Dagur - 18.03.1986, Síða 2

Dagur - 18.03.1986, Síða 2
2 - DAGUR - 18. mars 1986 _viðtal dagsins. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Ueiðarí. Stjómarsamstarfiö Á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins, sem haldinn var um helgina, kom stjórnar- samstarfið m.a. til umræðu. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra fjallaði sér- staklega um það í ræðu sinni og hvatti menn til að ganga út frá því að upp úr gæti slitnað hvenær sem væri, þótt hann gerði ráð fyrir því á þessari stundu, að stjórnar- samstarfið entist út kjörtímabilið. í ræðu sinni sagði Steingrímur m.a.: „Því verður ekki neitað, að framsóknar- menn hafa lengi verið tortryggnir í garð samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Það er ekki undarlegt þegar þess er gætt, að þess- ir tveir flokkar hafa verið höfuðandstæð- ingar í íslenskum stjórnmálum í áratugi. Sumt af slíkri gagnrýni á eflaust rétt á sér en annað er á litlum rökum reist. Ég nefni sem dæmi þá fullyrðingu flokksmanna, að sjálfstæðismenn hafi óeðlilega mikil áhrif í stjórnarsamstarfinu. Þetta er áróður, sem málgögn Sjálfstæðisflokksins hamra stöð- ugt á og virðist ná inn í raðir framsóknar- manna, þótt alrangur sé. í samsteypu- stjórn byggist samstarfið á samkomulagi í öllum meiriháttar málum. í málaflokkum einstaka ráðherra, ráða sjónarmið hans og flokks hans mestu, þótt samstarfsflokkur- inn geti haft umtalsverð áhrif. í þeim málaflokkum, sem við framsókn- armenn förum með, hefur mikið verið unn- ið og að sjálfsögðu ekkert framkvæmt nema í samræmi við stefnu Framsóknar- flokksins." Forsætisráðherra benti á að það hefði komið í hlut Framsóknarflokksins að marka stefnuna í ýmsum veigameiri málum og nefndi hann sem dæmi Framleiðsluráðs- lögin í landbúnaðinum, kvótakerfið í sjávarútveginum svo og húsnæðismálin. Framsóknarflokkurinn hljóp ekki frá þeirri ábyrgð heldur tók á þessum málum af mikilli festu og skynsemi. Sjálfstæðisflokk- urinn fjallaði að sjálfsögðu um þessi mál með framsóknarmönnum, en frumkvæðið, forystan og ábyrgðin er í höndum ráðherra Framsóknarflokksins. Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að það er fjarstæða að halda því fram að ekki hafi nægilega kveðið að Framsóknarflokkn- um í þessu stjórnarsamstarfi. BB. Ómar Friðriksson: „Djass höfðar til fleiri en margir halda“ Félagið JAZZPING var nýlega stofnað á Húsavík og í síðustu viku hélt það sitt fyrsta djasskvöld. Það var ánægjulegt að líta inn til félaganna sem sátu við kertaljós og hlustuðu í leiðslu á valið efni. Formaður félagsins er Sigurður Friðriksson, hann sagði að Ómar bróðir sinn væri áróðursmeistari og vísaði beiðni um viðtal til hans. - Ómar ég er að forvitnast um nýja félagið ykkar og Sigurður vís- ar á þig sem áróðursmeistara. „Formlega heitir það ritari, en hans störf eru m.a. að kynna starfsemina. Við höfum kynnt félagið vel í bænum bæði hnippt í menn á götum og kynnt okkur í fjölmiðlum og höfum ekki þurft að leggja okkur mikið fram því mikill áhugi er á þessu og fjöl- miðlar hafa sýnt frumkvæði.“ - Hvenær var félagið stofnað? „Það var formlega stofnað 11. febrúar, þá vorum við nokkrir búnir að hittast og ræða málin. Kynningarfundur var auglýstur og þar ættu sautján manns, undirtektirnar voru svona jákvæðar strax. Við höfðum rætt við kollega okkar á Akureyri og í Reykjavík og lögðum fram hug- myndir sem hægt var að vinna úr, sögðum frá hvernig aðrir klúbbar störfuðu og svo framvegis. Menn sögðu hvað þeir vildu og þetta er allt mjög lýðræðislegt hjá okkur.“ - Þið eruð búnir að velja ykk- ur allsérstætt nafn. „Já, á þessum fundi var kjörin undirbúningsnefnd til stofnunar formlegs klúbbs, við vorum fjórir í þessari nefnd og gerðum tillögu um lög og uppástungu að nafni og boðuðum síðan til fundar sem haldinn var 24. febrúar. Þar var þetta allt samþykkt, lögin og nafnið sem upphaflega kom frá Steingrími B. öunnarssyni og er JAZZÞING. Það er skrifað með stórum stöfum og z-um og j-i ekki dj. Við viljum halda okkur við alþjóðlega heitið. í þessu nafni felst einrtig að við viljum ekki rígskorða okkur við Húsvík- inga heldur reyna að fá menn úr sveitunum með og ÞING er dreg- ið af Þingeyjarsýsla. Á stofnfund- inum skráðu sig 26 í félagið, það eru allt bæjarbúar. Síðan hafa bæst við þrír og þar af er einn úr sveit.“ - Er minni áhugi fyrir þessu í sveitunum? „Við höfum heyrt í mörgum sem hafa áhuga, en ef til vill setja þeir fyrir sig vegalengdina til Húsavíkur. Þetta var gott start og við erum feikilega ánægðir, að fá 29 manns strax í byrjun. Það má geta þess að þegar stærsti djassklúbbur íslands var stofnaður, það er Jazzvakning í Reykjavík, þá voru stofnfélagar 38, af öllu Reykja- víkursvæðinu svo að við erum nokkuð hressir.“ - Það var gaman að líta inn á djasskvöldið ykkar, ætlið þið að hafa svona kvöld reglulega? „Við ætlum að hafa svokölluð sveiflukvöld og það verður rauði þráðurinn í starfseminni fyrst um sinn. Þá verður fyrst og fremst spilaðar djassplötur og rætt sam- an um djass. Á þessu kvöldi feng- um við þrjá til að sjá um kynning- una og spila plötur. Að vísu mættu ekki nema 14 á þetta fyrsta kvöld en það var virkilega gaman. Við fengum vítamínsprautu strax í upphafi þegar við töluðum við Vernhart Linnet í Reykjavík og hann sagði okkur að til lands- ins væri að koma heimsfrægt djasstríó Eddie Harris og félagar. Þeir spiluðu á Akureyri á sunnu- dagskvöld og þangað fórum við hópferð og skemmtum okkur konunglega.“ - Það er heiimikið iíf í félags- skapnum, er fleira á döfinni? „Nokkrir hafa áhuga á að fara að spila djass og við hvetjum menn til að taka sig saman og reyna að æfa sig upp og mig grun- ar að sumir séu þegar farnir að pússa blásturshljóðfærin sín. Það er framtíðardraumur að reyna að fa hingað leiðbeinendur, við höf- um áhuga á að efla tónmenntina. Svo ætlum við að fá djassleikara til okkar. Við erum ekki búnir að ganga frá neinu ennþá, en höfum fullan hug á að fá einhverja til okkar um páskana. Það gætu orðið hljómleikar og við höfum talað um laugardag fyrir páska en það er ekki alveg komið á hreint.“ - Hvað er svona skemmtilegt við djass? „Það er oft spurt að því, en það er ólýsanlegt með orðum, ég held að menn verði að finna það. Ótal fræðingar eru búnir að reyna að skilgreina djassinn og mönnum finnst að þeir hafi aldrei fengið nein svör. Þetta er músík sem er bæði skapandi og í takt við hið venjulega líf fólks, veitir mikla gleðu og ánægju og er skapandi um leið. Þetta er ekkert flaustur heldur virkilega góð músík og miklu víð- feðmari en margir virðast halda. Það eru margar tegundir þó að undirstaðan sé alltaf sú sama. í dag kemur hún fram í svo mörg- um músíkformum, rokkinu, þjóðlagatónlistinni. Sumir eru farnir að djassa í klassík, þessi lifandi músík getur átt rætur í djassinum. Það er hægt að njóta hennar á svo margan hátt, hvort sem er í uppstemmdri stemmn- ingu í höll eða í litlum nætur- klúbbi. Menn geta setið grafal- varlegir og hlustað nákvæmlega eða dansað, líklega er engin mús- ík betri dansmúsík en djass. Það getur vel verið að við höldum einhvern tíma dansiball með djassmúsík hér.“ - Er JAZZÞING öllum opio/ „Já, það er öllum velkomið að koma og hlusta og vonandi verð- ur það til að fólk fer að lesa sér til og hlusta á plötur. Við bindum okkur ekki við neina hámennt- aða sérfræðinga í þessu, heldur erum við fyrst og fremst að njóta þessarar tónlistar. Allir geta mætt sem eru opnir fyrir því að vera með og njóta stemmningar- innar. Nú er vídeóbyltingin gengin í garð og djassspólur streyma á markaðinn, þær eru aðeins farnar að berast til Reykjavíkur, við höfum hugsað okkur að horfa á tónleika á vídeó sum kvöldin - möguleikarnir eru margir.“ - Eitthvað sérstakt að lokum Ómar? „Ég vil hvetja sem flesta til að sýna þessu áhuga, þetta höfðar til fleiri en margir hafa haldið og getur gefið mönnum margt og mikið. í vor hlökkum við til að fara á listahátíðina, því þá koma til landsins Herbie Hanckoc og Dave Brubéc. Það er mikið að gerast í djassinum." - IM Ómar Friðriksson. Mynd: - KGA.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.