögum sem felldar voru eru t.d. tillögur um fjölgun í 1. deild og um deildarbikar- keppni. sitt af mörkum svo þetta yrði sem ódýrast en jafnframt sem best úr garði gert. Það skal skýrt tekið fram að það eru leikmenn sjálfir sem gefa plötuna út. Lögin tvö eru sungin á A-hlið, en eingöngu leikin á B-hlið, ef fólk skyldi nú vilja spreyta sig á söngnum. Textablað fylgir að sjálfsögðu. Ekkert hefur verið til sparað svo hljómplata þessi geti orðið sem eigulegust. Litmynd af landsliðinu fylgir hverju eintaki ásamt upplýsingum um undir- búning landsliðsins fram að úr- slitum HM í Sviss. Hljómplatan mun kosta 350 krónur og verður til sölu í hljóm- plötuverslunum, á landsleikjum hér heima (á Akureyri á laugar- dag í Höllinni), á bensínstöðvum OLÍS og í sportvöruverslunum og er takmarkið að selja 5000 eintök. Er hér með skorað á alla þá sem hafa gaman af góðri tónlist og eða handbolta að fá sér nú eintak af plötunni og styrkja þar með gott málefni um leið. Þingið var hið rólegasta og fór vel fram að sögn kunnugra, en það kemur óneitanlega á óvart að ekki skyldi vera ininnst á Jóns- málið fræga á þessu þingi. Óskar þjálfar Leiftur Ólafsfirðingar hafa ráðið Óskar Ingimundarson til að þjálfa knattspyrnulið sitt næsta ár og mun hann jafn- framt leika með liðinu. Ólafsfirðingar féllu sem kunnugt er í 3. deild á síðasta tímabili og ætla sér að endur- heimta sætið í 2. deild að nýju strax í sumar. Óskar eru ekki alveg ókunnugur þjálfun, en hann þjálfaði og lék með Leikni frá Fáskrúðsfirði síðastliðið sumar með góðum árangri. Fram Á sunnudag fór fram í íþrótta- húsinu á Akranesi stórmót Samtaka íþróttafréttamanna í innanhússknattspyrnu. Átta lið mættu til leiks og það voru KR-ingar sem stóðu uppi sem sigurvegarar í mótslok annað árið í röð. Leikið var í tveimur riðlum, í a-riðli léku ÍA, ÍBK, KR og Knattspyrna: Mark og Hörður - til Noregs? Þeir félagar Mark Duffield og Hörður Júlísson frá Siglufirði munu á fimmtudaginn halda til Noregs í boði knattspyrnuliðs í 3. deildinni þar. Ástæðan er sú að þetta norska félag sem er í Þrándheimi hef- ur mikinn áhuga á að fá þá fé- laga í sínar raðir. Þeir Mark og Hörður munu vera ytra fram á sunnudag og æfa með liðinu og skoða aðstæður. Síðan eftir þann tíma kemur í ljós hvort þeir munu yfirgefa Siglfirðinga og leika í norsku 3. deildinni á næsta ári. Yrði það mikil blóðtaka fyrir KS á Siglufirði ef þeir félagar Mark og Hörður semja um að spila ytra næsta ár, en þeir eru með bestu mönnum liðsins í dag. Fylkir, en í b-riðli Þór, Fram, Valur og lið Samtaka íþrótta- fréttamanna. Tvö lið úr hvorum riðli komust í undanúrslit og voru það KR og Fylkir úr a-riðli, en Fram og Valur úr b-riðli sem það gerðu. í undanúrslitum léku fyrst KR og Valur og lauk þeirri viðureign með sigri KR 4:2. Hinn undan- úrslitaleikurinn var á milli Fram og Fylkis og sigruðu Framarar naumlega 5:4. Það voru svo Fram og KR sem léku til úrslita, en Fylkir og Valur um 3. sætið og sigruðu Fylkis- menn örugglega í þeim leik 4:2. í úrslitaleiknum var hart barist og eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 3:3 og þurfti því að framlengja leikinn. En það voru KR-ingar sem voru sterkari á endasprettinum og þeir sigruðu í leiknum 4:3. Markakóngur mótsins varð Sæbjörn Guðmundsson úr KR sem skoraði 14 mörk, í öðru sæti varð Guðmundur Steinsson með 12 mörk. Fjölmargir áhorfendur fylgdust með mótinu sem fór vel fram í alla staði og sáust margir stór- skemmtilegir leikir. Á mótinu fór fram sýningarleikur á milli gull- aldarliðs Skagamanna og stjörnu- liðs Ómars Ragnarssonar við mikinn fögnuð áhorfenda og lauk þeirri viðureign með jafntefli 5:5. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Níels sigraði Jónas Níels Halldórsson afgreiddi Jónas Róbertsson í hvellinum, með því að hafa 6 leiki rétta, á móti 5 leikjum Jónasar. Níels heldur því áfram en Jónas er úr leik. Níels hefur ákveðið að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur og hefur hann skorað á Þorleif Ananíasson Leeds-aðdáanda með meiru. Þorleifur segist afgreiða Níels með stæl, en við sjáum nú til með það. Níels Þorleifur Birmingham-Watford Leicester-Man. City Luton-Newcastle Q.P.R.-West Ham Sheff.Wed-Nottm.Forest Southampt.-Arsenal Tottenham-Oxford W.B.A.-Everton Charlton-Sheff.U. Norwich-Blackburn Shrewsbury-Oldham Sunderland-Portsmouth Birmingham-Watford Leicester-Man.City Luton-Newcastle Q.P.R.-West Ham Sheff.Wed-Nottm.Forest Southampt.-Arsenal Tottenham-Oxford W.B.A.-Everton Charlton-Sheff. U. Norwich-Blackburn Shrewsbury-Oldham Sunderland-Portsmouth Athugið! Fólk sem spilar í getraunum er minnt á að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudögum, svo enginn verði nú af vinningi. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Frá leik KR og Vals í undanúrslitum á stórmótinu á Akranesi. Mynd: KK. Ársþing KSÍ: Ellert endur- kjörinn formaöur Mark Duffield.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.