Dagur - 31.01.1986, Side 11
31. janúar 1986 - DAGUR - 11
Síðasta Ijósið sem
slökkt er í
hverjinu er hjá okkur
Kara Guðrún Melstað á línunni.
- Halló, er það Kara Guðrún
Mclstað.
- Jú, það er hún.
- Þetta er á Degi, mig langar
til að biðja þig um að segja okk-
ur eitthvað frá Þýskalandi þar
sem þú býrð ásamt manni þín-
um Alfreð Gíslasyni.
- Já, það er alveg sjálfsagt,
hvað viltu vita?
- Eigum við að byrja á
Essen, borginni sem þú býrð í?
- Petta er um 650 þúsund
manna borg, stærsta borgin í
Ruhrhéraðinu. Hún er rétt við
hollensku landamærin. Við
erum ekki nema 15 mínútur að
keyra á flugvöllinn í Dusseldorf.
Við búum í útjaðri borgarinnar,
í gömlu og rólegu hverfi.
- Hvað hafið þið búið þarna
lengi?
- Síðan í ágúst 1983.
- Hvernighefurykkurlíkað?
- Mjög vel. Þetta var að vísu
svolítið erfitt til að byrja með.
Ég kunni ekki málið, hafði bara
menntaskólaþýskuna. En ég fór
í tíma til gamallar konu, hún var
harður.kennari, en mjög góður.
Þar lærði ég mikið. Það er regla
úti í Pýskaiandi að hafa þýskt tal
á öllum myndum og viðtölum,
þannig að þetta sfast fljótlega
inn í mann. Fyrstu mánuðirnir
voru erfiðir þegar maður var að
versla og svoleiðis. Pjóðverjar
eru feimnir við að tala ensku,
þannig að ef menn búa í Þýska-
landi verða þeir að læra þýsk-
una. En það leið langur tími að
mér fannst þar til ég náði virki-
lega góðum tökum á þýskunni,
þannig að ég gæti haldið uppi
samræðum.
- Nú fóruð þið út með
tveggja mánaða gamlan son
ykkar, var það ekkert mál að
vera með svona lítinn gutta
þarna úti?
- Það var náttúrlega eins og
ég segi dálítið erfitt fyrst, á með-
an ég kunni ekki málið og þurfti
að ieita læknis og annað slíkt.
En við vorum heppin. Við
kynntumst eldri hjónum sem
voru nágrannar okkar og þau
hafa reynst okkur vel. Hafa
passað og aðstoðað okkur
mikið. Liðið sem Alli spilar með
í handboltanum hefur líka
reynst okkur vel, það hefur
staðið við allt sem lofað var.
Ég hef verið heima. Það er
allt annað fyrirkomulag í Pýska-
landi en hér heima. Börn kom-
ast ekki á barnaheimili fyrr en
þriggja ára gömul. Það er mikið
skipulag á þessum málum hjá
Þjóðverjunum, fólk eignast yfir-
leitt ekki börn fyrr en um þrí-
tugt og þá eru mæðurnar heima
fyrstu árin. Oftast eiga hjón
ekki nema tvö börn.
Ég er lærður kennari. en það
er svo mikið atvinnuleysi í kenn-
arastéttinni sem og í öðrum stétt-
um þannig að það þýðir ekki
einu sinni að reyna. Ég hef að-
eins unnið við tískusýningar.
Lenti í því fyrir tilviljun, það er
ein eiginkonan í liðinu módel og
einhverju sinni vantaði eina til
að sýna og ég hljóp í skarðið.
Það var mjög gaman. En ég veit
ekki hvort nokkurt framhald
verður á þessu, það er svo erfitt
að fá atvinnuleyfi.
- Hefurðu hug á að fara í
frekara nám?
- Já, ég er að spá í að fara í
gluggaútstillingar. Þaö er
þriggja ára nám og auðveldast
til að komast að í því er að fá
vinnu hjá einhverri stórverslun.
- Þið eruð þá ekkert á leið-
inni heim?
- Það kemur ekkert annað til
greina hjá okkur en að koma
heim og í síðasta lagi eftir svona
4-5 ár, þegar sonur okkar, Elfar
þarf að byrja í skóla. En við höf-
um það gott úti og það gengur
vel hjá okkur. Þannig að við
verðum eitthvað lengur.
- Var það aldrei nein spurn-
gff
ing að fara út?
- Nei, í rauninni ekki. Þróun-
in varð bara þannig. Það er
draumur allra landsliðsmanna í
handbolta að komast út til
Þýskalands og spila þar og á
þeim tíma sem Alla bauðst að
fara út þá vorum við bæði búin
með skóla og við áttum barn.
Það var því bara spurning hvort
við ættum að setjast að hér eða
fara. Og það var sjálfsagt að
prófa.
- Hvernig eru Þjóðverjar?
- Þeir eru mjög ákveðnir, ég
held ég geti örugglega sagt
frekir. En þeir standa við það
sem þeir segja. Þeir eru mjög
nákvæmir og skipulagðir. Yfir-
leitt mjög gott fólk og að mörgu
leiti líkir íslendingum í um-
gengni. Viðmótið er ákaflega
hlýtt, t.d. þegar maður fer í
búðir, þá ertu númer 1, 2 og 3.
Þeir hugsa mikið um viðskipta-
vininn og kveðja með virktum
þegar búið er að versla.
- Auðvelt að aðlaga sigþýsk-
um siðum og venjum?
- Já, ég hef átt mjög auðvelt
með það. Þjóðverjar taka að
vísu daginn snemma og fara
snemma að sofa. Oftast er síð-
asta ljósið sem slökkt er í hverf-
inu hjá okkur.
- Svona í lokið, nú er Alfreð
mikið að heiman, bæði við
vinnu og æfingar. Hvernig er að
vera ein allan daginn í útlönd-
um?
- Auðvitað gæti það verið
ósköp leiðinlegt. En það þýðir
ekkert að sitja auðum höndum
heima. Menn verða að gera eitt-
hvað sjálfir. Og ég hef ekki ver-
ið í neinurn vandræðum með
tímann. Geri alveg það sarna og
ef ég væri hér heima.
- Við sláum þá botninn í
þetta samtal okkar, Kara
Guðrún. Ég þakka þér kærlega
fyrir og gangi ykkur vel.
- Sömuleiðis takk. -rnþþ
& JÍ| M
W-M
. .
Skagfírðingar
Árshátíðin verður í Alþýðuhúsinu Skipagötu
14, laugardaginn 8. febrúar.
Matur, skemmtiatriði og dans.
Miðapantanir þurfa að hafa borist fyrir miðvikudagskvöld-
ið 5. febrúar í símum 21195 Pálína, 21456 Björk, 26822
Hólmfríður eða 25196 Jón. Miðaverð kr. 700.-
Nefndin.
ENDURSKOÐUNARMIÐSTÖÐIN HF.
- N. Manscher
hefur opnað skrifstofu á Akureyri og jafnframt yfir-
tekið rekstur Endurskoðunarþjónustunnar sf.
Veitt er þjónusta á sviði endurskoðunar, bókhalds-
aðstoðar, tölvuvinnslu, framtalsgerðar og rekstrar-
ráðgjafar.
Lilja Steinþórsdóttir, löggiltur endurskoðandi veitir
skrifstofunni forstöðu.
Endurskoóunar-
mióstöóin hf.
N.Manscher
Gránufélagsgötu 4,
600 AKUREYRI
sími: 96-25609
^lðnaðarhúsnæði
Við leitum að góðu iðnaðarhúsnæði fyrir
einn af viðskiptavinum okkar. Æskileg stærð
um 300 fm að grunnfleti.
r »«
Sjúkraþjálfar
Kristnesspítali óskar að ráða sjúkraþjálfa við nýja
endurhæfingadeild. íbúðarhúsnæði til staðar.
Uppl. gefur framkvæmdastjóri í síma 31101.
Kristnesspítali.
Afgreiðslustarf
í Grímsey
Útibú Kaupfélags Eyfirðinga í Grímsey óskar eftir
að ráða afgreiðslustúlku, vana verslunarstörfum.
Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar um starfið veitir Steinunn Sigur-
björnsdóttir í síma 96-73110, á kvöldin í síma
73112.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Móðursystir mín,
SIGRÍÐUR INGIMUNDARDÓTTIR,
Hrísalundi 8f,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánud. 3. febrúar kl.
13.30.
Þeir sem vildu minnast hennar láti Krabbameinsfélagið njóta
þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sóley Hansen.