Dagur


Dagur - 17.02.1986, Qupperneq 12

Dagur - 17.02.1986, Qupperneq 12
Akureyri, mánudagur 17. febrúar 1986 Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla Síminn er 2 4 222 Nemendur unglingadeildanna í Glerárskóla stóðu í stórræðum um helgina. Nemendaráð gekkst þá fyrír maraþon- keppni í dansi. 65 unglingar tóku til við dansinn klukkan 18 á föstudaginn. Á laugardagsmorguninn voru 7 eftir. Tveir heltust úr lestinni seinni part dags og samkvæmt viðurkenndum reiknireglum voru þá 5 eftir, allt stúlkur. Þær þraukuðu fram að miðnætti og höfðu þá dansað í 30 tíma! Þátttakendur fengu 5 mínútna pásu á klukkustund tii að slappa af og næra sig. Foreldrar sáu um gæsluna og dómnefnd gaf keppendum stig, mismörg eftir hreyfanleika hvers og eins. Sigurvegarinn hlaut 3 þúsund krónur að launum auk áletraðs gullpenings. Þeir sem urðu í öðru og þriðja sæti fengu silfur- og bronspening að launum. Þá fengu allir þátttakendur viðurkenningarskjal til minningar um spriklið. „Bimbó“ blaðaútgefandi gaf öllum sem heimsóttu Glerárskóla þessa helgi eintak af tónlistartímaritinu „Smelli" og stelpurnar í þremur efstu sætunum fengu ársáskrift að auki. Sannarlega vel af sér vikið hjá krokkunum enda heilbrigðar sálir í hraustum líkömum, eins og einhvers staðar stendur skrifað. BB. Mynd KGA. Tveir jarðskjálftakippir - ekki boðberar frekari stórtíðinda, segir Daði Þorkelsson Ofnasmiðja Norðurlands aftur norður Margt bendir nú til þess að Ofnasmiðja Norðurlands fari að standa undir nafni að nýju, þ.e. sem ofnasmiðja á Norður- landi. Eigandinn, Guðrún Einars- dóttir, stofnaði fyrirtækið og starfrækti á Akureyri um nokk- urra ára skeið en ákvað síðan að flytja það til Reykjavíkur. Haukur Adólfsson pípulagn- ingameistari hefur staöið í samn- ingaviðræðum við Guðrúnu um kaup á fyrirtækinu. Haukur rek- ur pípulagningaþjónustu í rúm- góðu húsnæði úti í Þorpi og mun hafa áhuga á að setja ofnaverk- smiðjuna upp þar. Engir samningar hal'a verið undirritaðir en Dagur hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að gengið verði frá kaupunum á allra næstu dögum. BB. Haukur Adólfsson hyggst kaupa Ofnasmiðju Norðurlands. „Það er rétt hugsanlegt, að fleiri kippir af svipaðri stærð geri vart við sig á næstunni, en það er engin ástæða til að ætla að einhver stórtíðindi séu í vændum, öðru nær,“ sagði Barði Þorkelsson, jarðskjálfta- fræðingur, í samtali við Dag í gær. Klukkan 21.34 á laugardags- kvöldið og kl. 11.55 á sunnudags- morgun fundust jarðskjálftakipp- ir á ýmsum stöðum á Norður- landi. Sá fyrri var öllu sterkari, um 3,5 stig á Ricter, og benda all- ar líkur til þess, að upptök hans hafi verið um 10 km norður af Gjögurtá. Skjálftinn fannst vel á Húsavík, Grímsey, Ólafsfirði, Hrísey og ef til vill víðar. Seinni skjálftinn var vægari og virðist hafa verið öllu vestar, því hans varð vart á Siglufirði og í Svarf- Akureyri: Brotist inn í Kotið - en litlu var stolið í fyrrinótt var brotist inn í verslunina Kotið við Hafnar- stræti. Brotin var rúða og gramsað í varningi verslunar- innar, en litlu stolið. Málið er óupplýst. Helgin var friðsæl meðal Akur- eyringa, ef miðað er við dagbæk- ur lögreglunnar. Aðeins þrír minniháttar árekstrar urðu frá því á föstudag fram á sunnudag og aðfaranótt sunnudagsins var aðeins einn gestur í fangageymsl- unum. Það þætti léleg nýting á hóteli, eins og varðstjórinn orð- aði það. Þar við bætist, að lög- reglan á Akureyri hefur engan grunaðan um ölvun við akstur um helgina. - GS aðardal, en ekki á Húsavík. Norðlendingar munu hafa tek- ið þessum skjálftum með still- ingu, þó að einhverjir hafi skipt litum, minnugir fyrri jarðhrær- inga á svæðinu, af eigin reynslu eða afspurn. - GS. Bæjarstjóm er á varhugaverðri braut - segir Freyr Ófeigsson „Góður hagur vatnsveitunnar og annarra fyrirtækja á að mínu viti að koma viðskipta- vinum til góða í lækkuðum gjöldum. Stjórn Vatnsveitu Akureyrar hefur haft þá stefnu að verðleggja vatnið það ríf- lega að hægt væri að hafa reksturinn traustan og stuðla að sem allra mestri uppbygg- ingu. Viðskiptavinirnir eiga því að njóta þess í formi lægri vatnsgjalda, þegar uppbygg- ingin fer að skila árangri. Við erum komnir yfir erfiðasta hjallann, enda er ekkert álag á vatnsskatt í ár í fyrsta sinn síðan 1971,“ sagði Freyr Ófeigsson, sem var formaður vatnsveitustjórnar þar til á þriðjudag að hann sagði af sér. Freyr sagði af sér embætti eftir að bæjarstjórn hafði samþykkt að taka 15 milljónir að láni hjá vatnsveitunni til framkvæmda á vegum bæjarsjóðs, í trássi við vilja vatnsveitustjórnar. Freyr Ofeigsson. Freyr sagði að samþykkt bæjarstjórnar hefði kollvarpað öllum áformum stjórnar vatns- veitunnar og væri kjaftshögg á alla þá sem greitt hafa hátt vatns- gjald án mótmæla í þeirri trú að vatnið mundi lækka með batn- andi fjárhagsstöðu veitunnar. „Það er sjálfsblekking hjá bæjarstjórn að tala um lán í þessu sambandi. Þegar þessir peningar eru einu sinni komnir inn í bæjar- sjóð verður ekkert áhlaupaverk að ná þeim til baka. Á sama tíma og bæjarsjóður yfirtekur fram- kvæmdafé vatnsveitunnar til að bæta úr eigin fjárþurrð eru tekju- stofar bæjarsjóðs ekki einu sinni fullnýttir. Fullnýting hefði gefið 12 milljónir í viðbótartekjur,“ sagði Freyr ennfremur. Sjálfstæðismenn fluttu tillög- una sem samþykkt var í bæjar- stjórn. Freyr sagði að sjálfstæðis- menn hefðu alltaf verið með skítkast út í vatnsveituna síðan þeir hættu að stjórna henni og hún fór að ganga vel. En með því að samþykkja tillögu þeirra væri bæjarstjórn að fara inn á var- hugaverðá braut og „ég veit ekki hvar sú ferð endar. Þetta er hrein blekking gagnvart skattgreiðend- um,“ sagði Freyr að lokum. BB. Batnandi atvinnuástand á Húsavík: Nú vantar fólk í fiskvinnsluna Það vantar fólk til að vinna við fiskvinnslu og í aðgerð hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Einnig vantar starfsfólk í Síld- arvinnsluna. Auglýst var eftir starfsfólki á fimmtudag í síð- ustu viku og má telja það mikil og gleðileg tíðindi. Að sögn Tryggva Finnssonar framkvæmdastjóra hætti eitthvað af starfsfólki og leitaði annarra ráða í atvinnumálum í hinu langa hléi sem varð á vinnu í Fiskiðju- samlaginu í vetur. í hönd færi sá tími er mest átvinna væri hjá þeim. Kolbeinsey landaði 150 tonn- um í síðustu viku og afli er að glæðast hjá bátunum. Tryggvi sagði að í ár virtist allt vera fyrr á ferðinni. Oft hefði verið slök veiði í febrúar, en nú hefði tíð verið góð. Mars, apríl og maí * hefðu oftast verið bestu mánuð- irnir fyrir bátaflotann og vonaði hann að bátarnir yrðu heima í vetur. „Atvinnuleysi hefur minnkað geysilega mikið,“ sagði Snær Karlsson á Verkalýðsskrifstof- unni. Fjörutíu Húsvíkingar er þó enn á atvinnuleysisskrá, það er fólk úr ýmsum starfsgreinum, þar sem misjafnt ástand er. Vantaði t.d. vinnu fyrir verslunarmenn og eru níu þeirra á skrá. IM/gej-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.