Dagur - 17.02.1986, Page 7

Dagur - 17.02.1986, Page 7
6 - DAGUR - 17. febrúar 1986 17. febrúar 1986 - DAGUR - 7 Staða Þórs í 1. deildinni í körfubolta er orðin slæm eftir tvö töp um helgina. Mynd: KGA - í 1. deild í körfubolta, Tap gegn IS á síðustu stundu Lið Þórs og ÍS léku að nýju á laugar- dag í 1. deildinni í körfubolta og þá í Skemmunni. Enn sigruöu Stúdentar, nú meö aðeins tveggja stiga mun 63:61 og ekki lagaðist staða Þórs á töflunni við það, að tapa öðrum leiknum fyrir IS á jafnmörgum dögum. Fyrri hálfleikur leiksins var hnífjafn allan tímann. Jafnt á flestum tölum en þó voru Þórsarar fyrri tii að skora. í hálfleik höfðu Þórsarar eins stigs for- ystu 31:30. í byrjun síðari hálfleiks náðu Þórsar- ar ágætum kafla og á 6. mín. voru þeir komnir með 8 stiga forystu 42:34. Stúd- entar voru ekkert á því að gefast upp og söxuðu á forskotið. Þegar um 2 mín. voru eftir höfðu Þórsarar 5 stiga forystu 60:55 en Studentar minnkuðu muninn í 60:59. Þórsarar skoruðu 61. stigið úr vítakasti þegar um 1 mín. er eftir. í næstu sókn á eftir misstu Stúdentar boltann en Þórsarar skutu ótímabæru skoti sem ekki rataði ofan í körfuna, ÍS náði frákastinu og jafnaði 61:61 og að- eins um hálf mín. eftir. Þórsarar hófu sókn en skutu öðru ótímabæru skoti sem rataði ekki heldur rétta leið og aft- ur náðu Stúdentarnir frákastinu. Þeir hófu sókn og brutu Þórsarar á einum leikmanni Stúdenta og fékk hann tvö vítaskot og hitti úr báðum. Þá voru að- eins um 10 sek. eftir af leiktímanurn. Þórsarar hófu sókn en þeim tókst ekki að nýta sér þann stutta tíma sem eftir var og töpuðu því leiknum 61:63. Stúd- entar fögnuðu innilega í leikslok enda búnir að krækja sér í 4 stig í fallbarátt- unni í 1. deild en Þórsarar sátu eftir með sárt ennið og eru nú í mikilli fall- hættu. Þórsliðið átti ekki góðan dag að þessu sinni. Helst var það að Eiríkur þjálfari berðist af krafti. í liði ÍS voru þeir Valdimar og Helgi bestir. Þeir skoruðu einnig mest, Valdi- mar 18 og Helgi 16. Stig Þórs: Björn 11, Eiríkur 11, Konráð 9, Jóhann 8, Ólafur 8, Hólmar 7, Halldór 4 og Bjarni 3. Þorsarar lélegir og töpuðu fyrir ÍS Þórsarar töpuðu fyrir ÍS í 1. deildar- keppninni í körfubolta í leik liðanna á föstudagskvöld í Höllinni. Stúdent- ar skoruðu 66 stig gegn aðeins 53 stigum Þórsara. Helgina áður höfðu Þórsarar unnið stórsigur á Stúdent- um í Reykjavík, 93:63 og hafa senni- lega enn verið aö fagna þeim sigri. Þórsarsðt leiddu leikinn lcngst af í fyrri hálfíéjk. Þrátt fyrir það voru þeir að fá dæmd á sig skref í annarri hverri sókn og þá var hittni þeirra af- leit. Stúdentar náðu að komast yfir þegar um ein mín. var eftir af fyrri hálfleik og voru yfir í hálfleik 35:31. Ólafur Adolfsson byrjaði inná í upp- hafi leiksins en var hvíldur eftir 6 mín., þá kominn með 3 villur. Eirík- ur þjálfari Þórs var kominn með 4 villur í fyrri hálfleik. Stúdentar léku á als oddi í upp- hafi síðari hálfleiks og voru komnir með 10 stiga forskot á fyrstu 5 mín. Þórsarar náðu aldrei að minnka þann mun heldur bættu Stúdentar heldur við og sigruðu í leiknum með 13 stiga mun 66:53. Ekki er hægt að hæla einum ein- asta Þórsara fyrir þennan leik. Hittni leikmanna var í algjöru lágmarki eins og tölur leiksins gefa til kynna. Vörn og sókn voru hreinlega léleg hjá liðinu. Stúdentar gerðu sér grein fyrir mikilvægi leiksins í fallbaráttunni, börðust eins og ljón allan leikinn og uppskáru samkvæmt því. Bestir voru þeir Valdimar Guðlaugsson og Helgi Gústafsson. Stig Þórs: Hólmar Ástvaldsson 14, Eiríkur Sigurðsson 12, Jóhann Sig- urðsson 8, Konráð Öskarsson 6, Halldór Arnarson 5, Bjarni Össurar- son 4, Björn Sveinsson 2 og Ólafur Adolfsson 2 en hann varð að yfirgefa leikvöllinn á 6. mín. seinni hálfleiks með 5 villur. Flest stig ÍS gerðu þeir Valdimar Guðlaugsson 15, Helgi Gústafsson 13 og Bjarni 12. íþróttir- íslandsmótið 3. deild: Stórsigur Völsunga á Reyni í Sandgerði Völsungar voru aldeilis kampakátir eftir leik sinn við Reyni á föstudagskvöld og höfðu ærna ástæðu til. Þeir náðu 8 marka útisigri og var hann mjög verðskuldaður. Ekki byrjaði leikurinn gæfu- lega fyrir Völsunga því Reynis- menn komust strax í 2:0. Reynis- menn héldu svo þessum 2. marka mun þar til á 20. mín. að þeir juku hann í 3 mörk, 6:3. Þá fóru Völsungar loks í gang og jöfnuðu 7:7 og komust yfir 8:7. Eftir það juku þeir muninn.um 1 mark. Staðan í hálfleik 11:9. Framan af seinni hálfleik hélst 2ja til 3ja marka munur með liðun- um allt þar til staðan var 21:19 og 8 mín. til leiksloka. Þrjú mörk í röð frá Völsungum breyttu stöð- unni í 24:19 en Reynismenn svör- uðu með tveimur mörkum. Stað- an var þá 24:21. Þá var engu lík- ara en Reynisliðið brotnaði niður og á lokamínútunum skoruðu Völsungar 5 mörk gegn engu og tryggðu sér stórsigur. Bestir í liði Völsungs voru Arnar Guðlaugsson, Skarphéð- inn ívarsson og Pálmi Pálmason, þá varði Birgir markvörður vel. Flest mörk Völsungs: Skarp- héðinn 7, Pálmi 7 (2), Birgir 5, og Arnar 4 (1). Flest mörk Reynis: Daníel Hilmarsson 9 og Heimir Karlsson 5. AE/Reykjavík Skarphéðinn ívarsson átti góðan ieik gegn Reyni um helgina. Mynd: KK. KA-menn sáu aldrei til sólar gegn Þrótti á laugardag. KA réð ekki við Þrótt Karlalið KA og Þróttar léku einnig um helgina í 1. deildar- keppninni. Var um einn leik að ræða og fór hann fram á laugardag. Þróttarar sigruðu örugglega 3:0. Fyrsta hrinan endaði 15:7 og var það aðeins i byrjun sem KA- menn héldu í við Þróttara. í ann- arri hrinunni komust Þróttarar strax í 8:0 en KA-menn náðu að minnka muninn í 11:9. Þróttarar voru síðan sterkari á endasprett- inum og sigruðu 15:10. í þriðju hrinunni þurftu Þróttarar að leggja hvað harðast að sér til að sigra. Staðan var jöfn 10:10 en Þróttarar voru harðari í lokin og sigruðu 15:11. Það er eins með þessi lið og kvennaliðin að Þróttur er' töluvert betra lið en KA eins og vel kom í ljós í leiknum. Dómaramir mættu ekki til leiks - og fresta varð leik ÍBK og Þórs Þórsarar að missa af lestinni í 3. deild! - misstu unnin leik niður í jafntefli í Sandgerði Þórsarar voru heldur betur niðurlútir eftir að hafa aðeins náð jafntefli gegn Reyni í Sandgerði á laugardag og höfðu ærna ástæðu til. Þeir glopruðu niður unnum leik með því að spila hræðilega illa í lokin og geta þeir þakkað Hermanni markmanni það að þeir náðu þó öðru stiginu. Þórsarar náðu fljótlega yfir- höndinni og höfðu tveggja til þriggja marka forskot allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 12:10 Þórsurum í vil. Fyrri part síðari hálfleiks spil- uðu Þórsarar vörnina mjög vel og náðu að auka muninn í fimm mörk 17:12. Þá hrundi allt og það sem eftir var skoruðu Þórsarar aðeins þrjú mörk gegn átta mörkum Reynismanna. Lokatölur urðu því eins og fyrr segir 20:20. Dómararnir voru ömurlegir í þessum leik og höfðu m.a. eitt mark af Þórsurum er knötturinn lenti á litlu hjóli inn í marki Reynismanna og spýttist þaðan út á völlinn aftur en ekkert mark var dæmt. Annars geta Þórsarar sjálfum sér um kennt. Þeir létu markvörð Reynismanna verja 4 af 5 vítum þeirra í leiknum og héldu ekki haus í lokin. Mörk Þórs: Sigurpáll 6, Ólafur 4, Gunnar G 3, Kristinn 3,lngólf- ur 2 og þeir Hörður og Gunnar M. 1 mark hvor. Markahæstir Reynismanna voru Sigurður Sumarliðason 5, Heimir Karlsson 4 og Daníel Einarsson 4. AE/Reykjavík Þórsarar náðu aðeins einu stigi um helgina og eru að missa af lestinni í baráttunni um sæti í 2. deild að ári. Sá leiðindaatburður átti sér stað á föstudagskvöldið að það mættu hvorki dómarar á leik ÍBK og Þórs né Reynis og Vöisungs. En lið þessi áttu að leika í 3. deildinni í hand- bolta. Bæði Þórs- og Völs- ungsliðið voru búin að ferðast frá Norðurlandi alla leið á Suðurlandið með ærnum tii- kostnaði auk vinnutaps. Einnig urðu fjölmargir áhorf- endur frá að hverfa. Leikurinn í Sandgerði fór þó fram þar sem tveir leikmanna ÍBK tóku að sér að dæma hann. Þessi atburður er því miður langt frá því að vera einsdæmi og er auöséþ að HSÍ þarf að ; gera átak í jjtióniaramálum og ~ þá 'sérstaklójgfr’fyMr néðri déííd- irnar. Það er hvorki hægt að bjóða leikmönnum né áhorfendum upp á svona vinnubrögð ef halda á uppi skipulagðri kep.pni í þremur deildum. Því beini ég hér með þeim tilmælum til for- ráðamanna HSÍ að þeir komi dómaramálum í almennilegt horf. Það er vissulega ánægjuefni að a iandslið okkar sé að fara í úrslitakeppnina í HM, en ekki má leggja svo mikla áherslu á það að allt annað starf sé í molum. AE/Reykjavík IBK f Keflavík Það á ekki af Þórsurum að ganga í vítaskotum, því að í gær nýttu þeir aðeins þrjú af þeim átta sem þeir fengu. Fjögur varin og eitt framhjá. Samtals misnotuðu þeir því níu af þeim fjórtán sem þeir fengu um helgina. Spurningin er hverjum er verið að refsa með að dæma Þórsurum víti. Keflvíkingar skoruðu fyrsta mark leiksins en síðan var jafnt á öllum upp að 4:4. Á þessum kafla varöi Hermann markvörður Þórs eins og berserkur en það dugði ekki til því á sama tíma misnot- uðu Þórsarar þrjú víti. Keflvík- ingar komust í 6:4 og juku svo muninn í 4 mörk fyrir leikhlé. Staðan í hálfleik 9:5. í seinni hálfleik hélst 4 til 6 marka munur og oft voru Þórsar- arnir eins og höfuðlaus hcr. Leik- skipulag ekkert og sóknarleikur- inn tilviljanakenndur. Keflvík- ingar fóru því létt með að halda fengnum hlut og sigruðu verð- skuldað 20:15. Eini leikmaður Þórs sem hægt er að hæla í þessum leik er Her- mann markvörður en hann varði 11 skot og hélt liðinu á floti fram- an af. Mörk Þórs: Gunnar G. 3 (1), Jóhann 3 (1), Kristinn 2, Sigur- páll 2, Gunnar M. 2 og þeir Ólaf- ur, Ingólfur og Hörður 1 mark hver. Markahæstur Keflvíkinga var Elvar Sigurðsson með 6 (5). AE/Reykjavík íslandsmótið í blaki 1. deild: Tvö töp KA gegn Þrótti Það leit ekki vel út í byrjun hjá KA-stelpunum er þær léku við Þrótt í 1. deildinni í blaki í Glerárskóla á föstudagskvöld. Þróttarstelpurnar byrjuðu af miklum krafti og unnu tvær fyrstu hrinurnar örugglega. Þá fyrstu 15:5 og aðra hrinuna 15:0. Virtust KA-stelpurnar vera hálfsofandi í byrjun og það var ekki fyrr en í þriðju hrinunni að þær náðu að bíta frá sér. Þær komust í 3:0 en Þróttarstelpurnar voru fljótar að jafna og breyttu stöðunni í 9:4 sér í vil. KA-stelp- urnar jöfnuðu 9:9 og komust yfir 13:9 en þá mistókst uppgjöf og Þróttarstelpurnar jöfnuðu 13:13. Þá unnu KA-stelpurnar boltann og skoruðu 14. stigið en misstu svo boltann. Þróttarstelpurnar náðu ekki að skora stig en það gerðu KA-stelpurnar er þær unnu bolt- ann aftur og sigruðu í hrinunni 15:13. í fjórðu hrinunni var aðeins jafnt í byrjun 4:4 en þá tóku Þróttarstelpurnar mikinn kipp og sigruðu örugglega 15:6 og þar með í leiknum 3:1. Mikill getumunur er á liðunum og þá virðist hugarfar KA-stelpn- anna ekki vera allt of gott. Þær virðast ekki trúa því að þær geti sigrað þessi blakstórveldi að sunnan en hafa þó sýnt annað slagið að þær geta alveg staðið upp í hárinu á þeim. Daginn eftir léku liðin að nýju og þá sigruðu Þróttarstelpurnar örugglega 3:0. Fyrsta hrinan end- aði 15:9, önnur 15:0 og sú þriðja 15:12. KA-stelpurnar áttu ágætis spretti inn á milli en það þarf meira til að vinna Þrótt en góða kafla annað slagið. íslandsmótið 3. deild: Stórtap Völsunga gegn ÍBK Ekki riðu Völsungar feitum hesti frá viðureign sinni við ÍBK á laugardag. Keflvíkingar sigruðu stórt 30:20 og tryggðu stöðu sína í toppbaráttu 3. deildar. Keflvíkingar voru mun sterkari í fyrri hálfleik og í leikhléi var 14:9 þeim f hag. í upphafi síðari hálfleiks voru Völsu.ngar hins vegar mun ákveðnari og náðu að minnka muninn í 1 rnark. 18:17 þegar um það bil 15 mín. voru til leiksloka. En þá sprungu þeir á limminu og Keflvíkingar rúlluðu þeim upp í lokin. Lokastaðan 30:20. Markahæstir Völsunga voru Pálmi með 13 og Gunnar Jó- hannsson 2. í liöi ÍBK skoruðu Freyr Sverr- isson 10 og Elvar Sigurðsson 9. AE/Reykjavik Landsleikir íslands og Noregs: ísland vann báða íslendingar og Norðmenn léku tvo iandsleiki í handbolta um helgina. íslenska liðið sigraði í báðum leikjunum 25:24 í þeim fyrri og 30:19 í þeim síðari. íslenska liöið lék ekki vel í fyrri leiknum og var nærri búið að missa leikinn niður í jafntefli. Þeim tókst þó að merja eins marks sigur 25:24. í síðari leiknum léku íslensku strákarnir á als oddi og unnu yfir- burðasigur 30:19. Þetta voru síðustu leikir liðsins fyrir lokaátökin í Sviss í lok mán- aðarins. Knatt- spymu úrslít Um helgina var leikið í 5. umferð ensku bikarkepn- innar. Þrcmur leikjum varð að fresta á getraunaseðlin- um og var teningurinn látinn ráða í þeim leikjum. Úrslit ieikjanna sem spilaðir voru og röðin á seðlinum er þessi: Derby-Sheff.Wed. fr. 2 Luton- Arsenal 2:2 x Petcrboro-Brighton 2:2 x Southampton-IVfilhvall 0:0 x Tottenham-Everton fr. 2 York-Liverpool 1:1 x Einn leikur fór fram í 1. deild. Coventry-Birmingham 4:4 í 2. deild voru aðeins leiknir tveir leikir af þeiin sex sem voru á getraunaseðlinum og var kastað upp á hina fjóra: Blackburn-C.Palace 1:2 2 Fulham-Charlton fr. 2 Hull-Shrewsbury fr. 2 Leeds-Barnsley 0:2 2 Middlesbro-Grimsby fr. 1 Wimbledon-Stoke fr. 1 STAÐAN 1. deild Everton 28 17- 5- 6 63:35 56 Man.United 28 17- 5- 6 49:23 56 Chelsea 27 16- 6- 5 45:29 54 Liverpool 29 15- 9- 5 57:31 54 West Ham 26 15- 6- 5 42:24 51 Luton 29 13- 8- 8 46:32 47 Arsenal 26 13- 7- 6 32:29 46 Sheff.Wed 27 13- 7- 7 43:42 46 Nottm.Forest 29 14- 4-11 52:42 46 Newcastle 28 11- 9- 8 36:43 42 Man.City 29 11- 8-10 36:34 41 Watford 27 11- 6-10 46:43 39 Tottenham 28 10- 5-13 39:35 35 Southampton 28 9- 7-12 34:39 34 Q.P.R. 28 10- 3-15 30:42 33 Coventry 29 8- 7-14 36:48 31 Leicestcr 28 6- 9-13 37:51 27 Ipswich 28 7- 5-16 22:40 26 Oxford 29 6- 8-15 42:57 26 Aston Villa 28 5-10-13 31:43 25 Birmingham 28 6- 3-19 15:38 21 W.B.A. 29 3- 7-19 25:65 16 Staðan í 3. deild íslands- inótsins í handknattleik eftir leiki helgarinnar er þessi: ÍBK-Þór 20:15 Týr-ÍH 35:15 Reynir-Völsungur 21:29 ÍA-UMFN 26:28 Reynir-Þór 20:20 ÍBK-Völsungur 30:20 STAÐAN 3. deild ÍBK 20 17 0 3 540:379 34 Týr 19 16 0 3 505:359 32 Rcynir 20 11 5 4 477:430 27 ía‘ 18 11 3 4 458:382 25 Þór 19 11 3 5 433:376 25 Fylkir 17 9 1 7 371:344 19 Selfoss 18 84 6 394:380 20 Völsungur 19 7 1 11 450:468 15 UMFN 20 6 3 11 486:495 15 UFHÖ 18 6 1 11 425:495 13 ÍH 17 5 II 12 393:463 10 Skallagrímur 17 3 I 13 342:438 7 Ogri 19 IIII 19 271:536 0

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.