Dagur - 31.01.1986, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 31. janúar 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58,
AKUREYRI, SlMI 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR,
BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HÚSAVlK),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Karvd og sjónvarpið
Ueiðari.
í hinum nýja sjónvarps-
þætti „Á líðandi stund“ á
miðvikudagskvöld var
Karvel Pálmason, alþingis-
maður, aðalgestur. Um-
ræðuefnið var hrikaleg lífs-
reynsla Karvels í tengslum
við uppskurð sem hann fór í
til London. ígerð komst í
holskurð á brjósti með þeim
afleiðingum að honum var
á tímabili ekki hugað líf.
Karvel kaus að „opna þetta
mál“ í viðtali við Helgar-
póstinn í fyrri viku í þeirri
von að það gæti orðið víti til
varnaðar. Hann telur að
mistök á mistök ofan hafi
valdið því hvernig fór. Hann
hafði reiknað með að þetta
háalvarlega mál yrði tekið
til alvarlegrar umfjöllunar 1
þessum þætti. Lítið varð
um slíka umfjöllun, enda
vart við öðru að
búast í þætti sem hefur þró-
ast út í það að verða hreinn
skemmtiþáttur, þrátt fyrir
markaða stefnu þess efnis
að taka eigi fyrir alvarleg
mál í bland við gamanmál.
Karvel Pálmason átti ekk-
ert erindi í þennan þátt,
einkum vegna þess að ekki
var tekið á máli hans með
þeirri alvöru sem því ber.
Fjölmargir áhorfendur þátt-
arins hafa haft á orði, hvað
Karvel hafi verið eitthvað
argur í þættinum. Er það
nema von. Hann má teljast
heppinn ef hann kemst
óskaddaður frá þessari
reynslu og það hefði mátt
reikna með því að tekið yrði
á málinu án allrar léttúðar.
Það er svo alveg sérstakt
mál, að stjórnandi þáttarins
skuli hafa haft undir hönd-
um upplýsingar úr sjúkra-
skýrslu, en ekki við stjórn-
andann að sakast í þeim
efnum. Dylgjur á borð við
þær að Karvel hafi notið
einhverrar sérstakrar fyrir-
greiðslu umfram aðra
vegna þess að hann er al-
þingismaður eru ósmekk-
legar, bæði gagnyart hon-
um og þeim sem önnuðust
hann.
Ef þessi þáttur er dæmi-
gerður fyrir þær breytingar
sem eiga eftir að verða á
umfjöllun sjónvarpsins á
málefnum, með tilkomu
nýrra yfirmanna, þá er
þessi mikilvirki fjölmiðill á
góðri leið með að verða í lík-
ingu við ómerkilegt has-
arblað. Því miður bendir ný
fréttastefna sjónvarpsins til
þess að sú sé að verða þró-
unin. Áherslur hafa greini-
lega breyst til muna og
mátti svo sem verða breyt-
ing á, en hins vegar verður
að gera þær kröfur að vand-
að sé til heimilda og ekki
byggt á sögusögnum. Þess
eru þegar dæmi að sjón-
varpið hafi með orðavali
tekið undir ásakanir annars
aðila í deilumáli.
Sjónvarpið á ekki að vera
„töff“ heldur vandað.
úr hugskotinu
Magrir sjóðir
(Sverris þáttr hinn síðri ok hinna)
í síðustu grein var nokkuð fjall-
að um þá hildi sem hann Sverrir
okkar hefur háð til varnar okk-
ar ástkæru tungu, hildi sem
raunar ekki sér ennþá fyrir end-
ann á. En þótt ætla mætti að
það væri hið mesta afreksverk
fyrir hvern meðalriddara að
standa í stríði slíku, þá hefur
vor ágæti ráðherra ekki látið
þar við sitja, og þegar er færi
gafst ákvað hann að halda á vit
nýrra ævintýra og afreka.
Sukkað í lánasjóði
Skrímsli eitt mikið og ferlegt
hefur undanfarna áratugi herj-
að á lýð þessa kalda lands.
Nefnist óvættur sá Lánasjóður
íslenskra námsmanna, og gengu
miklar sögur af sukki því og
óreiðu sem í skjóli hans þrífst.
Sá nú vor hugumstóri riddari,
að við þetta varð ekki unað og
ákvað að snúast einn gegn hin-
um illa óvætti. Við skulum nú
færa frásögnina af viðureigninni
milli ráðherrans og hins spillta
óvættar í dálítið dramatískan
búning, með þeim venjulegu
formerkjum sem allir skáld-
verkshöfundar setja um það að
ekkert í verkum þeirra hafi
nokkurn tímann átt sér stað í
raunveruleikanum.
Það var einn morgun seint á
síðasta ári. Ráðherra var á leið
til vinnu sinnar og var dóttir
hans við stýrið á bíl hans, enda
bílstjórinn veikur. Vándir
menn hafa viljað koma þeim
kvitti á kreik að hún þiggi fyrir
þetta viðvik drjúgan skilding úr
sjóðum skattborgaranna, en svo
ljótan hlut getur jafn góður og
grandvar ráðherra og hann
Sverrir auðvitað engan veginn
látið viðgangast. Þetta hlýtur
allt saman að vera tómur rógur
og illmælgi, eiginlega hlýtur
maður nú annars að ætlast til
þess að stúlkan geri þetta lítil-
ræði fyrir pabba, án þess að
vera að ætlast til endurgjalds.
En þetta var nú útúrdúr. Sem
okkar ágæti ráðherra var nú
þarna á leiðinni í vinnuna fór
hann allt í einu að hugleiða það
hversu mikið sukk og svínarí
væri í kringum þennan bölvaða
lánasjóð námsmanna. Hann
ákvað þarna á stundinni að gera
eitthvað f málinu. Og þegar á
skrifstofuna var komið lét hann
svo sannarlega hendur standa
fram úr ermum, og fyrsta verkið
var auðvitað að reka fram-
kvæmdastjórann, enda hafði
hann gerst sekur um þann alvar-
lega glæp, að framfylgja gild-
andi lögum og reglum, en slíkt
má opinber starfsmaður auðvit-
að alls ekki leyfa sér. Honum
ber að haga sér eins og ráðherra
býður og gefa skít í öll lög og
allar reglur ef með þarf.
Sparnaður
Nú hefur því í rauninni hvergi
verið mótmælt, að ekki megi
ýmislegt laga í rekstri Lána-
sjóðsins, og sjálfir hafa náms-
menn verið allir af vilja gerðir
við að reyna að hjálpa til við að
finna viðunandi lausnir. Vel má
vera að eitthvað megi spara í
sambandi við sjóð þennan, en
það má bara spara svo miklu
víðar, og það jafnvel innan ráðu-
neytis Sverris sjálfs, og ýmissa
stofnana á þess vegum. Þar
skulum við ekkert vera að tí-
unda smáskítti eins og bíla-
kostnaðinn, heldur tala um al-
vörupósta, til að mynda fast-
eignabrask það sem ráðuneytið
stendur í (mjólkurstöðin o.fl.)
á sama tíma og sagt er að ýmsir
skólar á landsbyggðinni haldi
ekki vatni. Sverrir er raunar
ekki allsendis ókunnugur fast-
eignabraski, því sem kunnugt
er, þá átti hann á sínum tíma
drjúgan þátt í byggingu byggða-
stefnuhallarinnar með fína
mötuneytinu við Rauðarárstíg-
inn. Þá yrði nú ekki svo lítill
sparnaður af því ef fyrirbæri á
borð við Innheimtudeild Ríkis-
útvarpsins yrði aflagt, og þess í
stað tekið upp svipað inn-
heimtufyrirkomulag og í Noregi
eða Bretlandi. Sömu leið mætti
einnig fara hin fáránlega Út-
varpsréttarnefnd og sömuleiðis
Útvarpsráð, hvort tveggja
stofnanir sem gera meiri skaða
en gagn, og eru raunar ekki
annað en heimskulegur fjár-
austur í vasa hátekjufólks.
Hvað Lánasjóði viðvíkur, þá
vissi maður ekki betur en að
Ragga með brosið blíða hefði
látið gera einhverja úttekt á
störfum hans, gott ef ekki af
fyrirtæki i eigu einhvers af ætt-
mennum hennar. En sjálfsagt er
sú úttekt markleysa ein, um það
ætti fulltrúi sá sem Sverrir vill
ekki láta fara úr stjórn sjóðsins,
líklega vegna þess að hann er
handhafi þess pappasnifsis
sem flokksskírteinið í Sjálf-
stæðisflokknum heitir, að geta
upplýst hann.
Af Fiskveiðasjóði
Annars stal annar magur sjóður
senunni frá Sverri og Lána-
sjóðnum hans nú á dögunum.
Sverrir ætti þó ekki að vera með
öllu ókunnugur starfi sjóðs
þessa frá því hann var í byggða-
stefnubransanum hér á árum
áður. Sjóður þessi hefur aðsetur
við götu þá sem Austurstræti
heitir, og þá náttúru hefur, að
þar verður enginn hagvöxtur til,
en því meira af honum safnast
þar fyrir. Sjóður þessi nefnist
Fiskveiðasjóður, og mun hlut-
verk hans fyrst og fremst vera
það að troða skuttogara inn á
hvert einasta krummaskuð á
landinu, og bjóða svo í þessa
togara þegar reksturinn gengur
ekki lengur. Þessi togaraupp-
boð hafa meðal annars haft það
í för með sér að málararnir í
Slippnum hafa að undanförnu
haft mikið að gera við það að
mála yfir nöfn og númer togara,
en mála þau svo aftur að upp-
boði og sölu lokinni.
Annars hefur þessi sjóður
meðal annars afrekað það hér á
Norðurlandi að nánast kljúfa
heilan stjórnmálaflokk, og
Reynir
Antonsson
skrifar
stofna atvinnuöryggi þónokurra
þingmanna í bráða hættu, en
sjálfur er hann víst búinn að
komast að því sama og allir
skynibornir Reykvíkingar, að
sjávarútvegur er dálítið áhættu-
samur atvinnuvegur, og til að
dreifa þessari áhættu mun hann
víst vera farinn að leggja fé í
alkóhólisma sem sagður er vax-
andi atvinnugrein hérlendis og
meira að segja með talsverða
útflutningsmöguleika. Að
minnsta kosti sá ég í blaði að
hann hefði lagt fé í kaup á rúm-
um í fyrrverandi kvennagraut-
arskóla vestur í Dölum sem nú
gegnir hlutverki endurhæfingar-
stöðvar fyrir drykkjusjúklinga.
En þó að afskipti pólitíkus-
anna af togarabraski Fiskveiða-
sjóðs hafi nú öll verið dálítið
klaufaleg þá eru þau síður en
svo neitt einsdæmi. Það allra
nýjasta er auðvitað hama-
gangurinn í Þróunarfélaginu, en
svo mun Steingrímur hafa skírt
Framkvæmdastofnun, og vita-
skuld vildi hann fá nokkru um
það ráðið hver sæi um upp-
fræðslu þessa óskabarns. Ekki
voru þó allir á sama máli.
Scheving fór að tala um óþol-
andi afskipti pólitíkusa, þótt
vitaskuld væri hann nú ekki í
stjórn þessa félags nema af því
að hann var sjálfur handhafi
þess pappírs sem sagt er að
jafnvel Sankti-Pétur telji full-
gildan aðgöngumiða að himna-
ríki, fyrrnefnt pappasnifsi,
flokksskírteini í Sjálfstæðis-
flokknum.