Dagur - 29.05.1986, Blaðsíða 5
lesendahornið.
29. maí 1986 - DAGUR - 5
„Lengi getur
vont versnað"
- Um gæsluvöll við Norðurbyggð
Eftir að hafa hlustað á bæjarfull-
trúa okkar Akureyringa í sjón-
varpinu, get ég ekki lengur á mér
setið. Bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins talaði mikið um
aðstöðuleysi barna og skort á
dagheimilum hér í bæ. En hvað
hefur hún og allar þær konur sem
setið hafa í bæjarstjórn sl. kjör-
tímabil gert fyrir yngstu börnin?
Áreiðanlega ekki kynnt sér þá
aðstöðu sem 2ja-5 ára gömul
börn mega búa við á sumum
gæsluvöllum bæjarins.
Á Syðri-Brekkunni milli Norð-
ur-Brekku og Vanabyggðar er
gæsluvöllur þar sem ástandið er
oft þannig, að það væri ekki svín-
um bjóðandi að dvelja þar. Sem
stendur er ekki nema hluti vallar-
ins í notkun, og hefur svo verið
allan sl. vetur, og því allt of lítið
pláss fyrir öll þau börn sem fólk
neyðist til að hafa þar, því að
ekki er í önnur hús að venda.
Ekkert má vera að veðri svo
völlurinn verði ekki eitt forar-
svað dögum saman. Hefi ég
nokkrum sinnum þurft að klæða
sonarson minn úr hverri spjör
eftir veru sína þar, var hann þó
vel brynjaður, að ég hélt, í regn-
fötum og stígvélum.
Og það er ekki hlaupið að því
að komast leiðar sinnar með
smábörnin í þessa dýrð, ó nei
ekki aldeilis, og ekki hættulaust
heldur. Skásti kosturinn fyrir mig
og flesta er að koma að vellinum
frá Norðurbyggð neðarlega, eftir
Nú er nóg komið af þessari of-
stækisfullu nætursölu! Það er
ekki orðið óhætt að fara í Miðbæ-
inn að næturlagi. Þetta gamla geð-
illa hús lendir greinilega í útistöð-
um við gesti og gangandi, sam-
kvæmt forsíðufrétt í Degi þann
vegleysu þar á milli húsa, sem
fyllist oft af snjó sem aldrei er
mokaður, í hálku aldrei borinn á
sandur, og þegar hlánar verður
sama drullusvaðið og á leikvellin-
um. Nú hefur svolítil breyting
orðið á, í stað þess að vaða í
krapi og leðju, sekkur maður nú í
fínan sand upp að ökkla - ja lengi
getur vont versnað.
Ég vil svo að lokum þakka
þeim ágætu fóstrum Ragnheiði
Karlsdóttur og Kristínu mágkonu
hennar fyrir góða pössun á börn-
unum við óviðunandi vinnuskil-
yrði, þær eiga svo sannarlega
betra skilið. - Og hvaða flokk á
svo að kjósa? - Það er spurning-
in.
Virðingarfyllst,
Þórhalla Þorsteinsdóttir,
Víðilundi 2 d, Akureyri.
Svar:
Jón Arason, umsjónarmaður
leikvalla sagði að byrjað væri að
lagfæra gæsluvöllinn við Norður-
byggð og hefðu þær framkvæmd-
ir lítillega hafist síðastliðið haust
og ætti völlurinn að verða kom-
inn í þokkalegt ástand í lok júní.
Sagði Jón að völlurinn yrði girtur
upp á nýtt, búið er að útbúa gras-
hóla og bæta við grasi. Perlumöl
verður sett á völlinn og sagði Jón
að þessi völlur og fleiri yrðu í
áframhaldandi endurbótum, en
eins og er væri ekki fjárveiting í
það.
26. maí síðastliðinn.
Þar segir að maður hafi verið
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri eftir slagsmál við næt-
ursöluna í Geislagötu. Ekki fylgir
fréttinni hvort átti upptökin, hús-
Málefni Glerárþorps hafa mikið
verið til umræðu í kosningabar-
áttunni hér á Akureyri að undan-
förnu. Rætt er um að byggja
þurfi sundlaug við Glerárskóla,
ljúka við Síðuskólann, styrkja
framkvæmdir við Glerárkirkju,
ljúka frágangi opinna svæða í
Þorpinu, m.a. á Þórssvæðinu. og
þannig mætti áfram telja. Máttur
flokkanna virðist mikill í þessari
umræðu og framkvæmdagetan
ótakmörkuð.
Reynslan hefur hins vegar sýnt
ið eða maðurinn. Vafalaust hefur
húsið fengið tiltal frá lögreglunni.
Alla vega verður eitthvað að gera
í málinu. Hinum seka verður að
refsa.
Selma, Snorri, Agnar og Sævar.
að í bæjarstjórn virðist ráða
mestu um framgang einstakra
mála hvort viljafastir einstakling-
ar standa að baki þeim eður ei,
burtséð frá allri flokkspólitík,
enda 90% allra mála afgreidd þar
samhljóða. Það er athyglisvert, í
umræðunni um Glerárþorpið, að
á aðeins einum lista er frambjóð-
andi úr Þorpinu í sæti sem telja
má að skili fulltrúa í bæjarstjórn.
Hér er átt við Ásgeir Árngríms-
son, 3. mann á B-lista. Á öðrum
framboðslistum er okkur íbúum
Glerárhverfis ekki boðið upp á
Þorpsbúa sem væntanlegan bæj-
arfulltrúa.
I mínum huga verður eitt af
stærstu verkefnum verðandi
bæjarstjórnar að sinna þörfum
Glerárhverfisins og sem Þórsara
og íbúa í hverfinu er mér valið
auðvelt þegar litið er á framboðs-
listana. Ég ætla að veðja á Ásgeir
Arngrímsson á laugardaginn
kemur og fylgjast, á komandi
kjörtímabili, grannt með þróun
mála í Þorpinu.
Þorpari.
Grasið syngur
eftir Doris Lessing
í tilefni af komu Doris Lessing á
Listahátíð hefur Forlagiö gefið út
fyrstu skáldsögu höfundarins í
þýðingu Birgis Sigurðssonar rit-
höfundar.
Doris Lessing fæddist í Persíu
áriö 1919. Fimm ára gömul flutt-
ist hún með breskum foreldrum
sínum til Suður-Rhódesíu þar
sem hún ólst upp í sveit, líkri
þeirri sem hún lýsir í Grasið
syngur.
Arið 1949 fluttist hún til Eng-
lands og ári síðar kom út fyrsta
skáldsaga hennar sem nú birtist á
íslensku. Grasid syngur vakti
strax mikla athygli og var brátt
þýdd á fjöldamörg tungumál.
Síðan hefur hróður höfundarins
vaxið með hverri nýrri skáldsögu,
sem nú telja tæpa tvo tugi. Doris
Lessing hefur verið sýndur marg-
víslegur sómi fyrir ritstörf sín.
Hún hefur hlotið verðlaun og
viðurkenningar víða um heim og
oftsinnis verið orðuð við Nóbels-
verðlaunin. Hún er nú búsett í
London.
Um efni bókarinnar segir á
kápubaki: „ Grasið syngur er saga
Mary, hvítrar konu í Rhódesíu,
sem kveður tilbreytingarlaust líf í
borginni og hafnar í gæfusnauðu
hjónabandi með bónda
nokkrum. Hún hefur andúð á líf-
inu í sveitinni og lítur niður á þá
innfæddu. Af ofstækisfullri hörku
snýst hún gegn svörtum þjóni sín-
um sem hún bæði laðast að og
fyrirlítur, uns valdið snýst að lok-
um í höndum hennar.... Grasið
syngur vitnar um djúpan mann-
skilning og tilfinningahita þessa
mikla rithöfundar. Doris Lessing
lýsir sambandi hvítra og svartra
af hreinskilni og vægðarleysi en
einstæðri réttlætiskennd.“
Nætursalan Rambó
Verðkönnun Neytendasamtaka Akureyrar og nágrennis
Vörutegundir Algengt verð á höfuðborgar- svæðinu Nafn á búð: Matvöru- markaóurim Nafn á búð: Hagkaup Nafn á búö: ,KEA Hrisalundi Nafn á búð: KEA Svalb.str. Nafn á búö: Svarfdæla- búö Dalvik Nafn á búö: Stjörnu- apótek Nafn á búð: Akyreyrar- apotek Nafn á búð: Dalvíkur- apótek Mismunur kr. Mismunur %
Niveakrem 56 a dós 55-59 kr. 59.50 53.90 xl 59.50 61.20 6Q.Q0 62.00 I ! 8.10 15.0
Colgate fluor tannkrem 75 ml 63 -69 kr. 67.40 63.90 x) 68.40 72.00 68.90 72.00 74.00 1 io.in 15 . R
Signal tannkrem 50 ml 44 -48 kr. 42.70 43.90 39.90 x) 40.20 41.75 44.00 4.10 10.3
Revlon Flex sjampó 200 ml 88-93 kr 96.15 90.90 93.50 97.00 97.00 84.00 91.00 76. nn vi 21.00 27.6
Sunsilk sjampó 130 ml 50-64 kr.
Man flösusjampó 66-77 kr. 75.00 72.90 x 75.10 75.70 2.80 3.8
KopraJ sápusjampó 300 ml 58-62 kr. 52.70 x 1 53.00 53.00 62.00 9.30 17.6
Luxhandsápa 85 CfT 17 kr. 19.10 16.90 16.80 x 1 19.00 17.70 19.00 20.00 3.20 19.0
Gillette rakkrem 100 g túpa 151-161 kr. 132.15 149.00 138.80 137.40 173.00 144.00 112.00x! ) 61.00 54.5
Gillette Contour rakvél 206-219 kr. 232.20 199.00 x) 214.70 220.20 229.00 229.00 245.00 46.00 23.1
Gillette Contour rakblöð 5 stk. 175-190 kr. 169.00 y) 188.70 196.50 190.10 198.00 198.00 29.00 17.2
Jordan tannbursti mjúkur venjul. 67 -77 kr. 74.80 75.00 71.00 75.00 75.00 64 .Ö0x 11.00 17.2
Stay-free dömubindi 10 stk. 63 kr. 64.75 66.90 64.10 70.00 69.20 53,50x1 71.00 17.50 32.7
Camelia 2000 dömubindi 10 stk. 45-49 kr. 46.90 44.80 x) 47.50 45.20 5Q.QQ ,, 49.00 5.20 11.6
Papco salemispappir 2 rúllur í pk. 33-35 kr. 28.60
Serla salemispappír 2 rúllur í pk. 38 kr. 38.90 37.50 33.70 x 5.20 15.4
Kleenex pappírsþ. 100 stk. í pk. llökr. 119.00
Lotus pappírsþ. 100 stk. í pk. 95 kr.
Pampers pappirsbl. 9-18 kg 30 stk. 534-577 kr. 479.00 496.10 592.00 639.00 160.00 33.4
/ samstarfí aðildarfélaga ASÍ, BSRB og NS mun
verð á þessum og fíeiri vörum verða kannað víðs
vegar um landið næstu daga.
rir d
ji 2
r í\fc
xr'
L