Dagur


Dagur - 07.03.1986, Qupperneq 11

Dagur - 07.03.1986, Qupperneq 11
7. mars 1986 - DAGUR - 11 Venjuleg skipting í árgcmga leyst upp - segir Ingólfur Armannsson, skólastjóri Síðuskóla á línunni - Góðan dag. Er Ingólfur Ár- mannsson við? - Já, andartak. Eftir andartak svarar Ingólfur meö sinni rólegu röddu í símann. - Sæll vertu. Petta er á Degi. Ert þú ekki til í að spjalla svolít- ið við mig um Listahátíð Siðu- skóla? - Jú, það held ég að hljóti að vera. - Hvernig fer þessi listahátíð fram? - Hugmyndin er að þar komi fram árangur af vinnu nemenda þessa viku sem við höfum kallað listaviku og myndlistarviku sem var í desember síðastliðnum. Þá komu þeir og aðstoðuðu okkur, Guðmundur Ármann og Dan- íel Guðjónsson. Hugmyndin að þessari listaviku og framkvæmd hennar hefur verið þróast í allan vetur. Það má segja að upphafið hafi verið í haust þegar ákveðin var dagskrá vetrarins, þá var strax stefnt að þessari sérdag- skrá á þessum tíma. - Er ekki rétt að þessa viku sem nú er að líða hafi unnið saman að margvíslegum verk- efnum, krakkar úr fyrsta til sjötta bekk? - Það er rétt, jú. Þessa viku hefur verið leyst alveg upp þessi venjulega skipting í árganga og hver nemandi fékk að velja sér nokkra af þeim verkefnahópum sem voru í boði. Síðan var þeim raðað í hópa þannig að í hverj- um hópi séu svona 10 til 12 nemendur á mjög mismunandi aldri, frá 6 til 12 ára. - Hvernig hefur samstarfið gengið? - Það hefur yfirleitt gengið mjög vel. Eina vandamálið sem upp hefur komið í því sambandi er að yngstu árgangarnir tveir eru langfjölmennastir og þess vegna verða hlutföllin svolítið erfið stundum ef þessir árgangar eru í meirihluta í viðfangsefnum sem eru svolítið strembin fyrir þau. Að öðru leyti hefur sú sam- vinna gengið mjög vel. - Hafa þeir eldri þá verið duglegir að hjálpa þeim yngri og hafa þau með? - Já, þau hafa virkilega tekið þau undir sinn verndarvæng og ég held að það sé báðum til góðs. Þau eldri fá þjálfun í því að leiðbeina hinum og þau yngri fá meiri einstaklingshjálp en ella. - Hver eru helstu verkefnin sem börnin hafa verið að fást við? - Þau hafa verið þó nokkuð fjölbreytt. Það hefur einn hópur verið að mála á veggi í kjallar- anum og er ætlunin að verk þeirra standi á veggjunum til frambúðar. Annar hópur hefur verið að búa til ýmiss konar stytt- ur úr margvíslegu efni. Síðan hafa verið í gangi tónlistarhóp- ar, bæði í skólanum og svo hafa þeir nemendur skólans sem jafnframt eru í Tónlistarskólan- um verið að útbúa sérstakt prógramm með aðstoð sinna kennara þar. Þá hefur verið leikrit í undirbúningi og einnig hafa verið hópar í fjölmiðlun; blaðaútgáfu og gerð myndbands. Danshópur hefur æft bæði klassíska dansa og „aerobic“. Einn hópur er að undirbúa ýmiss konar leiktæki. Auk þessa hefur alla vikuna ver- ið í gangi starfsemi sem við köll- um sögustund. Þar hafa krakk- arnir getað slakað á, hlustað á sögu, teflt eða fundið sér önnur viðfangsefni. Svo hafa verið farnar vettvangsferðir, bæði í tengslum við starfsemi hópanna og sjálfstæðar ferðir. - Hafa foreldrar barnanna tekið þátt íþessari listaviku? - Já, bæði hafa nokkrir for- eldrar komið og aðstoðað kennara við leiðbeiningarstörf og einnig hafa nokkrir aðstoðað við fjáraflanir til að standa straum af reksturskostnaði lista- vikunnar. - Heldur þú að þetta geti leitt til þess að betra samband náist milli foreldra og skóla? - Ég held að þetta sé ótvírætt ein af þeim leiðum sem bjóða upp á nánari tengsl þar á milli. - Er svo ekki meiningin að fólk utan úr bæ geti komið í heimsókn og séð afrakstur listavikunnar í Síðuskóla? - Jú, það verður opið frá klukkan tvö tii sex í dag og á morgun og það eru allir vel- komnir. Pá vitum við það. Ég vona að það verði fjölmennt hjá ykkur og þakka þér fyrir spjaUið. -yk. ,;s % Jii Akureyringar - Bæjargestir Veriö velkomin á Höfðaberg, nýjasta veitingastað bæjarins. Opið alla daga fyrir hádegis- og kvöldverð. Nýr og glæsilegur matseðill. ★ Föstudagskvöldið 7. mars. Lokaö vegna einkasamkvæmis. Laugardagskvöldið 8. mars. Kvöldverður framreiddur frá kl. 10.00. Ath. Nokkur borð laus fyrir matargesti. Dansleikur. Hljómsveit Steingríms Stefánssonar leikur fyrir dansi tii kl. 03.00. Húsiö opnað fyrir dansgesti kl. 22.30. Borðapantanir (aðeins fyrir matargesti) í síma 22200. HOTEL KEA AKUREYRI Lögtaksúrskurður Hér meo úrskurðast lögtök fyrir vangreiddum sölu- skatti mánaðanna október, nóvember og desember 1985 á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu, svo og fyrir söluskattshækkunum. Ennfremur tekur úrskurð- ur þessi til þinggjaldahækkana á gjaldendur í um- dæminu og launaskatts 1985. Svo og úrskurðast lögtök fyrir þungaskatti samkvæmt mæli af díesel- bifreiðum fyrir mánuðina október, nóvember, des- ember og janúar s.l„ þ.e. af bifreiðum með um- dæmismerki A. Loks tekur úrskurðurinn til dráttar- vaxta og kostnaðar. Fer lögtak fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. 6. mars 1986. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 105., 107. og 108. tb. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Skíöabraut 11, Dalvík, þinglesinni eign Svavars Marinóssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Lands- banka íslands, Ólafs B. Árnasonar hdl. og Gústafs Þórs Tryggvasonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 12. mars 1986, kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Dalvík. Innheimta fasteignagjalda I samræmi við ákvæði laga nr. 49/1951 um sölu lögveða án undangengis lögtaks er hér með birt almenn áskorun til þeirra sem ekki hafa greitt fasteignagjöld sín álögð 1986 um að greiða. Ef ekki verður orðið við áskorun þessari mun hverjum þeim sem á ógreidd fasteignagjöld settur 30 daga bréflega frestur að greiða gjöldin en að þeim tíma liðnum má beiðast nauðungaruppboðs á viðkomandi eign til fullnaðargreiðslu gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og kostnaði en innheimtan væntir þess að eigi þurfi til slíks að koma. Bæjargjaldkerinn, Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.