Dagur - 15.05.1986, Page 8
8 - DAGUR - 15. maí 1986
ÞJOflLÍF
Blað félagshyggjufólks
Fœst á blaðsölustöðum um allt
land
Áskriftarsími, 91-621880
Meðal efniS:
Sœnski kratisminn og velferðarríkið
Sjálfstœðisflokkurinn og Iðja
Glasabörn og tœknifrjóvganir
Grandi og verkakonurnar
Örn Ólafsson skrifar um íslenskar unglingabcekur
Hugo Þórisson
skrifar um kennsluhcetti í íslenskum skólum
Sigurður Steinþórsson skrifar um Kröflucevintýrið
Picasso
Kynferðismál
Kvikmyndir
HelgiHjörvar
Ární Sigurjónsson
Skák á Akureyri:
Bogi og Hilmar
skólameistarar
Skólaskákmóti Akureyrar 1986
er nýlokið, en keppendur eru á
grunnskólaaldri og keppt var í
tveim flokkum, í eldri flokki
kepptu nemendur í 7.-9. bekk
en í yngri flokki nemendur í
1 .-6. bekk. Keppnin hefur far-
ið fram í skólunum fyrr í vetur,
og sigurvegari í hverjum skóla
vann sér rétt í úrslitakeppnina.
Skólaskákmeistarar Akureyrar
1986 urðu: Hilmar Ólafsson,
Lundarskóla í yngri flokki og
Bogi Pálsson, Gagnfræðaskóla í
eldri flokki. Peir taka þátt í kjör-
dæmismótinu, sem fer fram á
Húsavík nk. laugardag en þar
verður keppt um titilinn „Skóla-
skákmeistari Norðurlands
eystra“.
Hraðskákmót um Einisbikar-
inn var háð í sl. viku, og var
keppnin hörð á milli Gylfa Pór-
hallssonar og Jóns Björgvinsson-
ar, það fór svo að þeir komu jafn-
ir í mark fengu 2VA vinning af
26 mögulegum, þurfti því einvígi
og sigraði Gylfi 21/2 v. gegn IV2 v.,
annars varð röð efstu manna
þessi: Priðji varð Arnar Þor-
steinsson með 19 v., fjórði varð
Ólafur Kristjánsson með 18 v.,
fimmti Sigurjón Sigurbjörnsson
16 v. og sjötti Rúnar Sigurpáls-
son 13ÍÓ v. Þetta er í fjórða sinn
sem Gylfi vinnur titilinn.
Skákfélag Akureyrar verður
með minnsta kosti tvö mót í
hverjum mánuði í sumar. Næstu
mót eru 15 mín. mót á föstudag-
inn 16. maí kl. 20.00 og 10 mín.
mót föstudag 23. maí kl. 20.00,
teflt er í Barnaskóla Akureyrar
og er öllum heimil þátttaka í
þessum mótum. G.Þ.
Þjóðarátak gegn
krabbameini:
27 milljónir
söfnuðust!
Uppgjöri vegna landssöfnunar
Krabbameinsfélags Islands
„Þjóðarátak gegn krabba-
meini“ er nú að mestu lokið.
Heildarupphæð söfnunarfjár
er um 27 milljónir króna, eða
meira en 100 krónur á hvern
íbúa þessa lands.
Safnanir af sama toga fóru
fram á hinum Norðurlöndunum
sömu daga og hér. íslendingar
voru með langhæsta framlag á
hvern íbúa. Svíar koma næstir á
eftir íslendingum með um 65
krónur á hvern íbúa. Hinar þjóð-
irnar eru með enn minna, Finnar
með innan við 50 krónur á íbúa.
Árangur söfnunarinnar fór
fram úr björtustu vonum. Nærri
lætur, að um 1700 manns hafi
tekið þátt í söfnunarstarfinu. JC
hreyfingin og kvenfélög um allt
land lögðu fram mikla og ómet-
anlega vinnu. Við sögu komu
fleiri félög s.s. aðildarfélög
Krabbameinsfélagsins og hundr-
uð einstaklinga, sem gáfu sig
fram til sjálfboðaliðsstarfa.
Krabbameinsfélag íslands vill
nota þetta tækifæri til að koma á
framfæri innilegu þakklæti til
allra þeirra, er lögðu fram krafta
sína. Söfnunarféð verður félag-
inu mikil lyftistöng í því mikla
starfi, sem framundan er og til að
hrinda í framkvæmd margvísleg-
um verkefnum, sem ekki hefur
verið unnt að takast á við sökum
fjárskorts.