Dagur - 18.03.1986, Page 11
18. mars 1986 - DAGUR - 11
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áfengismál:
Vafasamt að atkvæða-
greiðsla fari fram við
óeðlilegar aðstæður
- segir í erindi Áfengisvarnarnefndar
Degi hefur borist erindi frá
Áfengisvarnarráði þar sem
fjallað er um þjóðaratkvæða-
greiðslu um áfengismál m.a.
Fer erindið hér á eftir:
1. Aðeins tvisvar hefur verið
gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu
um stefnu í áfengismálum á ís-
landi, 1908 um hvort koma skyldi
á banni við innflutningi og sölu
áfengis og 1933 um hvort afnema
Fjórði formlegi viðræðufundur
samninganefndar iðnaðarráð-
herra og RTZ Metals, Ltd. um
byggingu og rekstur kísilmálm-
verksmiðju á Reyðarfirði var
haldinn í Reykjavík 10. og 11.
þ.m. Þá var aðalforstjóri RTZ
Metals, Ltd. á ferð hér á landi
í boði iðnaðarráðherra 19.-21.
febrúar og kynnti sér aðstæður
Kratar á Sigló:
Kristján
í efeta
sætinu
Um 200 manns tóku þátt í
prófkjöri Alþýðuflokksins á
Siglufirði sem haldið var um
helgina.
Kristján Möller hlaut alls 150
atkvæði í 1. sæti og 201 atkvæði
alls. Regína Guðlaugsdóttir hlaut
114 atkvæði í 2. sæti og 196
atkvæði alls. Ólöf Kristjánsdóttir
hlaut 145 atkvæði í 3. sæti listans
og 189 atkvæði alls og Jón Dýr-
fjörð hlaut alls 189 atkvæði í 4.
sæti listans.
skyldi bannið. Aðrar ákvarðanir
um áfengismál hefur Alþingi tek-
ið án undangenginnar þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Mikilvægar breytingar hafa
verið gerðar á þann veg, svo sem
undanþágan frá bannlögunum
1922, en hún fól í sér heimild til
innflutnings veikra vína, og sam-
þykkt nýrra áfengislaga 1954 en
þá var rekstur vínveitingahúsa
hér á landi.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að ljúka mætti tilteknum áfanga í
samningsgerðinni í þessum mán-
uði þannig að leggja mætti fram á
Alþingi því er nú situr frumvarp
til laga um breytingu á lögum nr.
70/1982, um kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði. Á viðræð-
ufundunum í Reykjavík 10. og
11. mars var ákveðið að hverfa
frá þessum áformum og stefna að
því að ljúka samningagerðinni í
heild næsta haust, þannig að
undirritun allra samninga RTZ
Metals og íslenska ríkisins, svo
og fylgisamninga, geti farið fram
undir lok septembermánaðar
1986, takist samningar milli
aðila. Með því móti mætti leggja
málið í heild fyrir Alþingi strax í
upphafi þings næsta haust.
í framhaldi verður síðan stefnt
að því að semja um einstaka
verkþætti við byggingu verk-
smiðjunnar fyrir 1. janúar 1987
og að byggingarframkvæmdir
hefjist vorið 1987. Er þá við það
miðað að framleiðsla frá fyrsta
ofni verksmiðjunnar (árleg fram-
leiðslugeta 14.400 tonn af málmi)
hefjist á árinu 1989 og að síðari
ofninn (árleg framleiðslugeta
14.400 tonn af málmi) verði tek-
inn í notkun ári síðar, þ.e. 1990.
heimilaður.
Þjóðaratkvæðagreiðsla hefur
því einungis farið fram um
grundvallaratriðin bann eða ekki
bann en aldrei um einstaka þætti
áfengislaga.
2. Þá er í hæsta máta vafasamt
að þjóðaratkvæðagreiðsla um
heimildir til innflutnings, brugg-
unar og sölu áfengs öls fari fram
við þær óeðlilegu aðstæður sem
nú eru í þessum málum þar eð
vitað er að vafasamir dreifingar-
hættir á áfengu öli, jafnvel
lögbrot, eru og munu notuð sem
höfuðröksemd fyrir því að rétt sé
að fella úr gildi hömlur þær sem
eru í lögum um dreifingu áfengs
öls hérlendis. - Ef til þjóðarat-
kvæðis á að efna þarf að sjálf-
sögðu fyrst að koma á eðlilegu
ástandi, þ.e. framfylgja gildandi
lögum í þessu efni sem öðrum.
3. Einn forkólfa Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar, mað-
ur sem hefur farið með áfeng-
isvarnarmál, lætur svo um mælt að
það yrði ekki einungis til tjóns
fyrir heilbrigði íslendinga, ef
áfengu öli yrði bætt í það úrval
áfengistegunda sem fyrir er,
heldur og meiri háttar áfall fyrir
þá stefnu Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar sem mörkuð er í
kjörorðinu: Heilbrigði öllum til
handa um aldamót, - en einn
þáttur þeirrar stefnu er að
minnka áfengisneyslu hverrar
þjóðar um a.m.k. 25% til alda-
móta. íslendingar yrðu þá fyrsta
þjóðin sem gengi í berhögg við
þessa stefnu.
4. Að lokum má minna á það
álit Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar áð óeðlilegt sé að
ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu
um einstaka þætti áfengislöggjaf-
ar, þar vegi heilbrigðissjónarmið
svo þungt að meiri nauðsyn sé að
mynda samstöðu en efna til
sundrungar. Dæmi þessarar
stefnu sést glöggt í Bandaríkjun-
um þar sem alríkisþingið hefur
forgöngu um jafnveigamikla
breytingu í áfengismálum og að
hækka lögaldur til áfengiskaupa í
21 ár, í sumum ríkjum jafnvel úr
18 árum, svo og í aðgerðum
Sovétstjórnarinnar sem ganga í
sömu átt.
Kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði:
Samningsgerðinni
verði lokiö
næsta haust
Kaupþing hf:
Bókasala í febrúar
Fyrirtækið KAUPÞING hf.
hefur nú framkvæmt aðra
mánaðarlegu könnun sína á
sölu bóka fyrir Félag íslenskra
bókaútgefenda. Sams konar
könnun var gerð vegna sölu í
janúar, en í desember s.I. voru
kannanir framkvæmdar viku-
lega.
Úrtakið í könnuninni voru 18
verslanir af 106 úr skrá útgefenda
yfir söluaðila sína og áætlar
KAUPÞING að það nái yfir um
það bil 35-40% af heildarmark-
aðnum. Við val úrtaksins var
tekið tillit til búsetudreifingar i
landinu.
Verslunum er hverju sinni
sendur sá heildarlisti sem kemur
út úr næstu könnun á undan. Á
þeim lista eru að jafnaði á bilinu
100-200 titlar en verslanir bæta
við þeim titlum setn selst hafa til-
tölulega vel, miðað við aðra titla,
og ekki eru fyrir á honum.
Eins og i fyrri könnunum var
sala einstakra titla mjög mis-
dreifð eftir verslunum án þess að
það megi skýra með stærðarmun
þeirra eingöngu. Því ber að var-
ast að draga of ákveðnar ályktan-
ir af niðurstöðunum, þrátt fyrir
það hversu stórt úrtakið var.
Sú breyting er nú gerð á fram-
setningu niðurstaðnanna að efn-
isflokkum þeim sem titlum hefur
veriö skipt í er fækkað úr 6 í 3 og
er birtur listi yfir þá 5 titla scm
söluhæstir reynast í hverjum
flokki.
Barna- og unglingabækur:
Lína langsokkur, Astrid
Lindgren. Þú átt gott Einar
Áskell, Gunilla Bergström. Ég
vil lfka fara í skóla, Astrid
Lindgren. Klukkubókin, Vil-
bergur Júlíusson. Kalli og Kata í
fjölleikahúsi, Margaret Rettich.
Skáldsögur:
Skilningstréð, Sigurður A.
Magnússon. Á elleftu stundu,
Denisc Robins. Gulleyjan, Einar
Kárason. Stúlkan á bláa hjólinu,
Régine Deforges. Njósnir á haf-
inu, Alistair MacLean.
Aörar bækur:
Á ystu nöf, Shirley MacLaine.
Samheita orðabókin, Útg.
Háskóli íslands. íslenskir elsk-
hugar, Jóhanna Sveinsdóttir.
íslenska lyfjabókin, Helgi Krist-
bjarnarson, Magnús Jóhannsson.
Bessi Gíslason. Af mönnum ertu
kominn, Einar Bragi.
Aðalfundur Grávöru hf
verður haldinn í kaffistofu
fimmtud. 20. mars kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaldbaks, Grenivík,
Stjórnin.
A|n IDCrVDADRZTD
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Miðvikudaginn 19. mars 1986 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Valgerður H. Bjarnadóttir og
Freyr Ófeigsson til viðtals í fundarstofu bæjarráðs
í Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarstjóri.
h Léttisfélagar og
AKURCVm/
annað hestaáhugafólk!
Gunnar Bjarnason f.v. hrossaræktarráðunautur
lætur gamminn geysa í Dynheimum fimmtudag-
inn 20. mars kl. 20.30.
Sýnd verður m.a. kvikmynd af landsmóti hesta-
manna á Þveráreyrum 1954.
Allir velkomnir.
Fræðslunefnd Léttis.
Alliance Francaise
Aðalfundur fransk-íslenska félagsins á Akureyri
verður haldinn í Zontahúsinu, Aðalstræti 54,
mánud. 24. mars kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Starfsmenn
Tvo reglusama starfsmenn vantar sem fyrst við
hreinlegan iðnað, bílpróf nauðsynlegt.
Þeir sem áhuga hafa leggi inn nafn, heimilisfang
og símanúmer á afgr. Dags fyrir 21. mars nk.
merkt: „Reyklaus staður“.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Austurlandi
Starfsmaður
Svæðisstjórn óskar eftir að ráða starfsmann í fullt
starf. Starfið felst í að setja á stofn og sjá um leik-
fangasafn og annast ráðgjafarþjónustu við fatl-
aða og aðstandendur þeirra. Einnig að veita
stofnunum á vegum svæðisstjórnar faglega
ráðgjöf.
Þar sem um er að ræða nýtt starf verður viðkom-
andi að geta unnið sjálfstætt.
Krafist er félagslegrar- eða uppeldislegrar
menntunar.
Launakjör eru skv. samningum BSRB og ríkisins.
Skriflegar umsóknir skulu berast Svæðisstjórn
Austurlands, Vonarlandi, 700 Egilsstöðum, fyrjr
15. apríl nk., þar sem tilgreint er um menntun og
fyrri störf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir fram-
kvæmdastjóri svæðisstjórnar í síma 97-1833.