Dagur - 18.03.1986, Síða 9

Dagur - 18.03.1986, Síða 9
18. mars 1986 - DAGUR - 9 fþróttir- Umsjón: Kristján Kristjánsson íslandsmót yngri flokka í handbolta: Þorsarar i urslit r í öllum flokkum Þriðja og síðasta umferð á Islandsmóti yngri flokka í handbolta, Norðurlandsriðli fór fram um helgina. Þegar er búið að segja frá leik Þórs og KA í 3. flokki sem fram fór á sunnudag en á laugardag fóru fram eftirtaldir leikir. 4. flokkur karla: KA-Þór í leikjum þessara liða í vetur hafa Þórsarar ávalt borið hærri hlut. En KA-mönnum fannst vera kominn tími til að breyta því og sigruðu örugglega 15:11. KA-menn hófu leikinn af mikl- um krafti og áður en Þórsarar náðu að snúa sér við höfðu KA- menn gert 4 mörk. Þórsarar náðu síðan að hanga í KA-mönnum en aldrei að ógna forystu þeirra og úrslit leiksins 15:11 eins og áður sagði. Þrátt fyrir tapið eru Þórsarar komnir í úrslit í 4. flokki þar sem þeir unnu tvo af þremur leikjum sínum gegn KA og alla leikina gegn Völsungi. Mörk KA: Halldór Kristinsson 6, Stefán Hagalín 5 og Arnar Dagsson 4. Mörk Þórs: Þórir Áskelsson 3, Rúnar Sigtryggsson 2, Atli Rúrí- arsson 2 og þeir Rósant Torfa- son, Hjalti Hjaltason, Gauti Hauksson og Áxel Vatnsdal 1 mark hver. 4. flokkur karla: KA-Völsungur KA-menn urðu að spila strax aftur í 4. flokki þar sem þjálfari KA-manna gleymdi að boða 5. flokkinn til leiks. Leikur KA og Völsungs var jafn í fyrri hálfleik en KA-menn voru þó alltaf á undan að skora. í hálfleik var staðan 7:5 KA í vil. Völsungum gekk lítið sem ekk- ert að finna leiðina í mark KA- manna í síðari hálfleik. Þeir mis- notuðu m.a. fjögur vítaköst í leiknum, tvö varði markvörður KA og önnur tvö lentu í stöng. KA-menn léku hins vegar á alls oddi og röðuðu mörkum á Völs- unga. Þegar flautað var til leiks- loka höfðu KA-menn gert 18 mörk gegn 8 mörkum Völsunga. Mörk KA: Halldór Kristinsson 7, Stefán Hagalín 4, Arnar Dags- son 3, Jón Egill Gíslason 2, Birg- ir Magnússon 1 og Sævar Hreið- arsson 1. Mörk Völsungs: Tryggvi Gunnarsson 3, Jónas Emilsson 2 og þeir Þórir Örn Gunnarsson, Vilhjálmur Sigmundsson og Ásmundur Arnarsson 1 mark hver. 5. flokkur karla: KA-Þór Þá var 5. flokkur KA mættur og leikur þeirra við Þór gat hafist. Þórsarar sem voru orðnir æstir af biðinni hófu leikinn af miklum krafti og skoruðu 4 fyrstu mörkin. Síðan fóru KA-menn að láta vita af sér og skoruðu næstu 2 mörk. í hálfleik var staðan 7:2 fyrir Þór. í síðari hálfleik bættu Þórsarar enn í og juku muninn verulega og í leikslok var staðan orðin 16:4. Mörk Þórs: Bjarmi Guðlaugs- son 9, Hákon Örvarsson 3, Árni Páll Jóhannsson 2, Guðmundur Benediktsson 1 og Guðlaugur Halldórsson 1. Mörk KA: Sigurður Ólason 1, Gauti Einarsson 1, Guðmundur Guðmundsson 1 og ívar Bjar- klind 1. 3. flokkur kvenna: Þór-Völsungur Þessi leikur var nokkuð jafn og spennandi. Völsungsstelpurnar höfðu yfir í fyrri hálfleik og leiddu með 1 marki 6:5 í hálfleik. í síðari hálfleik snérist dæmið við og Þórsstelpurnar tóku leikinn í sínar hendur og sigruðu með 12 mörkum gegn 8. Mörk Þórs gerðu, Hulda Sig- urðardóttir 7, Ellen Óskarsdóttir 3 og Sveindís Benediktsdóttir 2. Mörk Völsungs gerðu Dröfn Heimisdóttir 3, Karólína Skarp- héðinsdóttir 2, Erna Björnsdóttir 2 og Þórhildur Valsdóttir 1. 4. flokkur karla: Þór-Völsungur í þessum leik voru yfirburðir Þórs miklir og leikmenn Völs- ungs áttu aldrei möguleika. í hálfleik var staðan 10:4. í síðari hálfleik héldu Þórsarar upptekn- um hætti og sigruðu örugglega 20:9. Þrátt fyrir tap Völsungs er greinilegúr munur á liðinu frá því þeir voru hér síðast og er greini- legt að Arnar Guðlaugsson þjálf- ari þeirra er að gera góða hluti fyrir austan. Mörk Þórs: Atli Rúnarsson 5, Þórir Áskelsson 5, Axel Vatnsdal 4, Rúnar Sigtryggsson 3, Rósant Torfason 2 og Hjalti Hjaltason 1. Mörk Völsungs: Tryggvi Guðmundsson 5, Jón Höskulds- son 2, Kjartan Jónsson 1 og Jón- as Emilsson 1. Þórsarar eru því komnir í úrslit í öllum yngri flokkunum og er það annað árið í röð sem þeim tekst það. Það hlítur að leiða til þess að HSÍ sendi að minnsta kosti einn flokk norður til Akur- eyrar og láti úrslitakeppni þess flokks fara fram hér. Það hefur að vísu ekki gengið altof vel hing- að til að fá ráðamenn hjá HSÍ til þess að sjá hversu mikilvægt það er fyrir félögin úti á landi að fá þannig keppnir út á land. Er það bæði vegna kostnaðar og svo að úrslitakeppnir á íslandsmóti auka áhorfendasókn og einnig áhuga á íþróttinni á þeim stað sem hún fer fram. KA-menn spiluðu fyrir sunnan: Unnu Fram en töpuðu fyrir UBK Knattspyrnulið KA fór suður um helgina og lék tvo æfinga- leiki. Á laugardag gegn Fram á gervigrasinu í Laugardal og á sunnudag gegn UBK á Vall- argerðisvelli í Kópavogi. KA-menn unnu Framara með 2 mörkum gegn 1 og það voru þeir Tryggvi Gunnarsson sem skoraði fyrra mark KA og Þor- yaldur Órlygsson það seinna. Mark Fram skoraði Arnljótur Davíðsson. KA-mönnum gekk ekki eins vel gegn UBK og tapaðist sá leik- ur 4:2. Leikið var við erfiðar aðstæður í Kópavoginum og hefði sigurinn getað lent hvorum megin sem var. Mörk KA í þess- um leik skoruðu þeir Steingrímur Birgisson með vinstri fæti og Þor- valdur Örlygsson úr vítaspyrnu. Fótboltinn farinn að rúlla: Reynir sigraði Þór Þá er fótboltinn farinn að rúlla hér norðanlands. Þór og Reyn- ir Árskógsströnd léku æfinga- leik á Sanavellinum á sunnu- dag. Leiknum lauk með sigri Reynis sem skoraði 3 mörk gegn 2 mörkum Þórsara. Aðstæður til knattspyrnuleiks voru ekki upp á það besta en töluvert hafði snjóað aðfaranótt sunnudags og var um 10 cm snjólag á vellinum. Það bitnaði þó jafnt á báðum liðum. Þórsarar byrjuðu af krafti og skoruðu mark snemma í leikn- um. Það var Bjarni Sveinbjörns- son sem það gerði úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á hon- um inni í teig. Þórsarar héldu áfram að sækja en misnotuöu hvert færið af öðru. En það var svo Júlíus Guðmundsson sem jafnaði fyrir Reyni um miðjan fyrri hálfleik. Skömmu fyrir leikhlé skoraði einn varnarmanna Reynis sjálfs- mark með glæsilegum skalla. Þórsarar höfðu því yfir 2:1 í hálf- leik. í síðari hálfleik tókst Júlíusi Guðmundssyni að bæta við 2 mörkum og skoraði hann annað þeirra úr vítaspyrnu. Hafði Júlíusi þar með tekist að skora þrennu í leiknum. Það voru því Reynismenn sem fögnuðu sigri í leikslok. KA-menn snéru dæminu við í 4. flokki en það dugði ekki til Þór fer í úrslit. Þórsarar hafa unnið KA-menn í öllum leikjunum í 5. flokki í vetur. Myndir: KK Leikmenn Völsungs hafa tekið miklum framförum í vetur. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Ingunn og Ami Þór urðu jöfn Ingunn Jónsdóttir og Árni Þór Freysteinsson urðu jöfn um helgina bæði með 7 leiki rétta. Þau verða því að reyna með sér að nýju. Ing- unn segir að það sé helvíti hart að geta ekki unnið eitt stykki KA- mann og ætlar að bæta úr því um næstu helgi. Árni Þór sagðist hafa verið að gefa Ingunni eitt tækifæri en ætlaði að rúlla henni upp um næstu helgi. Við sjáum til. hér er spá þeirra. Ingunn Arni Þór Aston Villa-Birmingham Ipswich-W.B.A. Luton-Everton Man.United-Man.City Newcastle-T ottenham Q.P.R.-Watford Southampton-Chelsea West Ham-Sheff.Wed. Fulham-C.Palace Sheff.United-Norwich Stoke-Portsmouth Wimbledon-BIackburn Aston Villa-Birmingham Ipswich-W.B.A. Luton-Everton Man.United-Man.City Newcastle-Tottenham Q.P.R.-Watford Southampton-Chelsea West Ham-Sheff.Wed. Fulham-C.Palace Sheff.United-Norwich Stoke-Portsmouth Wintbledon-BIackburn Athugið! Fólk sem spilar i getraunum er minnt á að skila seðlunum inn fyrir hádegi á flmmtudögum, svo enginn verði nú af vinningi. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.