Dagur - 31.01.1986, Blaðsíða 5
31. janúar 1986 - DAGUR - 5
Jijátrú eða hvaðZ
Haraldur Ingi
Haraldsson
skrifar
Hrafnar
Athugulir vegfarendur, þeir sem aka
eftir Drottningarbrautinni og þar í
nágrenninu hafa tekið eftir miklu
hrafnageri sem safnast hefur þar
saman síðustu vikur og mánuði.
Persónulega man ég ekki eftir eins
miklum fjölda hrafna eins og í ár,
bæði í byggð og upp til fjalla. Hrafn-
arnir við Drottningarbrautina eru
hinir fjörugustu og það er ágæt skemmtan að fylgjast með þeim
þar sem þeir leika listir sínar. Þeir þjóta upp í loftið, velta sér á
bakið, og læsa saman klónum eða þeir láta sig detta eins og steina
og grípa flugið rétt áður en það er orðið of seint. Nú, ástarlífið
hefur einnig blómstrað en frá slíku segjum við ekki í sómakæru
blaði.
Margs konar hjátrú er tengd hrafninum og koma hér nokkur
dæmi um hana.
Hrafnaspár
Ef margir hrafnar fljúga saman hver
að öðrum með ýmislegum látum þá
eru þeir að tala um manntjón í þeirri
átt, sem þeir snúa er þeir setjasí.
Ef hrafnar þyrpast saman með
miklum köllum, boðar það að fisk
eða annað matarkyns reki af sjó hjá
þeim, sem þeir krunka framan í.
Ef hrafn sest á kirkjuburst eða
dyrabranda og yppar fjöðrum og vængjum óeðlilega, krunkar og
teygir sig og brettir nefið við, segir sá hrafn fyrir dauða nafn-
kunnra manna í þeirri átt er hann snýr að nefi.
Ef hrafn valhoppar hingað og þangað uppi á húsum, haltrar við
já fótinn, skiptir um í sér hljóðunum og krunkar upp í loftið,
beygir hálsinn og höfuðið og hristir vængina og lyftir fiðrinu,
boðar hann að menn séu staddir í sjávarháska eða vatnsháska.
Ef hrafn sækir að manni með illum látum, þá er sá hraðfeigur.
IM
Hrafnaþing
Það er almenn trú hér á landi að á
haustin haldi hrafnarnir hrafnaþing
sem væri m.a. til þess að skipta sér
niður á sveitabæi til vetrarvistar. Hitt
veit svo enginn hvernig boðað var til
þessara þinga en margar sögur eru til
af því að á ákveðnum degi hafi ara-
grúi hrafna drifið að ákveðnum stað,
þótt enginn hrafn hafi sést þar dag-
ana áður. Þjóðtrúin hélt því líka fram að ef stakur hrafn yrði eftir
á hrafnaþingi þá réðust hinir að honum og drápu hann, ástæðan
fyrir því er ekki tilgreind en vitað er að hrafnar skipta sér á bæina
alltaf tveir og tveir, aldrei fleiri og aldrei er vitað um að einn
hrafn væri á bæ. Þessir tveir hrafnar voru kallaðir bæjarhrafnarn-
ir.
Bæjarhrafnarnlr
Bæjarhrafnarnir hafa fasta áætlun,
þeir hverfa á kvöldin þegar dimma
tekur en koma aftur snemma næsta
dag og athuga hvort einhverju hafi
verið hent út til þeirra. Svona vakta
þeir bæinn. Ef hrafn sást á ferli að
næturlagi var það slæmur fyrirboði
og var hann kallaður nátthrafn og
þaðan er komið skammarheiti þeirra
sem ekki halda skikkanlegan háttatíma.
Sumir bændur höfðu þann sið, að bera út æti fyrir bæjarhrafn-
ana þegar harðast var. Þetta var kallað gæfumerki, því að „guð
borgar alltaf fyrir hrafninn". Sjálfir borga þeir líka fyrir sig, því
að sagt er að þeir drepi aldrei lömb á þeim heimilum, þar sem
þeir hafa notið góðgerða. Margir menn trúðu því líka, að hrafn-
arnir litu eftir fé bóndans á vorin, þegar hættur væru sem mestar,
og ef þeir urðu varir við, að einhver kind féll í skurð, eða festist
í blá, þá kæmu þeir heim á bæinn með gargi miklu, til þess að láta
bónda vita um þetta og síðan leiðbeindu þeir honum, ef hancfór
að leita. Þetta myndu hrafnarnir gera í þakklætisskyni fyrir mat-
gjafir um veturinn.
HoUxjs « BÍIASAIA
c £ c i;.
BIIASALINN
VID HVAHHAVELLI
S:24119/24170
Subaru 1800 station, árg. '81,
ek. 58.000. Verð 320.000.
Suzuki Fox árg. ’84, ek. 23.000
svartur. Verð 430.000.
MMC Galant GL, árg. ’82. Verð
310.000.
Subaru 1800 station, árg. ’84.
Verð 530.000.
Erum með mikið af nýjum og
notuðum bílum í hlýjum og
rúmgóðum sýningarsal.
Einnig eigum við mikið úrval af
snjósleðum á söluskrá.
Opið frá kl. 9-19 daglega.
Laugardaga kl. 19-17.
Námskeið
í borðtennis
fyrir kennara og leiðbeinendur verður haldið í
íþróttahöllinni Akureyri, föstud. og laugard. 7. og 8.
febrúar og hefst kl. 13.30 á föstudag.
Kennari er Sten Hansen landsliðsþjálfari BSÍ.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Æskulýðsráðs Akur-
eyrar sími 22722.
Borðtennissamband íslands.
Æskulýðsráð Akureyrar.
Súlnaberg-Caféteria
Þorramatur
Eins og undanfarin ár
er þorramatur okkar í sérflokki
hvað verkun og gæði snertir.
Hver skammtur inniheldur:
Hangikjöt, heitan uppstúf ★
Nýtt kjöt, heitar kartöflur ★
Saltkjöt, heita rófustöppu ★
Súra sviðasultu ★ Súran hval ★ Súr eistu ★
Súrt pressað kjöt (lundabaggi) ★ Hákarl ★ Harðfisk ★
Flatbrauð ★ Laufabrauð ★ Smjör.
Verð kr. 595.-
Veitum afslátt fyrir
hópa. Pantið
tímanlega.
Opið alla daga frá
kl. 08.00-20.00.
Fuglavinir!
Munið að gefa
smáfuglunum.
Nú er hart í búi.
HÓTEL KEA <^> AKUREVR
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
ALHLIDA
VIDHALD OG NÝSMÍÐI
Smíðum glugga, útihurðir, irmihurðir, skápa,
eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar.
Leggjum dúka og parkett og útvegum öll efni.
Föst verðtilboð í vinnu og efni.
Hafðu samband í dag og kynntu þér möguleikana.
Aðalgeir&Viðar
21332,22333
X