Dagur - 17.02.1986, Síða 5
17. febrúar 1986 - DAGUR - 5
andstæðinga sína í gufubað. Á
meðan birkivendirnir smella
mýkjast hugir manna og verða
móttækilegri fyrir málamiðlunum
og samkomulagi. Titlar og gráður
verða eftir í búningsherberginu
með fötunum og það er erfitt að
vera yfirlætislegur þegar maður
situr nakinn eins og guð skapaði
mann. Þjóðarleiðtogum frá bæði
austri og vestri hefur verið boðið
í gufubað í Finnlandi. Það til-
heyrir einfaldlega finnskri gest-
risni.
Gufubaðsvöndurinn
Margir Finnar segja að birki-
vöndurinn sé ómissandi í gufu-
baðinu en þeir eru líka til sem
aldrei nota hann. Vöndurinn er
venjulega búinn til úr limi af
ungu birki og er best að safna því
um mitt sumar. Þá bindur maður
vendi fyrir allan veturinn. Það
krefst mikillar þjálfunar að binda
góða vendi en vel bundinn birki-
vöndur er líka mesta augnayndi,
fyrir utan hagnýta gildið. Algeng-
asta aðferðin við geymslu á birki-
vöndum er að þurka þá. Þá bind-
ur maður vendina saman, tvo og
tvo, og hengir þá upp í rjáfur á
rúmgóðum og svölum stað. Ef
maður sgltar þá áður halda þeir
litnum betur.
Það er líka hægt að frysta
vendina og er alls ekki svo vit-
laust. Hugsið ykkur bara ferskan
ilmandi birkivönd í svartasta
skammdeginu. Sá sem ætlar að
frysta vendina ætti að hafa þá
eitthvað minni en ella til að þeir
rúmist betur í frystinum. Gott er
að leggja hvern vönd í plastpoka
í frystigeymsluna. Frosinn vönd
á að þíða við stofuhita og verður
hann þá álíka góður og nýr vönd-
ur um miðsumar.
Hárgreiðslumeistarar
keppa í „frístæl“
Nýstárleg keppni í frjálsri
greiðslu eða „frístæl", verður
haldin á Broadway 2. mars nk.
Keppnin er haldin á vegum
tímaritsins Hárs og fegurðar og
Sambands hárgreiðslu- og hár-
skerameistara. Svona keppnir
eru mjög vinsælar erlendis og
hugmyndin bak við keppnina er
að hver einstaklingur getur kom-
ið hugmyndum sínum á framfæri,
þannig að margir bíða spenntir
eftir útkomunni, sem ætti að geta
orðið mjög litrík.
Fimm fyrstu sætum verða veitt
verðlaun í hvorri grein.
Meðan beðið verður eftir úr-
slitunum verður meðal annars
tískusýning.
Það er eingöngu af hagnýtum
ástæðum sem fólk fer nakið í
gufubað. Það væri beinlínis
óþægileg að sitja og svitna í bað-
fötum eða einhverri annarri flík.
í gufubaði á maður að hafa það
notalegt og þá er ekki heppilegt
að einhver flík klessist við
skrokkinn.
í gufubaðstofum sem ætlaðar
eru almenningi eða fleirum en
einni fjölskyldu eru tímar líka
yfirleitt skipulagðir þannig nú-
orðið að konur og karlar hafa
sértíma eða að baðstofunni er
skipt í tvennt fyrir karla og
konur.
Takið óvinina með
í gufubað.
Finnskir stjórnmálamenn og
embættismenn fara iðulega með
-Jesendahornið.
Besti matur
í heimi
- M.H. er þakklát þeim
sem útbúa þorrabakkana
M.H. skrifar:
Ja, aumingja maðurinn, sem
keypti sér þorrabakka og fann
bara kæsta bragðið af öllu saman.
Ég keypti líka þorrabakka og það
var allt jafn yndislegt. Ég er
þakklát þeim sem útbúa þessa
bakka, svo að maður fái þá að
minnsta kosti einu sinni á ári að
smakka blessaðan gamla sveita-
matinn, sem er bestur í heimi.
Svo er skammsýnt fólk að tala
um að leggja niður landbúnað-
inn. En ætli þeim brygði ekki við,
blessuðum.
Við hvetjum lesendur til að koma úr
felum og láta skoðanir sínar i Ijós
hér í lesendahorninu.
Síminn er 24222.
Þeir sem skrifa merkja bréfin:
Dagur, Strandgötu 37, Akureyri,
„lesendahornið". Þeir sem vilja geta
fengið bréf sín birt undir dulnefni,
en fullt nafn verður samt sem áður
að fylgja til vitstjórnar.
Sama gildir um þá sem hringja; við
birtum erindi þeirra undir dulnefni,
en það verður ekkert birt ef við-
komandi segir ekki til nafns í
símar.n.
Hvað hét hestur
djáknans
Laufey Sigurðardóttir frá Torfu-
felli hafði samband við Dag og
sagðist hafa hlustað á morgunút-
varpið sl. fimmtudagsmorgun.
Var þar verið að fjalla um söguna
um djáknann frá Myrká. Sagði
Laufey að stjórnendur hefðu
á Myrká?
ekki vitað nafn hestsins sem
djákninn og Guðrún riðu á.
„Hesturinn hefur alltaf átt nafn
og það er Faxi," sagði Laufey.
Því er hér með komio á framfæri
við þá sem ekki vissu það
áður.
Jónas Pétursson fyrrverandi alþingismaður
Hvar á að ala
r
upp Islendinga?
í fróðlegri frásögn í „Degi“ 22.
jan. s.l. af bændafundi á Hótel
KEA eru tilgreind nokkur atriði
úr ræðum manna. Eitt ber þar af
öllu að minni hyggju. Þar er sagt
frá ræðu Kristjáns Theodórsson-
ar þannig. „Hann benti mönnum
á að ein framleiðslugrein mundi
örugglega styrkja búfram-
leiðsluna í landinu. Það væri
barnaframleiðsla, en hún hefði
dregist mjög saman á síðustu
árum.“ (Leturbreyting mín J.P.)
Þarna er tekið á meginmáli í
framtíð íslenskra sveita. í meira
en 10 aldir var hér bændaþjóð-
félag til lands og sjávar. Menning
íslendinga er bændamenning,
enda öll menning sprottin úr
samskiptum mannsins við náttúr-
una, sem búskapur til lands og
sjávar hefir verið um aldir. í
þrjátíu ættliði hefir húsfreyjan og
bóndinn alið kynslóðirnar og
þaðan er fólkið, sem byggt hefir
upp hið mikla þéttbýli nútímans.
Að stórum hluta til dærnis, þá
miklu aukningu þéttbýlis upp úr
síðari heimsstyrjöld og raunar
fram á þennan dag. Hvernig sem
á er litið, er þetta mikilvægt fyrir-
bæri. Varla mun svo glámskyggn
persóna til, að skilja ekki eða
viðurkenna yfirburði þess að ala
upp börn í sveitum, í strjálbýli í
samskiptum við dýr og aðra nátt-
úru og læra að tala af því máli.
sem enn er þar víðast á hreinni
íslensku á vörum hinna fullorðnu.
Gildi sveitanna, búskaparins
hefir því síður en svo minnkað á
þessu sviði síðari árin. heldur
aukist stórlega. Þess vegna þótti
mér svo vænt um að sjá þessi um-
rnæli Kristjáns Theodórssonar
frá bændafundinum á Akureyri.
Hefir brunnið mér í sinni lengi.
Þetta er sístækkandi hlutverk
bændafólksins.
Manngildi er ofar auðgildi!
Utsjónarsemi
Það er víst bæði löggiltur og
skjalfestur sannleikur, að ís-
lendingar eru ríkir menn. Þetta
fullyrða stjórnmálamenn og
vitna í því sambandi í alls konar
skýrslur og skjöl Sameinuðu
þjóöanna. Stöku sinnum gera
þó efasemdir vart við sig hjá
mönnum. Þetta er ekki algengt,
en kemur helst fyrir þegar t.d.
gluggapóstsflæðið í forstofunni
er í ökkla og mánaðarkaupið
fyrirfram étið út á krítarkort.
Það er svo sem allt í lagi með
reikninga og rukkanir ef nóg er
til af peningum. En þegar pen-
ingana vantar er gluggapóstur
sérlega hvimleitt fyrirbrigði. Þá.
er hægt að taka heilshugar
undir með kerlingunni, sem
sagði, þegar henni var sýndur
reikningur, að hún hefði annað
meö sína peninga að gera en
að borga reikninga.
Að sjálfsögðu er ekki hægt
að rengja stjórnmálamenn og
opinberar skýrslur en óneitan-
lega setur að manni nokkurn
efa þegar maður allt í einu
stendur í gluggapósti upp að
hné <og fær ekki betur séð en
ríki íslendingurinn sé orðinn
löggiltur fátæklingur.
En auðvitað má maður ekki
hugsa svona. Að vera neðan
bjargálnamarka sýnir ekki
fátækt, heldur skort á útsjónar-
semi. Þess vegna lét ég ekki
deigan stga þarna í háflóðinu í
forstofunni, heldur fór að leiða
hugann að þessu með útsjónar-
semina.
Og þá fékk ég hugljómun. Ég
mundi sem sé eftir því, að
undanfarið hef ég ekki opnað
Dag-blað eða dagblað, - ekki
opnað útvarp eða sjónvarp svo
ekki hafi dunið á augum mínum
og eyrum auglýsingar um
undrabækur, - öndvegis-spari-
há-tromp-gull-kaskóbækur. í
öllum þessum auglýsingum er
því heitið, að „stofni" maður
bók, gerist kraftaverkið: Maður
verði ríkur og helst vellauðugur.
Ekki skil ég þó hvernig farið er
að því að „stofna“ bók. Ég hélt
í einfeldni minni að þaö eina
sem hægt væri að stofna væri
féiag eða þá fyrirtæki. Ég hafði
orð á þessu við konuna mína,
sem bað mig snarlega að hætta
svona heimskulegum hártogun-
um. Þær sæmdu engan veginn
manni, sem væri á leiðinni að
verða stórauðugur.
Að sjálfsögðu var þetta rétt
hjá henni og ég fór svona að
gamni mínu að hugleiða hvern-
ig það hljómaði: Högni ríki
Brandsson eða bara einfald-
lega Högni Rockefeller. Og svo
fór ég niður í banka.
Mér var strax tekið þar Ijúf-
mannlega. Ég kvaðst vera út-
sjónarsamur fátæklingur, sem
vildi ráða bót á fátæktinni með
því að „stofna" bók, og verða
rúmlega bjargálna. En þá kom
stóri skellurinn: Til þess að
verða ríkur og eignast peninga
með undrabókaraðferðinni, þarf
aðeins að eiga eitt, - nóga pen-
inga. Högni.