Dagur - 07.03.1986, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 7. mars 1986
Tökum á móti
pöntunum í fermingaveislur.
Utvegum sali ef med þarf.
Leitið upplýsinga hjá Haligrími eða Stefáni í síma 21818.
„Mér fannst það dálítið skrýt-
ið að í stórum bæ eins og Ak-
ureyri, þar sem er þjónusta á
flestum sviðum, að ekki skuli
hafa verið hér sérverslun með
fisk,“ sagði Pétur Bjarnason
fiskmatsmaður og nýbakaður
fiskkaupmaður á Akureyri.
Pétur hefur ásamt félaga sín-
um Árna Pétri Björgvinssyni,
opnað fiskbúð þar sem áður var
Gúmmíverkstæði KEA. Að-
spurður um viðskiptin sagði
Pétur: „Viðskiptin hafa gengið
vel, miklu betur en ég átti von
á. Þegar eru 6 góð mötuneyti
komin í föst viðskipti við okkur
og einnig hefur margt fólk kom-
ið hingað í búðina.“
- Þið hafið ekki lagt mikið
upp úr prjáli í versluninni?
„Nei, númer eitt hjá okkur er
að hafa góðan fisk á boðstól-
um,“ sagði Pétur og kvaðst telja
að eftir 23 ára starf við fiskmat
um allt land væri hann orðinn
nokkuð klár á því að þekkja
góðan fisk frá slæmum. „Það
sem vantar hér á íslandi er að
fólk beri virðingu fyrir fiski,“
bætti hann ennfremur við.
Fiskurinn sem var á boðstól-
um þegar við stöldruðum við
var frá Húsavík, Hauganesi,
Árskógsströnd og Ólafsfirði.
Pétur sagði að þeir félagarnir
færu sjálfir á þessa staði og
veldu þann fisk sem þeir keyptu
í fiskverkunarhúsunum. Þar
staðgreiða þeir fiskinn, Pétur
sagðist vilja hafa þann háttinn á
til að vera viss um að hann ætti
það sem hann selur.
„Ég hef ekki orðið var við
annað en að bæði fyrirtæki og
einstaklingar hér í bænum
tækju þessari verslun okkar
vel,“ sagði Pétur að lokum.
-yk.
Pétur Bjarnason.
Eining:
Nær
allir
sögðu
■ F
ja
Atkvæðagreiðsla um nýgerða
kjarasamninga fór fram á
almennum féiagsfundi í Verka-
lýðsfélaginu Einingu á Akur-
eyri í gærkvöld. Aður var búið
að halda fundi í öðrum deild-
um félagsins, á Grenivík,
Dalvík, Olafsfírði og Hrísey.
Atkvæði úr öllum deildum
voru talin í gær. Alls tóku 188
manns þátt í atkvæðagreiðslunni.
Já sögðu 167, nei sögðu 13. Auð-
ir seðlar voru 8.
Mikið fjölmenni var á fundin-
um í gær. I upphafi fundar minnt-
ist Sævar Frímannsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar,
Olaf Palme með nokkrum orðum
og fundarmenn risu úr sætum til
að votta hinum látna virðingu
sína.
í lok fundarins var samþykkt
eftirfarandi tillaga: „Almennur
félagsfundur í Verkalýðsfélaginu
Einingu á Akureyri skorar á
stjórn Hitaveitu Ákureyrar og
bæjaryfirvöld að verða nú þegar
við áskorun stjórnvalda um lækk-
un þjónustugjalda í samræmi við
fyrirheit í nýgerðum samning-
um.“ BB.
KSÞ á Svalbarðseyri:
„Hætt við að menn
tapi innistæðum
sínum hjá félaginu“
-segir Tryggvi Stefánsson stjórnarformaður
„Það hreyfði enginn því máli
að farið yrði fram á opinbera
rannsókn á fjárreiðum KSÞ.
Aðallega var rætt um horfur
vegna innistæðna félags-
manna,“ sagði Tryggvi Stef-
ánsson stjórnarformaður
Kaupfélags Svalbarðseyrar.
Heyrst hafði að á fulltrúaráðs-
fundi sem haldinn var s.l.
þriðjudag yrði farið fram á op-
inbera rannsókn á stöðu fé-
lagsins.
Eins og Tryggvi sagði var aðal-
inntak fundarins innistæður fé-
lagsmanna í KSÞ. Valur Arn-
þórssom kaupfélagsstjóri KEA
kom á fundinn, hélt ræðu og
svaraði fyrirspurnum.
Húsavík:
Gjaldskrár
rafveitu og
hitaveitu lækka
um 7-10%
Bæjarstjórn Húsavíkur hefur
samþykkt lækkun á gjöldum
til bæjarins, í samræmi við
nýgerða kjarasamninga.
Álagningarprósenta útsvara
lækkar úr 11% í 10,4%. Einn-
ig var samþykkt að lækka
gjaldskrá hitaveitunnar um
7% og gjaldskrá rafveitunnar
lækkar um 10%. Þessar lækk-
anir voru samþykktar á auka-
fundi bæjarstjórnar á mið-
vikudaginn. IM
Stjórn KSÞ skrifaði fyrir
skömmu stjórn SÍS bréf um mál-
efni KSÞ. Stjórn SÍS vísaði bréf-
inu til framkvæmdastjórnar og
lögfræðings síns. Kjartan P.
Kjartansson hjá SÍS, sem er
tengiliður við kaupfélögin sagði
að ekkert væri að frétta af mál-
inu.
Er Tryggvi var spurður hvort
búast mætti við því að þeir félags-
menn í KSÞ sem ættu innistæður
hjá félaginu töpuðu þeim, svarði
hann: „Horfurnar eru ekki góðar
og sá möguleiki er fyrir hendi að
menn tapi sínum innistæðum.
Okkur þykir þetta mjög ískyggi-
legt, ekki bara fyrir þá sem eiga
hlut að máli hér hjá okkur, held-
ur vitum við að kaupfélög eiga
víða í erfiðleikum og þá verða
félagsmenn fljótir að taka við sér
ef þeir vita að hér hafi menn tap-
að eigum sínum og helst fyrir það
að treysta kaupfélagi," sagði
Tryggvi.
Upphæðir þær sem félagsmenn
eiga inni hjá KSþ eru misháar,
eða frá nokkrum þúsundum og
upp í rúma 1 milljón. Ekki kvað
Tryggvi félagsmenn hafa gengið
hart eftir innistæðum sínum, þó
væri það einstaklingsbundið.
„Þeir sem eiga mest inni virðast
taka þessu með mestri þolinmæði
og menn sýna þessu mikinn
skilning. Mér finnst að félags-
menn taki þessu með ótrúlegri
stillingu. Ég held að menn vilji
ekki trúa því að það sé svo mikið
háskaspil að treysta kaupfélagi
fyrir eigum sínum. Auðvitað
vonar maður að það komi ekki til
að menn tapi sínu fé, en tel hættu
á því,“ sagði Tryggvi Stefánsson.
gej-
Raósmíðaskip á Blönduós?
- Allar líkur benda til að Blönduós fái eitt raðsmíðaskipið og Kópasker annað
Ávísana-
heftin hækka
um 40%
Nýlega hækkuðu ávísanahefti í
Búnaðarbankanum, Iðnaðar-
bankanum og Landsbankanum
í verði og var hækkunin á bil-
iriu 22-40%.
25-blaða ávísanahefti í Búnað-
arbanka og Iðnaðarbanka kostar
nú 140 krónur en kostaði áður
100 krónur. Hækkunin er því
40% og kostar hvert eyðublað
5,60 krónur.
í Landsbankanum hækkaði
verð á hefti úr 95 krónum í 110
krónur. Hjá Sparisjóði Glæsibæj-
arhrepps kostar heftið einnig 110
krónur en í Alþýðubankanum
100 krónur. Þykir mörgum und-
arlegt að sama verð skuli ekki
vera alls staðar. BB.
„Það er búið að skoða tilboðin
í skipin og erum við nú að taka
upp viðræður við þá aðila sem
buðu hæst,“ sagði Sigurður
Ringsted yfírverkfræðingur
Slippstöðvarinnar á Akureyri.
Skipin sem um er rætt eru 2
raðsmíðaskip sem Slippstöðin
er að smíða.
Nú er verið að ræða við hæst-
bjóðendur. Aðilar á Kópaskeri
buðu hæst í bæði skipin. Boð
þeirra er 180,6 milljónir króna í
hvort skip. Næsta tilboð er frá
Særúnu h/f á Blönduósi og er það
upp á 173,4 milljónir í hvort skip.
Þriðja hæsta tilboðið er frá aðil-
um á Hornafirði og hljóðar það
upp á 172,5 milljónir í hvort skip.
Vilja Hornfirðingar bæði skipin.
Ef aðeins annað þeirra fæst bjóða
þeir lægra.
„Það sem við erum fyrst og
fremst að gera í þessum samn-
ingaviðræðum er að kanna
greiðslugetu tilboðsaðila,“ sagði
Sigurður. Ef samið verður fljót-
lega um sölu skipanna eiga þau
að afhendast í september á þessu
ári.
Það virðist nokkuð ljóst, að
eitt af þeim fjórum raðsmíða-
skipum sem auglýst voru fer til
Blönduóss. Blöndósingar áttu
hæsta tilboðið í skipið hjá
Stálvík, næsthæstu boðin í bæði
skipin hjá Slippstöðinni og
fimmta hæsta tilboðið í skipið á
Akranesi. Það eru hluthafar í
Særúnu hf. og Blönduóshreppur,
sem standa að tilboðunum. Fyrir-
hugað er að stofna nýtt hlutafélag
um rekstur skipsins, sem almenn-
ingi verður gefinn kostur á að
taka þátt í. Stofnfundur hins nýja
hlutafélags verður að öllum lík-
indum haldinn í næstu viku. Dag-
ur hefur heyrt, að hlutafé sé þeg-
ar orðið um 17 m.kr. og ætlunin
sé að það verði a.m.k. 20 m.kr.
Blöndósingar fá því væntan-
lega eitt skip og að líkindum fer
annað skipið í Slippstöðinni á
Kópasker. En það getur ýmislegt
átt eftir að gerast áður en gengið
verður frá þessum málum, því
margir sækja það fast að eignast
þessi skip. Þeirra á meðal má
nefna Þórshafnarmenn, nýja
útgerðarfélagið á Svalbarðs-
strönd og K. Jónsson á Akureyri,
en Atvinnumálanefnd Akureyrar
styður þá síðastnefndu dyggilega.
Og það var ríkisábyrgðarsjóður
sem gekk í ábyrgð fyrir smíði
þessara skipa á sínum tíma. Skip-
in verða því ekki seld nema með
samþykki sjóðsstjórnar, en yfir-
stjórn sjóðsins er pólitísk. Það
má því búast við pólitískum
„þrýstingi" í málinu. géj/GS.
Númer eitt er að
hafa góðan fisk
- segir Pétur Bjarnason, fisksali á Akureyri